Tíminn - 17.04.1993, Blaðsíða 6

Tíminn - 17.04.1993, Blaðsíða 6
6 Tíminn Laugardagur 17. apríl 1993 Steingrímur Hermannsson, formaður stjórnar Tímans hf. ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borg- arverkfræðings, óskar eftir tilboðum í utanhúss viðhald á Breiða- geröisskóla. Verkið felst i utanhússviögeröum ásamt málun þaka. Helstu magntölur eru: Endursteypa veggja 15 m2 Sprunguviðgerðir 310 m Málun útveggja 670 m2 Málun þaka 1.780 m2 Verktími: 1. júní-27. ágúst 1993. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miövikudaginn 28. apríl 1993, kl. 11,00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800 ÚTBOB Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borg- arverkfræðings, óskar eftir tilboðum I viðgeröir og viðhald á steinsteypu, ásamt endursteiningu og viðgerðum á gluggum Melaskóla. Heistu magntölur eru: Sprunguviðgerðir 250 m Endursteining 640 m2 Fúaviðgerðir karma og pósta 45 m Endurmálun glugga 1.300 m Verktími: 25. maí-25. ágúst 1993. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavik, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboð. í verða opnuö á sama stað miövikudaginn 21. apríl 1993, kl. 11,00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 Tíminn - mál- svari félags- hyggjufólks í gærmorgun kom saman til fundar nýkjörin stjórn útgáfufé- lagsins Tímans hf., útgáfufélags dagblaðsins Tímans. Hlutverk stjórnarinnar verður einkum að annast hlutafjárútboð í félaginu sem ætlunin er að breyta í al- menningshlutafélag. Þetta þýðir í raun að dagblaðið Tíminn hættir að vera beint málgagn eins stjórn- málaflokks heldur verður mál- svari, fréttamiðill og umræðuvett- vangur íslensks félagshyggjufólks, hvar í flokki sem það stendur. „Aðalfundur Tímans hf. var hald- inn sl. miðvikudag. Fundurinn markar lok þess reynslutímabils sem hófst um áramótin 1991-92. Það er engin launung á því að þeg- ar við á þeim tíma gerðum upp blaðið var mikill halli á rekstri þess,“ segir Steingrímur Her- mannsson alþingismaður, formað- ur blaðstjórnar Tímans. Steingrímur Hermannsson er formaður hinnar nýju stjórnar og Tíminn ræddi við hann í gær um framtíð blaðsins og þær breyting- ar sem gerðar verða á því í fram- haldi af nýafstöðnum aðalfundi útgáfufélagsins og fundi nýkjör- innar stjórnar þess. Hrökkva eða stökkva Um áramótin 1991-1992 var staða Tímans mjög tæp og áhöld um hvort hann yrði gefinn út áfram. Þáverandi eigendur blaðs- ins stóðu frammi fyrir því að ann- að hvort hætta útgáfu blaðsins eða freista þess að snúa hallanum við. Síðari kosturinn var tekinn og með ítrasta sparnaði, aðhaldi og niðurskurði í rekstri, hefur tekist að ná rekstri blaðsins á núllið. „Tíminn var þá eign sameignar- félags flokksins og Framsóknarfé- laganna í Reykjavík. Það var ákveðið þá að gera tilraun og breyta blaðinu í hlutafélag og í framhaldinu var stofnað hlutafé- lagið Tíminn hf. af nokkrum ein- staklingum innan Framsóknar- flokksins. Niðurstaðan af uppgjöri ársins 1992 sýnir óyggjandi að til- raunin hefur tekist. Segja má að afkoma blaðsins sé nú á núllinu. Það er að vísu ríflega milljónar kr. reikningslegur halli á rekstrinum, en á móti kemur að Tíminn hf. hefur orðið að greiða nokkrar útistandandi skuldir gamla Tímans og fjármagnskostn- aður af þeim sökum er nánast sá sami og niðurstöðutalan er, eða ríflega ein milljón krónur, þannig að rekstur blaðsins stendur í járn- um. Þetta teljum við ótrúlega góðan árangur sem fyrst og fremst ber að þakka góðu starfsliði blaðsins sem lagt hefur sig mjög eindregið fram, bæði með því að draga úr kostnaði eftir föngum og vinna blaðið og koma því út með lág- marks starfsliði. Það hefur þannig tekist að lækka rekstrarkostnað- inn mjög verulega en hins vegar má segja að dreifing blaðsins og áskrifendafjöldi hafi staðið í stað. Þessi árangur þýðir einfaldlega að það er rekstrargrundvöllur fyr- ir blaðið og því hafa núverandi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.