Tíminn - 30.07.1993, Síða 3

Tíminn - 30.07.1993, Síða 3
Föstudagur 30. júlí 1993 Tíminn 3 hús byggt á Hesti Nýlega tók Halldór Blöndal landbún- aöarráðherra fyrstu skóflustungu að byggingu fjárhúss á tilraunabúi ríkis- ins á Hesti í Borgarfírði. Gert er ráð fyrir að fíárhúsið geti hýst 550 kind- ur. Miðað er við að framkvæmdum ljúki í nóvember á þessu árí þannig að hægt verði að hýsa allar kindur til- raunabúsins í nýja húsinu í vetur. Lengi hefúr staðið til að byggja ný fjárhús á Hesti. Gömlu fjárhúsin eru orðin um 40 ára gömul og eru bæði illa farin auk þess sem þau uppfylla á engan hátt þarfir tilraunabús á þessu sviði. Kennsla í sauðfjárrækt mun að hluta til eða að öllu leyti flytjast frá Hvann- eyri að Hesti eftir að nýju fjárhúsin hafa verið tekin í notkun. Byggingarkostnaður er áætlaður um 30 milljónir króna. Það er Stefán Ólafsson bygginga- meistari sem byggir fjárhúsin, en hann hefur reist fjölda útihúsa í Borg- arfjarðarhéraði á síðustu tveimur ára- tugum. -EÓ ...og líka skógurinn sem við rœktum t sameiningu '6ðí Skógrækt með Skeljungi Framlag Skeljungs hf. til Skógræktar ríkisins og landgræðsluskóga ertengt sölu á bensínafgreiðslum félagsins. Saman getum við lyft grettistaki undir faglegri forystu Skógræktar ríkisins og í samvinnu við alla þá sem eiga að hugsjón að klæða landið skógi og hindra gróðureyðingu. Á fermingardaginn með túberað hárið. Lífið bíður fullt af fögrum fyrirheitum. Edda og yngstu strákarnir tveir. Hvernig er hægt annað en að vera ánægð með lífið! Sparisjóðum og starfsmönnum þeirra hefur fjölgað á undanförnum árum: Bankaafgreiðslur 9 færri en 1989 Bankaafgreiðslur í landinu voru 128 í lok síðasta árs, eða 9 færri heldur en þær voru flestar á árunum 1987—1989. Þessi fækkun varð fyrst og fremst í kjölfar sameininga og hagræðingar milli 1989 og 1990. Síðan hefur bankaafgreiðslum aðeins fækkað um tvær og enga á síðasta ári. Starfs- mönnum bankanna hefur fækkað hraðar, eða um 380 manns (14%) frá því þeir voru flestir árið 1988, en 111 manna fækkun varð í fyrra, samkvæmt skýrslu Bankaeftirlitsins fyrir 1992. Athygli vekur, að bankar og sparisjóð- ir þurftu að leggja fríun heilum milljarði króna meira vegna útlánaafskrifta heldur en þeir þurftu að borga í öll laun og launatengd gjöld vegna hátt á þriðja þúsund starfsmanna. * Hún er auðlind sem við verðum að hlúa að og virða. Látum náttúruna ekki verða hugsunarleysi og leikaraskap að bráð. M , ^______ Þróunin hefur verið önnur hjá sparisjóðunum. Afgreiðslum þeirra hefur fjölgað um 4 á tveim árum, upp í 50 á síðasta ári og hafa þær aldrei verið fleiri. Starfsmönnum þeirra hef- ur sömuleiðis fjölgað hröðum skref- um upp í 455 í fyrra. Fimm árum áður voru þeir t.d. 406 og aðeins 279 árið 1982 og hefur því fjölgað um 63% á einum áratug. Misjafnt er hvað bank- amir hafa fækkað starfsliði sínu mik- ið. Starfsmenn íslandsbanka voru 724 í fyrra, nærri 19% færri heldur en starfsmenn voru flestir hjá þeim fjór- um bönkum sem sameinuðust í ís- landsbanka. Landsbanki hefur fækkað fólki um litlu lægra hlutfall, eða yfir 16% frá borið saman við samanlagðan starfsmannafíöH" Landsbanka og Samvinnubanka fyrir fjórum árum. Starfsmenn Landsbankans voru 1.034 á síðasta ári. Hjá Búnaðarbanka er annað uppi á teningnum. Starfsmönnum hans fækkaði að vísu töluvert frá 1987 ti 1989. En síðan hefur þeim fjölgað á frá ári, síðast um 16, upp í 507 í fyrrs Fróðlegt er að bera saman hlutfalh lega skiptingu innlána (stöðutölur árslok 1992) viðskiptabanka og spar sjóða annars vegar og hlutfallslej skiptingu starfsmanna þeirra hii vegar: Hlutföll innlána og starfsmanni Sldptíng Sltíptii innlini: stirfslið Landsbanki íslandsb. Bún.banki Sparisjóðir 38,2% 22,4% 21,4% 18,0% 38,0' 26,6S 18,69 16,79 100,0% 100,09 Miðað við innlán virðist íslandsbanl ennþá hafa hlutfallslega flesta starf: menn, þrátt fyrir mesta fækkun á síð ustu árum. Starfsmenn viðskipta banka og sparisjóða voru 2.720 á sfð asta ári. Launakostnaður þessara pen ingastofnana nam um 6.151 milljónum króna á árinu (2.260.001 kr. á mann að meðaltali). En sérstak; athygli vekur, að þessi heildarlauna kostnaður er heilum milljarði krón; lægri fjárhæð heldur en bankar og 550 kinda sparisjóðir þurftu að leggja fram vegna útlánaafskrifta á árinu, en sú upphæð nam í raun um 7.170 millj- ónum króna. -HEI Við stœkkum meðárunum... Hjá Ijósmyndara í fyrsta sinn og að sjálfsögðu fékk uppáhalds bangsinn að koma með. Edda blaðamaður á Vfsi og góðvinur hennar Páll Vilhjálmsson á góðri stund.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.