Tíminn - 30.07.1993, Síða 11

Tíminn - 30.07.1993, Síða 11
Föstudagur 30. júlí 1993 Tíminn 11 SÍMI 93-71200 FERÐAFÓLK Á NORÐURLANDI Bjóðum þjónustu okkar á fögrum stað við hringveginn. Enn aukum við þjónustu okkar við ferðafólk. Höfum opnað glæsilega veitingastofu, þar sem boðið er upp á rétti dagsins á hagstæðu verði auk fjölbreytts sérréttamatseðils. Alhliða dagvöruverslun • Allar ferðavörur • Olíur, bensín og bifreiðavörur. Komið við og reynið viðskiptin • Opið frá kl. 09.00 til 23.00 Verið velkomin Sofnaði í snjónum í fyrra voru leysingar í Ölpunum óvenju miklar og fundust af þeim sökum í mikilli hæð líkamsleifar forns göngugarps og fjallamanns. Sá hafði, að því er menn telja, geng- ið yfir Alpana til suðurs í þeim til- gangi að versla og stunda vöru- skipti. Ef til vill varð hann þreyttur og lagðist til hvflu í skjóli við stein í fjallshlíð. Hann varð svo óheppinn að sofna og þaktist snjó og ís sem ekki þiðnaði fyrr en fimm þúsund árum síðar og fannst síðan fyrir til- viljun fyrir rúmu ári. Kannski er þarna kominn einn af fyrstu Evr- ópumönnunum. Ef til vill leiddi þessi Evrópumaður hugann að hringrás náttúrunnar áður en hann festi blund, hvernig ofankoman fyrst gufar upp af sjón- um og rekur síðan inn yfir Alpafjöll- in í formi skýja en fellur svo þar nið- Þægilegur og Ijúffengur feröafélagi ur sem snjór sem verður að íshellu sem þiðnar og streymir niður fjalla- hlíðar sem lækir og ár. Lækirnir renna saman og verða að fljóti sem þrýstir sér í gegnum gljúfur og gjár, myndar fossa og stöðuvötn og renn- ur síðan út á sléttuna. Pullkomlega nýtt Áður en Rínarfljót rennur út í Norðursjó hefur hver dropi vatnsins verið nýttur: Geitur í Ölpunum drekka Rínarvatn. Það rennur í gegn um orkuver sem framleiða raf- magn fyrir íbúa Evrópu. Ferðamenn ljósmynda fossa fljótsins, stang- veiðimenn egna fyrir vatnafiska, vatnið er notað til áveitu á akra og engi og til að vökva vínræktarsvæð- in og til þarfa íbúa og atvinnu- rekstrar borganna við fljótið. Þá er það einnig samgönguleið og farm- skip og flutningaprammar flytja varning upp og niður eftir Rín. Þar sem Rín rennur í Norðursjó eru 1.300 km frá þeim stöðum sem snjóana í Alpafjöllum Ieysir og upp- haf Rínar er. Marksborg I Braubach, skammt frá klettinum þar sem Lorelei sat og seiddi fiskimenn í dauöann. Marksborgarkastati er á meðal sögufrægra minja með- fram Rínarfljóti. Texti og myndir: Leif Blom/TT byggingar, riddaraborgir og skot- byrgi úr tveimur heimsstyrjöldum á þessari öld. Undir lok síðari heimsstyrjaldar varð Rín vettvangur harðra stríðs- átaka. Við Arnhem í Hollandi féllu t.d. þúsundir hermanna þegar þess var freistað að ná yfirráðum yfir brú yfir Rín. Þetta var harmleikur sem Hollywood gerði ódauðlegan með sínum hætti í kvikmyndinni Einni brú um of. Blóðrauð Rín Það er ekki einungis blóð sem roð- ið hefur Rínarfljót. Um miðjan ní- unda áratug þessarar aldar rann mikið magn skordýraeiturs og ill- gresiseyðandi lyfja þegar kviknaði í efnaverksmiðju í Basel f Sviss. Ár- vatnið litaðist blóðrautt og milljón- ir dauðra fiska flutu upp á yfirborð- ið. Síkjum og lónum meðfram Rín var lokað í skyndingu og bændum var ráðlagt að halda búsmala sínum til beitar fjarri fljótinu. í kjölfar eiturefnamengunarinnar kom alda mótmæla í þeim löndum sem Iiggja að Rín og þrýstingur á stjórnmálamenn jókst um að þeir tryggðu að slík slys kæmu ekki fyrir. Margir vonuðu að slysið yrði til þess að hætt yrði að veita skólpi út í fljótið. Ári eftir óhapp þetta komust Sviss- lendingar, Þjóðverjar, Hollendingar, Frakkar og Lúxemborgarar sér sam- an um að draga úr losun úrgangs í fljótið um helming fyrir árið 1995. Þrátt fyrir samkomulagið er talið ólíklegt að fljótið verði nokkru sinni jafn tært og það er við upptökin í Alpafjöllum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.