Fréttablaðið - 02.03.2009, Síða 32

Fréttablaðið - 02.03.2009, Síða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Gerðar Kristnýjar með ánægju Gatwick Bandaríkin Ísland Mið-Ameríka Karíbahafið Afríka Asía Evrópa London Gatwick til allra átta! Frá og með 1. maí flytjum við okkur frá Stansted yfir á Gatwick flugvöll (South terminal). Gatwick er þægilega staðsettur suður af London og þaðan fljúga flugfélög á borð við easyJet, British Airways og US Airways til allra heimshorna. Möguleikar á ódýru og fjölbreyttu tengiflugi verða þá enn fleiri fyrir hagsýna og ævintýragjarna ferðalanga. Kynntu þér Gatwick og bókaðu flug á frábæru verði á www.icelandexpress.is www.gatwickairport.com Bókaðu tengiflug! Frá 1. maí 2009 Opið 07 til 02 Lyfja Lágmúla - Lifið heil www.lyfja.is Mikið var gaman að Kate Wins-let skyldi fá Óskarinn. Hún á metið í tilnefningum miðað við aldur, 33 ára og komin með sex. Samt ákvað fréttastofa Ríkissjón- varpsins að þegja bæði yfir henni og Penelope Cruz og sagði bara frá körlunum sem fengu óskara fyrir leikstjórn, aðal- og aukaleik. Ég varð því að fara inn á youtube til að sjá Kate halda þá alskemmtileg- ustu ræðu sem flutt hefur verið af þessu tilefni. Samt var gleði mín ekki fölskvalaus því á meðal þeirra sem birtust uppi á sviði með Kate var Shirley MacLaine. Þessi snjalla leikkona bland-ast inn í fáránlegustu mistök sem ég hef gert í blaðamennsku og þar sem nú er runninn upp tími játninga læt ég hana flakka. Allir þurfa að hafa hreinan skjöld þegar stigið verður frá borði á strönd Nýja-Íslands. Nema hvað, ég fékk veður af því að kunningi minn hefði lánað manni nokkrum jeppann sinn til að fara á Snæfells- nes að skoða geimverur með Shir- ley MacLaine. Og ef það var ekki frétt! Þegar ég loks náði sambandi við ferðafélagann var leikkonan farin úr landi. Maðurinn var samt viðtalsefni og ég hélt á hans fund. Eftir að hafa rabbað saman um listsköpun hans og áhuga á geimverum spurði ég um hana Shirley. Ég fann fljótlega að hann vildi ekki tala mikið um þessa frægu vinkonu sína og reyndi því að fara fínlega í þær spurningar. Ég bar líka virðingu fyrir því að maðurinn skyldi vilja sýna vin- konu sinni trúnað og ekki vera með neitt gaspur. Þó fékk ég það upp úr honum að þetta væri ágæt- is manneskja og þetta væri ekki í fyrsta sinn sem hún kæmi hingað til lands. Ég var nokkuð upp með mér að geta verið fyrst til að segja frá þessum nýja Íslandsvini. Með viðtalinu var birt mynd af Shirley MacLaine þar sem hún sést dragfrín á leiðinni í ein- hverja veisluna í Hollywood. Ekki leið á löngu þar til viðmælandi minn hringdi. Viðtalið hafði komið honum nokkuð á óvart, enda hafði hann aldrei verið þeirrar gæfu njótandi að fá að hitta stjörnuna frægu. Ferðafélagi hans og sam- eiginleg áhugamanneskja um geimverur var áströlsk og hét Shirley MacLean eða eitthvað álíka. „Ég skildi heldur ekkert hvers vegna þú hafðir svona mik- inn áhuga á henni,“ sagði maður- inn. Og ég auðvitað ekki heldur. Þarna höfðum við þá setið saman og talað sitt í hvora áttina eins og tvær geimverur. Shirley MacLa- ine á Íslandi Í dag er mánudagurinn 2. mars, 61. dagur ársins. 8.31 13.40 18.49 8.20 13.25 18.30

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.