Fréttablaðið - 28.02.2009, Page 76
48 28. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
Undirbúningur er nú hafinn fyrir
þátttöku Íslands í heimssýningunni
sem haldinn verður í Sjanghæ að
ári. Upphaflega var áætlað að lagt
yrði í fjárfestingu í sýningarað-
stöðu og rekstri skála þar eystra
fyrir 600 milljónir og þótti mörg-
um nóg um. Nú hefur fjármagn til
íslenska skálans verið skorið niður
í 210 milljónir og er áætlað að ríki
leggi fram 140 milljónir. Auglýst
var eftir hugmyndum að skálan-
um og voru framlagðar hugmynd-
ir nær hundrað. Nokkrum aðilum
var gefinn kostur á frekari kynn-
ingu fyrir fulltrúaráði opinberra
aðila og útflutningsráðs og á end-
anum var tillaga Plús arkitekta og
Saga film valin.
Þema sýningarinnar er borgar-
samfélagið, undir einkunnarorðun-
um „Betri borg, betra líf“. Mark-
miðið með þátttöku Íslands er að
vekja athygli á íslenskri orku og
orkunýtingu, mannauði og menn-
ingu. Jafnhliða verður leitast við
að skapa íslenskum fyrirtækjum
viðskiptatækifæri. Þema Íslands
er „Pure energy, healthy living“.
Heimssýningin er haldin á fimm
ára fresti með þátttöku flestra
ríkja heims og að þessu sinni
er gert ráð fyrir að um 400.000
manns sæki sýninguna daglega.
Expo 2010 er frá maí til októb-
er 2010. Þátttaka Íslands er sam-
starfsverkefni fyrirtækja og hins
opinbera. Verkefnið mun lúta fram-
kvæmdastjórn undir forystu Pét-
urs Ásgeirssonar, skrifstofustjóra í
utanríkisráðuneytinu, skipaðri full-
trúum ráðuneytisins, Útflutnings-
ráðs og Framkvæmdasýslu ríkis-
ins. Framkvæmdastjórnin hefur
samráðshóp sér til fulltingis sem
í sitja fulltrúar stjórnvalda, fyrir-
tækja og hagsmunaaðila. Hreini
Pálssyni, sendiráðsritara í utan-
ríkisráðuneytinu, hefur verið falið
starf framkvæmdastjóra verkefn-
isins. Gunnar Snorri Gunnarsson,
sendiherra Íslands í Peking, verð-
ur tengiliður íslenskra stjórnvalda
gagnvart kínverskum skipuleggj-
endum. Þátttakendur á sýning-
unni eru nú orðnir 231 talsins, þar
af 185 þjóðir.
Af hálfu umsjónaraðila er Páll
Hjalti Hjaltason arkitekt sýningar-
stjóri en með honum starfa Finn-
bogi Pétursson myndlistarmaður,
Ámundi Ámundason hönnuður,
Steinunn Sigurðardóttir hönnuður
og Magnús Viðar Sigurðsson fram-
leiðandi.
Páll segir áherslu lagða á einfald-
leika: við niðurskurð hafi umráðafé
hönnuða verið skorið úr 600 millj-
ónum í 200 og af því fari um 100
milljónir í rekstur skálans. Hann
verði klæddur að utan með segldúk
sem Ámundi Ámundason hanni og
að innan verði myndbandsverk á
lofti og gólfi. Páll segir þrengri
fjárhagsramma hafa neytt menn
til að hugsa á einfaldari nótum og
hann telji það hafa verið til góðs í
pælingum um sýningarútlitið.
Á vefnum Chinatoday halda
kínverskir því fram að þátttaka
Íslands í World Expo-sýningunni
í Sjanghæ á næsta ári muni létta
undir með þjóðinni að vinna sig út
úr núverandi efnahagsörðugleik-
um. pbb@frettabladid.is
Expo í Sjanghæ
MENNING Sýningarskáli Íslands á Heimssýningunni fyrir fjórum árum.
MENNING Páll Hjalti Hjaltason, sýningar-
stjóri íslenska skálans á næsta ári.
Í dag hefst hinn sígildi og árlegi
bókamarkaður Félags íslenskra
bókaútgefenda í Perlunni þar sem
hann hefur verið haldinn nokkur
undanfarin ár.
Bókamarkaðurinn hefur verið
við lýði næstum samfleytt frá því
í lok sjötta áratugar síðustu aldar
og táknmynd hans, glaðbeitti bóka-
karlinn, er greypt í huga íslensks
almennings. Bókamarkaðurinn er
besta tækifæri sem völ er á til að
sjá á einum stað það sem til er af
bókum á íslensku, en í boði eru yfir
10.000 titlar í plastinu. Að auki eru
í boði 10.000 titlar sem seldir eru
af fornbókasölum en sú nýbreytni
hefur verið í boði í fá ár. Úrval
nýlegra bóka sem komið hafa út
á síðustu mánuðum og misserum
hefur einnig aukist til muna og eru
þær allar seldar með að minnsta
kosti 50% afslætti. Bókamarkað-
urinn stendur til sunnudagsins 15.
mars og er opinn daglega frá 10 til
18. - pbb
Bókamarkaður hefst
Á morgun er heimsdagur æsk-
unnar og þá verður margskipt
dagskrá í Hallgrímskirkju á
vegum Listvinafélags kirkjunnar
sem helguð er minningu Sigur-
björns Einarssonar, fyrrum bisk-
ups. Hefst dagskráin kl. 11 með
messu og barnastarfi. Drengja-
kór Reykjavíkur syngur undir
stjórn Friðriks
S. Kristinsson-
ar. Eftir messuna
kl. 14 er dagskrá
í minningu Sig-
urbjörns en hann
þjónaði í sókn-
inni á sínum tíma.
Hamrahlíðar-
kórinn flytur verk
eftir feðginin Þorkel Sigurbjörns-
son og Misti, auk sálma Sigur-
björns undir stjórn Þorgerðar Ing-
ólfsdóttur.
Guðný Einarsdóttir leikur uppá-
haldsverk afa síns, Passacaglia
eftir Bach. Myndlistarsýning
Hörpu Árnadóttur verður opnuð
kl. 15. Skömmu síðar, kl. 15.30,
verður flutt leikgerð Jóns Hjart-
arsonar leikara eftir barnabók
Sigurbjörns. Með honum annast
flutninginn Bernharður Guð-
mundsson og ungir leikarar. - pbb
Sigurbjörns
minnst
MEIRA FYRIR NÁMSMENN! Landsbankinn veitir Námufélögum námsstyrki í tuttugasta sinn. Nánari upplýsingar og
Hart í bak
Þrettándakvöld
Eterinn
Kardemommubærinn
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
Skoppa og Skrítla í söng-leik