Tíminn - 31.03.1993, Side 7
Miðvikudagur 31. mars 1993
Tíminn 7
Hrafn Gunnlaugsson, formaður Menningarsjóðs útvarpsstöðva, tók
ekki þátt í úthlutun styrkjanna:
Um helmingur styrkj-
anna til útvarps-
og sjónvarpsstöðva
Við úthlutun úr Menningarsjóði útvarpsstöðva nú í byijun vikunnar lágu
fyrir umsóknir um styrki samtals að fjárhæð 415 milljónir króna, frá 85
einstaklingum til 166 verkefna. Stjóm sjóðsins úthlutaði styrkjum til 35
verkefna samtals að fjárhæð tæplega 80 milljónir kr., hvar af rúmlega
helmingurinn fór í styrki til sjónvarpsstöðva og útvarpsstöðva, en afgang-
urinn til einstaklinga og kvikmyndafélaga.
Auk þess var tveim aðilum, Agli Eð-
varðssyni og Viðari Víkingssyni, veitt
skilyrt loforð um 10 milljóna kr.
styrki. Stjómarformaður Menningar-
sjóðs útvarpsstöðva er Hrafn Gunn-
laugsson, en aðrir stjómarmenn
Björg Einarsdóttir og Guðni Guð-
mundsson. í fréttatilkynningu frá
sjóðnum segir að formaðurinn,
Hrafn, hafí ekki tekið þátt í úthlutun
úr sjóðnum.
Sjónvarpsstöðvamar fá
45% Qáríns
Hæsta upphæð einstakra styrkþega
fékk RÚV Sjónvarp, 19,5 milljónir til
5 verkefna: Skemmtidagskrár með
„Bláa hattinum"; tveggja heimilda-
mynda: um Guðmund Hannesson
lækni og Jón úr Vör; „Þið munið
hann Jörund"; „Og hún á þessum
aldri", stuttmynd fyrir sjónvarp. Stöð
2, íslenska útvarpsfélagið hf., kom
næst með 16 milljónir vegna 3ja
verkefna: Sjónvarpsmynd um Krist-
ján Jóhannsson, sjónvarpsþáttaröð
um stangveiði, og þátt um leiðtoga-
fundinn í Reykjavík.
Styrkir til einstaklinga
og kvikmyndafélaga
Þrettán aðilar aðrir fengu styrki til
framleiðslu nýrra verkefna fyrir sjón-
varp:
Þorvaldur Gylfason og Plús Film:
,Að byggja Iand“, 4 m.kr.
Birgir Sigurðsson: Heimildarmynd
um íslenskt almúgafólk, 3,5 milljón-
ir.
Saga Film: Leikin mynd um líf og
starf Jóns Sigurðssonar forseta, 3
millj. kr.
Pegasus: Myndaflokkur eftir sögum
Ármanns Kr. Einarssonar, 3 millj. kr.
Rammsýn: Þáttaröð eftir handriti
Einars Más Guðmundssonar, 3 millj.
kr.
Valdimar Leifsson og Bryndís Krist-
jánsdóttir: Mynd um Nínu Sæmunds-
dóttur, 2 milljónir.
Valur Ingimundarson ogÁmi Snæv-
arr: Markmið A-Þjóðverja á íslandi
1950-1973, 2 millj. kr.
Jón Hermannsson: „Sjávamýting“, 2
millj. kr.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson:
Þáttaröð um hugmyndahvarf íslend-
inga á 20. öld, 1,1 millj. kr.
Kvikmyndafélag íslands hf.: Heim-
ildamynd um lífshlaup Eggerts V.
Briem eðlisfræðings, 1 millj. kr.
Finnbogi Hermannsson: Heimilda-
mynd um Bjama Runólfsson á
Hólmi, 800 þús. kr.
Hjálmtýr Heiðdal: „Hellisheiðarveg-
ur“, 500 þús. kr.
Jón Egill Bergþórsson: Handrit að
heimildarmynd um Jóhann Sigur-
jónsson, 500 þús. kr.
Framhaldsstyrkir til
eldri verkefna
Guðjón Amgrímsson: Heimilda-
mynd um erfðir og umhverfisáhrif, 2
millj. kr.
Baldur Hermannsson: „Þjóð í
hlekkjum hugarfarsins", 2,4 millj. kr.
Ásthildur Kjartansdóttir og Dagný
Kristjánsdóttir: Þáttur um Ragnheiði
Jónsdóttur rithöfund, 2,4 millj. kr.
íslenska kvikmyndasamsteypan hf.:
Mynd eftir sögum Einars Kárasonar,
2 millj. kr.
Þorsteinn Helgason: Heimildamynd
um Tyrkjaránið, 2 m. kr.
Helgi Felixson og Sveinn Magnús-
son: Heimildamynd um sögu lýðveld-
isins, 1 millj. kr.
Fimm RÚV-stöðvar og
Aðalstöðin
Styrkir til framleiðslu hljóðvarps-
efnis námu samtals um 5,5 milljón-
um kr.
Tvær rásir Ríkisútvarpsins og svæð-
isútvarp á þrem stöðum fengu sam-
tals um 3,5 m.kr. styrki til fram-
leiðslu á hljóðvarpsefni: „Byggð
Breiðuvík". Sögur úr kaupstaðarferð.
„Gengið um Skutulsfjarðareyri".
Þáttur um Ingimar Eydal. Og ýmis
verkefni.
Aðalstöðin fékk 1,5 milljónir kr.
vegna: „íslenska. það er málið“. Þá
fékk Ágúst Þór Ámason 300 þús. kr.
til gerðar útvarpsþátta um söguleg
réttarhöld, og Inga Huld Hákonar-
dóttir 200 þús. kr. til útvarpsþátta:
„Konur og kristni". - HEI
Úr sýningu Hugleiks, Stútungasögu. Gísli Sigurösson gefur kinnhest.
Hugleikur endurskoðar íslandssöguna og sviptir hulunni af höfundi Njálu:
Stútungasaga
Leikfélagið Hugleikur frumsýnir á
laugardag í Tjamarbíói leikritið
Stútungasögu.
Sagan gerist á 13. öld og er
stríðsleikur með gamansömu ívafl,
þar sem menn berjast hart um ást-
ir og völd, brenna bæi, höggva
mann og annan og hnupla kálfum
til þess að skrifa söguna á skinn.
Undir léttu yfirborði liggja myrk
sannindi um hrun íslenska þjóð-
veldisins og hulunni er svipt af
leyndardómum sögunnar, sem
hafa áhrif á líf okkar íslendinga
enn þann dag í dag.
Höfundar leikritsins eru Hjördís
Hjartardóttir, Þorgeir TVyggvason,
Ármann Guðmundsson og Sævar
Sigurgeirsson.
Leikstjóri er Sigrún Valbergs-
dóttir.
Selfoss — Suðurland
Steingrímur Jón Guðnl
Sfeingrimur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, og alþingismennimir Jón
Helgason og Guðni Ágústsson boða til opins umræðufundar um átak til endurreisnar
I atvinnu- og efnahagsmálum að Hótel Selfossi miðvikudaginn 31. mars kl. 21.
30 ára afmælishóf Freyju
Mánudaginn 5. april n.k. eru 30 ár frá þvi að Freyja, félag framsóknarkvenna i
Kópavogi, var stofriað. I tilefni afmælisins verða Freyjukonur með opið hús aö
Digranesvegi 12 á afmælisdaginn kl. 19.00-22.00.
Þangað eru allir hjartanlega velkomnir. Góðar veitingar.
Stjóm Freyju
Framsóknarfélögin í Hafnarfirði
Opið hús að Hverfisgötu 25 alla þriðjudaga kl. 20.30.
Komiö og fáið ykkur kafflsopa og spjalliö.
Frumsóknarfélögin
Kópavogur —
Opið hús
Opiö hús er alla laugardaga kl. 10.00-12.00 að
Digranesvegi 12. Kaffi og létt spjall. Sigurður Geirdal
bæjarstjóri verður til viðtals.
Framsóknarfélögin
Siguröur
Reykjavík — Létt
spjall á laugardegi
Laugardaginn 3. april kl. 10.30-12.00 að Hafnarstræti 20, 3.
hæð, mætir Finnur Ingólfsson alþingismaður og ræðir stjórn-
málaviöhorfið og svarar fyrirspumum.
Fulltrúaráðiö
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða
minningargreinum í blaðinu, er bent á, að
þær þurfa að berast a.m.k. tveimur dögum
fyrir birtingardag.
Pœr þurfa að vera vélritaðar.
VELKOMIN TIL U.S.A.
Sértilboð frá bandarísk-
um stj'órnvöldum
Bandarisk stjómvöld gefa þér kost á að sækja um og öölast
varanlegt dvalar- og atvinnuleyfi samkvæmt áætlun AA-1.
Dregið verður úr umsóknum og þú getur þannig hreppt tæki-
færi til að setjast að i Bandaríkjunum og stunda þar vinnu.
(orðið handhafi „græna kortsins"). Umsóknarfrestur um dval-
arieyfi rennur út 31. mars nk. og því nauösynlegt að bregð-
ast við strax, svo umsókn þín nái fram í tlma.
Allir þeir, sem eru fæddir á Islandi, Bretlandi eða (riandi
og/eða eiga foreldri eða foreldra af sömu þjóðemum, hafa
rétt til að sækja um þetta leyfi.
Sendið 45 Bandaríkjadala greiðslu fyrir hvem umsækjanda
til okkar ásamt nafni umsækjanda, fæðingardegi, fæöingar-
stað, nafni hugsanlegs maka og nöfnum og dvalarstað
ógiftra bama undir 21 árs aldri.
Heimilisfangið er: VISA USA, P.O. Box no. 822211 Dallas,
Texas, 75382, USA.