Tíminn - 08.01.1993, Qupperneq 2
2 Tíminn
Föstudagur 8. janúar 1993
„Siðleysi í viðskiptum yfirgengilegt,“ segir forstjóri Héðins hf.
Tap vegna gjaldþrota annarra
numið þreföldu aðstöðugjaldi
„Siöleysi í viöskiptum er yfirgengilegt og oft mætti ætla aö fagleg ráögjöf
bjóðist viö undanskot fjármuna." Þetta sagði Sverrir Sveinsson, forstjóri
Héðins hf., m.a. í viðtali sem fréttabréf FÍI átti við hann í tilefni af því að
70 ár eru frá stofnun Vélsmiðjunnar Héðins. Að sögn Sverris hefur Héðinn
hf. mjög orðið fyrir barðinu á gjaldþrotum annarra. Tap af þeim sökum hafí
síðustu árin numið um 3— 4% af um 700 m. kr. veltu fyrirtækisins, sem
þá þýðir tapaðar kröfur á bilinu 21 til 28 m. kr.
Virðist sérlega umhugsunarvert, að
þama er um að ræða þrefalda þá
upphæð, 8—9 m. kr., sem Héðinn
hf. borgaði í aðstöðugjald á síðasta
ári.
Sárast þykir Sverri að fyritæki skuli
tapa fé vegna óheiðarleika eftir lang-
varandi aðgerðir til innheimtu, sök-
um þess yfirgengilega siðleysis sem
viðgengst í viðskiptum, sem virðist
fara vaxandi. Sverrir segist því mið-
ur óttast að gjaldþrotum fyrirtækja
linni ekki á næstunni. Framundan
hljóti að vera vaxandi samdráttur í
byggingariðnaði og gífurleg gjald-
þrot. Og ekki sýnist ástandið gæfu-
legra í fiskiðnaðinum. Að mati
Sverris þyrfti löggjafinn að ganga
fram fyrir skjöldu og setja lög um
lágmarks eigið fé fyrirtækja, til þess
að fá að standa í rekstri, eins og
raunar tíðkist víðast hvar nema á ís-
landi og í Argentínu.
„Þetta gildir um tryggingafélög í
dag. Við sjáum t.d. þau skilyrði sem
Skandíu var sett um lágmarks eigið
Starfsmannafélagið Sókn segir upp kjarasamningi í kjölfar síendurtekinna árása
ríkisvaldsins á hendur láglaunafólki:
Skorað á þingmenn að
leita annarra leiða
Á fjölmennum félagsfundi í Starfs-
mannafélaginu Sókn, var samþykkt
með öllum greiddum atkvæðum
gegn einu að segja upp gildandi
kjarasamningi í kjölfar síendurtek-
inna árása ríkisvaldsins á hendur
láglaunafólki.
Jafnframt skorar fundurinn á þing-
menn að leita annarra leiða út úr
fjárhagsvanda ríkissjóðs en í vasa
Iáglaunafólks, sjúklinga og öryrkja.
Einnig mótmælir Sókn því harðlega
að á sama tíma og tekjur almenns
launafólks dragast saman vegna
minnkandi atvinnu, er auknum
álögum skellt á það, en ýmsum
sköttum og skyldum aflétt af fyrir-
tækjum og fjármagnseigendum
„sem er hrein móðgun við launa-
fólk.“
Þá minnir fundurinn þingmenn á
að þeir voru kosnir m.a. vegna lof-
orða um hækkun persónuafsláttar
og til að bæta hag kjósenda en ekki á
þeim forsendum að vera sífellt að
auka almennar álögur á þá í formi
gengisfellingar, skattahækkana,
hækkun matvara og virðisauka-
skatts á húshitun, bækur, tímarit og
fleira, hækkun bensíns- og bifreiða-
gjalds, lyfja-, læknis-, tannlækninga-
og vaxtakostnaðar, lækkun persónu-
afsláttar, bama- og vaxtabóta og nið-
urskurðar í velferðarkerfinu.
Ennfremur minnir fundurinn þing-
menn á að með þjóðarsáttarsamn-
ingnum 1990 og miðlunartillögu
ríkissáttasemjara frá því í fyrra,
færði almennt launafólk miklar
fórnir til að ná niður verðbólgu,
vöxtum og verðlagi. Sá stöðugleiki
gaf atvinnurekendum, ríkisvaldi og
sveitarfélögum færi á að styrkja
stöðu sína en með aðgerðum ríkis-
valdsins undanfarin misseri telur
Sókn að búið sé að brjóta allar for-
sendur þjóðarsáttar á bak aftur.
-grh
Rjúpna- og gæsaveiðum lokið. Enn má þó veiða:
mm r æt um m m m
Nu ma ondin fara
að gæta að sér
Að loknum rjúpna- og gæsaveið-
um, er önd veiðifugl margra skot-
veiðimanna. „Það beinast öll spjót
að öndunum á næstunni. Það er
enginn alvöm veiðimaður nema
hann geri einhveijar tilraunir til að
ná önd,“ segir Sverrir Schewing
Thorsteinsson, varaformaður
Skotveiðifélags fslands.
Andaveiðitími stendur til 31.
mars og eru stokkendur aðalveiði-
fuglinn að sögn Sverris en alls er
heimilt að veiða 8 andategundir.
Hann segir að aðalveiðisvæðin séu
opin vötn og kaldár sem ekki
frjósa. Jafnframt bendir hann á að
fjörur séu vinsælar veiðilendur.
„Þctta er mjög spennandi veiði því
þær eru mjög styggar og snöggar á
loft. Þær þeytast nánast lóðrétt til
flugs," segir Sverrir og bætir við að
mikia leikni þurfi tO að ná önd á
flugi. Það er greinilegt að Sverrir
telur að andaveiði sé ómaksins
virðL „Ég tek önd fram yfír margt
annað. Grilluð stokkandarbrínga er
stórkostleg á bragðið,“ segir Sverr-
ir.
Hann segir að víðast hvar sé mik-
ið af stokkönd. „Hún er tíl í ríkum
mæli um allan hnöttinn og er ein-
hver alstærsti andastofnlnn. Það er
mikið af önd f Borgarfirðinum og
Húnavatnssýslu,“ segir Sverrir.
Að sögn Sverrís eru miklu færri
sem stunda veiðar á önd en rjúpu.
Hann er ekki viss um ástæðu þessa
en telur Sítið veiðisvæði hugsanlega
skýringo. Þessu til viðbótar nefnir
Sverrír að landeigendur séu ófúsari
að leyfa veiðar á önd í iandareign-
um Bínum og telur þær að ein-
hverju leyti bændum hjartfólgnari
en önnur bráð.
Sverrir er ekki viss um hversu
margir stunda þessar veiðar en tel-
ur að nokkrir tugir manna sæki
mlkið í cndur en þó ckki í atvinnu-
skynl.
Sverrir telur að endur séu með
fallegri fuglum og tll marks um
það sækist fluguhnýtingamenn
mjög eftir ijöðrum þeirra.
-HÞ
fé. Þetta held ég að ætti að vera al-
mennt með önnur fyrirtæki líka. Ég
held að það veitti ekkert af að koma
á slíkri löggjöf hér á Iandi,“ sagði
Sverrir. Þetta myndi t.d. koma í veg
fyrir þá viðskiptahætti sem hér virð-
ast tíðkast í vaxandi mæli, að menn
geti bara skipt um nafn á fallítt fyrir-
tækjum sínum og þannig í raun
komist upp með að gera sama fyrir-
tækið gjaldþrota trekk í trekk á
skömmum tíma. Það vekur athygli,
að ártuga hefð er fyrir því að stjóm
Héðins hf. væri eingöngu skipuð
konum. Það var fyrst á aðalfundi
1991 að þessu var breytt í Jafnrétti-
sátt“, eins og Sveinn orðar það.
Tveir karlar voru þá kjörnir í fimm
manna stjóm fyrirtækisins — þann-
ig að konur em þó ennþá í meiri-
hluta.
- HEI
Verölaunahafar í samkeppni um uppskriftir fyrir tilbúna rétti úr
lambakjöti. Frá vinstri: Bjarki I. Hilrnarsson, Sigfríö Þórisdóttir og
Walter Riedel.
Minningarsjóður dr. Halldórs Pálssonar búnaðarmálastjóra:
Níu tilbúnir
kjötréttir
verðlaunaðir
Nýlega var veitt fé úr minningar-
sjóði dr. Halldórs Pálssonar, fyrrum
búnaðarmálastjóra. Aö þessu sinni
voru verðlaunaðar uppskriftir fyrir
tilbúna rétti úr lambakjöti. Með
verðlaunaveitingunni vonast sjóðs-
stjóm eftir að þetta framtak stuðli
að vöruþróun og sölu lambakjöts.
Stjóm minningarsjóðsins efndi til
samkeppni um besta tilbúna réttinn
úr lambakjöti í samvinnu við Sam-
starfshóp um sölu lambakjöts. Alls
barst 21 uppskrift og valdi dómnefnd
9 þeirra í úrslit.
I flokki grillrétta sigraði marinerað
lamb sem Bjarki I. Hilmarsson mat-
bjó. í öðru sæti varð lambavöðvi með
fjallajurtum sem Walter Riedel mat-
bjó og í þriðja sæti varð Hawaii læri-
sneiðar, sömuleiðis eftir Walter Rie-
del.
í flokki filmupakkaðra rétta sigraði
einnig réttur eftir Bjarka I. Hilmars-
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar taka gildi:
Barnafólkið að byrja að borga
Mæðra- og feðralaun lækka um
75% með einu barni og ríflega
50% með tveimur, þremur eða
fleiri börnum. Meðlag hækkar, börn
og elli-og örorkulífeyrisþegar þurfa
að greiða fjórðung af tannlækna-
þjónustu.
Þetta kemur m.a. til framkvæmda
með breytingu á almannatrygging-
um sem liður í aðgerðum ríkis-
stjómarinnar í ársbyrjun. í frétt frá
Tryggingastofnun kemur fram að
mæðra- og feðralaun verða nú kr.
1.000 á mánuði vegna eins barns
(voru 4.732), kr. 5.000 vegna tveggja
barna (voru kr.12.398) og kr. 10.800
vegna þriggja bama eða fleiri (vom
21.991).
Þá kemur fram að barnalífeyrir og
meðlag hækki úr 7.551 kr. í 10.300
kr. með einu barni á mánuði. Jafn-
framt segir að böm og unglingar 15
ára og yngri, greiði nú fjórðung
kostnaðar við allar tannlækningar
að undanskildum gullfyllingum,
krónu- og brúargerð auk tannrétt-
inga. Þó skulu þau eiga kost á einni
skoðun á ári hjá tannlækni sér að
kostnaðarlausu.
Þau greiddu áður 15% og fyrir-
byggjandi aðgerðir voru þeim að
kostnaðarlausu.
Þá er greint frá því að elli- og ör-
orkulífeyrisþegar, sem njóta fúllrar
tekjutryggingar, greiða fjórðung
kostnaðar vegna tannlækninga og
gervitanna. Þessi kostnaður var áð-
ur endurgreiddur að fullu. Þeir sem
njóta skertrar tekjutryggingar
greiða helming tannlæknakostnað-
ar en greiddu áður fjórðung. Þeir
sem ekki njóta tekjutryggingar
greiða tannlæknakostnað að fullu
en greiddu áður helming. -HÞ
son, þ.e. lamb í karrý. í öðru sæti
lenti íslands-pottur sem Sigfríð Þór-
isdóttir matbjó og í þriðja sæti lenti
austurlenskt lamb sem Bjarki mat-
bjó.
í flokki tilbúinna rétta f kjötborði
lenti Creole pottréttur eftir Sigfríði
Þórisdóttur í fyrsta sæti. í öðru sæti
lenti Indverskt lamb eftir Walter Rie-
del og í þriðja sæti lenti Chili Con
Carne (mexíkanskur pottréttur) eftir
Sigfríði Þórisdóttur.
Fyrir rétt í fyrsta sæti voru veittar
80.000 kr. í verðlaun, 40.000 kr. fyrir
rétt í öðm sæti og 20.000 kr. fyrir
rétt í þriðja sæti. Verðlaunaféð var
því alls 420 þúsund krónur.
Minningarsjóðurinn var stofnaður
1987 í lok alþjóðlegs fræðafundar
um sauðíjárrækt sem haldinn var til
minningar um dr. Halldór Pálsson,
en hann var meðal fremstu braut-
ryðjenda í heiminum í rannsóknum
á vexti og kjötgæðum sauðfjár og
mótaði öðrum fremur rannsóknir og
leiðbeiningar í íslenskri sauðfjárrækt
um langt árabil.
Sjóðnum er ætlað að stuðla að
hvers kyns framförum í sauðfjár-
rækt, vinnslu sauðfjárafurða og sölu
þeirra. Framlög skulu einkum veitt
til námsstyrkja, rannsókna og vöru-
þróunar eða til verðlauna fyrir fram-
úrskarandi árangur á ofangreindum
sviðum.
Ýmis félög og stofnanir og einstak-
lingar lögðu fram stofnfé og var
fyrsta úthlutun 1990 vegna kaupa á
fyrstu ómsjánni hér á landi til kjöt-
rannsókna.
-EÓ