Tíminn - 30.04.1993, Qupperneq 9
Föstudagur 30. apríl 1993
Tíminn 9
DAGBÓK
Félag eldri borgara
Göngu-Hrólfar fara frá Risinu, Hverfis-
götu 105, kl. 10 á laugardagsmorgun.
Félag eldri borgara Kópavogi
Félagsvist og dans að Auðbrekku 25 í
kvöld, föstudag, kl. 20.30. Caprí-tríó
leikur fyrir dansi. Húsið öllum opið!
Frá Hana nú í Kópavogi
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað
frá Fannborg 4 kl. 10. Nýlagað molakaffi.
Feróafélag íslands
Dagsferðir Ferðafélagsins 1. og 2. maí:
Laugardagur 1. mal kl. 10.30: Skíða-
gönguferð í Innstadal. Ekið að Kolviðar-
hóli og gengið þaðan. Skemmtilegt
skíðagönguland, nægur snjór. Verð kr.
1100.
Kl. 13 á laugardagirm verður hellaskoð-
unarferð í Amarker, sem er í hraunbreið-
unni skammt neðan við vesturenda Hlíð-
arfjalls í Ölfúsi. Nafngiftin Amarker er
lítið notuð; í daglegu tali kallast hellir-
inn einfaldlega Kerið, lýsandi nafngift
fyrir niðurfallið. Þessi ferð er tilvalin
skoðunarferð fyrir alla fjölskylduna. Hafa
með vasaljós og húfu. Verð kr. 1100.
Surmudagirm 2. mal kl. 13 verður geng-
inn 5. áfangi Borgargöngunnar frá
Hjallaenda um Búrfellsgjá að Kaldárseli.
Þessi ganga tekur um 2 1/2 til 3 klsL
Verð kr. 600.
Börn fí frítt í ferðimar í fylgd fullorð-
Inna.
Brottför í ferðimar er frá Umferðarmið-
stöðinni, austanmegin, og Mörkinni 6.
Ath.: Miðvikudagirm 5. maí verður
myndakvöld í Sóknarsalnum, Skipholti
50a. M.a. verða kynntar ferðir sumarsins.
Nemendasýning Myndlista-
skólans í Hafnarfiröi
Laugardaginn 1. og sunnudaginn 2. maí
frá kl. 14-18 gengst Myndlistaskólinn í
Hafnarfirði fyrir nemendasýningu í skól-
anum að Strandgötu 50. Á sýningunni
verður sýnt úrval af verkum nemenda
skólans, unnin á vorönninni. Alls hafa
um 110 nemendur stundað nám við
skólann f vetur og kennarar verið fimm
auk skólastjóra. Helstu kennslugreinar
hafa verið: málun, teikning, vatnslita-
málun auk fjöltækninámskeiða fyrir
böm og unglinga. Auk hefðbundins
skólastarfs hefur í tengslum við Mynd-
listaskólann verið rekinn sýningarsalur-
inn Portið. Þar munu listamennimir
Gunnar öm, Katrín Þorvaldsdóttir og
Marisa Arason opna sýningar á mynd-
verkum, ljósmyndum og brúðum laug-
ardaginn 1. maí og munu sýningamar
standa til 16. maf. Portið er opið alla
daga nema þriðjudaga frá kl. 14-18.
Vorsýning listasviós F.B.
í Geröubergi
í dag, föstudag, kl. 17 opnar f menning-
armiðstöðinni Gerðubergi sýningáverk-
um 16 útskriftamema á listasviði Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti. Hér er um
lokaverkefni að ræða, verkefni sem unn-
in vom í þremur sfðustu lotum námsins,
en þá lögðu útskriftamemamir stund á
módel- og umhverfisteikningu, málun
og gerð þrívíðra verka. Á sýningunni
verða teikningar, málverk, lágmyndir og
skúlptúrar. Sýningunni lýkur 8. maí.
Sýningar í Gerðubergi em opnar mán.-
fim. kl. 10-22, fös. kl. 10-16 og lau. kl.
13-16, en á sunnudögum er lokað.
1. maíkaffi
herstöóvaandstæóinga
Hið árvissa morgunkaffi Samtaka her-
stöðvaandstæðinga verður að þessu
sinni í Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3, og
hefst kl. 10.30. Þar safnast herstöðvaand-
stæðingar saman og hita upp fyrir dag-
inn með söng og tónlist Allir velkomnir.
Sýningu Sigrúnar Eldjám
í Fold lýkur
Sýningu Sigrúnar Eldjám í Gallerí Fold,
Austurstræti 3, lýkur sunnudaginn 2.
maí. Sigrún sýnir þar pastelmyndir.
Sigrún Eldjám er fædd 1954, dóttir
hjónanna Kristjáns og Halldóm Eldjám.
Hún stundaði nám við Myndlista- og
handfðaskóla íslands árin 1974-77 og
eftir það framhaldsnám við listaskóla í
Póllandi. Hún hefur haldið fjölda einka-
sýninga og tekið þátt í samsýningum
víða um heim.
Opið er f Fold daglega 10-18, laugardag-
inn 1. maí 10-17 og sunnudaginn 2. maf
13-17. Allar myndimar em til sölu.
Síóustu sýningar á Coppelíu
Aðeins em tvær sýningar eftir á Coppe-
Ifu, sýningu íslenska dansflokksins og
Listdansskóla íslands, sunnudaginn 2.
maí og laugardaginn 8. maí kl. 14. Á fyrri
sýningunni munu Lára Stefánsdóttir og
Eldar Valiev dansa aðalhlutverkin og í
hlutverki dr. Coppelíusar verður Bjöm
Ingi Hilmarsson, en á sfðustu sýning-
unni dansa Lára og Hany Hadaya, en
Þröstur Leó Gunnarsson leikur dr. Copp-
elíus.
Coppelfa er stærsta uppfærsla fslenska
dansflokksins um langt skeið og taka auk
dansara flokksins um 30 nemendur þátt í
Coppelíu. Uppfærslan er í höndum Evu
Evdokimovu og hefur hún fengið ein-
róma lof gagnrýnenda fyrir sýninguna.
Hljómsveitarstjóri er öm Óskarsson, en
búninga og leikmynd hannaði Hlín
Gunnarsdóttir.
Ný heilsunuddstofa
Tekið hefur til starfa heilsunuddstofa f
Laugardalslaug. Stofan er í umsjón og á
ábyrgð TVyggva Hákonarsonar. Tryggvi
hefur áður starfað við Survetta House,
SL Moritz.
Tímapantanir em í síma afgreiðslu
Laugardalslaugar, 34039.
Staifsmenntunarstyrkir
félagsmálaráðuneytis
Félagsmálaráöuneytið auglýsir hér með eftir umsóknum um
styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu samanber lög nr.
19/1992.
Styrkir eru veittir til stuðnings við skipulega starfsmenntun,
undirbúning, náms- og kennslugagnagerð, kennslu og starfs-
þjálfun. Miðað er við að styrkir séu veittir vegna viðfangsefha á
siðari hluta árs 1993. Lögð er áhersla á stuðning við ný starfs-
menntunamámskeiö eða vegna endumýjunar á eldra námsefni
sem hefur reynst vel.
Rétt til að senda umsóknir eiga: samtök atvinnurekenda og
launafólks, einstök atvinnufyrirtæki, einkaaöilar, eða opinberir
aðilar sem standa fyrir starfsmenntun í atvinnulífinu, starfs-
menntaráö einstakra atvinnugreina og samstarfsverkefni
tveggja eða fleiri framangreindra aðila. Umsóknir frá skólum
koma til álita þegar um er að ræða samstarf við samtök sem áð-
ur eru nefnd.
Umsóknir berist félagsmálaráðuneytinu, Hafnarhúsi við
Tryggvagötu, 150 Reykjavík, I siðasta lagi 2. júní 1993, á sér-
stökum eyðublöðum og skulu merktan umsókn um styrk vegna
starfsmenntunar.
Nánari upplýsingar er að finna f lögum nr. 19/1992, um starfs-
menntun i atvinnulífinu, en sérprentun þeirra liggur frammi f fé-
lagsmálaráðuneytinu. Sérprentuð umsóknareyðublöð liggja
frammi á sama stað.
Félagsmálaráðuneytið,
28. apríl 1993.
Barnabörnin gefa Herbert Lom þær „rætur“, sem hann segist ekki ella eiga.
Herbert Lom skrifar bókina:
Dr. Fallöxi
Leikarinn Herbert Lom á 50 ára
leikafmæli um þessar mundir og
verður þess minnst með frum-
sýningu á enn einni mynd um
bleika pardusinn, „The Son of
the Pink Panther", í júlí, auk
þess sem þá verður kynnt með
pompi og prakt vasabókarútgáfa
á skáldsögu hans Dr. Guillotine
(dr. Fallöxi).
Um þessar mundir hefur leikar-
inn hreiðrað um sig í litla húsinu
sínu í London og safnað um sig
börnum og barnabörnum til að
fagna tímamótunum. Hann vill
ekkert tala um fyrrverandi konur
sínar, en bömin og bamabörnin,
stolt hans og gleði, gefa honum
þær „rætur“ sem hann segist
annars ekki eiga.
Herbert fæddist í Prag í Tékkó-
slóvakíu, en fluttist ungur til
Englands. Hann segir uppruna
sinn ákaflega undarlegan. Fjöl-
skyldan var fátæk aðalsfjölskylda
og í bernskuminningum Her-
berts er afinn, greifi, að plægja.
Kýrnar, sem draga plóginn, em
langsoltnar, hafa ekkert fóður
fengið í þrjár vikur. Dætur afans,
sex eða sjö, eru allar heima við
heimilisstörfin og bróðir Her-
berts gerir ekki handtak. Pabbi
Herberts er reyndar sá eini sem
hreyfir legg eða lið og „starfar ut-
an heimilis".
Þrátt fyrir þennan óvenjulega
bakgrunn, hefur Herbert Lom
orðið vel ágengt í lífinu. Hann
hefur leikið mörg skapgerðar-
hlutverk og fengið góða dóma
fyrir. Hann er mikill tungumá-
lagarpur, þó að hann láti lítið yfir
því, en viðurkennir þó: „Ég var
giftur franskri konu og svo er
náttúrlega tékkneska og þýska,
og spænska vegna þess að ég átti
hús á Spáni. Ég lærði ítölsku
aldrei almennilega, en skil hana,
og þar sem tékkneska er móður-
mál mitt, skil ég rússnesku."
Og sitthvað fleira kann Lom fyr-
ir sér. Hann var einmitt að kynna
sér sögu Napóleons, þegar hann
rakst á dr. Guillotin, náungann
sem fann upp hraðvirka tólið til
að höggva höfuðið af fólki. En
höfundurinn segir söguna sína
reyndar ekki fjalla aðallega um
uppfinningamanninn eða dráps-
tækið hans, heldur hvers vegna
fólk stofni til byltinga og hvers
vegna þær leiði aldrei til þess
sem þeim var ætlað.
Herbert Lom verður tíðrætt um
ræturnar, sem hann segist vera
án, nema hvað fólkið sem hann
elskar séu hinar margnefndu
rætur, löngu látnir kærir foreldr-
ar og börn og barnabörn. Til
skýringar segir hann: „Ef við eig-
um einhverja von um að sjá við
augljósri heimsku lífsins og
merkingarleysi dauðans, kann að
vera að það verði í gegnum böm-
in sem við köstum björgunarlínu
inn í framtíðina, sem e.Lv. næst
tak á og má festa við eitthvað var-
anlegt."
Herbert Lom er vafalaust þekktastur f hlutverki lögregluforingjans Dreyfus, sem aöallögregluforingjan-
um Clouseau (Peter Sellers) tekst að trylla I spennitreyju.