Tíminn - 08.01.1993, Síða 8
8 Tíminn
Föstudagur 8. janúar 1993
Nýárshappdrætti
Framsóknarflokksins 1993
Dregiö var í Nýárshappdrætti Framsóknarflokksins 6. janúar
1993. Vinningsnúmer eru sem hér segir:
1. vinningur nr. 12274
2. vinningur nr. 31527
3. vinningur nr. 37245
4. vinningur nr. 13827
5. vinningur nr. 32296
6. vinningur nr. 34595
7. vinningur nr. 1444
8. vinningur nr. 29884
9. vinningur nr. 7932
10. vinningur nr. 22700
11. vinningur nr. 4607
12. vinningur nr. 5839
13. vinningur nr. 21649
14. vinningur nr. 703
15. vinningurnr. 17415
Ógreiddir miðar eru ógildir. Vinnings skal vitja innan árs frá út-
drætti. Frekari upplýsingar eru veittar í síma 91-28408 og
91-624480.
Framsóknarflokkurinn
Jólaalmanak SUF
Eftirfarandi númer hafa hloBð vinning I jólaalmanaki SUF:
l.desemben 525, 3570. 2. desemben 3686, 1673. 3. desember: 4141,1878.
4. desemben 1484, 2428. 5. desemben 683, 3056. 6. desember: 5403, 2389.
7. desemben 3952, 5514. 8. desemben 4342, 4341. 9. desember: 4340, 5169.
10. desemben 5060, 289.11. desemben 1162,1601. 12. desemben 1235, 522.
13. desemben 4723, 2429 14. desemben 288,2834. 15. desember: 1334, 4711.
16. desemben 2833, 4710 17. desember: 3672,1605. 18. desember: 3235,4148.
19. desemben 3243, 2497. 20. desemben 1629,1879. 21. desember: 1676,1409.
22. desemben 1473, 3436. 23. desember. 2832, 2731. 24. desember: 4915, 3527.
Nýárshappdrætti
Framsóknarflokksins
Dregið verður I nýárshappdrætti Framsóknarflokksins 6. janúar 1993. Velunnarar
flokksins eru hvattir Bl að greiða heimsenda glróseðla fyrir þann tlma.
Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða i slma 91- 28408 eða 91-
624480.
Óskum velunnurum okkar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum
stuðninginn á árinu sem er að liöa.
Framsóknarflokkurínn
Kópavogur—
Framsóknarvist
Spilum framsóknarvist ao Digranesvegi 12 sunnudaginn 10. janúar kl. 15.00.
Góð verölaun og kaffiveitingar.
Freyja
Félagsvist á Hvolsvelli
Spilum 10. og 24. janúar kl. 21.00.
Framsóknarfélag Rangárvallasýslu
Þjóðmálanefnd SUF
Fundur verður haldinn i þjóðmálanefnd SUF, þriðjudaginn 12. janúar n.k. kl. 17.00
að HafnarsBæti 20 (3. hæð). Fundarefni: Lánasjóður íslenskra námsmanna.
Auglýsing um
fasteignagjöld
Lokið er álagningu fasteignagjalda i Reykjavík árið 1993 og
veröa álagningarseölar sendir út næstu daga ásamt gíróseðl-
um vegna fyrstu greiöslu gjaldanna.
Gjalddagar fasteignagjalda eru 15. janúar, 1. mars og 15. april.
Gjöldin eru innheimt af Gjaldheimtunni í Reykjavik, en einnig
er hægt að greiða gíróseðlana í næsta banka, sparisjóði eða
pósthúsi.
Skráningardeild fasteigna, Skúlatúni 2, veitir upplýsingar um
álagningu gjaldanna, simi 632520.
Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar, sem fengu lækkun á fast-
eignaskatti á liðnu ári, hafa fengið hlutfallslega lækkun fyrir ár-
ið 1992. Framtalsnefnd mun yfirfara framtöl gjaldenda þegar
þau liggja fyrir, væntanlega i mars- eða aprilmánuöi, og úr-
skurða endanlega um breytingar á fasteignaskattinum, m.a.
hjá þeim sem ekki hafa þegar fengið lækkun, en eiga rétt á
henni samkvæmt þeim reglum sem borgarstjórn setur, sbr. 4.
mgr. 5. gr. I. nr. 90/1990 um tekjustofna sveitarfélaga. Verður
viðkomandi tilkynnt um niðurstöðu, ef um breytingu veröur að
ræða.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
5. janúar 1993.
Guðmundur S.M. Jónasson
varaformaður Félags járniðnaðarmanna
Fæddur 5. desember 1931
Dáinn 31. desember 1992
Algerlega óvænt barst undirrituð-
um andlátsfregn Guðmundar Stef-
áns Mildenberg Jónassonar vél-
smiðs, sem lést 31. desember s.l.
Hann var fæddur 5. des. 1931. Guð-
mundur var mætur félagi og vinur
undirritaðs og náinn samstarfsmað-
ur frá mars 1973 til 1989, eða í rúm-
lega sextán ár. Guðmundur var
hreinskiptinn dugnaðarmaður, sem
rækti störf sín af alúð, atorku og
samviskusemi, með hliðsjón af fé-
lagslegum markmiðum og viðhorf-
um.
Guðmundur hefur í tveggja ára-
tuga starfi, unnið mikið og gott starf
í þágu Félags jámiðnaðarmanna og
félagsmanna þess og áunnið sér
stuðning og traust þeirra.
Meginverkefni Guðmundar sem
starfsmanns félagsins, hefur verið
fjármálaumsýsla og er það eitt ærið
og nægilegt verkefni hverjum
manni. Auk þess hefur hann unnið
mikið og vel að öðrum þáttum í fé-
lagsstarfinu.
Guðm'indur S.M. Jónasson var
fæddur í Hnífsdal og ólst þar upp.
Hann stundaði nám við Iðnskólann í
Reykjavík og Vélskóla Fiskifélags ís-
lands og verklegt iðnnám í vélsmíði
hjá Vélsmiðjunni Héðni h.f. 1954-
1958. Guðmundur var vélstjóri á
fiskiskipum 1960-1968 og einnig
vann hann sem vélsmiður hjá Vél-
smiðjunni Héðni 1968-1973. Hann
var ráðinn starfsmaður Félags járn-
iðnaðarmanna frá 1. mars 1973 og
hefur hann einnig átt sæti í stjórn
félagsins sama tímabil, 1973-1992.
Einnig hefur Guðmundur verið í
miðstjórn Málm- og skipasmiða-
sambands íslands og í stjórn Lífeyr-
issjóðs málm- og skipasmiða.
Foreldrar Guðmundar: Jónas Þórð-
arson frá Vogum við ísafjarðardjúp,
smiður í Hnífsdal, látinn 1965, og
Sigríður Magnúsdóttir, húsmóðir og
verkakona. Sigríður varð níræð 11.
júlí s.l. Guðmundur hefur hugsað
vel um móður sína og stutt hana há-
aldraða. Allir, sem til þekkja, vita
hversu vel Guðmundur hefur hugs-
að um móður sína og meta hann fyr-
ir umhyggju hans við hana.
Guðmundur Jónasson kvæntist 29.
ágúst 1959 Hallfríði P. Ólafsdóttur,
tannsmið og bankaritara. Foreldrar
Hallfríðar, Olafur Pétursson og Sig-
ríður Samúelsdóttir, eru bæði látin.
Börn Hallfríðar og Guðmundar eru
þrjú: Ægir Jens, fæddur 30. nóv.
1959; Jónas Þröstur, fæddur 8. jan.
1962; og Sigríður Hrund, fædd 6.
júní 1965.
Systur Guðmundar eru Fanney
Sigrún, Hulda Maggey Soffía, Jóna
Kristín og Guðrún Þórhildur Björg.
Nú, þegar Guðmundur S.M. Jónas-
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNIBÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
son er allur, þakka félagar og sam-
starfsmenn honum fyrir óeigin-
gjarnt starf og félagslega afstöðu til
málefna.
Hugheilar samúðarkveðjur til Hall-
fríðar, eiginkonu Guðmundar, og
barna þeirra og fjölskyldna.
Guðjón Jónsson
jámsmiður
Vinur okkar, Guðmundur S.M. Jón-
asson, varð bráðkvaddur á gamlárs-
dag, aðeins 61 árs gamall.
Það er alltaf mikil eftirsjá í góðum
mönnum eins og Guðmundi. Hann
var greindur maður og skemmtileg-
ur, glaður í viðmóti og glettinn vel á
góðum stundum. Hjálpsamur var
hann og traustur og reyndist mörg-
um vel. Guðmundur var sérlega
barngóður og börn hændust mjög
að honum hvar sem hann fór. Okkar
börn nutu þess, og þó sérstaklega
dótturdóttir okkar, sem var hjá þeim
sín fyrstu æviár og þau hjónin
reyndust henni framúrskarandi vel,
eins og bestu foreldrar.
Guðmundur fæddist 5. desember
1931 í Hnífsdal. Foreldrar hans voru
hjónin Sigríður Magnúsdóttir og
Jónas Þórðarson. Guðmundur ólst
upp í Hnífsdal ásamt systrum sínum
fjórum.
Hann fór ungur að árum í Iðnskól-
ann og lauk þar námi með glæsi-
brag. A þeim árum vann Guðmund-
ur allmörg ár í Vélsmiðjunni Héðni
og þar lauk hann námi í vélsmíði.
Hann vann síðan nokkur ár sem vél-
stjóri á fiskiskipum. En lengst var
hann svo starfsmaður hjá Félagi
járniðnaðarmanna og lengst af þeim
tíma í stjórn félagsins. Alls mun
hann hafa unnið þar um tuttugu ár,
eða þar til kaliið kom.
Guðmundur kvæntist Hallfríði P.
Ólafsdóttur frá Vonarlandi við ísa-
fjarðardjúp árið 1959. Þeirra sam-
búð hefur verið til fyrirmyndar og
fannst okkur oftlega að þau væru
eins og nýtrúlofuð, líka áratugum
síðar.
Þau hjónin eiga miklu bamaláni að
fagna, eignuðust þrjú böm. Þau eru,
talin eftir aldri: Ægir Jens, kvæntur
Lindu Brá Hafsteinsdóttur, þeirra
sonur: Bergsteinn Dagur. Jónas
Þröstur, í sambúð með Þóru Bryn-
dísi Ámadóttur. Þau eiga soninn
Jónatan Þór og dótturina Stefaníu
Karitas. Sigríður Hmnd, er í sam-
búð með Reyni Amberg Guðlaugs-
syni.
Okkur finnst samband fjölskyld-
unnar allrar hlýlegt og gæti verið
öðmm fyrirmynd í blíðu og stríðu.
Þau Guðmundur og Hallfríður áttu
sitt heimili að mestu á tveimur stöð-
um: á Hraunteigi 22 í Reykjavík í
rúman áratug, og Borgarholtsbraut
35 í Kópavogi rúm tuttugu ár.
Eins og eðlilegt er, urðu mjög náin
kynni milli fjölskyldna okkar, þar
sem eiginkonurnar em systur. Og
fyrir þessi góðu kynni emm við
hjónin mjög þakklát og böm okkar
og barnabarn.
Við eigum skemmtilegar og góðar
minningar úr mörgum ferðum um
okkar fagra land. Við höfum heim-
sótt flestar byggðir í öllum lands-
fjórðungum. Einnig höfum við ferð-
ast örlítið um hálendi Iandsins. Árið
1975 fómm við hringveginn, feng-
um dásamlegt veður og hittum
marga ættingja og vini og sú ferð
verður æði minnisstæð.
Og eins fómm við í ferð til Noregs,
sem varð mjög lærdómsrík,
skemmtileg og minnisverð.
Oftsinnis var okkur boðið í sumar-
hús, sem þau Ieigðu hjá Félagi járn-
iðnaðarmanna. Og margar vom
gönguferðirnar í sól og regni — en
alltaf góðu veðri.
Að leiðarlokum þökkum við hjónin
margar ógleymanlegar stundir og
elskuleg kynni.
Við þökkum sérstaklega fyrir
barnabarnið.
Við vottum góðri eiginkonu, böm-
um þeirra, tengdabörnum og barna-
börnum, svo og aldraðri móður
hans og systmm, einlæga samúð.
Hanna og Gísli
Nú er skarð fyrir skildi
Heyrist í fjarska hófadynur,
helreiðin þar fer um garð.
Fallinn í valinn traustur vinur,
í vamir okkar rofið skarð.
Skammdegisaftan í mánans merli
minningu föður sonurinn glæddi.
Við ástvinar leiði einn á ferli
örlögum sínum mætti og kvaddi.
Afmælis- og
minningar-
greinar
Þeim, sem óska birtingar á
afmælis- og/eða minningar-
greinum í blaðinu, er bent á, að
þær þurfa að berast a.m.k. tveimur
dögum fyrir birtingardag.
Þoer þurfa að vera vélritaðar.
Ekki fyrr en yfir dynur
okkur skilst hvað er að missa.
Fallinn er einn fagur hlynur,
fölnuð laufhans moldu kyssa.
Kærleikann afokkar kynnum
kært er mér að geyma í muna.
Sorgina ávallt sárast Fmnum,
sem við fáum ekki að gruna.
Vináttu okkar, sem væmm bræður,
vil ég út yfir gröfina þreyja.
En örlögum sínum enginn ræður,
okkur er öllum skapað að deyja.
Vinur minn, nú þegar vegir skilja
vináttu þína mérþakka ber.
Af göfuglyndi og góðum vilja,
gafstu mér mikið af sjálfum þér.
Leitt er þegar leiðir skilja,
ég lifi í þeirri trú og von
að geta hitt þig, guðs með vilja,
Guðmundur S.M. Jónasson.
Sár er viðskilnaður, vinur,
vandfyllt er í rofið skarð.
Heyrðist í fjarska hófadynur,
helreiðin þar fór um garð.
Þinn vinur,
Kristinn Karlsson