Tíminn - 19.06.1993, Síða 8
AUK / SÍA k95-75
8 Tlminn
Laugardagur 19. júní 1993
„9íver
annarri oetri!
er samdóma álit síldarspekúlantanna.
Nú er komið að þér að prófa:
- í sinnepssósu
- í tómatsósu
- í karrýsósu
- í sælkerasósu
- í hvítlaukssósu.
NIÐURSUÐUVERKSMIÐJAN ORA HF.
Lyöur Pálsson, forstööumaöur Byggöa- og listasafns Árnessýslu, er hér viö hluta af verkfærum úr eldsmiöju Kaupfélags
Arnesinga, sem safninu áskotnaöist nýlega.
Byggða- og listasafn Árnessýslu mun flytja í Húsið á Eyrarbakka að ári:
Arnaregg í Byggða-
safni Árnessýslu
Sumarstarf Byggða- og listasafns
Árnessýslu hófst með formlegum
hætti 17. júní og verður safnið opið
í allt sumar frá 14-17. Miklar breýt-
ingar eru framundan hjá safninu,
en stefnt er að því að safnið flytjist
í Húsið í Eyrarbakka og opni þar að
ári liðnu.
Safninu hefur áskotnast margir
merkir munir í vetur. Má þar nefna
eldsmíðaverkfæri, sem notuð voru í
eldsmiðju Kaupfélags Ámesinga.
Þama er um að ræða horfna iðn-
grein, sem stunduð var á íslandi frá
landnámi fram á þessa öld þegar
log- og rafsuða leysti hana af hólmi.
Fyrir rúmu ári gaf Ingimundur Ein-
arsson frá Laugum safninu 50 teikn-
ingar af bæjum í Hrunamanna-
hreppi sem hann teiknaði á árunum
1935-1940. Myndimar eru til sýnis í
safninu ásamt líkani af Áslækjarrj-
ómabúinu, sem hann gerði einnig.
Fyrir skömmu áskotnaðist safninu
arnaregg og er það til sýnis í dýra-
safninu, en safnið vekur alltaf mikla
athygli yngstu kynslóðarinnar.
-EÓ
íslenskir kerrusmiðir:
Útvegum
allar
gerðir af
kerrum
íslenskar kerrur eru fnunleiddar
hjá (yrirtækinu Víkurvagnar hf.,
sem nýlega flutti í rúmgott hús-
næði í Síðumúlanum. Áður var fyr-
irtækið til húsa í KópavogL
„íslendingar eru famir að nota
kerrnr mikið og við erum með allar
gerðir af þeim. Til dæmis má nefna
hestakerrur, bflaflutningavagna,
sturtuvagna og dráttarvagna," segir
Þórarinn Kristinsson, eigandi fyrir-
tækisins. „Meðal þeirra, sem leita
hingað, em bændur og sumarbú-
staðaeigendur sem nota kerruna til
dæmis til að flytja tré til gróðursetn-
ingar."
23 ár em liðin síðan Þórarinn hóf
ffamleiðslu á kermnum og segir
hann þær alveg jafn góðar og þær
innfluttu.
„Við bjóðum líka upp á allt sem fólk
þarf til að smíða sjálft sína eigin
kerru, hjól og þess konar. Við veit-
um líka upplýsingar um það hvemig
skal standa að smíðinni og útvegum
teikningar," segir Þórarinn.
-GKG.
Norfivestur
Sufiaustur
Staerö 242 m2 m/bilskúr, auk þess 120 m2 óuppfyllt rými. Húsið er
á tveimur hæðum og möguleiki á tveimurtil þremur ibúðum.
6 millj. húsbréfalán og 2 millj. bankalán getur fylgt.
Verð 10.2 millj. fokhelt Ýmis skipti koma til greina, td. leiga á
veiðiá, jarðarpartur, litil fasteign, bill o.fl.
Frábær staðsetning og mjög gott útsýni.
Upplýsingar í síma 91-641771 og 985- 37007.
m) Lindab
Pakklæöningar, rennur
og niöurföll . Leitiö tilboöa!
BLIKKSMIÐJAN
TÆKNIDEILD ikltfk
SMIÐSHOFÐA 9
112 reykjavIk
SÍMI 68 5699