Tíminn - 19.06.1993, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Laugardagur 19. júní 1993
Skólasetur sem breytist í ferðamannaparadís að sumrinu:
Laugarvatn,
gamalgróin
sumarbyggð
Lðng hefft er fyrir sumarbústöðum í
Laugardalnum inn af skólastaönum
Laugarvatni í Árnessýslu og að sðgn
Þóris Þorgeirssonar oddvita er sum-
arbústaAafólldð miltlir aufúsugestir.
En hvaða skyldum telur sveitarfé-
lagið sig hafa að gegna við sumarbú-
staðaeigendur?
„Við sjáum um sorphirðu og bruna-
varnir sem eru stærstu liðimir, en
auk þess göngum við eftir því í sam-
vinnu við byggingafúlltrúa, heil-
brigðiseftirlit o.fl. að bústaðimir séu
í samræmi við reglugerðir hvað t.d.
varðar frárennsli," segir Þórir. Sum-
arbústaðabyggð í Laugardalnum
stendur á gömlum merg sem fyrr
segir og eitt elsta sumarbústaða-
hverfi á landinu er í Miðdal, örfáa
kílómetra frá Laugarvatni. Jörðin er í
eigu félags bókagerðarmanna en fyr-
irennari þess, Hið íslenska prentara-
félag, keypti jörðina fyrir áratugum
sfðan í þeim tilgangi einmitt að
koma þar upp sumardvalaraðstöðu
fyrir félagsmenn. Nú er þar mikill
fjöldi sumarbústaða f tveimur meg-
inhverfúm og em húsin bæði f eigu
félagsins og einstakra félagsmanna.
Sjálf jörðin hefúr ætíð verið í ábúð
eftir að prentarar eignuðust hana, en
undanfarin ár hefur hestaferðafyrir-
tækið íshestar haft þar höfuðstöðvar
sfnar um mesta annatfmann að
sumrinu.
Stórt sumarbústaðahverfi er í landi
Snorrastaða sem er fyrsti bærinn
norðaustur af Laugarvatni. Þar er
mjög skjólgott land í skógi vaxinni
fjallshlíð meö fallegu útsýni til suð-
urs yfir vatnið. Þar á Vélstjórafélag
íslands til dæmis allstórt land með
fjölda bústaða. Þá er í landi Eyvindar-
tungu, skammt suður af Laugar-
vatni, allstórt sumarhúsahverfi í eigu
starfsmannafélags Olíufélagsins hf.
Raunar em fleiri eða færri sumarbú-
staðir í landi hverrar einustu bújarð-
ar í Laugardalnum enda hefúr svæð-
ið lengi verið eftirsótt til sumardval-
ar. Vatnsveitur em f nokkmm sum-
arbústaðahverfanna en þeim hafa
sumarbústaðaeigendur sjálfir komið
upp. Þá má einnig nefna að sumir
bústaðir á svæðinu em tengdir hita-
veitu sveitarinnar eða einkahitaveit-
um.
Sumarbústaðafólk í Laugardal er
ágætlega sett hvað varðar alla þjón-
ustu, því að á Laugarvatni er full-
komin íþróttaaðstaða, stór útisund-
laug, hveragufubaðið þjóðkunna,
verslun og fyrirtaks aðstaða til hvers
konar útiveru og heilsubótar. Þannig
er vatnið sjálft mjög vel fallið til segl-
brettasiglinga þar sem það er bæði
gmnnt og ffemur hlýtt. Seglbretta-
Þórir Þorgeirsson, oddviti Laugardalshrepps.
leiga er á staðnum. Tvö sumarhótel,
Edduhótel, em rekin á staðnum yfir
sumartímann og í öðm þeirra er
jafnframt gott veitingahús og bar.
Stórt tjaldsvæði er á Laugarvatni og
þjónustumiðstöð f tengslum við það.
Þar er einnig hægt að leigja stæði
fyrir tjaldvagna og hjólhýsi og hafa
sum hjólhýsin verið á sömu stæðun-
um um árabil og jafnvel gengið
kaupum og sölum í nokkur skipti án
þess að hafa nokkm sinni verið færð
úr stað. Sérstakur umsjónarmaður
er með hjólhýsabyggðinni á Laugar-
vatni.
Á tjatdstæöunum á Laugarvatni eru leigö út stæöi fyrir hjólhýsi og hafa sum hýsin staöiö þar árum saman og eigendur búnir aö rækta runna f kringum þau.