Tíminn - 08.01.1993, Blaðsíða 3
Föstudagur 8. janúar 1993
Tíminn 3
Fjarkennsiunám Kennaraháskólans fer fram við tölvusamskipti. Þórir Óiafsson
Hið fyrsta sinnar
tegundar í Evrópu
Þessa dagana eru 83 nemendor aö
faefja svo kallað fjarkennslunám í
Kennaraháskóla Ísíands. „Þetta er í
fyrsta sfdpti f Evrópu sero töfvu-
samskipti eru notuð víð kennara-
náro,“ segfr Þórir Ólafsson rektor
skólans og á faar við íslenska
menntanetið.
Þórir segir nemendur geta Íokið
fullgifdu 90 eininga háskólanámi
eftir þrjú og faáift ár og útskrifast
væntanlega sumarið 1996.
Um tilhögun námsins segir Þórir
að afloknum tíu daga námstíma nú,
haldi hver nemandi tíl síns heima
og stundi námið þaðan með stuðn-
mgi frá heimaskóla og fræðsluskrif-
stofum. Hann segtí að þetta sé fyrst
og fremst mögulegt vegna tilkomu
íslenska menntanetsins. „Það er
mjög mikðvægur Iiður í þessu
núna. Það á að tryggja hverjom
nemenda aðgang að tölvu og þar
með tenglngu belnt við okkur og
bókasafnið,“ segir Þórir. Hann
nefnir sem dæmi að nemendur getí
flett upp í bókasafni skólans í gegn-
um tölvu og einnig f eriendum
bókasöfnum og prentað út heima
hjá sér athyglisverðar greinar.
„Þetta er bylting í allri upplýsinga-
öflun,“ segir Þórir. Þá segír hann að
jafnframt geti nemendur unnið
saman að verkefnum og haft sam-
skipti sín á milli
Hann segtí að mikill áhugi sé fyrir
þessu námi og til marks um það
hafi um 200 nemendur sótt um
inngöngu. Nær altir þeirra koma frá
landsbyggðinni eða 81 og því séu
Nemendur í Kennaraháskólanum leita nú þekkingar f erlendum bókasöfnum og gagnamiðstöðv-
um með hjálp frá tölvum. Timamynd Aml BJama.
aðeins 2 höfuðborgarbúar meðal Nemendur af Suðurlandi eru 13 og í almennu kennaranámí. „Stórhluti
nemanna að sögn Þóris. 6 koma frá Vesturiandi, en aðeins þetíra er við kennslu og sérstaklega
Þá vekur athygli að hlutfallslega ftórtí eru firá Reykjanesi og 2 úr fólldð í dreifbýlinu," segir Þórir.
flesttí þátttakendur koma frá svæð- Reykjavík. Hann segir það að visu ekki algilt og
um þar sem oft hefúr gengið erfið- Þórtí segtí að stúdentspróf eða nefntí nokkur dæmi um húsfreyjur
lega að ráða kennara. Þannig eru 20 hliðsætt nám sé inntökuskilyrði í af bændabýlum sem séu í húpi nem-
nemendur frá Vestfjörðum, 16 frá námið. Hann segir að flestir nem- enda. „Þetta er ekki fuHorölð fólk
Austflörðum, 12 ftá Norðuriandi endanna hafl elnhverja kennslu- og ætíi meðalaldur þess sé ekki
vestraog lOfráNorðuriandiEystra. reynslu eins og jafiiframt nemendur undir 30 ára aldri," segir Þórtí. -HÞ
Fulltrúa Kvennalistans meinað
að leggja fram bókun í um-
ferðarnefnd Reykjavíkur:
Vék
af
fundi
Fulltrúi Kvennalistans í um-
feröarnefnd borgarinnar vék af
fundi nefndarinnar 17. desem-
ber s.l. í mótmælaskyni eftir
aö Haraldur Blöndal formaður
nefndarinnar hafði hafnað
beiðni um bókun. Borgarráð
hefur nú ályktað að taka eigi
málið aftur á dagskrá.
Fulltrúi Kvennalistans mun hafa
lagt fram fyrirspurn um það hvort
tekist hefði að laga alla svokallaða
svartbletti sem ákveðið hefði verið
að laga á árinu.
Fulltrúinn vildi láta bóka fáein at-
riði sem ekki höfðu komið til fram-
kvæmda þrátt fyrir að vera á áætl-
un.
Margrét Sæmundsdóttir er full-
trúi Kvennalistans í nefndinni.
Hún vildi ekki tjá sig um málið að
svo stöddu þar sem verið væri að
leita sátta. Ekki náðist í Harald
Blöndal, formann nefndarinnar, í
gær. í fundargerð umferðarnefnd-
ar segir að formaðurinn hafi hafn-
að því að bókun yrði lögð fram, þar
sem hún væri ekki í samræmi við
sveitarstjórnarlög og fundarsköp
Reykjavíkurborgar.
Þykir það horfa nokkuð undarlega
við þar sem í 41. grein sveitastjórn-
arlaga segir að þeir sem eigi rétt á
að taka þátt í sveitarstjórn og
nefndum, eigi rétt á að fá bókaðar
stuttar athugasemdir sínar um af-
stöðu til þeirra mála sem eru til
umræðu.
-HÞ
Stéttarsamband bænda vísa á bug kröfu forsætisráðherra um að hækkun búvara
verði dregin til baka og spyrja:
Eiga olíufélögin að taka
á sig hækkun bensíngjalds?
Steingrímur Hermannsson
talaði einn fýrir hönd Fram-
sóknarflokks um EES við
þriöju umræðu:
Ekki
ágreining-
ur um
hver tal-
aði
„Okkur þykir nauðsynlegt að Stein-
grímur getí gert góða grein fyrir
málinu sem formaður flokksins og
hafl jafnframt tækifæri til að svara.
Ég er búinn að tjá mig ítarlega í
þessu máli og búinn að koma sjónar-
miðum mínum á framfæri með skil-
merkilegum hættí. Ég þarf ekkert að
gera það frekar á þessum vettvangi,"
sagði Halfdór Ásgrímsson, varafor-
maður Framsóknarflokksins, um þá
ákvörðun þingflokks framsóknar-
manna að Steingrímur Hermanns-
son talaði einn fyrir hönd flokksins
við lokaumræðu um EES-samning-
inn.
Það vakti athygli að Steingrímur
talaði einn fyrir hönd flokksins við
þriðju umræðu um EES-samning-
inn í gærkvöldi. Sú skoðun hefur
heyrst að þingmönnum flokksins
sem sitja hjá við atkvæðagreiðslu
um samninginn, hafi verið meinað
að tala við umræðuna. Halldór
sagði þetta alrangt. „Það verður
aldrei tekið málfrelsi af einum né
neinum sem á Alþingi íslendinga
starfar. Það var alger einhugur í
þingflokknum um að sá takmarkaði
umræðutími sem var við þriðju
umræðu, yrði notaður af formanni
flokksins," sagði Halldór. EÓ
„Það er ekki að ástæðulausu að
nauðsynlegt reyndist að hækka verð
fyrrgreindra búvara (eggja, kjúk-
linga, svína- og nautakjöts). Ahrif
gengisfellingar í nóvember sl. á
fóðurverð og lækkun endur-
greiðslna á virðisaukaskatti eru
beinar afleiðingar af aðgerðum
stjómvalda. Tal forsætisráðherra
og viðskiptaráðherra um að fram-
leiðendur geti tekið á sig hluta
þessara hækkana er því einkenni-
legt.
Hefur ríkisstjórnin t.d. farið fram á
að olíufélögin tækju á sig hækkanir
bensíngjalds? Voru bankar landsins
ekki að hækka vexti? Ekki taka þeir
á sig kostnað vegna hærri verð-
bólgu."
Þetta segir m.a. í yfirlýsingu sem
Stéttarsamband bænda sendi frá sér
í gær vegna ummæla forsætisráð-
herra og viðskiptaráðherra í fjöl-
miðlum um hækkun á búvörum, en
þeir hafa krafist þess að verðhækk-
anirnar verði teknar aftur að hluta
til þar sem útreikningar að baki
þeim séu rangir.
Stéttarsambandið tekur fram að
verðhækkanir á fyrrgreindum bú-
vörutegundum (nema svínakjöti)
voru ákveðnar af sexmannanefnd
(egg og kjúklingar) og af fimm-
mannanefnd (nautakjöt og hrossa-
kjöt). í sexmannanefnd sitji 3 full-
trúar framleiðenda, 2 fulltrúar ASÍ
og 1 fulltrúi BSRB. í fimmmanna-
nefnd sitji 2 fulltrúar afurðastöðva,
1 fulltrúi ASÍ, 1 fulltrúi BSRB og
verðlagsstjóri.
Stéttarsambandið segir rangt að
ágreiningur sé á milli framleiðenda
og landbúnaðarráðuneytisins um
hækkunarþörfina.
Þá tekur Stéttarsambandið fram að
fulltrúar bænda hafi alla tíð tekið
fram að hluti verðhækkunar sé til
kominn vegna uppsafnaðra áhrifa
frá gengisfellingunni í nóvember.
Það eigi þó ekki við um nautakjötið.
Hækkun þess megi að öllu leyti
rekja til lækkunar endurgreiðslna á
virðisaukaskatti.
-EÓ
Flugleiðir hækkuðu
flugfargjöld um 4%
Um nýliðin áramót hækkuðu innan-
landsfargjöld Flugleiða um 4,2% og
á milli landa um 4%. Ástæðan er
sögð vera að hluta til vegna 6%
gengisfellingar krónunnar í nóvem-
ber síðastliðnum, og að öðru leyti
vegna kostnaðarhækkana sem orðið
hafa.
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, segir að hækkunin á inn-
anlandsfargjöldum hefði verið sam-
þykkt hjá Verðlagsráði og millilanda-
hækkunin hjá samgönguráðuneyt-
inu.
Hann segir að flugfargjöld innan
Evrópu séu almennt ekki að lækka
nema síður sé: „Það hafa orðið hækk-
anir annars staðar." Einar segir að
það sem hefur verið í fréttum um far-
gjaldalækkanir SAS og Lufthansa,
séu lækkanir í einhverjum tilteknum
fargjaldaflokki á einhverjum tiltekn-
um fjölda sæta sem verður að seljast
fyrir ákveðinn tíma og ferðast verði
einnig fyrir einhvem ákveðinn tíma.
„Þetta eru ekki almennar fargjalda-
lækkanir heldur útsölulækkanir til
að kveikja í markaðinum."
Blaðafulltrúi Flugleiða segir enn-
fremur að hjá öðrum áætlunarflugfé-
lögum í Evrópu greiði meirihluti far-
þeganna í mörgum tilfellum fullt far-
gjald á sama tíma og aðeins innan við
10% farþega Flugleiða í millilanda-
flugi, greiði fullt fargjald en obbinn
sé á afsláttarfargjöldu.,1.
Aðspurður um þróunina framundan
í flugfargjöldum sagði Einar Sig-
urðsson að félagið myndi keppast nú
sem endranær við að bjóða viðskipta-
vinum sínum lág fjargjöld. Hins veg-
ar væru framundan samningar um
kaup og kjör þannig að framtíðin
myndi ráðast að miklu leyti við
samningaborðið í ljósi þess að 30% af
útgjöldum félagsins vætu launa-
greiðslur.
-grh