Tíminn - 30.07.1993, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Föstudagur 30. júlí 1993
Rlnarfljót þrýstir sér I gegnum þröng gljúfur á leiö sinni niöur úr Ölpunum.
Niöur þessa gjá hefur fljótiö runniö um árþúsundir.
Farmskip allt aö tvö þúsund tonn aö stærö geta siglt alla leiö upp til Rheinfall I Sviss. Mest ber hér þó á feröamönn-
um sem viröa fyrir sér hiö volduga fljót steypast niöur 24 metra fall.
BLÓÐRAUTT
RÍNARFLJÓT
KAUPFÉLAG ÁRNESINGA
BIFREIÐASMIÐJUR
23 98-22000
Varahlutaverslun
Höfum stórbætt vöruúrvalið. Beinn innflutningur á varahlutum til land-
búnaðar. Sala á notuðum og nýjum vélum.
Bílaverkstæði
Veitum fullkomna þjónustu fyrir Toyotaumboðið, Heklu h/f, Bílheima h/f,
Brimborg h/f, Bifreiðar og landbúnaðarvélar. Höfum eitt fullkomnasta
hjólastillingartæki á Suðurlandi og eitt allra fullkomnasta bílaverkstæði
á landinu.
Smurstöð — ESSO Olíur fyrir stóra og litla bíla.
Hjólbarðaverkstæði, hjólbarðasala.
Rafmagnsverkstæði — mótorvindingar, raflagnir, viðgerðir.
Gerum tilboð ef óskað er.
Vélsmiöja — nýbyggingar, kælivélaþjónusta.
Öll vélsmíðaþjónusta.
Framleiðsla á mykjudreifurum, tankdreifurum, kastdreifurum, sturtu-
vögnum, snjótönnum, flutningakössum á sendibíla og vörubíla.
Gerum tilboð í stór og smá verk, svo sem stálmannvirkjagerð, pípu-
lagnir, bílaréttingar og bílamálun.
Höfum einn stærsta málningarklefa landsins.
Fullkomið renniverkstæði.
Pípulagningaþjónusta.
Heimsálfan okkar Evrópa, breytist stöðugt og saga hennar er
blóði drifin — þjóðir klofna, fæðast og deyja.
Rínarfljót hefur þó einatt runnið í farvegi sínum sem líkja má
við slagæð. Fljótið hefur gegnt hlutverki bæði í sambandi við
verslun og friðsamlegar samgöngur sem og í styrjöldum og
menn hafa nýtt sér eilíft streymi fljótsins síðan á steinöld.
Bændur á steinöld gátu ólíkt veiði-
mönnum séð sér fyrir tryggum mat-
arforða allt árið. í stað þess að
treysta á framboð villtra veiðidýra
tóku menn að halda búpening,
rækta og birgja sig upp. Þessi er ein
af ástæðum þess að íbúum Evrópu
tók að fjölga mjög síðustu árþús-
undin fyrir Krists burð.
Á bökkum stórfljóta Evrópu risu
þorp. Milli Rínar, Dónár og Mains
bjuggu bjóðflokkar sem náðu tök-
um á því að nýta sér járn. Þetta voru
Keltar og báru þeir ægishjálm yfir
aðra bjóðflokka í Evrópu allt til þess
að þeir voru ofurliði bornir af herj-
um Rómverja. Rómarveldi óx og
þandist út allt til Rínarfljóts sem
markaði nyrstu landamæri heims-
veldisins.
Frankar
Nokkrum öldum eftir Krists burð
tóku Húnar á sléttum Asíu að bæra
á sér. Þeir sóttu til vesturs og fóru
ríðandi með hernaði og ráku á und-
an sér fólk af slavneskum og ger-
mönskum uppruna. Einn þessara
bjóðflokka nefndist Frankar en beir
voru germanskir. Þeir hröktust
undan Húnum yfir Rínarfljót og inn
í Rómarveldi. Eftir hrun rómverska
ríkisins kom smám saman til sög-
unnar ríki Franka sem varð stór-
veldi undir stjórn Karls mikla, eða
Karlamagnúsar og bandist út yfir
mestalla Evrópu.
Ríki Franka skiptist á níundu öld
upp milli þriggja konungssona: Karl
hinn sköllótti réði landssvæði því
sem seinna fékk nafnið Frakkland,
Loðvík hinn býski fékk hluta þess
lands sem síðar varð Þýskaland en
landræman ber • rnilli féll í hlut
Lothars og eimir enn eftir af ríki
hans f nafni Lothringen-héraðs
skammt frá Alsace.
Einni brú um of
Næsta stórveldi sem reis í Evrópu
var Þýsk-rómverska ríkið sem náði
frá Eystrasalti til Miðjarðarhafs.
Þegar Napóleon lagði undir sig leif-
ar þess ríkis um öndverða nítjándu
öldina hafði Strassbourg þegar verið
frönsk borg í hundrað ár. Síðar end-
urheimtu Þjóðverjar borgina, en
eftir heimsstyrjöldina fyrri varð hún
frönsk á nýjan leik. Fáeinum ára-
tugum síðar skipuðust mál enn á
anna veg, þegar herir Hitlers lögðu
borgina og Alsacehérað undir sig.
Alsace er nú enn á ný, að síðari
heimsstyrjöld lokinni, orðið franskt
hérað en í Strassbourg óma flestall-
ar tungur Evrópu enda hafa aðsetur
í þessari borg, með langa stríðssögu
sína, fjölbjóðastofnanir eins og Evr-
ópubingið og Evrópuráðið.
Meðfram Rínarfljóti má víða finna
leifar þeirra bjóðflokka sem þar
bjuggu fyrrum. Þar eru steinaldar-
þorp og -bæir, keltneskar konunga-
grafir, rómverskir kastalar, barok-
I friösæld.