Tíminn - 17.04.1993, Qupperneq 18
18 Tíminn
Laugardagur 17. apríl 1993
Helgi Svanberg Jónsson
bóndi, Lambhaga
Fæddur 6. júlí 1943
Dáinn 7. apríl 1993
Bænadagamir og páskamir vom
bjartir og fagrir og veður með ein-
dæmum gott um allt land að heita.
Fólk notfærði sér frídagana til úti-
vem og skemmtunar, enda hefur
ekki viðrað vel til þess undanfama
mánuði. Það má því með sanni segja
að bjart hafi verið í hugum flestra
landsmanna þessa helgi. Ekki nutu
þó allir sem skyldi. Veikindi, dauðs-
föll og sorg knúði dyra hjá mörgum
og ekki er spurt um stund eða stað.
Það grúfði sorg yfir heimilisfólkinu
í Lambhaga þessa helgi. Miðviku-
daginn 7. apríl lést heimilisfaðirinn
á heimili sínu langt um aldur fram,
aðeins 49 ára gamall, frá ungri eig-
inkonu og sex bömum á aldrinum
11 til 23 ára. Helgi kenndi sér meins
haustið 1991 og gekkst undir erfiða
aðgerð á Landspítalanum í desem-
ber það ár. Það er aðdáunarvert hve
duglegur hann var allan tímann og
s.l. sumar vonaði maður að hann
mundi e.t.v. yfirvinna sjúkdóminn,
svo harður var Helgi. Ekki er vitað
annað en Helgi hafi verið hraustur
vel, enda vann hann alla tíð mikið
við stóran búskap og framfleytti
stórri fjölskyldu í Lambhaga. Áfallið
kom eins og reiðarslag yfir fjölskyld-
una. Var ekki nóg komið? Um það bil
þremur árum áður veiktist eitt
bamanna, Gunnar Ásberg, þá rétt 13
ára.
Mér er minnisstætt samtal, sem við
Helgi áttum saman lyrir þremur
vikum eða svo, þegar hann dvaldist
síðast á Landspítalanum. Þar rædd-
um við m.a. um lífið og dauðann.
Hann gerði sér þá fulla grein fyrir
því að stutt væri í brottförina, sem
enginn kemst hjá að fara. Hann
sagðist hafa áhyggjur af yngstu
bömunum og ekki síst honum Ás-
berg. Andlegt álag allra í fjölskyld-
unni hefur verið með ólíkindum s.l.
ár. Því enn eitt áfallið dundi yfir,
þegar Guðmundur Ómar veiktist í
ágúst s.I., þá rétt tvítugur, og þurfti
hann að gangast undir erfiða að-
gerð. Góðar batahorfur em hjá
Omari og er ekki að sjá að hann hafi
fyrir skömmu legið sjúkur á spítala,
enda hraustur og glaður ungur
maður.
Það er með ólíkindum, sem lagt
hefur verið á eina fjölskyldu, ef svo
má að orði komast. Aðdáunarvert er
hve æðrulaus hún hefur verið og
staðið vel saman í þessum miklu erf-
iðleikum.
Undirritaður kynntist þessu góða
fólki fyrir nokkmm ámm, þegar
Skúli Jónsson á Selalæk, bróðir
Helga, útvegaði fjölskyldu minni
hagagöngu fyrir hestana okkar. Frá
þeim tíma hefúr skapast góð vinátta.
Höfum við því haft tækifæri til þess
að fylgjast með fjölskyldunni í
Lambhaga. Margar ánægjustund-
imar höfum við átt saman og rætt
málin af græskulausu gamni. Það
hefur einnig verið þroskandi fyrir
okkur að kynnast æðmleysi þessa
góða fólks í hinum miklu erfiðleik-
um þess.
Ekki mun ég rekja hér lífsgöngu
Helga, það munu eflaust aðrir gera,
sem betur þekkja til.
Helgi Svanberg fæddist í Gunnars-
holti á Rangárvöllum 6. júlí 1943.
Foreldrar hans vom Jón Egilsson,
bóndi á Selalæk, og fyrri kona hans
Helga Skúladóttir. Þau em bæði lát-
in. Helgi er fyrstur bama Jóns á
Selalæk, sem fer yfir móðuna miklu.
Helgi lauk búfræðiprófi frá Hólum
1961. Eiginkona Helga er Ásgerður
Sjöfn Guðmundsdóttir frá Vorsabæ í
Landeyjum og eiga þau sex mann-
vænleg böm, sem öll em í heima-
húsum.
Við Skúli bróðir Helga höfðum
ákveðið að hittast á föstudaginn
langa og heimsækja Helga. Ekki
varð af þeirri heimsókn, þar eð Helgi
lést, eins og áður er getið um, mið-
vikudaginn 7. þ.m.
Við hjónin þökkum Helga sam-
fylgdina og sérstaklega góða við-
kynningu, sem varð allt of stutt, og
biðjum góðan Guð að vemda hann
og leiða á þeirri göngu, sem hann
hefur nú lagt út á. Við þökkumhon-
um og fjölskyldunni í Lambhaga alla
aðstoðina við hestana okkar undan-
farin ár.
Við áttum þar góðar stundir saman.
Elsku Sjöfn og bömin þín, við
sendum ykkur okkar innilegustu
samúðarkveðjur og biðjum góðan
Guð að styrkja ykkur í hinni miklu
sorg.
Einnig sendum við öllum aðstand-
endum innilegar samúðarkveðjur.
Erlen og Matthías Gíslason
Látinn er langt um aldur fram vin-
ur minn og frændi Helgi Jónsson,
bóndi í Lambhaga á Rangárvöllum.
Lengi og vel barðist hann við ill-
kynja sjúkdóm og þraukaði lengur
en bæði ég og aðrir ætluðum. Enda
þótt hann og allir aðrir vissu hvem-
ig þeirri baráttu myndi lykta, var
BLÓMIÐ
— góð blómaverslun —
Blóm - Skreytingar - Gjafavara
Kransar - Krossar - Kistuskreytingar
Úrval af servtettum
OPIÐ FRÁ KL. 10-21
GRENSÁSVEGI 16- SÍMI 811330
X
Tvær leiðir
eru hentugar til þess
að verja ungbarn í bíl
Látiö barniö annaöhvort liggja
í bílstól fyrir ungbörn eöa
barnavagni sem festur er
meö beltum.
UUMFERÐAR
R4o
y
Innkaupastofnun Reykjavlkurborgar, f.h. Hitaveitu Reykjavíkur,
óskar eftir tilboöum i verkiö „Hitaveitustokkar — viðgeröir 1993“.
Verkið felst I endurbótum og viðgeröum á steyptum stokkum,
sem innihalda nokkrar af stofnæðum Hitaveitu Reykjavíkur, s.s.
Hafnarfjaröaræð, Reykjaæð, Stekkjabakkaæð, Suöurlands-
brautaræð o.fl.
Verkinu skal lokið fyrir 1. október 1993.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofú vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboöin verða opnuö á sama stað fimmtudaginn 6. maf 1993,
kl. 11,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
hann ætíð glaður og reifur, enda
studdi fjölskylda hans hann dyggi-
lega.
Það eru mörg ár síðan ég kom fyrst
að Lambhaga. Engin kynni eða
spumir hafði ég áður haft af Helga
bónda. Ég man að handtak hans var
þétt og erindi mínu var vel tekið.
Reyndar spurði hann hvers vegna ég
hefði ekki komið löngu fyrr. Síðan
hef ég sjaldan farið austur yfir
Þjórsá án þess að koma við í Lamb-
haga. Mér fannst heimilisbragur þar
sérstæður og það tók mig nokkurn
tíma að átta mig á því, hvað var
óvenjulegt. Ég hefi hvorki fyrr né
síðar kynnst heimili þar sem fyrir
vom sex börn og þú vissir ekkert af
þeim. Aldrei heyrðist bamsgrátur,
aldrei var rifist, hvað þá slegist.
Lengi vissi ég aldrei hversu mörg
þessi böm vom. Á þessum ámm
vom yngstu bömin í frumbernsku
og þetta hefur haldist óbreytt alla tíð
síðan. Ekki leyndi sér þarna með-
fædd kurteisi og gott uppeldi.
Enda þótt lífshlaup okkar Helga í
Lambhaga væri ólíkt, skorti okkur
aldrei umræðuefni. Báðir vomm við
sveitamenn úr Rangárþingi. Oft var
rætt um búskap, fólk og viðburði í
héraði, og varð ég um margt fróðari.
Mikill bókakostur var til á heimilinu
um þessi efni, Rangvellingabók Val-
geirs á Þingskálum, Sunnlenskar
byggðir, Víkingslækjarættin og
fleira, en sjaldan þurfti að leita í
þessar bækur. Ef bóndi var í vafa
þurfti aðeins að spyrja húsfreyju,
aldrei man ég til þess að henni yrði
svarafátt. Er það eitt dæmi af mörg-
um um hversu vel Helgi, frændi
minn, var giftur.
Helgi í Lambhaga var mikill bóndi.
Hann varð búfræðingur frá Hólum
1961. Ekki efa ég að það nám hafi
komið honum að miklu gagni, þó
ætla ég að betur hafi dugað gáfúr
hans, dugnaður, hagsýni og hand-
lagni. Ég vænti þess að fmmbýlings-
árin hafi verið erfið, ekki síst fyrir
Sjöfn vinkonu mína frá Vorsabæ í
Austur- Landeyjum. Lambhagi var
ekkert höfuðból er þau hófu búskap
þar 1970 og húsakynnin bágborin.
Auðvitað þurfti fyrst að byggja yfir
bústofninn, að því loknu var hægt
að huga að mannfólkinu. Ég held þó
að hvomgt hafi kvartað, en annars
er ég ekki kunnugur búskaparsögu
þeirra hjóna, um hana var sjaldan
rætt. Ég veit hins vegar hvernig
húsakynnum og ræktun var háttað á
Lambhaga á þessum árum og hvern-
ig þar er umhorfs í dag. Afrek þeirra
hjóna í ræktun og uppbyggingu
jarðarinnar em ótrúleg.
Vissulega hefur fjölskyldan í Lamb-
haga mátt þola ýmsar hremmingar á
undanfömum ámm, en hún hefúr
ekki bognað, hvað þá brotnað. Ekki
töldu þau Sjöfn og börnin það neina
ofraun að hjúkra Helga fársjúkum,
vikum saman, og uppfylla þá ósk
hans að dvelja heima til hinstu
stundar. Slíkt er óvenjulegt nú á
dögum og fagurt. Alltaf ríkti gleði
og góður andi í Lambhaga.
Vissulega er það þyngra en támm
taki þegar maður eins og Helgi í
Lambhaga fellur frá á besta aldri, en
öll él birtir upp um síðir. Ekki veit
ég hvort Helgi vinur minn var trú-
maður, slík mál ræddum við aldrei.
En sé það svo að hann eigi eftir að
ganga fyrir einhvern dóm almættis-
ins, ætla ég að sá dómur geti aðeins
dæmt menn eftir gerðum þeirra og
innræti og stendur hann þar betur
að vígi en flestir aðrir er ég þekki.
Láti Guð honum nú raun lofi betri.
Hrafnkell Helgason
Ef ég mætti yrkja,
yrkja vildi ég jörð.
Sveit er sáðmanns kirkja,
sáning bænagjörð.
Vorsins söngvaseiður
sálmalögin hans.
Blómgar akur breiður
blessun skaparans.
Musterisins múra
marka reginfjöll.
Glitvefgróður skúra,
geislar skreyta höll.
Gólf hins gróna vallar
grænu flosi prýtt.
Hvelfing glæstrar hallar
heiðið blátt og vítt.
Vígjum oss í verki
vorri gróðurmold.
Hefjum hennar merki
hátt í móður fold.
Hér er helgur staður,
hér sem lífið grær,
íslands æskumaður,
íslands frjálsa mær.
(Bjarni Ásgeirsson)
Það er vor í lofti, farfuglarnir koma
hver af öðrum með sinn fagra söng,
jörðin klakalítil. Snjór hlífði gróðri
þegar fraus í vetur, svo tún komu
víða græn undan vetri. Vorverk að
hefjast í sveitum, lífið tekur á sig allt
annan blæ, bændur leggja nótt við
dag til að koma vorverkum af á til-
settum tíma. En forlögin spyrja ekki
um hvað þarf að gera, hvort einhver
telur sig ekki hafa lokið ætlunar-
verki sínu. Maður í blóma lífsins er
kallaður burt, þegar mikið starf er
að baki og mætti ætla að léttari ár
séu framundan. Það er erfitt að
sætta sig við slíkan dóm, en við það
ræður enginn mannlegur máttur.
Helgi Jónsson í Lambhaga á Rang-
árvöllum fæddist þann 6. júlí árið
1943, sonur hjónanna Jóns Egils-
sonar frá Stokkalæk og fyrri konu
hans, Helgu Skúladóttur frá Keld-
um. Bjuggu þau fyrst í Gunnarsholti
á Rangárvöllum, en keyptu jörðina
Selalæk í sömu sveit og fluttist fjöl-
skyldan þangað árið 1946.
Jón og Helga eignuðust 5 böm, en
erfiðleikar steðjuðu að. Helga lést
árið 1947 og var þá yngsta barnið á
öðru ári. Við getum reynt að setja
okkur í spor ungs manns sem miss-
ir konuna frá 5 börnum á aldrinum
1 til 8 ára. Einnig var á heimilinu
öldmð kona, föðursystir Jóns, Guð-
ríður Jónsdóttir. Honum bauðst að
láta hluta af börnunum í fóstur, en
Jón Egilsson bugaðist ekki; kom þar
fram þrautseigja hans og dugnaður.
Hann hélt hópnum saman og rak
stórt bú, en árið 1951 birti til á
heimilinu á Selalæk þegar Jón
kvæntist seinni konu sinni, mikilli
myndarkonu, Ólöfu Bjarnardóttur
frá Böðvarsholti í Staðarsveit á Snæ-
fellsnesi; eignuðust þau 5 böm. Það
er mikið þrekvirki að taka að sér
mann með 5 börn og gamalmenni
og bæta öðmm 5 börnum við, en
Ólöfu fórst það vel úr hendi og er
hún jafnt elskuð af stjúpbömum
sem börnum. Jón Egilsson lést 23.
júní sl., tæplega 84 ára að aldri.
Af þessu má sjá að Helgi er alinn
upp í stómm systkinahópi og hlýtur
því oft að hafa verið líflegt á heimil-
inu á Selalæk. Á yngri ámm vann
Helgi á búi föður síns, svo og á jarð-
vinnsluvélum á vegum Ræktunar-
sambands Rangárvalla, Hvolhrepps
og Fljótshlíðar. Einnig vann hann á
Véla- og bifreiðaverkstæði Kaupfé-
lags Rangæinga á Hvolsvelli og taldi
sig hafa lært mikið á þeim tíma, sem
kom sér vel síðar á lífstíðinni.
Helgi fetaði í fótspor föður síns og
fór í Bændaskólann á Hólum í
Hjaltadal og sagðist hafa lært ýmis-
legt þarflegt þar, sem gott er fyrir
bændur að kunna og vita. Ekki síður
mat hann góðan félagsskap og hve
mikils virði það er að hitta menn
sem víðast að og ræða málin, bera
saman bækur sínar, því slíkt eykur
víðsýni. Árið 1991 áttu þessir Hóla-
sveinar 30 ára útskriftarafmæli.
Mættu þeir allir heim að Hólum og
hafði Helgi mjög gaman af þeirri
ferð.
Vorið 1970 urðu þáttaskil í lífi
Helga er hann kvæntist eftirlifandi
eiginkonu sinni, Ásgerði Sjöfn Guð-
mundsdóttur frá Vorsabæ í Austur-
Landeyjum. Þá var vor í lofti. Það
var vor í hugum ungu hjónanna er
þau sama ár keyptu jörðina Lamb-
haga á Rangárvöllum og fluttu inn í
gamla bæinn með litlu dótturina.
Þama beið þeirra mikið starf. Að
byggja upp öll hús á bændabýli er
mikið átak, að ógleymdu öllu því
ræktunarstarfi sem unnið hefur ver-
ið á jörðinni síðan þau keyptu
Lambhagann.
Hjá Helga kom aldrei neitt annað
til greina en að verða bóndi, rækta
jörðina og hafa gott bú. Hann hafði
fastmótaðar skoðanir, lúrði ekkert á
þeim og lét óspart í Ijós álit sitt á
mönnum og málefnum. Þannig
kom hann til dyranna eins og hann
var klæddur. Helgi vissi vel hvað
samstaða manna er mikils virði,
hvað það er mikil nauðsyn fyrir ís-
lenska þjóð að búa sem best að sínu
og hafa vinnu fyrir þegnana. Helgi
sat í stjórn Búnaðarfélags Rangár-
vallahrepps í mörg ár og einnig í
stjóm Veiðifélags Rangæinga. Ég
veit að þótt Helga njóti ekki lengur
við, þá mun fjölskyldan halda uppi
sama merki og verið hefir.
Sjöfn og Helgi eignuðust 6 börn.
Þau em: Helga Dagrún f. 1969, Jón
Þór f. 1971, unnusta hans er Ásdís
Steinunn . Tómasdóttir frá Vest-
mannaeyjum, Guðmundur Ómar f.
1972, GunnarÁsberg f. 1976, Hafdís
Þórunn f. 1980, Björgvin Reynir f.
1982.
En lífið hefur ekki verið eingöngu
dans á rósum síðastliðinn áratug.
Það er erfitt að skilja hvers vegna
sum heimili verða verr úti en önnur
hvað heilbrigði varðar. En þau veik-
indi verða ekki frekar rakin hér, slíkt
væri ekki í anda þeirra sem um er
rætt, eins og þau segja sjálf. Að velta
sér upp úr vandanum gerir bara illt
verra. En Lambhagafjölskyldan
stendur þétt saman.
Það er ávallt stutt í léttleikann hjá
heimilisfólkinu í Lambhaga þegar
gesti ber að garði, en þar er mjög
gestkvæmt og hefur þá frúin gaman
af að glettast við unga fólkið ekki
síður en hina eldri. Má vera að þar
komi fram leikrænir hæfileikar
hennar, en hún hefur gert talsvert af
því að semja og flytja gamanmál á
þorrablótum og kvenfélagaskemmt-
unum við góðan orðstír.
Fyrir um það bil einu og hálfu ári
fór Helgi að kenna fyrir alvöru þess
sjúkdóms er nú hefir lagt hann að
velli. Hann barðist hetjulegri bar-
áttu og bugaðist aldrei, og fram á
síðustu daga lagði hann á ráðin
varðandi búskapinn, enda ekki lítils
virði að hafa konu sér við hlið sem
stendur eins og klettur og telur
kjark í fólkið. Helgi lést að heimili
sínu miðvikudaginn 7. aprfl sl. og
verður jarðsunginn frá Keldna-
kirkju í dag, laugardag 17. apríl.
Með þessum línum vil ég þakka
Helga allar okkar samverustundir,
þegar við hjálpuðum hvor öðrum
við byggingar, þegar við heyjuðum í
samvinnu á sandinum og margt,
margt fleira. Ég sendi Sjöfn og börn-
unum innilegar samúðarkveðjur frá
mér og minni fjölskyldu. Megi al-
góður Guð vernda ykkur og styrkja í
ykkar þungbæru sorg. Guð blessi
minningu látins vinar.
Sæm. B. Ágústsson