Fréttablaðið - 02.03.2009, Blaðsíða 24
16 2. mars 2009 MÁNUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
16
16
L
12
L
L
L
12
L
THE INTERNATIONAL kl. 8 - 10.15
ÆVINTÝRI DESPERAUX kl. 6
HE´S JUST NOT THAT INTO YOU kl. 8
THE PINK PANTHER 2 kl. 6
FANBOYS kl. 10.15
16
L
12
L
L
THE INTERNATIONAL D kl. 8 - 10.30
THE INTERNATIONAL LÚXUS D kl. 5.30 - 8 - 10.30
ÆVINTÝRI DESPERAUX kl. 4 - 6
HE´S JUST NOT THAT INTO YOU kl. 5.15 – 8 – 10.40
THE PINK PANTHER 2 D kl. 4 - 6
FANBOYS kl. 8 -10.10
SKÓGARSTRÍÐ 2 kl. 3.45
VILTU VINNA MILLJARÐ kl. 5.30 - 8 - 10.30
SKOPPA OG SKRÍTLA Í BÍÓ kl. 4
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
16
L
12
14
14
L
THE INTERNATIONAL kl. 5.30 - 9
ÆVINTÝRI DESPERAUX kl. 6
MILK kl. 5.20 - 8 - 10.40
THE WRESTLER kl. 8 - 10.15
THE READER kl. 8 - 10.20
VICKY CRISTINA BARCELONA kl. 5.50
5%
SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000
12
L
12
L
12
L
HE´S JUST NOT THAT INTO YOU kl. 6 - 9
THE PINK PANTHER 2 kl. 6 - 8
FROST/NIXON kl. 5.30 - 10
HOTEL FOR DOGS kl. 5.30
VALKYRIE kl. 9
BRIDE WARS kl. 8 - 10
600kr.
fyrir börn
750kr.
fyrir fullorðna
- S.V., MBL
- L.I.L., TOPP5.-FBL.IS
FRÁBÆR GAMANMYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
- S.V., MBL - E.E., DV
MAGNAÐUR
SPENNUTRYLLLIR MEÐ
CLIVE OWEN OG NAOMI
WATTS Í FANTAFORMI!
BYGGT Á METSÖLUBÓKINNI
CONFESSIONS SHOPAHOLIC kl. 6D - 8:10D - 10:20D L
DEFIANCE kl. 8D - 10:40D 16
BENJAMIN BUTTON kl. 7 - 10:10 7
BLOODY VALANTINE - 3D kl. 6(3D) 16
SHOPAHOLIC kl. 6 - 8 L
CHIHUAHUA kl. 6 L
DEFIANCE kl. 8 16
SHOPAHOLIC kl. 8 - 10:20 L
VILLTU VINNA MILLJARÐ kl. 8 12
FRIDAY THE 13TH kl. 10:20 16
NÝ VINNA...?
VONANDI
NÝR UNNUSTI...?
KANNSKI
NÝTT VESKI...?
ALGJÖRLEGA!
ALLT SEM HÚN ÞRÁÐI VAR BARA SMÁ YFIRDRÁTTUR
91/100
Entertainment Weekly
SHOPAHOLIC kl. 8 - 10:10 L
BRIDE WARS kl. 8 L
FRIDAY THE 13TH kl. 10 16
SHOPAHOLIC kl. 5:50D - 8D - 10:20D L
SHOPAHOLIC kl. 5:50 - 8 - 10:20 VIP
DESPEREAUX m/ísl. tali kl. 5:50 L
DEFIANCE kl. 5:50 - 8:30 16
FRIDAY THE 13TH kl. 10:20 16
CHIHUAHUA m/ísl. tali kl. 5:50 L
BENJAMIN BUTTON kl. 8:30 7
ROLE MODELS kl. 8 - 10:20 12
BEDTIME STORIES kl. 5:50 L
YES MAN kl. 8 7
-Premiere-
- bara lúxus
Sími: 553 2075
ÆVINTÝRI DESPEREAUX kl. 6 - Ísl.tal L
HE’S JUST NOT THAT INTO YOU kl. 5.30, 8 og 10.30 12
THE PINK PANTHER 2 kl. 8 og 10 L
VILLTU VINNA MILLJARÐ kl. 5.45, 8 og 10.15 12
★★★★★
- S.V., MBL
★★★★★
- L.I.L., Topp5.is/FBL
Axl Rose, söngvari Guns N´Ros-
es, líkir fyrrverandi gítarleikara
sveitarinnar, Slash, við krabba-
mein sem þurfi að fjarlægja.
Hann segir litlar líkur á því að
fyrrum meðlimir sveitarinnar
komi aftur saman og að engar
líkur séu á því að hann starfi
aftur með Slash.
„Duff (McKagan, bassaleikari)
gæti kannski spilað á gítar ein-
hvern tímann en það eru engar
líkur á því að ég vilji hafa eitt-
hvað með Slash að gera,“ sagði
Rose. „Í hnotskurn þá finnst mér
hann vera krabbamein sem eigi
að fjarlægja og forðast. Því minna
sem fólk veit af honum eða vinum
hans því betra.“
Til að snúa hnífnum í sárinu
sagði Rose að honum þætti gítar-
leikur Slash ómerkilegur. Hann
hafi misst töfrana og hafi meiri
áhuga á því að „selja sig“ til að
baða sig í sviðsljósinu.
Rose segir að gaman hefði
verið að fá fyrrum gítarleik-
ara sveitarinnar, Izzy Stradlin,
til að spila sem gestur á nokkr-
um tónleikum en bætir við að
hann væri ekki sá áreiðanleg-
asti. Einnig tjáir hann sig um
trommuleikarann Steven Adler,
sem var rekinn fyrir ofnotkun
eiturlyfja árið 1990. Telur hann
litlar líkur á endurkomu hans
því Adler myndi bara siga á hann
lögfræðingum ef honum mislík-
aði eitthvað. Trommarinn höfðaði
á sínum tíma mál gegn sveitinni
vegna vangreiddra höfundarlauna
og vann.
Líkir Slash við krabbamein
AXL ROSE Axl forðast Slash eins og
heitan eldinn og líkir honum við krabba-
mein sem þurfi að fjarlægja.
„Þetta er ótrúleg tilviljun,“ segir
bassaleikarinn Róbert Dan Berg-
mundsson sem spilar á Queen-tón-
leikum í Fífunni 12. mars ásamt
Magna og kór Fjölbrautaskóla Suð-
urlands.
Eftir að hafa rannsakað John
Deacon, bassaleikara Queen, til
að undirbúa sig fyrir tónleikana
komst hann að því að sonur hans
heitir Robert Deacon og ber því
sömu upphafsstafi og hann, R.D.
Ekki nóg með það því þeir eru
jafngamlir upp á dag, báðir fæddir
18. júlí 1975. „Ég var að kynna mér
gæjann og svo rakst ég allt í einu
á þetta,“ segir Róbert Dan. „Þeir
kalla mig alltaf Róbert Deacon hér
eftir, strákarnir í hljómsveitinni,“
segir hann og hlær.
Róbert grennslaðist nánar fyrir
um nafna sinn og komst að því að
hann hefur ekki fetað í fótspor
föður síns og gerst bassaleikari.
„Það væri alveg til að setja punkt-
inn yfir i-ið. Trúlegast er ég bara
týndi sonurinn,“ segir hann í létt-
um dúr.
Eins og flestir áhugamenn um
tónlist hefur Róbert hlustað á
Queen í gegnum árin en aldrei
spáð í bassaleikinn fyrr en nú.
„Þegar ég fór að skoða þetta þá er
þetta trúlega eitt erfiðasta verk-
efni sem ég hef ráðist í,“ segir
hann og nefnir lýsingarorð á borð
við „melódískur“ og „fáránlegur“
um bassaleik Deacons. „Lag eins
og Bicycle Race, þar er ekki þessi
hefðbundni bassi. Það er eins og
annar söngvari sé að verki,“ segir
Róbert Dan „Deacon“. - fb
Týndur sonur Johns Deacon
Rokkóperan !Hero verður
frumsýnd í Loftkastalanum
á föstudagskvöld. Fyrrum
Luxor-söngvarinn Sigur-
sveinn Þór Árnason fer
með aðalhlutverkið en hann
tók óvænt við því af félaga
sínum úr strákasveitinni
sálugu.
„Það var hringt í mig fyrir um það
bil tveimur vikum og spurt hvort
ég gæti verið með,“ segir Sigur-
sveinn Þór Árnason söngvari, eða
Svenni Þór, sem fer með aðalhlut-
verk í rokkóperunni !Hero sem
verður frumsýnd í Loftkastalnum
á föstudagskvöld.
„Það var búið að ráða Edgar
Smára Atlason í hlutverkið, en
hann gat ekki verið með. Þetta var
ákveðið á síðasta ári og fólk komst
inn í gegnum áheyrnarprufur, en
þegar það var haft samband við
mig voru bara um þrjár vikur til
stefnu. Ég náði að finna smá glufu
fyrir þetta og hef bara verið að
æfa frá sjö á kvöldin til miðnætt-
is alla daga og um helgar, síðustu
tvær vikurnar,“ útskýrir Svenni
Þór sem hefur í mörgu að snúast
því hann starfar sem verslunar-
stjóri Dressman í Smáralind og
er í söngnámi í FÍH þar sem hann
tekur fjórðastigspróf eftir páska. Í
maí er hann svo að verða pabbi, en
hann á von á sínu fyrsta barni með
eiginkonu sinni Regínu Ósk Ósk-
arsdóttur söngkonu.
Svenni Þór fer með hlutverk
Hero í söngleiknum sem gerist í
New York borg nútímans, í heimi
þar sem Jesús hefur aldrei lifað.
Hero fer að prédika fyrir borgar-
búum að elska óvini sína og boðar
nýtt líf, en það eru ekki allir til-
búnir að taka fagnaðarerindinu.
Aðspurður segir Svenni söngleik-
inn vera eins konar nútímaútgáfu
af Jesus Christ Superstar. „Tónlist-
in er náttúrulega öðruvísi, en lögin
eru mjög skemmtileg, allt frá rokki
og poppi upp í rapp. Dansarnir eru
líka flottir, svo fólk ætti endilega
að kíkja á þennan nýja söngleik,“
bætir hann við, en miðasala er í
fullum gangi á midi.is.
alma@frettabladid.is
Stökk inn í aðalhlutverkið
!HERO Svenni Þór, fyrrum Luxor söngvari, fer með hlutverk Hero í nýjum söngleik
sem verður frumsýndur í Loftkastalanum á föstudaginn, 6. mars. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
TÝNDI SONURINN? Róbert
Dan (uppi til vinstri) og John
Deacon bassaleikari hljóm-
sveitarinnar Queen.