Tíminn - 17.04.1993, Blaðsíða 1
Laugardagur
17. apríl 1993
72. tbl. 77. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Utanríkisráðherra segir að ASl hafi slitið kjaraviðræðum af pólitískum ástæðum og forsætisráðherra segir:
Leiðtogar ríkisstjómarínnar, forsætisráðherra og utanríkisráð-
herra, sögðu á Alþingi í gær að þau öfl innan ASÍ sem viija kjara-
samning til skamms tíma hafi orðið ofan á og þess vegna hafi slitn-
að upp úr viöræðum um gerð kjarasamnings. Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra gekk svo langt að segja að ASÍ hafi
hafnað langtíma samningi af pólitískum ástæðum og Davíð Odds-
son forsætisráðherra sagði að rök talsmanna ASÍ fyrír því að hafna
samningum væru fyrírsláttur.
Málið var rætt á Alþingi að frum-
kvæði Ólafs Ragnars Grímssonar,
formanns Alþýðubandalagsins. Ól-
afur Ragnar gagnrýndi harðlega
ummæli ráðherranna og spurði
forsætisráðherra hvort hann teldi
það fyrirslátt sem Benedikt Dav-
íðsson, forseti ASÍ, hefur sagt um
ástæður samningsslita. Hann
sagði að getgátur um að einhver
öfl hafi komið í veg fyrir að samn-
ingar tækjust, séu ekki ráðherrum
sæmandi.
Davíð Oddsson sagði að frá upp-
hafi kjaraviðræðnanna hafi verið
skiptar skoðanir hjá báðum samn-
ingsaðilum um það hvort stefna
beri að kjarasamningi til langs eða
skamms tíma. Ákveðið hafi verið
að stefna að gerð langtímasamn-
ings. Davíð tók skýrt fram að það
tilboð sem ríkisstjórnin lagði fram
hafi miðast við þann grundvöll.
„Ríkisstjórnin hefur unnið að
þessu markmiði með þeim öflum
sem vildu samning til lengri tíma.
Ég tel að ríkisstjómin hafi teygt
sig afskaplega langt í þeim efnum.
Ég tel að það sé ekki hægt að sýna
fram á það með rökum eða dæm-
um að ríkisstjóm hafi í annan
tíma teygt sig svo langt til þess að
stuðla að kjarasamningum,“ sagði
Davíð.
„Ég tel að því miður hafi þeir að-
ilar sem vildu ganga götuna til
skemmri tíma orðið ofan á innan
Alþýðusambandsins og vilji nú
leita eftir samningum til skemmri
tíma. Það er ljóst að til gerðar
bráðabirgðasamninga þarf ekki at-
beina ríkisvaldsins.
Ef menn horfa á þau dæmi sem
tiltekin em sem skýring á því að
Alþýðusambandið hafi fallið frá því
að ganga götuna til enda, að reyna
lengri samninga, em þau þess eðl-
is að það er bersýnilega fyrirslátt-
ur,“ sagði Davíð.
Jón Baldvin sagði að ríkisstjórnin
hefði teygt sig eins langt og henni
hafi verið unnt.
„Sú staðreynd að samningar tók-
ust ekki er ekki ríkisstjóminni að
kenna heldur það, eins og fram
kom hjá forsætisráðherra, að þau
öfl sem vildu af pólitískum ástæð-
um ekki standa að slíkum lang-
tímasamningum urðu einfaldlega
ofan á,“ sagði Jón Baldvin.
Guðmundur Bjarnason (Frfl.)
gagnrýndi tilboð ríkisstjómarinn-
ar og sagði það loðið og máttlaust
Plagg-
Orðalag í því væri ákaflega óljóst,
sbr. að í kafla um vaxtamál segir:
„...mun stuðla að áframhaldandi
lækkun vaxta og aðgerðum í pen-
ingamálum verður hagað þannig
að vextir geti lækkað.“ Þá sé þar að
finna marklausar yfirlýsingar eins
og: „Til að treysta íslenskt atvinnu-
líf þarf öfluga sókn í atvinnumál-
um.“ Guðmundur sagði að ríkis-
stjórnin ætti eftir að vinna heima-
vinnuna sína.
„Því miður sýnist mér það vera
þannig að ríkisstjómin ætlar ekki
að gera neitt meir. Hún ætlar að
láta duga þessi ófullnægjandi svör
og þá er alveg ljóst að hér blasir við
áframhaldandi atvinnuleysi.
Hér blasa við áframhaldandi svo
háir vextir að það mun skapa gíf-
urlega erfiðleika fyrir útflutnings-
greinarnar og ógna stöðugleika
gengis,“ sagði Ólafur Ragnar í lok
umræðnanna. -EÓ
Sjá nánarí fréttir
af kjaramálum á
blaðsfðu 2 og 3.
NORÐLENSKIR HESTAMENN buðu Salome Þorkelsdóttur, forseta Alþingis, og
Halldórí Blöndal iandbúnaðarráðherra á hestbak í tilefni af norðlenskum hestadögum sem verða (
Reiðhöilinni í Víðidal um helgina. Salome var í söðli og tók sig vel út að venju. Halldór er vanur hesta-
maður frá því hann var í sveit hjá Lýð Pálssyni, bónda í Litlu-Sandvík. Tímamynd Ámi Bjama
Reykjavík líkist sífellt meira erlendum stórborgum:
Aka um í leit að fórnarlömbum
„Við vitum um unglinga sem aka um borgina og leita sér að fóm-
aríömbum sér til skemmtunar. Ofbeldi í dag er miklu harðara og
grófara en áður fyrr. Þaö eru að verða sífellt yngrí einstaklingar
sem beita ofbeldi," segir Arthúr Morthens, formaður bamaheilla.
Hann er einn af þremur fyríríesurum á samnorrænni ráðstefnu um
afbrot unglinga sem haldin er að Hallveigarstöðum í dag kl. 14, að
frumkvæði „Nordisk Liberale og Radikale Ungdomsforbund."
Honum verður tíðrætt um ofbeldis-
myndir. „Þær eru sérstakt áhyggju-
efni því þar er miklu meira ofbeldi að
finna en var fyrir örfáum árum,“ seg-
ir Arthúr. Hann vísar til Bretlands og
Bandaríkjanna og segir að þarlendir
séu að skera upp herör gegn ofbeldi í
myndböndum og fjölmiðlum. „Þessi
þáttur er mjög mótandi í uppeldi
bama á íslandi," segir Arthúr.
„Þetta verður svo til þess að í átök-
um bama á milli verður ofbeldið
miklu harðara en áður fyrr,“ bætir
Arthúr við. Hann segir það birtast
m.a. í því að nú sé algengt að ung-
lingar og ung böm gangi í skrokk
hvers annars.
Arthúr minnist á atvinnuleysi ungs
fólks sem nýjan orsakaþátt og telur
að það nálgist 15%. „Þá fara menn að
leita sér leiða til að fá sér eitthvert
skotsilfur. Sá heimur verður líka
miklu harðari," segir Arthúr og
bendir á að það sé verið að gera upp-
tæk vopnabúr unglinga.
Þá verður honum tíðrætt um auk-
inn kulda í samfélaginu sem hann
kallar svo. „Hann er orðinn svo mik-
ill og birtist í afskiptaleysi. Borgar-
inn lætur það viðgangast að mönn-
um sé misþyrmt í stigaganginum
eða í næstu íbúð,“ segir Arthúr.
„Reykjavík er komin með stórborg-
areinkenni og ofbeldistíðnin fer
hratt vaxandi hjá okkur hverjar sem
ástæðumar eru,“ segir Arthúr en vill
taka fram að hér sé á ferðinni mjög
flókið samfélagslegt mál sem engin
einhlít skýring sé á.
Arthúr segir að þjóðfélagsgerðin
hafi breyst mjög mikið undanfarin
30 ár. Þar vísar hann sérstaklega til
aukinnar þátttöku kvenna í atvinnu-
Iífinu sem þjóðfélagið hafi á engan
hátt mætt. „Til þess hefði þurft að
byggja upp einsetinn heils dags
skóla og leikskólakerfi sem gæti
mætt bömunum þegar þau eru þetta
mikið ein,“ segir Arthúr.
„Við höfum orðið vitni að því að
þetta félagslega öryggisnet í kring-
um böm hefur gliðnað vemlega, sér-
staklega á þéttbýlissvæðum," bætir
Arthúr við. Þar bendir hann m.a. á
að skilnaðartíðni hafi aukist mikið
hér á landi á áðurnefndu tímabili.
Arthúr bendir og á að í dag umgang-
ist böm fullorðna í miklu minna
mæli en áður var.
Hann segir að afleiðing þessa sé
aukinn fjöldi bama á afbrotabraut
Auk Arthúrs munu þeir Pétur Týr-
fingsson, deildarstjóri SÁÁ, og Guð-
mundur Baldursson, fíkniefnadeild
lögreglunnar, halda fyrirlestra á fyrr-
nefndri ráðstefnu. Ráðstefnustjóri
verður Gunnar Bragi Guðmunds-
son, formaður Félags ungra fram-
sóknarmanna í Reykjavík. -HÞ