Tíminn - 31.03.1993, Qupperneq 9
Miðvikudagur 31. mars 1993
Tíminn 9
Við framsóknarkonur kveðjum í
dag kæran samherja, Ragnheiði
Svei nbj örnsdóttur.
Hún setti vissulega svip sinn á
kvennastarfið í flokknum. Fyrstu
kynni mín af henni voru á frægum
landsfundi Landssambands fram-
sóknarkvenna á Húsavík fyrir rúm-
um 10 árum. Ég var þá að stíga
mín fyrstu skref innan Framsókn-
arflokksins og fannst kvennamálin
vera heldur aftarlega í forgangsröð-
inni. Við nokkrar í yngri kantinum
lögðum þá fram tillögur um kynja-
kvóta á framboðslistum í stjómum
og ráðum flokksins. Allnokkur and-
staða var við tillögurnar meðal rót-
grónari kvenna og okkur hinum
leist ekki á blikuna. Þá kom Ragn-
heiður í ræðustól — úr rótgróna
hópnum — og studdi tillögur okk-
ar. Mæltist henni svo vel, eins og
ávallt þegar hún tók til máls, að á
endanum fengust þær samþykktar.
Ragnheiður var rökföst og mælsk
og glettnin var aldrei langt undan.
Hún var hagyrðingur góður og
varla komum við svo saman að hún
kastaði ekki fram vísu. Ragnheiður
var mér einstaklega góð frá því við
kynntumst fyrst Við sátum um ára-
bil saman í stjórn LFK og áttum
alla tíð gott samstarf og margar eft-
irminnilegar stundir saman.
Henni þakka ég nú að leiðarlokum
samfylgdina og allt hennar mikla
starf. Eiginmanni, börnum og
barnabörnum votta ég samúð
mína. Ragnheiður lifir ávallt í hug-
um okkar sem þekktum hana.
Ásta R. Jóhannesdóttir
DAGBÓK
Borgarstjórinn í Reykjavík, Markús öm Antonsson, er hér að skoða sýningamar
í Borgarhúsi í fglgd með Ragnari Borg myntfrœðingi.
Mikil og góð aðsókn aðsýningunum í Borgarhúsi
Nú standa yfir þrjár sýningar í Borgarhúsinu Aðalstræti 2/Vesturgötu 1 (þar sem áð-
ur var verslunin Geysir). Þetta eru sýningamar: Höndlað í höfuðstað — Frá smíðastáli
í smára — úr smárum í rökrásir — Mynt úr safni Ragnars Borg.
Höndlað í höfuðstað er sýning á skjölum, Ijósmyndum og munum er segir sögu versl-
unar í Reykjavík.
Frá smíðastáli í smára — úr smárum í rökrásir sýnir þróun skrifvélatækni til tölvu-
aldar. Þar má sjá Olivettiritvélar, reiknivélar og bókhaldsvélar frá því 1930 til tölvuald-
ar eða til um 1980. Sumar þessara véla eru enn í notkun.
Sýning úr myntsafni hins kunna myntfræðings Ragnars Borg sýnir rúmlega 2000 ára
gamla mynt, nokkra brauðpeninga og alla gömlu myntina sem slegin var fyrir íslend-
inga fram tií lýðveldisstofnunar. Einnig er sýnd öll útgáfa á seðlum til notkunar á ís-
landi. Dýrmætasti peningurinn á þessari sýningu er þó án nokkurs efa tetradrakma
með mynd Alexanders mikla, slegin um 330 árum fyrir Krist og ber þess vitni hve hag-
ir myntsmiðir voru fyrir rúmum 2300 árum.
Sýningamar eru opnar alla virka daga frá kl. 09 til kl. 17, en um helgar kl. 11 til 16.
Suma morgna kann að vera örtröð, því að skólanemendur í grunnskólum Reykjavíkur
koma í heimsókn undir leiðsögn Lýðs Bjömssonar sagnfræðings. Þessum sýningum
lýkur 7. apríl n.k.
Ný bók frá Máli og menningu:
Sálfræðibókin
Síðastliðinn föstudag kom út bók sem
óhætt er að telja til stórvirkja, enda er
hún tæpar þúsund blaðsíður. Þetta er
Sálfræðibókin, sem yfir fjömtíu sálfræð-
ingar og sérfræðingar úr samstarfsstétt-
um þeirra hafa tekið höndum saman um
að skrifa undir ritstjóm Harðar Þorgils-
sonar og Jakobs Smára. Bókin er hugsuð
sem aðgengileg handbók fyrir almenn-
ing og er ekki sfst merk meðal fræðirita
af þessu tagi fyrir það að höfundamir em
allir íslenskir og miða skrif sín við ís-
lenska lesendur og íslenskan vemleika.
Efni bókarinnar er afar fjölbreytilegt, þar
er að finna fróðleik um eðlilega þróun og
starfsemi mannshugans og það sem telst
til frávika, og einnig upplýsingar og ráð-
leggingar handa þeim sem em að kljást
við að skilgreina og leysa úr ýmsum
vandamálum í daglega lífinu.
Bókin er 946 bls. og skiptist f eftirtalin
fimmtán meginsvið, en þau greinast aft-
ur í styttri kafla sem mynda sjálfstæðar
heildin
Þroski bama og unglinga - Uppeldi
bama og unglinga - Sálræn vandamál
bama og unglinga - Þroskafrávik og fötl-
un - Kynmótun, samskipti kynjanna,
kynlíf - Hjónaband og fjölskylda - Sam-
skipti, viðhorf, fordómar - Vinnan - Per-
sónuleikinn - Streita og heilsa - Tilfinn-
ingar og tilfinningalegir erfiðleikar -
Ávani og stjómleysi - Geðrænar tmflanir
- Efri árin - Sálfræðin og yfirskilvitleg
fyrirbæri.
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNIDÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
InterRent
Europcar
Bróðir okkar og mágur
Gestur Einarsson
Ijósmyndari
Austurbrún 4, Reykjavfk
er lést 15. þ.m., veröur jarösunginn frá Selfosskirkju föstudaginn 2. aprfl kl
15.00.
Ágústa Einarsdóttir Páll Elnarsson
Guöjón Styrkársson
________________I________________________________________/
Fyrir 20 árum tók Patrick Lichfield drottningarfrændi mynd af frænku sinni, gestum og nágrönnum á
grasblettinum. Þá var ekki þörf fyrir neina sólhlíf handa prinsessunni.
Svona skemmtir
fólk sér á
Mustique!
Miklum sögum hefúr farið af eyj-
unni Mustique í Karíbahafi, en ár-
ið 1960 gaf Glenconner lávarður
Margréti Bretaprinsessu 10 ekra
land þar í brúðkaupsgjöf. Síðan
hefur prinsessan eytt fríum sínum
þar meira og minna og gjarna
haft í kringum sig ættingja og
vini.
Patrick Lichfield er frægur ljós-
myndari og náfrændi prinsess-
unnar. Hann tók meðfylgjandi
myndir af frænku sinni og hirð-
inni í kringum hana með 20 ára
millibili, þá síðari nú í vetur. Sjá
má að ýmislegt hefur breyst, en
vafalaust er Mustique sama parad-
ísin og fyrr.
Nú hefur reyndar flogið fyrir að
hægt sé að taka staðinn á leigu á
þeim tímum sem prinsessan er
annars staðar. Sjálfsagt er leigan
há, en mörgum finnst það margra
peninga virði að sofa í sama rúmi
og prinsessa, þó að það sé ekki á
sama tíma.
Nú finnst Margréti prinsessu vissara að hafa sólhlff þegar hún lætur fara vel um sig á bekknum á
grasflötinni meö fjölskyldu, vini, starfsfólk og aöra íbúa Mustique í kringum sig.
K.