Tíminn - 17.04.1993, Page 7
Laugardagur 17. apríl 199
Tíminn 7
Breytingar á útgáfu
dagblaðsins Tímans
í undirbúningi.
Steingrímur
Hermannsson:
eigendur þess ákveðið að gera til-
raun til að byggja hægt og sígandi
á þessum grunni vaxandi blað -
blað félagshyggjufólks á íslandi.
Því verður nú leitað samstarfs við
félagshyggjufólk, hvar í flokki sem
það kann að standa, um að gefa út
slfkt blað.
Flokksblöð eru úrelt
Við álítum að almennt séð sé ekki
lengur grundvöllur fyrir flokks-
blöð. Hins vegar teljum við mjög
mikla þörf vera fyrir blað félags-
hyggju- og umbótasinnaðs fólks -
miðjublaði, sem hefur fullkom-
lega sjálfstæða ritstjórn.
I samræmi við þessa skoðun var
ákveðið á fyrrnefndum aðalfundi
sl. miðvikudag að breyta útgáfufé-
laginu Tímanum hf. í almennings-
hlutafélag. Við munum á næstu
dögum bjóða bæði kaupendum
Tímans og öðrum einstaklingum
að taka þátt í því að auka hlutafé
félagsins verulega.
Ég hef orðið var við það að í
þessu samhengi staldra menn
gjarnan við NT-ævintýrið og ég vil
leggja mjög þunga áherslu á að
hér er síður en svo ætlunin að
endurtaka það. Við teljum okkur
hafa lært alvarlega Iexíu af því æv-
intýri og brennt barn forðast eld-
inn.
Með NT var meiningin að gleypa
bæði Morgunblaðið og DV í einum
bita. Engum dettur slíkt í hug nú
enda vitum við að sígandi lukka er
best. Við ætlum því að byggja
hægt og sígandi á þeim grunni
sem nú hefur verið lagður í rekstri
og útgáfu Tímans og skapa fyrir-
myndarblað félagshyggju- og um-
bótasinnaðs fólks sem verður
óháð og sjálfstætt - óháð öðrum
en lesendum sínum.
Til að undirstrika þessar (yrirætl-
anir og framfylgja þeim var á aðal-
fundinum fyrr í vikunni kosin ný
stjórn. Allir sem voru í fyrri stjórn
utan mín, hafa nú gengið úr
stjórn en í stað þeirra eru komnir
Leó Löve útgefandi, Margrét Rósa
Sigurðardóttir bókagerðarmaður,
Pjetur Sigurðsson blaðamaður á
Tímanum og Vilhjálmur Jónsson
fyrrv. forstjóri og varamaður. er
Stefán Ásgrímsson fréttastjóri á
Tímanum.
Þarna koma við sögu tveir menn
af starfsliði Tímans sem er sann-
gjarnt, því að starfslið Tímans hef-
ur sýnt þessu máli mikinn áhuga
og vill taka þátt í þessari tilraun
sem nú er að hefjast.
Blað félagshyggju-
fólks
-Hefur þá Framsóknarflokkur-
inn í raun sleppt höndum af
blaöinu?
„Framsóknarflokkurinn verður
ekki útgefandi Tímans. Flokkur-
inn á hins vegar nú vissa hluti í
rekstri blaðsins, svo sem ýmsan
tæknibúnað og viðskiptavild sem
felst í áskrifendum, tækjum og
fleiru. Þetta hefur verið metið af
fagmönnum og flokkurinn er til-
búinn að leggja þetta fram sem
hlutafé í útgáfufélag blaðsins.
Við gerum okkur fulla grein fyrir
því að tími flokksmálgagna er lið-
inn og til þess að dagblaðið Tím-
inn verði trúverðuglega óháður
pólitískum flokkum þá megi
Framsóknarflokkurinn alls ekki
eiga yfir 20% hlutafjár og við þá
tölu höfum við sett hámarkið.
Stjórnin sem nú hefur verið kjör-
in er að okkar mati bráðabirgða-
stjórn með það höfuðverkefni að
ná fram þeim markmiðum sem ég
hef áður lýst. Við teljum að fram-
tíðarstjórn blaðsins verði síðar
meir kosin af þeim nýju hluthöf-
um sem munu nú koma inn.
Þá leggjum við áherslu á það að
bæði núverandi stjórn og framtíð-
arstjórn blaðsins eigi ekki að fjalla
um ritstjórn þess eða ritstjórnar-
stefnu heldur um rekstur þess
fjárhagslega. Það verður eitt verk-
efna stjórnar að velja ritstjóra sem
fengin verða mjög mikil völd. Rit-
stjórinn mun ráða efnistökum og
efnismeðferð blaðsins. Ritstjór-
inn verður starfsmaður stjórnar-
innar og verði hún ekki sátt við
sinn mann mun hún geta skipt
um ritstjóra.
Þannig er ætlunin að reka þetta
sem fyrirtæki á viðskiptalegum
grunni.
Mótvægi við hægri
blöðin
-Stendur þér og öðrum Fram-
sóknarþingmönnum engin ógn
afþví að hafa skyndilega ekkert
málgagn lengur undir beinni
stjóm flokksins og að blaðið
geti efsvo ber undir fjallað hlut-
lœgt um mál sem ykkur gœti
komið illa?
„Eflaust verður einhverjum
þungt í skapi út af því ef að svo fer,
en við því er einfaldlega ekkert að
gera. Okkur er bara orðið það ljóst
að þetta er hlutur sem við verðum
að þola eins og hverjir aðrir og
munum taka því vel, verði um
fjallað af hlutleysi og sanngirni.
Hins vegar verðum við að vona að
ekki einungis framsóknarfólk,
heldur allt félagshyggjufólk muni
nota þetta blað sem vettvang fyrir
skoðanaskipti og félagshyggjufólk
er miklu fleira í landinu en fram-
sóknarfólk. Félagshyggjufólk er í
miklu fleiri flokkum og við teljum
að það fólk vanti vettvang og mál-
gagn.“
-Hefur einhver athugun verið
gerð á því hvort félagshyggjufólk
sjálft telji að slíkan vettvang
vanti?
„Það hefur að vísu ekki verið
gerð bein athugun á því. Hins veg-
ar viljum við gjarnan hrinda af
stað skoðanakönnun um þetta
efni. Við vitum hins vegar talsvert
um vilja fólks í þessum efnum
m.a. úr þeirri vinnu sem fram-
kvæmd var á sínum tíma á vegum
Nýmælis hf. í tengslum við hug-
myndir um nýtt blað félags-
hyggjufólks.
Við teljum að sú athugun sem þá
var gerð hafi leitt f ljós að mjög
víðtækur stuðningur er við hug-
myndina um slíkt blað og við er-
um nú að koma til móts við þenn-
an almenna vilja. í þessu sam-
bandi vil ég taka fram að ég vil í
engu halla á Morgunblaðið eða DV
sem eru sjálfstæð fyrirtæki. Það er
hins vegar öllum ljóst að bæði
blöðin eru fyrst og fremst mál-
svarar hægri stefnunnar í þjóð-
málum og það er að ég held ekkert
hollt fyrir þessi blöð að vera ein á
blaðamarkaðnum.
Tengsl við
umheiminn
Við höfum einnig rætt um það að
taka þurfi upp nútímalegri frétta-
flutning af því sem er að gerast í
þessum litla heimi í kringum okk-
ur sem er sífellt að minnka. Við
þurfum að skapa betri tengsl við
umbótasinnuð blöð og fjölmiðla í
kringum okkur en forsenda þess
er auðvitað sú að okkur takist að
safna saman dálitlu hlutafé til að
hefja þessa sókn.“
-Er þá œtlunin að breyta rit-
stjómarstefnu blaðsins í einu
vetfangi?
„Nei, það verður ekki, einfaldlega
vegna þess að til þess eru engin
efni auk þess er, eins og ég sagði
áðan, sígandi lukka best. Til að
byrja með munum við treysta á
það starfslið sem á blaðinu vinnur
nú þegar og sem að okkar mati
hefur unnið mjög vel. Það er
vissulega fámennt og getur þess
vegna ekki sinnt öllu sem það
gjarnan vildi.
Við erum nú að gera upp eigna-
stöðu blaðsins og gera áætlun
fram í tímann og síðan hef ég gert
ráð fyrir að við munum skrifa öli-
um kaupendum blaðsins og gera
þeim grein fyrir málum og bjóða
þeim sem þess óska að greiða smá-
vegis inn sem hlutafé. Þá verður
áfram rætt við ýmsa aðila í þjóðfé-
laginu sem áður hafa tekið vel í
hugmyndir okkar.
Ef að árangur þessa verður já-
kvæður og við fáum loforð fyrir
einhverju fjármagni - við erum
ekki að tala um stórar fjárhæðir
heldur um 20-30 milljónir kr. að
meðtalinni viðskiptavild og nú-
verandi eign blaðsins - þá verður
hafist handa við næsta stig. Þá er
gert ráð fyrir því að núverandi
stjórn víki og nýir hluthafar kjósi
stjórn og ráði ritstjóra því að fyrr
verður það ekki mögulegt kostn-
aðarins vegna.
Þá verður jafnframt hafist handa
við útbreiðslustarf."
-Hvað œtliði ykkur iangan tíma
til þessara verka?
„Virðisaukaskattur verður lagður
á blaðaútgáfu þann 1. júlí nk. og
það eru að okkar mati tímamót því
að eftir það verður blaðaútgáfa
erfiðari. Þess vegna höfum við sett
okkur það markmið að ljúka
hlutafjárútboði fyrir þann tíma.
Það er því tæpa þrjá mánuði upp á
að hlaupa. Ég tek þó fram að þetta
verk er þegar hafið, því að undan-
farna mánuði hefur verið unnið
bakvið tjöldin að framgangi máls-
ins. í raun byrjuðum við strax fyr-
ir rúmum þremur mánuðum þeg-
ar ljóst var orðið að tilraunin sem
hófst um áramótin 1991-1992
myndi takast.
Ég vil sérstaklega geta þess að
starfsfólk blaðsins hefur sýnt
þessu máli mikinn áhuga sem er
mikilsvert og kannski lykillinn að
því að markmið okkar náist. Það
verður því unnið stíft næstu daga
og vikur að málinu og ég trúi því
að nú sé að fæðast frjálst og óháð
málgagn félagshyggjufólks á ís-
landi.
-Stefán Ásgrímsson
ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borg-
arverkfræðings, óskar eftir tilboðum í þakviðgerðir o.fl. á 1.
áfanga Ölduselsskóla.
Heistu magntölureru:
Stálklætt þak 870 m2
Pappaklætt þak 66 m2
Múrklæðning 75 m2
Glerskipti 17 m2
Verktími: 24. maí-27. ágúst 1993.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vom', Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 28. apríl 1993,
kl. 14,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800
IP ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borg-
arverkfræðings, óskar eftir tilboðum í smíði 8 færanlegra
kennslustofa ásamt tengigöngum.
Helstu magntölureru:
Heildarflatarmál kennslustofa 480 m2
Heildarflatarmál tengiganga 80 m2
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavik, gegn kr. 15.000,-skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriöjudaginn 4. mal 1993,
kl. 14,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Borgarverkfræðingsins
I Reykjavík, óskar eftir tilboöum í gatnagerð, lagningu holræsa,
gerð bllastæða og vinnu fyrir veitustofnanir I nýju hverfi I Borg-
arholti.
Helstu magntölur eru:
Heildarlengd gatna u.þ.b. 750 m
Heildarlengd holræsa u.þ.b. 2.000 m
Lokaskiladagur verksins er 1. apríl 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofú vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kr. 20.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 28. april 1993,
kl. 15,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800
-----------------:-------------------------------\
UTBOÐ
Klofningsvegur um Fagradal
Vegagerö rikisins óskar eftir tilboöum I lagningu
2,6 km kafla á Klofningsvegi um Fagradal.
Helstu magntölur: Fyllingar og buröarfög 34.000
m3 og skeringar 10.000 m3.
Verki skal lokiö 10. ágúst 1993.
Útboðsgögn veröa afhent hjá Vegagerð ríkisins I
Borgarnesi og Borgartúni 5, Reykjavlk (aöal-
gjaldkera), frá og með 19. þ.m.
Skila skal tilboöum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00
þann 3. mal 1993.
Vegamálastjóri
_________________________________________________/
Iilinin
^félÍn Spwtlant
Súöarvogi 18 Knarrarvogi 2
Sími 91-685128 Fax 91-685119
kimpEX VARAHLUTIR í FLESTAR
GERÐIR VÉLSLEÐA
YAMAHA VIÐGERÐARÞJÓNUSTA
Vélhjól, vélsleðar, utanborðsmótorar o.fl.