Tíminn - 31.03.1993, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 31. mars 1993
Ætli menn að skera niður fjármagn til íbúðakaupa svo raunhæft sé, þyrfti líka að takmarka banka og lífeyrissjóði:
Húsbréfakerfið þróast
eins og reiknað var með
„Ef farið verður í slík afskipti af húsbréfakerfinu, sem annað hvort fælust
þá í takmörkun á útgáfu húsbréfa eða að lánsupphæðir yrðu skornar enn
frekar niöur, þá sé ég ekki annað en að við færum aftur í gamla farveginn.
Þetta mundi varla leiða til þess að fólk hætti við íbúðakaup, heldur auka á
ný eftirspum eftir lífeyrisjóðslánum og bankalánum tíl íbúðakaupa," sagði
Sigurður Ceirsson, framkvæmdastjóri húsbréfadeildar Húsnæðisstofnun-
ar.
En Tíminn bar undir hann enn
eina hvatninguna frá Seðlabanka til
ríkisvaldsins, að íhuga framkvæmd
húsbréfakerfisins með tilliti til
áhrifa þess á vaxtaþróun í landinu.
Enda framboð húsbréfa ráðið mestu
um vaxtastigið undanfarin tvö ár.
,Ætli menn að skera niður Qár-
magn til íbúðakaupa, svo raunhæft
sé, þá þyrfti í rauninni líka að setja
takmarkanir á lífeyrissjóðina og
einnig bankakerfið. Og okkar
reynsla hefur verið sú, að þegar fólk
fjármagnar íbúðakaup í auknum
mæli með lánum frá lífeyrissjóðum
og bönkum þá hefur það mjög oft
viljað enda með því að það lendir í
greiðsluvanda," segir Sigurður.
Hann segir ekki nýtt að þeir í
Seðlabankanum líti á húsbréfin sem
alvald íslenskra fjármála. En ef litið
sé á markaðinn í heild þá eru hús-
bréf á markaði þó ekki nema kring-
um 1/5 hluti, en ríkisskuldabréf og
ríkisvíxlar nærri tvöfalt stærri hluti.
,Jlanni finnst því ekki alveg í takti,
að ein eining sem er aðeins um 20%
markaðarins skuli talin ráða mark-
aðnum“. Sigurður segir það vel geta
farið svo að Húsnæðisstofnun fari
að nýta heimild sína til að starfa
sem viðskiptavaki á markaðnum og
eiga sjálf viðskipti með húsbréf,
bæði kaup og sölu. Með því móti
geti stofnunin dregið nokkuð úr
framboði á markaðnum, og létt að-
eins á honum til að halda ávöxtun-
arkröfu niðri. Nýjustu áætlun um
útstreymi húsbréfa á þessu ári, seg-
ir Sigurður í kringum 10,5 millj-
arða. Þau bréf fari samt ekki öll á
markað. Síðan verði á það að líta, að
stofnunin komi til með að innleysa
húsbréf upp á 2,1 milljarð á þessu
ári, sem þar með séu tekin af mark-
aðnum aftur. Nettó útsteymi hús-
bréfa frá stofnuninni sé því ekki
nema um 8,5 milljarðar á þessu ári.
Það sé verulega, eða í kring um 3
milljörðum, minna en í fyrra. Sig-
urður segir heldur hafa dregið úr
afgreiðslu húsbréfa vegna íbúða-
kaupa/bygginga fyrstu mánuði
þessa árs miðað við sama tíma í
fyrra. Nýjustu áætlanir bendi til að
afgreidd húsbréf á þessu ári verði
um hálfum milljarði undir þeim 11
milljörðum sem lánsfjárlög gera ráð
fyrir á þessu ári.
Þótt afgreiðslur vegna notaðra
íbúða séu um 14% færri nú en í
fyrra megi ekki draga of miklar
ályktanir af því. Því innkomnar um-
sóknir hafi nú verið 5% fleiri en
sömu mánuði í fyrra, þannig að
talsvert hafi greinilega komið inn af
umsóknum sem einhverjar athuga-
semdir hafi verið gerðar við. Endan-
leg fækkun verði því tæpast 14%.
Nýbyggingarlánum hefúr hins veg-
ar fækkað verulega. Afgreiðslum
vegna nýbygginga hefur fækkað um
16% og umsóknum ennþá meira,
eða um 21% m.v. sömu mánuði í
fyrra.
„Við erum ennþá þeirrar skoðunar
að upphaflegu áætlanimar komi til
með að fara nokkuð nærri lagi yfir
árið í heild,“ sagði Sigurður. Búast
megi við aukningu þegar líður á ár-
ið, á sama hátt og gerðist fyrra.
Enda aðstæður nokkuð svipaðar.
Kjarasamningar hafi þá verið lausir
í byrjun árs, óvissa í samningsumr-
æðum, rætt um verkföll og því um
líkt. Núna séum við á svipuðu tíma-
bili. „Það er ekkert sem er að koma
okkur á óvart. Þróunin hefur verið
eins og reiknað var með í upphafi og
spár gengu út á. Kerfið er núna að
aðlaga sig og byrja að komast í það
jafnvægi sem reiknað hefur verið
með. Það var vitað mál að útstreym-
ið yrði mikið í upphafi. Núna er
kerfið að byrja á að laga sig að því
sem það á að vera; að hluta til útgáfa
nýrra húsbréfa, að hluta til yfirtaka
(endurgreiðsla) á eldri bréfum. Ég á
því ekki von á að við sjáum aftur
neitt svipaðar (útlána)tölur og í
upphafi fyrr en íslendingar verða
orðnir alímiklu fleiri en þeir eru
nú,“ sagði Sigurður Geirsson. - HEI
Kennarar fá stuðning frá forseta íslands í
launabaráttunni í viðtali við Ný menntamál:
„Laun kenn-
ara eru þjóð-
inni til vansa“
„Allur stuðningur verður að liði og
auðvitað hlýtur maður að vænta
þess að sá stuðningur sem kemur
frá forseta þjóðarinnar, verði okkur
ekki síður að liði en annar stuðn-
ingur, nema kannski frekar,“ segir
Svanhildur Kaaber, formaður Kenn-
arasambands íslands.
Kennarar fá heldur betur góðan
stuðning í launabaráttunni frá for-
seta íslands, frú Vigdísi Finnboga-
dóttir, í viðtali við Ný menntamál,
tímarit Bandalags kennarafélaga.
Þar segir frú Vigdís að „laun kennara
séu þjóðinni til vansa" og að „kenn-
arar eigi að vera mjög vel launaðir."
Að mati forsetans á kennarastarfið
að vera „eftirsóknarvert af bestu fá-
anlegum mönnum, í því felst þjóðar-
hagurinn." Að sama skapi telur frú
Vigdís að kennarastarfið sé meðal
þeirra „mikilvægustu í þjóðfélaginu,
vinnu þeirra ber að sýna virðingu."
Svanhildur Kaaber, formaður KÍ,
segir að þessi stuðningur forsetans
sé afar gleðilegur en út af fyrir sig
ekki óvæntur, þar sem hún hefur
ævinlegt stutt afskaplega vel við það
sem verið er að vinna að í skólum og
með böm.
Þessu til staðfestingar vfsar for-
maður KÍ til nýársávarpa forsetans á
síðastliðnum árum þar sem fram
hefur komið stuðningur hennar við
menntun og uppeldi og þá ekki síst
við kennarastéttina.
,Að því leyti get ég ekki sagt að ég
sé hissa á því að sjá þessi orð forset-
ans, en að sjálfsögðu afar glöð
hvernig þau koma fram og hversu
mikils hún metur það sem unnið er
að í skólum landsins."
Sveinn Bjömsson forsetaritari
sagðist aðspurður ekki geta svarað
því hvort aðrir hópar launafólks
gætu vænst þess að fá stuðning frá
forseta íslands í launabaráttu sinni
eins og kennarar, en spumingunni
yrði komið á framfæri við frú Vig-
dísi. -grh
Framsóknarflokkurinn vegna lóðaúthlutunar til
Brimborgar:
Hafnar skipti-
myntarharki
„Framsóknarflokkurinn hafnar
því að lóðir og lóðaúthlutanir
séu notaðar sem skiptimynt þeg-
ar stjórnendum borgarinnar
hentar,“ segir í bókun Sigrúnar
Magnúsdóttur, borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins, á borgar-
ráðsfundi í gær. Ástæðan er sú að
íyrirtækið Brimborg vill nú
kaupa hús og lóð slökkviliðsins
við Bfldshöfða 1 en var níunda í
röðinni í útboði fyrir rúmu ári.
Eins og kunnugt er var lóð fyr-
irtækisins Brimborgar að Suður-
landsbraut 56 tekin af því þar
sem rökstuddur grunur lék á því
að ekki væri ætlunin að byggja á
lóðinni heldur selja hana þess í
stað. Nú hóta forsvarsmenn
Brimborgar lögbanni á fram-
kvæmdir á þessari Ióð nema þeir
fái eignina að Bfldshöfða 1 á því
verði sem þeir buðu á sínum
tíma þ.e. rúmum 17 millj. kr.
„Ég tel að okkur hafí verið ljóst
þegar lóðin að Suðurlandsbraut
var tekin af Brimborg, að það
gæti leitt til málaferla. Það þótti
jafnvel æskilegt að fá úrskurð
dómsstóla um slík ágreinings-
mál hjá borginni.
Bfldshöfða 1 á að bjóða út aftur
eins og samþykkt liggur fyrir
um,“ segir einnig í bókun Sig-
rúnar.
Á fundi borgarráðs var málinu
frestað og er það á dagskrá borg-
arstjórnar fimmtudaginn kemur.
fslendingar eru hrifnir af tyrkneskum barnafötum. Rósa Hansen sem
rekur barnafataverslun með tyrkneskan barnafatnað fer ekki varhluta
„Tyrknesk fatahönnun byggir á
margra alda hefö og iandinn hefur
sýnt þcssari sérstöku vöru mikinn
áhnga," segir Rósa Hansen sem
opnaói nýlega verslun með tyric-
nesk bamafdt Hún er systír Sop-
hiu Hansen og hefur ekki farið var-
hluta af gróusögum sem segja m.a.
að með verslunarrekstrinum viti
fólk hvert söfnunarféð fór f lands-
söfnuninni „Börain heim“. „Þetta
gerist þrátt fyrir að Landsbankinn
sé fiárgæsluaðill söfnunarinnar,“
Rósa opnaði nýlega versiun sem
heitir „Brosandi fólk“ og þar er
eingongu til söiu tyrkneskur bama-
fatnaður. Undanfari þessara við-
skipta voru fíölmargar ferðir sem
hún fór með systur sinni til Tyrk-
lands til að styðja vð baláð á henni
eins og hún kemst að orði. Það varð
henni samt dýrkeyptur stuðningur
því að f kjöifarið misstí hún vinn-
una en Rósa er menntaður fótað-
gcröar- og snyrtífræðingur.
Það fór samt ekki hjá því að ein-
hver ávinningur fylgdi samt stöð-
ugum ferðum tii Tyridands. „Þá
tók ég eftir því hversu falleg og
gæðaieg tyricnesk baraafdt em og
vissi að það er erfltt að fá slíkan
fatnað hér á landi nema sérsaumað-
an,“ seglr Rósa.
Hún segir tyrknesk bamafdt vera
tburðarmeiri en íslendingar eigi að
venjast „Þau byggjast á margra
alda hefð og em mjög iistræn og
skrautieg án þess að skera sig úr
hvað varðar aiþjóðiegan fatnað,“
bætir hún við og álítur Týrid mjög
seglr landann sýna hor.um miklnn áhuga
Tfmamynd Ami Bjama
Það hefúr samt ekki farið hljótt
um þennan versiunarrekstur Rósu
og illt umtal og kjaftasögur hafa
m.a. einkennt umræðuna. „Þessar
kjaftasögur hafa aðaliega verið á
þeim nótum að Sophiaeigi verslun-
ina og nú viti fólk hvert sÖfnunar-
féð hafl farið. Fólk virðist ekki gera
sér grein fyrir því að Landsbanbi ís-
iands er fíárgæsiuaðili framlag-
anna. Með þessum lgaftasögum er
verið að segja að bankinn standi sig
ekki sem fjárgæsiuaðili," segir
Rósa. Hún segist ýta þessum sögu-
sögnum frá sér. „Ef ég væri að velta
mér upp úr þessu gæti ég ekki
komið öllu því f verk sem ég þarf að
gera dag hvem,“ bætir hún við.
Þessi viðskipti Rósu hafa jafn-
framt valdð athygli og umfal af öðr-
um toga. Margir hafa furðað sig á
að Rósa skuii sldpta við Tyrki þrátt
fyrir harða forræðisdeiiu systur
bennar þar í iandí. Rósa telur að
þessi viðskiptl efli þvert á mótí bar-
áttuna í forræðismálinu. „Halim
Al, bamsfaðtr stúlknanna, hefur í
málfiutningi sínum lagt áherslu á
að undirrót forræðismálsins sé
óbeit á tyrknesku þjóðinni sem
miði að því að dætur Sophiu alist
ekki upp þar í Iandí, Með verslunar-
rekstrinum sýnum við óbeint fram
á að við höfum ekkert nema gott
um þjóðina að segja en stöndum
hins vegar i baráttu við sjúkan
mann. Það er hvorki í gangl trúar-
stríð né heldur efnahagslegt, and-
legt eða siðferöílegt strið. Þetta er
emgöngu beiðarleg barátta fjöl-
skyldu fyrir tveimur fitlum stúlk-
um sem hefur verið misboðið gróf-
lega af föður sínum, sem vili þann-
ig til að er Týrki,“ segir Rósa.
Hún bætir við að lyridr séu al-
mennt hjartahlýir og aiveg sérstak-
lega gestiisnir. „Ég er heílluð af
landl og þjóð og við systumar höf-
um eignast marga góða vini á ferð-
um okkar tíl lyrídands,** sagði
Rósa að iokum. -HÞ