Tíminn - 31.03.1993, Qupperneq 12
AUGLYSINGASIMAR
L#TT#
• • alltaf á nnövikudöguin
NÝTT OG
FERSKT
DAGLEGA
reiðholtsbakarí
VÖLVUFELL113 - SÍMI73655
HOGG-
DEYFAR
Verslið hjá fagmönnum
686300
ÚS varahluti
m
HanarsböfAa l - s. 67-67^
TVOFALDUR1. vinningur
MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 1993
Veðhafar sögðu pass við 660 milljóna kr. til-
boði Ósvarar hf. í togara og kvóta þrotabús
EG í Bolungarvík:
Kvóti og tog-
arar auglýst-
ir til sölu
Veöhafar sögðu pass við 660 millj-
óna króna tilboði útgerðarfyrir-
tæksins Ósvarar hf. í Bolungarvík í
togara þrotabús EG á fundi í gær.
Jafnframt var tekin sú ákvörðun að
auglýsa Dagrúnu og Heiðrúnu og
kvóta þeirra til sölu á almennum
markaði.
Jón Guðbjartsson, bæjarfulltrúi í
Bolungarvík, segir að nú sé ekki
annað fyrir heimamenn en að bretta
upp ermar.
Björgvin Bjarnason, stjómarfor-
maður Ósvarar hf., segir að vissulega
beri menn kvíðboga fyrir afleiðing-
um þess að skipin og kvóti verði
auglýst til sölu, en engu að síður
yrði allt reynt til að halda þeim
áfram innan svæðisins.
„Okkur leggst þó alltaf eitthvað til
og það þýðir ekkert annað en að vera
bjartsýnn á framhaldið. En í sjálfu
sér er það eðlilegt að veðhafar vilji
kanna verð skipanna og kvóta, þótt
maður hefði kosið að þeir hefðu tek-
ið eindregnari afstöðu til þess að
selja okkur þetta."
Stefán Pálsson, annar af tveimur
skiptaráðendum þrotabús EG, sagði
að niðurstaða fundarins hefði verið
sú að taka hvorki né hafna tilboði
Ósvarar hf., slíta ekki viðræðum við
heimamenn, heldur halda þeim
áfram en jafnframt að auglýsa skipin
og kvóta þeirra til sölu. Stefán segir
að í tilboði heimamanna hafi verið
ákveðnir lausir endar og m.a. um
hlutafjársöfnun og að samþykki veð-
hafa fáist fyrir skuldbreytingu og
ýmsir aðrir þættir sem þyrftu að
skoða nánar í dæmi sem þessu.
Aðspurður sagði skiptastjóri að að
svo stöddu lægju ekki fyrir neinar
fullmótaðar verðhugmyndir um tog-
arana og kvóta þeirra.
Hann segir að það hafi ekki borist
fleiri tilboð í togara og kvóta en
hinsvegar hafa fyrirspumir og þreif-
ingar átt sér stað.
Á Dagrúnu ÍS hvíla 490 milljónir og
375 milljónir á Heiðrúnu og að mati
skiptastjóra er æskilegt að fá sem
mest fyrir skip og kvóta.
Þorskígildiskvóti Dagrúnar er 1997
tonn og Heiðrúnar 1442 tonn.
Gangverð á varanlegum kvóta er um
þessar mundir á bilinu 185-195
krónur fyrir hvert þorskígildiskíló
en um 40 krónur sé það tekið á
leigu.
A fund veðhafa í gær mættu m.a.
fulltrúar frá Byggðastofnun sem
jafnframt gæta hagsmuna Atvinn-
tryggingasjóðs útflutningsgreina,
Fiskveiðasjóði, Landsbanka, Trygg-
ingamiðstöðinni, Skeljungi og lög-
maður Bolungarvíkurkaupstaðar.
-grh
„Það er því miður staðreynd að
samningamálin hafa smám sam-
an sofnað. Samtímis því fer at-
vinnuleysi vaxandi meðal Dags-
brúnarmanna og um 500 þeirra
eru nú án vinnu og stór og vax-
andi hópur þeirra hefúr verið
það í bráðum ár og er því að
missa rétt til bóta,“ segir Guð-
mundur J. Guðmundsson, for-
maður verkamannafélagsins
Dagsbrúnar.
Dagsbrún heldur almennan fé-
lagsfund í Bíóborg - gamla Aust-
urbæjarbíói - kl. 13 í dag, þar
sem farið verður fram á heimild
«1 stjómar félagsins að boða
verkfali. „Við ætlum að afia okk-
ur verkfallsheimildar á fundin-
um í dag svo við getum mætt
vopnaöir til leiks.
Fundurinn í dag þýðir ekki það
að við ætlum að hlaupa út úr
þessu samfloti.
VerkfallsheÍmOd okkar manna
þýðir að kröfugerðin verður
virkari og harðari.
Vaxandi atvinnuleysi ásamt
samdrætti í yfininnu og minnk-
andi kaupmætti, eru að verða
viðvarandí ástand.
Þetta er að herða að öllu þjóð-
félaginu, skuidir heimiianna eru
miklar og fara vaxandi," sagði
Guðmundur.
Guðmundur J. Guðmundsson -sá
Ekki jafn sjálfsagt og áður að fella gengið. Þormóður rammi hf.
Siglufirði:
Niöurfærsla hafin
Róbert Guðfinnsson, framkvæmda-
stjóri sjávarútvegsfyrirtæksins Þor-
móðs ramma hf. á Siglufirði, segir
það ekki jafnsjálfsagt mál og áður
að fella gengi krónunnar. Hann seg-
ir að þegar sé farið að nota leið nið-
urfærslu í verslun og þjónustu.
Á síðasta ári nam tap fyrirtæksins
um 45 milljónum króna sem er að
mestu rakið til síðustu gengisfell-
ingar. Árið 1991 var hins vegar 85
milljóna króna hagnaður hjá fyrir-
tækinu og í ár er gert ráð fyrir 20%
veltuaukningu hjá Þormóði ramma.
,/Eskilegasta leiðin í stöðunni í dag
er að fara leið niðurfærslu og Iækka
kostnað heldur en að fella gengið.
Hins vegar ef fyrirtækin og þjóðfé-
lagið væru skuldlítil, væri gengis-
felling í lagi. En fyrir skuldsett fyrir-
tæki og þjóðfélag þá held ég að mun
skynsamlegra sé að viðurkenna
staðreyndir og reyna að gíra sig nið-
ur.“
Framkvæmdastjórinn segir að það
fari ekkert á milli mála að niður-
færsluleiðarinnar gæti nú þegar í
verslun og þjónustu. Hann segir að
það komi skýrt fram í innkaupum og
öðru og þá einkum vegna hinnar
hörðu samkeppni sem er um hina
fáu viðskiptavini sem geta keypt og
borgað.
Róbert segir að afkoma sjávarút-
vegarins sé ekki glæsileg.
„Sterkustu sjávarútvegsfyrirtæki
landsins eru annaðhvort að tapa eða
eru á núllinu þrátt fyrir að inni í
þeim séu hundruð milljóna af spari-
fé landsmanna og þannig getur það
ekki gengið lengi."
-grh
...ERLENDAR FRÉTTIR...
BRUSSEL
Bandaríkjamenn
vilja aukiö ffrelsi
Bandarikin krefjast mikilla breytinga
til að meira frelsi I alheimsviðskiptum
verði gefið og fara fram á að Japan
fari að sýna meirí áhuga I þá áttina.
Erindreki Japan I málefnum Evrópska
samfélagsins, hafnaöi ásökunum
Bandaríkjamanna um að ráðmenn I
Tókló væru ekki áhugasamir um
GATT- samninginn og sögðu að
hegöun Mickey Kantor, viöskiptafull-
trúa Bandarikjanna, værí ekki I neinu
sambandi við raunvemleikann.
MOSKVA
Forystumenn myrtir
Tveir aðalforystumenn framvaröar-
sveitar Tajikistan, sem áttu stóran þátt
I að knýja fram nýja stjómarforystu I
hinu mið- asiska rlki I fyrra, hafa verið
myrtir á dularfullan hátt, að sögn tals-
manna I sendiráöinu I Moskvu.
RÓM
Bíður með að segja
aff sér
Italski forsætisráðhemann, Giuliano
Amato, hyggst ekki segja af sér fyrr er
búið er að finna nýja ríkisstjóm sem
gæti komiö I stað fjórflokkastjómar-
innar sundruðu, segir I frétt Italska rlk-
issjónvarpsins. Sóslalistar áttu fund
meö Oscar Luigi Scalfaro forseta, I til-
raun til að leysa þann vanda sem
hneykslismál innan rikisstjómarinnar
hafa valdið aö undanfömu.
JERÚSALEM
Arabar skjóta tvo
ísraelska lögreglu-
menn
Yitzhak Rabin, forsætisráöherra Isra-
elsmanna, fyrirskipaði takmörkun
frelsis þeirra tveggja milljóna Palest-
inumanna sem búa á Vesturbakkan-
um og Gaza-svæöinu, eftir að Arabar
skutu tvo Israelska lögreglumenn.
KAlRÓ
Sprengja springur á
vinsælum fferða-
mannastað
Sprengja sprakk nálægt frægustu pýr-
amídum Egypta, og særöi tvo eg-
ypska verkamenn. Hins vegar slapp
rússneskur ferðamannahópur sem
staddur var I grenndinni við meiösl,
að sögn lögreglumanna.
ABIDJAN
Barist í borginni
Barist var meö byssum I búðum Ör-
uggisvarðar rikisins þar sem upp-
reisnargjamir mótmælendur hafa náð
skrifstofu forsetans á sitt vald, hermdu
Ibúar borgarinnar I gær.
MOSKVA
Yeltsin leitar leiða
Boris Yeltsin, Rússlandsforseti, ráög-
aöist við vinveitta þingmenn um
hvernig best væri aö koma tillögum
slnum I framkvæmd um þjóðarat-
kvæðagreiðslu til að skera úr um
hverjir muni stjóma rfkinu.
SARAJEVÓ
Tveir stríðsglæpa-
menn dæmdir
Herdómsstóll I Bosníu dæmdi tvo
serbneska hermenn til dauöa fyrir
byssuárásir, morö og nauðganir. I
Tuzla segjast talsmenn Sameinuðu
þjóðanna tilbúnir til að hefja brottflutrv
ing særðra múslima frá Srebrenica I
þyriuflugi á ný, ef bosnlskir Serbar
samþykkja þaö.
DENNI DÆMALAUSI
„Er ekki hægt að fá gulrætur með einhverju öðru bragði?“