Fréttablaðið - 02.03.2009, Blaðsíða 12
12 2. mars 2009 MÁNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug
við andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, sonar, föður, tengdaföður og afa
Sigbjörns Gunnarssonar
sveitarstjóra.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki lyflækninga-
deilda Sjúkrahússins á Akureyri fyrir einstaka umönn-
un og Valgerði Valgarðsdóttur djákna fyrir elskusemi í
okkar garð. Guð veri með ykkur öllum.
Guðbjörg Þorvaldsdóttir
Guðrún Sigbjörnsdóttir
Hildur Björk Sigbjörnsdóttir Stefán Geir Árnason
Guðrún Ýr Sigbjörnsdóttir Magnús Jónsson
Þorvaldur Makan Sigbjörnsson Katrín Jónsdóttir
Rósa María Sigbjörnsdóttir
Björn Þór Sigbjörnsson Ástríður Þórðardóttir
Jökull Starri, Sölvi, Egill Darri, Hrafnhildur Ýr, Eva María
og Auður Ýr.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Laufey Torfadóttir
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Grund, Landakotsdeild
aðfaranótt 27. febrúar. Útförin verður auglýst síðar.
Guðrún G. Bergmann
Guðni Guðjónsson Hrafnhildur Steingrímsdóttir
Hermann Guðjónsson Guðný Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Ólöf Jóhannsdóttir
áður til heimilis Álfaskeiði 64,
sem lést á Sólvangi 23. febrúar sl., verður jarðsett frá
Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 3. mars kl. 13.00.
Ingi J. Marinósson
Erla Eiríksdóttir Sigurður Hallgrímsson
Eiríkur Sigurðsson Elva Guðmundsdóttir
Guðríður S. Weiss Manfred Weiss
Ólöf Sigurðardóttir Már Sigurðsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Kristján Björnsson
efnaverkfræðingur, Skólabraut 3,
Seltjarnarnesi,
lést á Landspítalanum Hringbraut fimmtudaginn
26. febrúar.
Lovísa H. Björnsson
Árni Gunnarsson Daniela Ilea Gunnarsson
Rannveig Gunnarsdóttir Tryggvi Pálsson
Sigurjón Gunnarsson Sigríður Olgeisdóttir
Gunnar Örn Gunnarsson Olga Bergljót Þorleifsdóttir
Halldór Gunnarsson Anna Persson
Þórarinn Gunnarsson Berglind Garðarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Regína Jónsdóttir
Lilla, Merkigili 26, Akureyri,
sem lést mánudaginn 23. febrúar á Sjúkrahúsinu á
Akureyri verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 3. mars kl. 13.30.
Regína Hákonardóttir Gunnar Sveinarsson
Ingibjörg Fanney Hákonar. Óli Rúnar Ólafsson
Helga María Stefánsdóttir Ásmundur Guðjónsson
barnabörn og langömmubörn.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettab-
ladid.is eða hringja í síma 512 5000.
MERKISATBURÐIR
1825 Fyrsta óperan sungin op-
inberlega á ensku í New
York.
1923 Tímaritið Time gefið út í
fyrsta sinn.
1927 Babe Ruth verður hæst
launaði hafnaboltaspilari
sögunnar.
1956 Bandarísk herflutninga-
vél með sautján mönn-
um hrapar í sjóinn út af
Reykjanesi.
1957 Heilsuverndarstöðin í
Reykjavík vígð.
1970 Ródesía verður sjálfstætt
ríki.
1977 Jay Leno birtist í fyrsta
sinn í Tonight Show, með
stjórnandanum Johnny
Carson.
1982 Bíóhöllin í Mjódd hefur
starfsemi, með sex sýn-
ingarsali.
JON BON JOVI ER 47 ÁRA
„Trúðu á ástina. Trúðu á
töfra. Trúðu líka á jólasvein-
inn. Hafðu trú á öðrum og trú
á sjálfum þér. Trúðu á drauma
þína. Því hver annar ætti að
gera það ef ekki þú sjálfur?“
Ítalsk-ameríski rokkarinn Jon Bon
Jovi sló í gegn með hljómsveitinni
Bon Jovi í kjölfar plötunnar Slipp-
ery When Wet árið 1986.
Fyrsta loftárásin á íslenskt skip í seinni heims-
styrjöldinni var gerð 2. mars fyrir 69 árum.
Þá var togarinn Sku-
tull frá Ísafirði á siglingu
í Norðursjó, skammt á
undan breskri skipalest.
Þótt togarinn væri
með fullum siglingaljós-
um, til merkis um að
hann væri frá hlutlausri
þjóð, varpaði þýsk flugvél
að honum sprengju, og
skaut hún einnig úr vél-
byssum í átt til hans.
Ekkert af þessu hæfði
þó Skutul og þegar þýska
herflugvélin bjó sig undir
aðra árás á ísfirsku sjómennina komu tvær
breskar orrustuvélar úr háloftunum og hröktu
Þjóðverjana á brott. Skemmdir urðu því engar á
togaranum Skutli og ekki varð heldur manntjón
um borð.
Þetta var fyrsta loft-
árásin af mörgum á ís-
lensk skip á stríðsárun-
um, en einnig var ráð-
ist að þeim úr kafbátum
í undirdjúpunum. Í síð-
ari heimsstyrjöldinni
felldu Þjóðverjar tugi ís-
lenskra sjómanna á hafi
úti með árásum sínum,
þótt fólk í landi yrði ekki
fyrir miklum skakkaföll-
um af þeirra hendi. Á
sama tíma fórst fjöldi út-
lenskra skipa við Ísland, bæði eftir loftárásir sem
og í hrakningum og fárviðrum.
ÞETTA GERÐIST: 2. MARS 1940
Herflugvél ræðst á ísfirskan togara
„Ég er algjör gæfumanneskja og
þótt stundum fari eitthvað úrskeiðis
hef ég valið að fara brosandi í gegn-
um lífið,“ segir afmælisbarn dags-
ins, Ilmur María Stefánsdóttir mynd-
listarkona. Ilmur er fædd í bítlabæn-
um Keflavík veturinn 1969, en segist
skorta almennan íþróttaáhuga Kefl-
víkinga til að vera sönn sem slík, auk
þess sem hún átti aldrei bleikan jogg-
inggalla eins og jafnöldrur hennar á
þeim árum.
„Ellefu ára flutti ég til Reykjavíkur
og féll þá betur í fjöldann,“ segir Ilmur
og minnist dagsins þegar hún stóð á
tvítugu. „Þá fékk ég gamaldags, svart-
hvíta og ógnarstóra ljósmynd af vinum
mínum Evu Maríu Jónsdóttur, Nönnu
Hlíf Ingvadóttur og Jóni Gauta Jóns-
syni í Charleston-kjólum og smóking
við fornan flygil, alveg ægilega flott.
Ég hafði frekar átt von á mynd af
sjálfri mér, en með gjöfinni tryggðu
þau að ég skyldi muna hverjir væru
bestir vina,“ segir Ilmur brosmild, en
árum saman dröslaðist hún með mynd-
ina á milli heimila sinna. „Mér þótti
vænt um þessa mynd þótt baklandið
væri spaugilegt, en seinna hvarf hún
á dularfullan hátt og hefur ekki sést
síðan.“
Ilmur segist samviskusamlega hafa
haldið upp á afmælisdag sinn, þar til
fyrir sjö árum að hún eignaðist dreng
tveimur dögum fyrr. „Síðan hef ég
leyft honum að njóta síns afmælis-
dags, staðráðin í að halda mitt tveim-
ur dögum síðar, en þá er helst að ég
skelli í lummur og láti boð út ganga að
ég standi við stóna. Það er einfalt, utan
hvað maður þarf sífellt að hræra í nýtt
deig og baka meira, en mér finnst það
persónulegra en að láta stjana við mig
á veitingahúsi og vil miklu frekar vera
þræll míns eigin afmælis,“ segir Ilmur
kát í bragði.
Hún segir góða tilfinningu að standa
á fertugu. „Mér finnst það góð áminn-
ing um að halda áfram á sömu braut
og halda mínu striki. Ég hef því tekið
tímamótaákvörðun um að halda áfram
að mæta of seint alls staðar, brjóta
ekki saman þvottinn, búa áfram til
myndlist og leikhús, og vera ég sjálf
með kostum og göllum. Ég gerði það
sem mig dreymdi að gera, að læra
myndlist, og var seinna með afbrigð-
um dugleg að hlaða niður börnum, sem
ég er ótrúlega hamingjusöm með, því
nú á ég fjögur. Það hefði verið gaman
að læra meira á hljóðfæri, en ég svala
tónlistarþránni með frumstæðri hljóð-
færasmíð, eins og físibelgjum og orgel-
pípum sem mér tekst að ná lagstúf úr,“
segir Ilmur og þvertekur fyrir að nú
taki seinni helmingur lífsins við.
„Ég sé rosalega möguleika í fram-
tíðinni og finnst ég eiga óskaplega
mikið og langt eftir. Ég er ánægð að
geta haldið áfram að vera barn og upp-
lifi lífið æ skemmtilegra eftir því sem
ég verð eldri. Ég legg mig fram um að
njóta hvers dags, bæði í starfi sem og
heima, því það er svo óviðjafnanlega
gaman er að vera svona mörg. Ég er
galsafull og líður vel þar sem er erill
og líf, og finnst gott að eiga barnunga
dansfélaga í stofunni, þótt vitaskuld sé
fjölskyldustreðið á köflum erfitt líka,
eins og lífið sjálft. Ég finn bara að ég á
mér yndislegar kringumstæður.“
Aðspurð, og bjartsýn um að þre-
menningarnir úr tvítugsafmælinu lesi
greinina, segist Ilmur óska sér gjafa-
ferðar á myndlistartvíæringinn í Fen-
eyjum með sínum heittelskaða.
„Í framtíðinni ætla ég svo að gera
enn meira af því sem ég kann ekki,
þori ekki og veit ekkert um, því
þannig held ég áfram að bæta við
sjálfa mig. Það upplifi ég sem sterk-
asta framvinduaflið og mest spenn-
andi ögrunina.“ thordis@frettabladid.is
ILMUR MARÍA STEFÁNSDÓTTIR MYNDLISTARKONA: FÆDD FYRIR FJÖRUTÍU ÁRUM
Er þræll síns eigin afmælis
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
GALSAFULL GÆFUMANNESKJA Ilmur
framan við listaverk á vegg húss hennar
eftir graffítilistamenn úr nágrenninu.
Í augum Ilmar sýnir verkið eiginmann
hennar, Val Frey Einarsson leikara, orðinn
gamlan mann á veiðum í baðkari.