Fréttablaðið - 02.03.2009, Blaðsíða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Gerðar Kristnýjar
með ánægju
Gatwick
Bandaríkin
Ísland
Mið-Ameríka
Karíbahafið Afríka
Asía
Evrópa
London
Gatwick til
allra átta!
Frá og með 1. maí flytjum við okkur frá Stansted yfir á Gatwick
flugvöll (South terminal). Gatwick er þægilega staðsettur suður af
London og þaðan fljúga flugfélög á borð við easyJet, British Airways
og US Airways til allra heimshorna. Möguleikar á ódýru og fjölbreyttu
tengiflugi verða þá enn fleiri fyrir hagsýna og ævintýragjarna
ferðalanga.
Kynntu þér Gatwick og bókaðu flug á frábæru verði á
www.icelandexpress.is
www.gatwickairport.com
Bókaðu
tengiflug!
Frá
1. maí
2009
Opið 07 til 02
Lyfja Lágmúla
- Lifið heil
www.lyfja.is
Mikið var gaman að Kate Wins-let skyldi fá Óskarinn. Hún
á metið í tilnefningum miðað við
aldur, 33 ára og komin með sex.
Samt ákvað fréttastofa Ríkissjón-
varpsins að þegja bæði yfir henni
og Penelope Cruz og sagði bara frá
körlunum sem fengu óskara fyrir
leikstjórn, aðal- og aukaleik. Ég
varð því að fara inn á youtube til
að sjá Kate halda þá alskemmtileg-
ustu ræðu sem flutt hefur verið af
þessu tilefni. Samt var gleði mín
ekki fölskvalaus því á meðal þeirra
sem birtust uppi á sviði með Kate
var Shirley MacLaine.
Þessi snjalla leikkona bland-ast inn í fáránlegustu mistök
sem ég hef gert í blaðamennsku
og þar sem nú er runninn upp
tími játninga læt ég hana flakka.
Allir þurfa að hafa hreinan skjöld
þegar stigið verður frá borði á
strönd Nýja-Íslands. Nema hvað,
ég fékk veður af því að kunningi
minn hefði lánað manni nokkrum
jeppann sinn til að fara á Snæfells-
nes að skoða geimverur með Shir-
ley MacLaine. Og ef það var ekki
frétt! Þegar ég loks náði sambandi
við ferðafélagann var leikkonan
farin úr landi. Maðurinn var samt
viðtalsefni og ég hélt á hans fund.
Eftir að hafa rabbað saman um listsköpun hans og áhuga
á geimverum spurði ég um hana
Shirley. Ég fann fljótlega að hann
vildi ekki tala mikið um þessa
frægu vinkonu sína og reyndi því
að fara fínlega í þær spurningar.
Ég bar líka virðingu fyrir því að
maðurinn skyldi vilja sýna vin-
konu sinni trúnað og ekki vera
með neitt gaspur. Þó fékk ég það
upp úr honum að þetta væri ágæt-
is manneskja og þetta væri ekki í
fyrsta sinn sem hún kæmi hingað
til lands. Ég var nokkuð upp með
mér að geta verið fyrst til að segja
frá þessum nýja Íslandsvini.
Með viðtalinu var birt mynd af Shirley MacLaine þar sem
hún sést dragfrín á leiðinni í ein-
hverja veisluna í Hollywood. Ekki
leið á löngu þar til viðmælandi
minn hringdi. Viðtalið hafði komið
honum nokkuð á óvart, enda hafði
hann aldrei verið þeirrar gæfu
njótandi að fá að hitta stjörnuna
frægu. Ferðafélagi hans og sam-
eiginleg áhugamanneskja um
geimverur var áströlsk og hét
Shirley MacLean eða eitthvað
álíka. „Ég skildi heldur ekkert
hvers vegna þú hafðir svona mik-
inn áhuga á henni,“ sagði maður-
inn. Og ég auðvitað ekki heldur.
Þarna höfðum við þá setið saman
og talað sitt í hvora áttina eins og
tvær geimverur.
Shirley MacLa-
ine á Íslandi
Í dag er mánudagurinn 2. mars,
61. dagur ársins.
8.31 13.40 18.49
8.20 13.25 18.30