Tíminn - 31.03.1993, Side 5
Miðvikudagur 31. mars 1993
Tíminn 5
Magnús H. Gíslason:
Mistókst „markaðssetningin“?
Það verður naumast um það deilt að ríkisstjómin nýtur næsta
takmarkaðra vinsælda með þjóðinni, svo ekki sé meira sagt. Þá
ályktun draga menn m.a. af niðurstöðum þeirra skoðanakannana
um fylgi stjómmálaflokkanna, sem fram hafa farið að undan-
förau.
Nú hef eg fyrir mitt leyti enga
tröllatrú á skoðanakönnunum. Þaer
eru svo sem enginn guðsdómur, en
veita þó vissar vísbendingar, sem
ekki er rétt að loka augunum fyrir.
Það er stjómmálaleiðtogunum líka
ljóst. Það sýna svör þeirra við hin-
um hefðbundnu spurningum
fréttamanna að lokinni hverri skoð-
anakönnun.
Stundum eru skýringar stjórn-
málaforingjanna á fýlgistapi flokka
þeirra næsta hjákátlegar. Tálsmenn
stjómarflokkanna telja, hvað þá
snertir, að það stafi einkum af
tvennu: Annarsvegar er skýringin
sú, að íbúar þessa lands séu slíkir
fáráðlingar, að þeim sé með öllu of-
vaxið að skilja hvað sé þeim fyrir
bestu. Þessvegna séu þeir andstáeð-
ir þeim mönnum, sem þó leggja
nótt við dag við að skapa hér það
„gróandi þjóðlíf', sem Matthías tal-
aði um. En það er svo sem ekkert
nýtt að laun heimsins séu vanþakk-
læti. Það hafa þeir, sem öðmm em
framsýnni, þráfalt þurft að reyna.
Og hvenær hefur „pupullinn" svo
sem kunnað að meta sína bestu
menn?
Hin skýringin á fylgistapi stjómar-
flokkanna er sú, að þeim hafi ekki
tekist að kynna þjóðinni nægilega
vel ráðstafanir sínar og þau marg-
háttuðu „heilsulyf', sem í þeim fel-
ast. Þegar betur er að gáð hlýtur þó
þessi skýring að þykja næsta furðu-
leg, ekki hvað síst þegar hún kemur
beint frá sjálfu Morgunblaðinu.
Hvernig er það t.d. með blaðakost
stjómarflokkanna? Það tekur því
náttúrlega ekki að nefna Alþýðu-
blaðið. Eg gerði það nefnilega að
gamni mínu fyrir nokkm, að spyrja
fólk á fömum vegi hvort það læsi
Alþýðublaðið. Eg ákvað í upphafi,
að miða þessa „skoðanakönnun"
við það, að spyija 100 manns. Af
þessum 100 lásu fjórir Alþýðublað-
ið og þó ekki að staðaldri. Um það
tekur því ekki að tala. Morgunblað-
ið stærir sig hinsvegar af því, að
vera fjöllesnasta blað landsins.
Flokksmenn forsætisráðherrans
eiga það blað og hafa auðvitað hinn
fyllsta aðgang að því með allt sitt
trúboð, enda verður ekki annað
sagt en að þeir notfæri sér það
ótæpilega. Báðir ritstjóramir em
auðvitað sanntrúaðir og sauðtrygg-
ir sjálfstæðismenn og draga heldur
ekki af sér við að mæra ríkisstjóm-
ina og aðgerðir hennar. Samt telur
blaðið að andstaðan við ríkisstjórn-
ina stafi af vanþekkingu fólks.
Þyngri dóm um áhrifaleysi Morg-
unblaðsins er naumast unnt að
fella. Og hvað með DV? Það mun að
vísu ekki teljast opinbert málgagn
Sjálfstæðisflokksins, en eiga stjórn-
arflokkamir í einhverjum erfiðleik-
um með að koma málflutningi sín-
um á framfæri þar? Annað hefur
mér nú sýnst. Þannig hafa þeir
greiðan aðgang að tveimur stærstu
dagblöðum landsins.
En ekki nóg með það. Varla líður
sá dagur, að einhver ráðherrann láti
ekki ljós sitt skína í útvarpi og sjón-
varpi, einn, tveir og stundum jafn-
vel þrír samdægurs. Þar er þeim
gefinn kostur á að flytja einhliða
áróður fyrir aðgerðum sínum.
Þannig leika ráðherramir og mál-
pípur þeirra lausum hala í öllum
helstu fjölmiðlum landsins. Samt
segjast þeir ekki ná til þjóðarinnar
með boðskap sinn. Er það þá svo, að
fólk Iesi ekki það, sem þessir menn
skrifa, hlusti ekki á það, sem þeir
segja? Bágt er nú ástandið ef það er
svona. Kannski er það eftir allt
saman rétt, sem einn meiri háttar
markaðsráðgjafi fhaldsins segir, „að
markaðssetning ríkisstjórnarinnar
á efnahagsaðgerðum sínum hafi
mistekist", en það er þó a.m.k. ekki
af þeim sökum, að hún hafi ekki
haft alla möguleika á að „markaðs-
setja" þær. Ætli hitt sé ekki nær
sanni að þjóðinni Iítist einfaldlega
ekki á þann varning, sem ríkis-
stjómin og fylgihnettir hennar eru
að reyna að „markaðssetja".
En meira blóð er í kúnni og enn
skal hert á „markaðssetningunni".
Eg man ekki betur en það kæmi
fram í umræðum á Alþingi á dög-
unum, að fjármálaráðherrann væri
nú búinn að láta gefa út bækling,
þar sem tíunduð eru tilþrif hans við
fjármálastjómina. Mér skilst að al-
menningur sé látinn bera kostnað-
inn af þessari útgáfustarfsemi ráð-
herrans og er sjálfsagt liður í því að
auka „kostnaðarvitund" okkar og
veitir ekki af, segir Sighvatur.
Margir telja að hér sé um einhliða
áróðursrit að ræða og er fúll þörf á,
úr því að Morgunblaðið, DV, útvarp
og sjónvarp duga hvergi til. Fjár-
málaráðherrann harðneitar auðvit-
að þessum ósæmilega áburði og
segir þetta hlutlaust fræðslurit,
nánast kennslubók. Hlýtur því að
koma til álita hvort ekki sé eðlileg-
ast að fela Námsgagnastofnun út-
gáfuna, úr því að við borgum hana
hvort sem er.
Sannleikurinn er auðvitað sá, að
ríkisstjórnin hefur efnt til ófriðar
við almenning í þessu landi. Er
engu líkara en hún hafi tileinkað
sér það ógæfusamlega lífsviðhorf,
að láta aldrei „þá skömm af sér
spyrjast að kjósa frið ef ófriður er í
boði“, eins og Halldór Laxness
kemst að orði í einu af skáldverkum
sínum.
Höfundur er fyrrum blaðamaður og
bóndl.
BÓK SEM SKER SIG ÚR
Stormur strýkur vanga.
Minningar Guöjóns Simonarsonar.
Ólafur Haukur Sfmonarson bjó til prent-
unar.
Fortaglð 1992.
Stormur strýkur vanga. — Það er
í senn fallegt bókarheiti og hressi-
legL Nær þó vart hugblæ sjálfsævi-
sögu Guðjóns Símonarsonar. Því
þar fylgir stormi einatt hregg og
hríð, rétt eins og verða vill á ísa-
köldu landi.
Þetta er mikil bók að vöxtum og
inntak hennar ferill áttræðs manns
á umbrotaskeiði þjóðarsögunnar.
Bemskuár við Faxaflóa og í lágsveit-
um austanfjalls. Æsku- og mann-
dómsár austur á fjörðum við sjó-
sókn og útgerð. Og loks um árabil í
Reykjavík og margt að sýsla, auk
sjósóknar kaupmennska, herflutn-
ingar og ritstörf — undir lokin.
Guðjón Símonarson var ekkert
blávatn. Hann var alinn up við harð-
ræði 19. aldar og hlaut að sjá sér
farborða sjálfur frá ungdómsaldri.
„Kjörin settu á manninn mark",
brynjuðu og mótuðu lífsstíl. Guð-
jóni var margt til lista lagt. Músfk-
alskur var hann, liðtækur á leik-
sviði, gefinn fyrir að skrifa á blað og
áhugasamur um félagsmál, hand-
verksmaður góður. — Drýgstur
hluti ævistarfsins varð þó að afla
stórri fjölskyldu lífsbjargar úr djúp-
um hafsins. „Siglir særokinn" er
einkunn sem vel hæfir æviferli
Guðjóns Símonarsonar og „stéttar-
bræðra" hans á fyrri hluta 20. aidar.
Hann var og einn þeirra sem borið
hafa gæfu til að bjarga mannslífum.
Stormur strýkur vanga er lífleg
frásögn og viðburðarík, nánast
spennandi atburðasaga frá upphafi
til enda. Æviferill Guðjóns varð
átakamikill hvort heldur hann átti
leik við menn eða máttarvöld.
Margir eru kvaddir til sögu í bók-
inni. Oft er greint frá mikilhæfu
samferðafólki og drenglunduðu. En
stundum fer í verra! Er þá ekki skaf-
ið utanaf hlutunum og mótgangs-
mönnum látnar „gildar eyrnafíkjur
ríða“ í líkingum talað. Hér segir
einnig frá furðulegum ævintýrum
svo sem ástarraunum Mána (dul-
nefni), huldusveini á dansleik aust-
ur á Krossi í Mjóafirði, danskri val-
kyrju á Framnesvegi og kærustu-
pari á lítilli kænu „djúpt útnorður
af Svínalækjartanga".
Þótt gripið sé á mörgu og frásögn-
in jafnan fortakslaus, koma seint öll
kurl til grafar og er að því vikið í for-
mála:
„Það sem Guðjón sjálfur hefur kos-
ið að láta liggja utan bókar liggur
þar enn,“ segir Ólafur Haukur. Og
enn fremur: „Hér er langur ævitími
til umfjöllunar, minni okkar er
hripótt, og stundum höfum við
samið okkar eigin sögu í bága við
opinberar staðreyndir." Mælt er af
raunsæi og umhugsunarefni jafnt
þeim sem skrifa ævisögur sínar og
hinum sem lesa þær.
Guðjón Símonarson ritaði sínar
minningar aldraður og studdist þá
að nokkru við dagbækur og fleira
frá fyrri tíð, en einnig við eigið
minni. Hvort tveggja líkt og blasir
við á síðum bókarinnar. Hinar fjöl-
mörgu tímasetningar virðast
óhugsandi án stuðningsgagna. En á
hinn bóginn er þar að finna augljós-
ar skekkjur. Nefni ég nokkur dæmi
frá þeim árum sem Guðjón dvaldist
á Mjóafirði beggja megin síðustu
aldamóta.
Á bls. 123 segir að Guðjón hafi
fengið geymt nýtt orgel hjá hjónun-
um Stefáni Baldvinssyni og Helgu
Austmann, og getið er andláts Stef-
áns 1. aprfl 1899. Síðan þetta:
„Strax eftir jarðarförina sturlaðist
Helga kona hans og var flutt til
Reykjavíkur. ... Hús og aðrar eigur
þeirra hjóna voru skrifaðar upp eft-
ir kröfú Konráðs Hjálmarssonar
kaupmanns og selt á opinberu upp-
boði, að sögn vegna veðskuldar að
upphæð kr. 3.600. Orgelið mitt var
þá boðið upp, þrátt fyrir mótmæli
mín.“ — Segist Guðjón hafa fengið
orgelið aftur eftir mikið stapp, m.a.
hjá sýslumanni.
Hér stangast margt á við aðrar
skráðar heimildir.
Helga Austmann flutti til Akureyr-
ar eftir fráfall manns sfns. (Seinna
átti hún við vanheilsu að stríða).
Helga ráðstafaði eignum sínum
sjálf. Að hennar ósk voru, 8. júlí
Guöjón Símonarson.
1899, boðnir upp nokkrir lausa-
munir og seldir fýrir 121,75 krónur.
Bréf Helgu frá Akureyri næstu
misseri sýna að hún hefur sjálf gert
upp við Konráð kaupmann og í
fyrstu leigt hús sitt og síðan selt það
við verði sem hún taldi hæfilegt.
Mjóafjarðarkirkja keypti orgel af
Helgu Austmann í maímánuði 1899
á 270 krónur. Það var keypt fýrir
samskotafé og 80 króna lán, sem var
endurgreitt 1902. Þetta kemur fram
f gerðabók sóknarnefndar, vísitasíu-
gerð 1901 og dagbók Benedikts
Sveinssonar í Firði.
Á bls. 125 segir að Guðjón Björns-
son og Guðrún Guðmundsdóttir
hafi verið gift í Mjóafjarðarkirkju á
aðfangadag (1899). En þau giftust
14. nóvember 1903. Einnig segir að
„á jóladag (1899) hljómaði orgel í
fýrsta sinn við messugjörð í Mjóa-
fjarðarkirkju". Einnig það er mis-
minni, því leikið var á lánsorgel við
vígslu kirkjunnar 1892 og síðan
öðru hverju þar til kirkjan eignaðist
hljóðfæri.
Á bls. 133 segir að tvö börn hafi far-
ist í hafís og tuttugu manns dáið úr
taugaveiki í Mjóafirði sama vetur-
inn. „Læknir var hvergi nema á
Eskifirði."
Hér er málum blandáð. — Tauga-
veikin braust út í janúar 1901 og
varð þremur mönnum að fjörtjóni.
Héraðslæknir Mjófirðinga var þá
Kristján Kristjánsson á Seyðisfirði.
— Hafísinn kom næsta vetur og lá
Iengi. Einn drengur fórst.
Ekki verða tilfærð fleiri dæmi frá
Mjóafirði. En eftir að hafa hnotið
um framangreindar missagnir
gluggaði ég í nokkrar nærtækar
heimildir frá Norðfirði. Var þá ýmist
að þær staðfestu frásagnir Guðjóns
Símonarsonar að fullu, til dæmis
varðandi nauðungaruppboðið á
húseign hans 1909, bls. 181. Ellegar
að hluti frásagnar kemur heim og
saman, en annað ekki.
Stormur strýkur vanga getur ekki
talist uppsláttarrit í þröngri merk-
ingu. Þó er mikill fengur að þeirri
bók. Guðjón Símonarson skipstjóri
segir þar sína sögu frá sínum sjón-
arhóli. Það hljótum við, sem þessa
bók lesum, að hafa í huga og einnig
þegar hillir undir frændur okkar og
áa mitt í atburðarásinni!
Ólafur Haukur segir einmitt í inn-
gangsorðum:
„Þetta er bók Guðjóns Símonar-
sonar sjálfS hvað varðar efnisþætti
og afstöðu til manna og málefna. Ég
hef reynt að fýlgja frásagnarhætti
hans og orðavali eins langt og unnt
var, ekki gripið ýmis tilefni sem gáf-
ust til að gerast „skáldlegur" í hans
þágu, heldur gengið undir merkj-
um hans eins trúlega og mér var
unnt.“
Þetta ætla ég rétt vera og eykur það
raungildi bókarinnar í bráð og
lengd. Engir tveir menn eru allt að
einu. Hvorki renna þeir sín ævi-
skeið að öllu samsíða né heldur
Ólafur Haukur Sfmonarson.
segja þeir frá með sama hætti. Til
dæmis hripaði ég eitt sinn niður og
birti stuttar frásagnir tveggja sam-
tíðarmanna og nágranna Guðjóns
Símonarsonar á Norðfirði og eru
þær vissulega með allt öðrum blæ
en texti hans. Er það vitanlega ofur
eðlilegt.
Frásögn Guðjóns endurspeglar
harða lífsbaráttu, sem verður
harkalegri en ella vegna skapgerðar
sögumanns sem vafalaust hefur að
hluta mótast af harðhnjóskulegri
æsku og drengurinn tápmikill að
upplagi. Hún eykur skörpum drátt-
um í þá mynd, sem nú er að mótast
af merkilegu baráttuskeiði íslands-
sögunnar á fýrri hluta þessarar ald-
ar. Og í þessari bók er til skila hald-
ið fjölmörgu því, sem í augum unga
fólksins núna er álíka fjarlægt og
rímur og riddarasögur.
Ég var sannarlega ekki að leita að
prentvillum þegar ég Ias Storminn
þeirra langfeðga, Guðjóns Símonar-
sonar og Ólafs Hauks Símonarson-
ar. En mér leiddust augljós mistök
við prófarkalestur, sem orðið hafa á
endasprettinum.
Það er svo mfn saga að sökum
kunnugleika á vettvangi þótti mér
þessi 96 kapítula frásögn eitt sinn
nágranna míns, Guðjóns Símonar-
sonar á Norðfirði, sjósóknarans og
útvegsbóndans, skóara og kaup-
manns, organista, söngstjóra, leik-
ara og rithöfundar, sérlega forvitni-
leg lesning og skemmtileg.
Vilhjálmur Hjálmarsson