Tíminn - 19.06.1993, Side 15
Laugardagur 19. júní 1993
Tíminn 15
Þóroddur F. Þóroddsson, formaður Náttúru-
verndarráðs:
Æskilegt aö
eiga einn bú-
staðalausan
skógardal
„Sumarbústaðir eru í sjálfu sér besta mál og ósköp eölilegt að fólk
vilji eiga afdrep úti í náttúrunni," segir Þóroddur F. Þóroddsson,
formaður Náttúruverndarráðs, í spjalli við Tímann um sumarbú-
staði og fjallakofa og viðhorf Náttúruvemdarráðs til þeirra.
„Við leggum áherslu á það að
landeigendur sem ætla að selja eða
leigja pláss undir sumarbústaði
fari eftir öllum reglum varðandi
skipulag og þá umfjöllun sem
skipulag svæða þarf að fá, þannig
að það sé tekið tillit til allra þeirra
þátta sem koma málinu við, eins
og fjarlægð ffá vatnsbökkum,
meðferð á frárennsli og fleira.
Einnig leggja menn áherslu á það
að útlit og staðsetning húsa taki
mið af umhverfinu,“ segir Þórodd-
ur. „Náttúruvemdarráð telur að
menn ættu í meiri mæli að huga
að því að byggja sumarbústaði ut-
an við birkikjarrið og birkiskóg-
ana. Það er æskilegt að eiga eins
og eina fjallshlíð, eða einn dal með
birkiskógi án þess að þar séu sum-
arbústaðir."
Þóroddur bendir á að þeir sem
byggja sumarbústaði séu oft rækt-
unarfólk og þá gerist það að upp úr
birkiskógunum fari aspir og greni-
tré að stinga kollinum. „Og það
breytir töluvert ásýnd birkiskóg-
anna,“ segir Þóroddur. „Hins vegar
eru birkiskógamir á margan hátt
kjörin útivistarsvæði og hentug
fýrir sumarbústaði, upp á skjól. En
það er spuming hvort það sé ekki
hægt að nýta meira af því landi
sem er minna gróið, þar sem gróð-
ursetningar- og landgræðsluáhugi
þessa fólks getur notið sín í raun-
inni betur."
— Hefúr orðið einhver misbrest-
ur á því að skipuleggja sumarbú-
staðasvæði nægilega vel og einnig
að taka mið af umhverfinu?
„Það gerðist hér á ámm áður að
hús voru byggð án skipulags en
það hefur breyst til hins betra,"
segir Þóroddur. „En varðandi það
að taka mið af umhverfinu, þá
verða menn að horfa dálítið fram í
tímann. Hús sem eru áberandi í
dag á t.d. gróðulitlum holtum em
kannski ekki svo falleg. En ef fólk-
ið plantar trjám í kringum sig þá
verður svæðið eftir 20 ár orðið hið
fallegasta. Þannig að það er erfitt
að meta það hvort sumarbústaðir
falli illa að umhverfinu meðan þeir
em nýir.“
Að sögn Þórodds hefur sumarbú-
stöðum fjölgað gríðarlega á und-
anfömum ámm. „Ég held að það
séu til í landinu á bilinu sex til sjö
þúsund sumarbústaðir og það er
búið að skipuleggja Ióðir fyrir tólf
þúsund í viðbót. Þannig að það em
gífurlega margar lóðir til og mark-
aðurinn virðist ekki vera mettaður
þrátt fyrir stöðuna í þjóðfélaginu,“
segir Þóroddur. „Sumarbústaðir
skipta hundmðum á sumum
svæðum og í þeim er mjög margt
fólk um helgar, miklu fleira en
sem svarar þeim fjómm eða fimm
rúmum sem að jafnaði em í hús-
unum. Frárennsli sumra svæð-
anna er orðið á við frárennsli með-
alstórra sveitarfélaga. Við leggjum
sérstaka áherslu á að frárennslis-
málin séu tekin til athugunar.“
Skipulags- og byggingarlög kveða
á um það hvað sumarbústaðalóðir
verða að vera stórar og hversu þétt
má byggja.
Um einstaka sumarbústaði og
fiallaskála eiga náttúmvemdar-
neftidir að fjalla um og síðan
Skipulag ríkisins. „Það þarf alltaf
leyfi Skipulags ríkisins,“ segir Þór-
oddur. „En það hefur orðið mis-
brestur á því.“
Að sögn Þórodds er umgengnin
við fjallaskálana ekkert sérstaklega
slæm. „Vandamálið er slatti af
gömlum skálum, td. hér á Hen-
gilssvæðinu, sem em í niður-
níðslu og þurfa að hverfa,“ segir
Þóroddur. „Slík hús em sjálfsagt
víðar." GS.
ALLT TtL
mHnilNAít!
ELFA-LVI
Einfaldir eða tvöfaldir olíufylltir
rafmagnsofnar350 - 2000w.
Hæð 30, 50 eða 59 cm.
ELFA-OSO
Hitakútar úr ryðfríu stáli. Stærðir
30- 300 lítra, útvegum aðrar stærðir
frá 400-10.000 lítra.
Rafmagnsþilofnar, 600 - 2000w.
Elfa rafhitunarbúnaðurinn er þraut-
reyndurvið íslenskaraðstæður.
HAGSTÆTT VERÐ OG
GREIÐSLUSKILMÁLAR.
Einar Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28 - S 622901 og 622900
Loksins fyrir sumarhúsið
Loftræstibúnaður
ARALCO JUNIOR ”2000” er loftventill með
stillanlegu snúningsspjaldi og tvöfaldri burs-
taþéttingu.
ARALCO JUNIOR ”2000” er settur í glerfal-
sið og hentar jafnt fyrir glugga úr tré, áli og
PVC-plasti.
Innri og ytri hluti loftventilsins eru einangraðir
hvor frá öðrum, þannig að þeir leiða hvorki
kulda eða raka.
ARALCO JUNIOR ”2000” uppfyllir alla staðla
um loftræstingu fyrir íbúöarhúsnæði.
Engin hætta á innbroti þó skilið só eftir opið.
PLflST OG ÁLGLUGGflH
ELDSHÖFÐA 16, 112 REYKJAVÍK, SÍMI 674470 H.SÍMI 75811
WIKING
gúmmí stígvél
i vætuna
A NÆSTA SKOSOLUSTAÐ
HEILDSÖLUDREIFING: J.S. GUNNARSSON HF. S: 688180
0 í leikskólann
0 í sveitina
EJ í garöinn
□ í sumarbústaöinn
0 í vinnuna
fij Alls staöar
EKKIOF HÖRÐ,
EKKIOF MJÚK,
HELDUR FULLKOMIN
AÐLÖGUN
Þar sem
þú eyðir
u.þ.b. 8 tím-
Á bimiri cii'im um á sólar-
lífifiiir hryftujarsúlan i sivig . , ,
hring i rum-
inu, eða þriðjungi ævi þinnar, ætti góð
dýna að vera eitt af þínum allra mikil-
vægustu fjárfestingum.
Á Diix-Jýiiii
lifiMiir tbrytmjarsúhin hein
Árum
saman hefur
því verið
haldið fram
að stífar
dýnur séu betri fyrir bakið.
Sérfræðingar okkar hjá Dux í Svíþjóð
hafa sannað hið gagnstæða.
Þeir hafa sannað að stíf dýna hamlar á
móti, frekar en að lagast að eðlilegri lögun
líkamans, þannig að í hvíld liggur
hryggjarsúlan f sveig.
Dux-dýnurnar eru hannaðar sérstaklega
til þess að gefa eftir á réttum stöðum svo
að hryggjarsúlan fær að hvílast í náttúru-
legri stöðu. Þær koma í veg fyrir margan
bakkvillann og gefa þér nauðsynlegan
stuðning til þess að sofa djúpum endur-
nærandi svefni.
Er ekki kominn tími til að heimsækja
Dux verslunina í Faxafeni og líta á okkar
fjölbreytta úrval af Dux-rúmum?
DUX
GEGNUMgjmÐ
Faxafeni 7 (Epalhúsinu). Sími 689950
15 ÁRA ÁBYRGÐ Á DUX-DÝNUM