Tíminn - 31.03.1993, Side 3
Miðvikudagur31. mars 1993
3
Teikningin sýnir m.a. náttúrufræðahúsið og skipulag fríðlandsins eins og menn hugsa sér að það
gæti litið út í framtíðinni.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að verja 130 milljónum í byggingu húss
yfir Norrænu eldljallastöðina:
Náttúrufræðahús byggt
í Vatnsmýrinni 1995
Ríkisstjórain hefur ákveðið að veita 130 milljónum til byggingar húss yfir
Norrænu eldijallastöðina. Húsið verður hluti af húsi yfir líffræðideild og
jarðfræðideild Háskóla íslands sem byggt verður í Vatnsmýrinni, austan við
Norræna húsið. Þessi ákvörðun stjómvalda er talin flýta því að ráðist verði
I byggingu þessa húss, sem kallað hefur verið náttúrufræðahús.
Bygging yfir líffræðideild Háskól-
ans er efst á forgangslista byggingar-
sjóðs Háskólans og hús yfir jarð-
fræðideildina kemur þar fljótlega á
eftir. Líffræðideildin er í dag í óhent-
ugu leiguhúsnæði við Grensásveg,
fjarri háskólasvæðinu. Sveinbjöm
Bjömsson háskólarektor sagði að
ákvörðun stjómvalda geri það að
verkum að hægt verði að hefja bygg-
JVeð aðlöguninni að EES er á
meðvitaðan hátt verið að búa til
svipað atvinnuleysi hér og er f
fkstum löndum Evrópu," segir
m.a. í ályktunum og tiliögum
trúnaðarmannaráðs fyrir aðal-
fnnd Starfsmannafélags rikis-
stofnana. Þar tr stjóm SFR hvött
til að vinna að því að efla verka-
lýðshreyfinguna t.d. með auknu
samstarfi við önnur verkalýðsfé-
lög, svo hún sé betur i stakk búin
til að takast á við aukinn sfyrir at-
vinnurekenda og ríkisvald.
í áiyktunum og tiUðgum trúnað-
annannaráðsins er þess krafist að
dregið verðl skipulega úr atvinnu-
leysinu og því útrýmt á næstu
mánuðum. Atvinnuleysið striðir
gegn aUri skynsemi og Uekkar
þjóöartekjur, auk þess sem það er
brot á mannréttindum að neita
þeim sem vilja, um vhmu. Enn-
fremur er það harðlega gagniýnt
að stjómvöld skuli draga úr opin-
berum framkvæmdum á sama
tíma og samdráttur er í almennri
atvinnustarfsemL Hi að efla at-
vinnu og auka hagsæld er eriend
lántaka ekki útiiokuð, félagsleg
þjónusta verði efld, starfsfólki
sjúkrahúsa og heimilisþjónustu
verðl fjölgað, fullvinnslu sjávaraf-
urða, nýsköpun í atvinnulífl,
menningu, tistum og vísindum.
Jflarkmiðið er að hæfileikar,
menntun og kjarikur verði virkj-
aður á öUum sviðum í stað
þeirrar kyridngarstefnu sem
víða er nú rekin í íslensku þjóð-
félagL'1 -grh
ingu náttúrufræðahússins fyrr en
ella. Þó sé ólíklegt að framkvæmdir
hefjist fyrr en í fyrsta lagi haustið
1994 eða byrjun árs 1995. Eftir sé að
ljúka hönnun hússins og nauðsyn-
legt sé að taka góðan tíma í þá
vinnu.
Það svæði sem byggt verður á er
mjög viðkvæmt. Aðstreymi vatns að
Tjöminni liggur þama um og þar er
einnig varpland fugla. Háskólinn
leggur því áherslu á að byggt verði
mjög hratt og byggingunni verði
helst lokið á einu ári.
Bygging náttúrufræðahúss kallar á
að gengið verði frá framtíðarskipu-
lagi friðlands í Vatnsmýrinni. Fyrir-
hugað er að grafa síki kringum frið-
landið. Á því verða brýr sem verða
teknar af á meðan varptíminn stend-
ur yfir. Þá er fyrirhugað að stækka
Andlát:
Selma Dóra
Þorsteins-
dóttir
Látin er í Reykjavík Selma Dóra Þor-
steinsdóttir, formaður Fóstrufélags
íslands.
Selma Dóra fæddist 27. júní 1953.
Hún útskrifaðist frá Fósturskóla ís-
lands árið 1976 sem fóstra en 1983-
1984 stundaði hún framhaldsnám við
Fósturskólann í stjómun en hafði sjálf
unnið áður að undirbúningi þess
náms. Að því loknu fór Selma Dóra í
framhaldsnám í Osló og var þar við
nám og síðar kennslu tii ársins 1987.
Selma Dóra Þorsteinsdóttir starfaði
hjá dagvistunarstofnunum og Dagvist
bama í Reykjavík og vann jafnframt
ötullega að félagsmálum fóstra og var
formaður stéttarfélags þeirra þegar
hún lést. Þá starfaði hún í nefndum á
vegum stjómvalda sem fóru með mál-
efni leikskólabama og menntunarmál
fóstra.
Eftirlifandi eiginmaður Selmu Dóm
er Guðjón Ágústsson múrarameistari
Tjömina sem er norðan við Nor-
ræna húsið þannig að hún nái lang-
leiðina að Hringbraut.
Rætt er um að húsnæði Norrænu
eldfjallastöðvarinnar verði um 1.200
fermetrar og húsnæði líffræðideild
verði 3.700 fermetrar. Kostnaðar-
áætlun hefur ekki verið gerð, en
menn miða oft við að hver fermetri í
húsnæði af þessum toga kosti 100
þúsund krónur.
íslensk stjórnvöld em skuldbundin
til að útvega Norrænu eldfjallastöð-
inni húsnæði. Það er eini kostnað-
urinn sem íslendingar hafa af rekstri
stöðvarinnar. Stöðin veitir hins veg-
ar tugum sérfræðinga á sviði jarð-
vísinda vinnu hér á landi. Eldfjalla-
stöðin er í gömlu jarðfræðihúsi Há-
skólans og býr þar við allt of þröng-
an húsakost. Það er mat stjómenda
Eldfjallastöðvarinnar að húsnæðis-
þrengslin séu farin að standa stofn-
uninni fyrir þrifum og svo hafi raun-
ar verið lengi. -EÓ
og áttu þau tvö böm.
Fóstrufélag íslands hefur stofnað sjóð
til minningar um Selmu Dóru Þor-
steinsdóttur sem lést á Landspítalan-
um á laugardaginn var.
Hanna Dóra Þórisdóttir, skrifstofu-
stjóri Fóstrufélagsins, segir að sjóður-
inn sé stofnaður í kringum málefni
sem Selma Dóra hafði mestan áhuga á.
„Það eru rannsóknir á leikskólum,
leikskólauppeldi, starfsemi leikskóla
og þróunarstarf," segir Hanna Dóra og
bætir við að sjóðurinn eigi að sfyrkja
þá sem hyggi á starf á þessu sviði. Hún
tekur fram að hægt sé að kaupa minn-
ingarkort á skrifstofunni sem gangi til
sjóðsins.
Frá Fósturskóla
íslands
Haustið 1993 verður tekinn nýr nemendahópur inn í Dreift
og sveigjanlegt fóstrunám.
Námið hefst í byrjun ágúst nk. Námið er aðallega ætlað
fólki á landsbyggðinni og er að miklu leyti fjamám.
Auk almennra inntökuskilyrða verður e.t.v. tekið tillit til bú-
setu þeirra er sækja um.
Umsóknarfrestur ertil 15. maí nk.
Upplýsingar gefnar á skrifstofu skólans í síma 91-813866.
Skólastjóri.
ST. JÓSEFSSPlTALI
LANDAKOTI
MEÐ ÞJÓNUSTU OG FRAMFARIR í FYRIRRÚMI
Hjúkrunarfræðingar
Vegna breytinga á starfsemi spltalans vantar hjúkrunarfræðinga
á eftirfarandi deildir: Dagdeild, göngudeild, gjörgæslu-, bama-
og lyflækningadeild. Vinnutími viö allra hæfi, s.s. morgunvaktir
virka daga. Allar vaktir virka daga.
„Hver vill ekki eiga frí um helgar og hátíðir?"
Einnig vantar hjúkrunarfræðinga á hjúkrunardeild fyrir aldraða i
Hafnarbúðum.
Barnaheimilispláss fyrir flesta aldurshópa.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu hjúkrunarforstjóra í
síma 604311 eða 604300.
KÓPAVOGSBÆR
Lóðaúthlutun í
Kópavogi
Kópavogskaupstaður auglýsir eftirfarandi lóðir lausar til
úthlutunar:
Einbýlishúsalóðir á Nónhæð
Um er að ræða 15 lóðir undir 2ja hæða einbýlishús um
120 fm að grunnfleti með innb. bílskúr. Samaniagður gólf-
flötur um 240 fm. Lóðimar eru byggingarhæfar.
Einbýlishúsalóðir í Digraneshlíðum
Um er að ræða 20 lóðir undir 2ja hæða einbýlishús, um
200 fm að grunnfleti með innb. bílskúr. Samanlagður gólf-
flötur allt að 400 fm. Lóðirnar eru byggingarhæfar.
Athafnalóðir á hafnarsvæði
A. 5 lóðir undir eins til tveggja hæða iðnaðarbyggingar,
um 450 fm að grunnfleti. Vegghæð 6,5 metri. Stærð lóða
1.500-1.700 fm. Byggingarhæfar í júlí nk.
B. 3 lóðir undir eins til tveggja hæða byggingar. Æskileg
landnotkun tengd útgerð og fiskvinnslu. Vegghæð um 7,0
metrar. Stærð lóðar 1.800-2.000 fm. Byggingarhæfar í júlí
nk.
C. Ein lóð undir einnar hæðar stálgrindarhús um 1.700 fm
að grunnfleti fyrir útgerðarþjónustu og fiskvinnslu. Vegg-
hæð um 8,0 metrar. Stærð lóðar um 5.000 fm. Lóðin
verður byggingarhæf í júlí nk.
Athafnalóð við Reykjanesbraut
Um er að ræða eina lóð (Hlíðarsmári 4) undir 3ja hæða
byggingu fyrir verslunar- og skrifstofustarfsemi. Grunnflöt-
ur um 460 fm og samanlagður gólfflötur um 1380 fm. Lóð-
in er byggingarhæf.
Skipulagsuppdrættir, skipulags- og byggingarskilmálar,
svo og umsóknareyðublöð liggja frammi á Tæknideild
Kópavogskaupstaðar í Fannborg 2, 3. hæð, kl. 9.00-
15.00.
Bæjarstjórinn í Kópavogi.