Tíminn - 30.07.1993, Blaðsíða 1

Tíminn - 30.07.1993, Blaðsíða 1
Frétta-Tíminn.Frétta-síminn—68-76-48... Frétta-Tíminn...Frétta-síminn—68-76-48«.Frétta-Tíminn...Frétta-síminn—68-76-48. Föstudagur 30. júlí 1993 142. tbl. 77. árg. VERÐí LAUSASÖLU KR. 125.- Flugleiðir, Eimskip, Hagkaup og bankarnir þrír eru 10 hæstu skattgreiðendurnir en samt tekjuskattsfrjálsir: Bankarnir greiða engan tekjuskatt Korpúlfsstaðahúsið er í reynd ónýtt. Korpúlfsstaðahúsið er ónýtt og kostnaður við endurbyggingu er mun meiri en — upphaflega var talið: Odýrara að rífa Korpúlfs staði og byggja nýtt Gunnar H. Gunnarsson, fulltrúi í byggingarnefnd Reykjavíkurborg- ar, telur að það sé mun skynsamlegra að rífa Korpúlfsstaðahúsið og byggja nýtt meö svipað eða sama útlit frekar en að endurbyggja þaö eins og ráðgert hefur veríð. I húsinu hefur sem kunnugt er ver- ið fyrírhugað að koma fyrír listasafni helgað listamanninum Erró. Gunnar segir að húsin á Korpúlfsstöðum séu í reynd ónýt og það verði gríðaríega erfitt og kostnaðarsamt að endurbyggja þau. Hann segir að með því að byggja nýtt hús fáist ódýrara og betra hús undir listasafn. gera úttekt á Korpúlfsstaðahúsinu og hefur komið í ljós að það er í mun veira ástandi en haldið var í fyrstu. Útveggir þess eru ónýtir. Allar gólfþlötur eru signar og ónýtar. Þakið er ónýtt og sama er að segja um glugga. í stuttu máli sagt, húsið er ónýtt. Gunnar tók sem dæmi um þá erf- iðleika sem því fylgdu að endur- byggja húsið, að það þurfi að dýpka gólf þess. Til að það sé hægt þurfi að steypa nýja sökkla undir húsið sem verður að gera í áföng- um svo að húsið hrynji ekki, þ.e.a.s. það þarf að steypa marga hringi af sökklum inni í húsinu. Annað dæmi er að það þarf að rífa alla jámglugga úr húsinu og gera við þá og koma þeim fyrir aftur. Það þarf að klæða alla veggi að innan og utan. Gunnar sagði ljóst að mun dýrara verði að endurbyggja en að rífa og byggja nýtt. Óvissuþættir við end- urbyggingu séu mun fleiri en þeg- ar byggt sé nýtt. Rætt hefur verið um að endurbyggingin kosti 1.400 milljónir, en Gunnar sagði ljóst að þessi upphæð væri alltof lág. Þessi upphæð hafi verið nefnd áður en mönnum varð ljóst hvað húsið væri illa farið og á bak við töluna lægi mjög gróf kostnaðaráætlun. Gunnar sagði að sér hafi raunar verið neitað um að fá að sjá kostn- aðaráætlunina. Hann sagði engan vafa leika á að með því að byggja nýtt hús yrði hægt að fá miklu betra hús sem hentaði betur því hlutverki sem því væri ætlað að þjóna. Hann bendir á að þegar liggi fyrir að það verði að byggja viðbyggingu við Korpúlfsstaðahúsið bæði vegna þess að það var upphaflega byggt sem fjós og eins vegna þess að ekki er pláss fyrir öll listaverk Errós í því. Gunnar bendir ennfremur á að húsið yrði ódýrara í viðhaldi og að það yrði traustara í jarðskjálftum, en ekki var mikið pælt í jarð- skjálftum þegar það var byggt. -EÓ Það tekst greinilega ekki öllum að græða á veltunni, því af 10 hæstu skattgreiöendum í hópi fyrirtækja í Reykjavik eru 6 sem ekki þurfa að borga krónu í tekjuskatt. í þeim hópi eru fjórir skattahæstu lögaðilarair; Flugleiðir, Eimskip, Landsbankinn og Hagkaup. Það rifjar upp söguna af „Davíð og Golíat" að sjá sparisjóðina í Reykjavík í hópi tíu hæstu tekju- skattsgreiöenda (með samtals 83.5 milfj. kr.) á sama tíma og tekjuskattur er 0,00 kr. hjá öllum stóru bönkunum. Og er það ekki svolítiö skondið að á sama tíma og Hagkaupsrisinn hefur ekki krónu afgangs í tekjuskatt þá er lagður 16.5 milljóna kr. tekjuskattur á næsta granna þeirra, Rúmfatalag- erínn. Álagning á 6.680 lögaðila nemur samtals um 11,3 milljörðum króna, hvar af þeir þurfa þó aðeins að greiða 9 milljarða vegna þess að álagt aðstöðugjald verður fellt nið- ur. Bróðurpartur þeirra gjalda sem koma til greiðslu (5,4 milljarðar) er tryggingagjald sem skiptist miður á rúmlega 3.200 gjaldendur. Tekjuskattur er 2,3 milljarðar, sem skiptist á 1.850 aðila. Um 2.300 lögaðilar greiða tæplega 870 millj- ónir í eignaskatt og sérstakan eignaskatt. -HEI Eins og sjá má á teikningunnl er gert ráð fyrir að kvikmyndaver Hrafns verðl allmikil bygging. Ljóst er að hún mun setja miklnn svip á Laugarnesiö. ■j'-----}-"-------í'1' —1 Kvikmyndaver Hrafns verður 10 metra hátt TÍMINN í DAG: Síöasta blað fyrir verslunar- mannahelgi Tíminn í dag er síðasta tölublað fyrir verslunarmannahelgina. Blaðið kemur næst út miðviku- daginn 4. ágúst. Starfsfólk Tímans óskar lands- mönnum góðrar og slysalausr- ar verslunarmannahelgar. Kvikmyndaveriö sem Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndageröarmaö- ur hefur hug á aö byggja í Laugarnesi í Reykjavík er samkvæmt drögum að teikningum um 190 fermetrar að grunnfleti á tveimur hæðum. Gert er ráö fyrír aö húsiö veröi um 10 metra hátt og mun það því gnæfa talsvert hátt yfir önnur hús á nesinu. Eins og sagt var frá í Tímanum í gær eru taldar líkur á að kvik- myndaver Hrafns verði byggt í Laugamesinu. Það sem hefur hamlað því að málið fái endanlega afgreiðslu í skipulagsnefnd borgar- innar er að mikið er um mannvist- arleifar á Laugamesinu, auk þess sem allir eru sammála um að fara verður mjög varlega f allar bygg- ingarframkvæmdir á þessu við- kvæma náttúrusvæði. Það veldur t.d. erfiðleikum að einmitt á þeim stað þar sem kvikmyndaverið hefur verið staðsett, samkvæmt drögum að teikningu, hafa fundist merkar mannvistarleifar sem eftir er að kanna betur. í bréfi Hrafns til skipulagsnefndar borgarinnar kallar hann kvik- myndaver sitt vinnustofu, en í drögum að deiliskipulagi fyrir Laugarnesið er gert ráð fyrir að heimilt verði að byggja vinnustofu við hús það sem Hrafn á. í bréfi Hrafns segir að vinnustofan sé gerð með þann metnað í huga að vinnu- stofan sjálf sé listaverk sem tengist listalífi sem fyrir sé á Nesinu og auðgi það. Með þetta í huga segist hann geta hugsað sér að vinnustof- an verði opin almenningi að hluta. Stjórn Vestnordensjóðsins veitti á síðasta ári Hrafni Gunnlaugssyni 5 milljóna króna lán til að kanna möguleika á því að byggja kvik- myndaver á íslandi. í stjórn sjóðs- ins sitja fyrir íslands hönd Stur- laugur Þorsteinsson, bæjarstjóri á Höfn í Hornafirði, og Guðmundur Ámason, deildarstjóri í forsætis- ráðuneytinu. Guðmundur sagði í samtali við Tímann að það sé rangt sem látið hefur verið liggja að í fjöl- miðlum að þeir hafi beitt sér sér- staklega fyrir því að þetta einstaka verkefni fengi jákvæða fyrir- greiðslu í stjórn sjóðsins. Hann sagði að sjóðurinn starfi eftir því starfsfyrirkomulagi að fram- kvæmdastjóri Vestnordensjóðsins fari yfir umsóknir sem berist sjóðn- um, meti þær og Ieggi síðan fyrir sjóðsstjórnina þær umsóknir sem hann telji rétt að styrkja eða veita lán til. Sjóðsstjómin hafi ekki bein afskipti af einstökum umsóknum, en samþykki þær umsóknir sem framkvæmdastjórinn meti láns- hæfar. Ekki náðist í framkvæmdastjóra Vestnordensjóðsins til að fá rök- stuðning hans fyrir því að styrkja þetta einstaka verkefni frekar en önnur. Verði ekkert af byggingu kvik- myndavers mun lánveiting Vest- nordensjóðsins til Hrafns breytast í styrk. Vegna fréttar í Tímanum í gær um þetta mál er nauðsynlegt að fram komi að það er rangt sem haldið var fram að bróðir Hrafns væri for- stöðumaður Borgarskipulags Reykjavíkur. Forstöðumaðurinn heitir Þorvaldur S. Þorvaldsson og er móðurbróðir Hrafns. Sonur hans, Jón Þór Þorvaldsson, hefur gert frumdrög að teikningum að kvikmyndaveri fyrir Hrafn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.