Tíminn - 30.07.1993, Side 15

Tíminn - 30.07.1993, Side 15
Föstudagur 30. júlí 1993 Tíminn 15 Draurmar sem aldrei rættust Lina hugðist nema lögfræði. Trina ætlaði einnig í háskóla og Marsha var bú- in að Ijúka prófi í snyrtifræðum og hugðist stofna eigið fyrirtæki. Þær áttu það sameiginlegt að vera duglegar, ungar og myndarlegar, ákveðnar í að láta drauma sína rætast. Það varð hins vegar aðeins Marsha sem entist ald- ur til að fylgja draumi sínum eftir. Lina Alridge ætlaði að leggja stund á lögfræði eftir að menntaskólanum lyki, en örlögin komu í veg fyrir það. Fimmtudagsnóttina 21. júní 1989, kl. 03.30, var Marsha Schultz á heim- leið á Honda-bifreið sinni í Compton í Kalifomíu. Hún var aðlaðandi 21 árs gömul kona og var að koma úr út- skriftarteiti eftir að hafa brautskráðst sem snyrtifræðingur. Kvöldið var búið að vera gott, en heldur versnaði í því þegar lögreglan renndi upp að hlið bfls hennar og gaf stöðvunarmerki. Bfllinn var án skráningamúmera og auk þess hafði Marsha ekki greitt tryggingar af bflnum. Hún var öku- skírteinislaus og ekki í bflbelti. Lögreglan hringdi á dráttarbfl og hélt á braut, en Marsha stóð ein eftir í myrkrinu. Hún átti ekki annars kost en að ganga heim. Eftir stuttan spöl stöðvuðu tveir skuggalegir menn hana. Annar tók hana kyrkingartaki og hótaði henni lífláti, ef hún léti ekki að vilja þeirra. Þeir neyddu hana inn í bfl sinn og keyrðu síðan um götur bæjarins. Mennimir tveir skiptust á að aka á meðan Marsha var nauðgað í aftursætinu. Síðan stoppuðu þeir við bensínstöð, fylltu á tankinn, og keyrðu að almenningsgarði í grennd- inni þar sem þeir nauðguðu henni aft- ur. Annar mannanna hótaði henni ítrek- að lífláti að því loknu og sagöi að holl- ast væri fyrir hana að hafa ekki sam- band við lögregluna, því þá færi illa fyrir henni. Síðan keyrðu þeir aftur að þeim stað sem þeir höfðu séð hana fyrst, slepptu henni út úr bflnum og keyrðu á braut Glæpur á glæp ofan Þrátt fyrir hótanir þeirra, var það fyrsta verk Marsha að hafa samband við lögregluna. Hún gaf útlitslýsingar á mönnunum, fór í gegnum mynda- skrár af glæpamönnum, en ekkert kom út úr því. Vikur liðu og þegar leið að hausti varð Marsha að sætta sig við að senni- lega myndi lögreglan ekki ná til glæpamannanna. Föstudaginn 28. júlí tók stöðumæla- vörður eftir að grálituð Toyota hafði staðið í sama stæði dögum saman, þrátt fyrir að hafa fengið fjölda stöðu- mælasekta. Bflnúmerinu var slegið upp í tölvu lögreglunnar og þá kom í ljós að bflsins hafði verið saknað í nokkra daga. Tveir menn úr rannsóknarlögregl- unni komu á vettvang til að skoða bfl- inn. Að lokinni skoðun opnuðu þeir skottið með verkfærum. Þar hvfldi lík ungrar konu. Hún lá á hliðinni, í rauðri silkiblússu einni fata og brjóst hennar og andlit voru þakin storkn- uðu svörtu blóði. Fómarlambið var skráður eigandi bifreiðarinnar, Lina Alridge, 19 ára gamall nemandi í menntaskóla. Lina var álitinn fyrirmyndamemandi á all- an hátt. Hún var með mjög góðar ein- kunnir, var varaforseti nemendafélags skólans og hafði unnið til verðlauna í sundgreinum. í sumarfríinu starfaði hún í íþróttasumarbúðum fyrir fötluð böm. Það var ekki til þess vitað að hún hefði nokkum tímann lent í slæmum félagsskap eða átt í neinum vandræð- um. Fregnin olli foreldmm hennar mik- illi geðshræringu. Að sögn föður hennar höfðu þau ekki séð dótturina í þrjá daga. Þau höfðu lýst eftir henni og bflnum, uggandi mjög um örlög dótturinnar, en vemleikinn var enn skelfilegri en þeim hafði dottið í hug. Síðasti aðstandandi hennar, sem sá hana á lífi, var kærasti hennar, San- ders. Lina hafði heimsótt hann eftir að vinnudegi lauk, en ákvað síðar að skreppa út í sjoppu og kaupa samlok- ur handa þeim. Hún hafði sagt: „Sé þig eftir tíu mínútur," en næst þegar hann sá hana var hún í líkhúsinu, er hann var fenginn til að bera kennsl á líkið. Hins vegar höfðu vinkonur hennar séð hana stoppa bfl sinn og taka kunn- ingja sinn, Roy Williams, upp í. Lögreglan hélt á fund Williams og vegna mikillar taugaveiklunar við heimsókn lögreglunnar þótti sýnt að hann hefði eitthvað að fela. Vefengdur vitnis- buröur Lögreglan tók hann í yfirheyrslu nið- ur á stöð og þar varð hann margsaga innan tíðar. Hann sagðist að lokum vera viðriðinn málið, en Lina virtist ekki hafa verið öll þar sem hún var séð. Þau höfðu farið í samkvæmi um kvöldið, þar sem allt flóði í eiturlyfj- um. Lina fór í samkvæmið gagngert til að komast í vímu af „krakki", ein- hverju hættulegasta eiturlyfi sem í umferð er. Williams sagðist hafa beðið eftir henni í bflnum í fyrstu, þar sem hann væri lítið gefinn fyrir dóp, en þegar tíminn Ieið og hún kom ekki til baka fór hann að óttast um hana. Williams fann hana í einu svefnher- bergjanna og þá virtist hún hálfmeð- vitundarlaus. Hún lá í tvíbreiðu rúmi, með buxumar niður um sig innan um fimm karlmenn, sem allir virtust hátt uppi. Williams spurði hvort þeim væri sama þótt hann tæki hana á brott með sér. Þeir gáfu ekki skýr svör, en sögð- ust þó ætla að sjá um hana sjálfir. Eft- ir það sagðist Williams ekki hafa séð hana. „Hún var skrýtin kona, sem lifði tvö- földu lífi,“ sagði Williams. „Hún naut þess að vera fyrirmyndamemandi í skólanum, starfa að félagsmálum og sýna sínar betri hliðar þar, en jafn- framt var hún mikið gefið fyrir hið „ljúfa líf'. Hún naut þess, án þess að margir vissu, að þefa kókaín eða fá sér krakk og skemmta sér með villtum karlmönnum, oft mörgum í einu.“ Lögreglan hélt ásamt Williams til hússins, en það var fátt sem benti til að þar væri að jafnaði mikili gleðskap- ur. Húsið var lögskráð eign fráskilinn- ar konu á miðjum aldri, sem bjó þar ásamt þremur bömum sínum. Framburður Roy Williams þótti nú ívið hæpinn og hann var beðinn um að fara í lygamælispróf. Hann spurði í forundran af hverju þeir tryðu sér ekki, en féllst þó á að taka prófið og kolféll. Niöurstööur krufningar Vondu fréttimar fyrir rannsóknar- menn lögreglunnar vom þær að nið- urstaða kmfningar varð að ekki væri hægt að sanna að Lina hefði verið myrt. Hún var með áverka á andliti og hálsi, en þeir höfðu ekki valdið dauða hennar. Heili hennar hafði orðið fyrir skyndilegri lömun vegna köfnunar af einhverjum orsökum, en ekki var hægt að segja um hvort dánarorsökin væri afleiðing krakkneyslu hennar sjálfrar eða ásetnings annars aðila. Þrátt fyrir að lögreglan hefði Willi- ams undir illum gmn, var samt ekki hægt að gera neitt í málinu og honum Roy Williams lærði mannfræði f skól- anum, en „praktíseraði“ ekki beint eft- ir bókinni. var sleppt án ákæm. Williams þakkaði fyrir sig. Hann útskrifaðist skömmu seinna, útnefndur efnilegasti körfu- knattleiksmaður skólans. Hann hélt að því Ioknu til framhaldsnáms í Cle- veland með íþróttastyrk í farteskinu. Ættingjar Linu vildu ekki una þessari niðurstöðu og faðir hennar hafði sam- band við einn þekktasta rannsóknar- lögreglulækni Bandaríkjanna, búsett- an í Texas, og bað hann að skoða gögn sem fyrir lágu eftir kmfningu dóttur hans. Læknirinn komst að þeirri nið- urstöðu eftir ítarlegar rannsóknir að dánarorsökin hlyti að vera sú að Lina hefði verið kyrkt eða kæfð með ein- hverjum hætti. Þrátt fyrir mikið eitur- magn í blóði hennar, taldi hann frá- leitt að það hefði eitt og sér leitt til dauða hennar og þar með var málið tekið upp aftur. Hallar undan fæti Víkur nú sögunni aftur að Roy Willi- ams. Hann var búinn að koma sér þægilega fyrir í háskólanum í Cleve- land og hafði valið sér mannfræði sem aðalfag. Allt virtist ganga honum í haginn uns mánudagurinn 10. desem- ber 1990 rann upp. Þann dag barst honum nauðgunarákæra frá 17 ára gamalli stúlku, sem hafði farið í partý, dmkkið illa og misst meðvitund og vaknað síðan með Roy Williams sér við hlið. Hann hafði spurt hana þegar hún vaknaði: „Er þetta í fyrsta skipti sem þú sefur hjá svörtum manni?" Hún hafði í fyrstu ætlað að láta þar við sitja, en eftir því sem frá leið fannst henni réttara að láta lögregluna vita og kæra Williams. Williams vissi sem var að vonlítið væri að sanna á hann athæfið og svar- aði einungis: „Ég þarf ekki að nauðga konu til að fa að sofa hjá henni." Körfuboltahetjan var hins vegar að missa stjóm á málunum og skömmu seinna var hann aftur ákærður fyrir nauðgun við svipaðar kringumstæður. f þetta skipti fékk hann skilorðsbund- inn dóm. Orðspor hans var orðið á þann veg að yfirvöldum skólans fannst ekki rétt að hafa hann innan sinna raða og hann var rekinn um haustið, ekki síst eftir slakan námsárangur. Þá höfðu vonir hans hmnið um að kom- ast í NBA- deildina, þar sem forráða- menn íþróttafélaga sáu sér ekki fært Það var f skottinu á þessari Toyotu sem lífLinu fjaraði út. að hafa siíkan mann. Williams sneri aftur til Compton og dró þar fram lífið með tilfallandi hlutastörfum. Enn var ekki búið að dæma í annarri Cleve- land-ákæmnni og búið var að taka mál Lisu upp á nýjan leik. Vitnin tala Mánudaginn 28. aprfl var Williams svo endanlega tekinn úr umferð. í þetta skipti var hann ákærður fyrir morð á TVinu Young, ungri einstæðri móður sem hafði tekið sér frí frá námi eftir að hún varð ófrísk. Hún fannst látin á heimili sínu í Delta Street, nak- in, stungin með hnífi í bijóstholið og kyrkt. Þá hafði henni einnig verið nauðgað. Líkt og áður neitaði Williams öllum sakargiftum, en í þetta skipti hafði vitni séð til hans fara inn í íbúð TYinu og í gegnum opinn glugga heyrði vitnið fómarlambið æpa: „Ekki gera þetta, Roy, hættu." Síðan varð allt hljótt. Við sakbendingu benti vitnið á Roy Williams, sem leiddur var fram ásamt mörgum öðmm mönnum, og því þóttu sönnunargögn nægileg til að handtaka Williams og ákæra hann fyr- ir morð. Eftir að DNA-próf hafði verið gert á Williams kom á daginn að hann hafði nauðgað Trinu Young, þrátt fyrir að hann hefði svarið að hafa aldrei séð hana áður. Þegar honum var tilkynnt niðurstaða prófsins brast hann í grát, en það hjálpaði honum ekki úr þessu. Marsha Schultz, sem orðin var úrk- ula vonar um að finna mennina sem þvinguðu hana til samræðis, aðfara- nótt 21. júní 1989, sá kvöld eitt í sjón- varpinu nærmynd af Roy Williams, þar sem skýrt var frá að hann hefði verið ákærður fyrir tvö morð að yfir- lögðu ráði. Hún fór strax á fund lög- reglunnar og sagði að Williams væri annar tvímenninganna sem hefðu nauðgað sér. Hinn fannst skömmu síðar. Þegar réttarhöldin hófúst reyndist Marsha Schultz lykilvitni í ákæmnum gegn Williams. Á meðal þess, sem fram kom í máli hennar, var að Roy hafði tekið hana kyrkingartaki og það hefði verið félaga hans að þakka að Roy hefði ekki drepið hana. Þegar hún var spurð hvort hún væri viss um að maðurinn væri Roy Williams, sagði hún: Já, ég mun aldrei gleyma andliti hans.“ Sekur um öll ákæruatriöi Fimmtudaginn 18. mars 1993 var Roy Williams fundinn sekur um þrjár nauðganir og tvö ásetningsmorð. Sækjandi krafðist ekki dauðadóms yfir hinum ákærða, þar sem það hefði dregið málið á langinn um ókomin ár og ekki var sýnt að áfrýjunardómstól- um þættu sannanir nægjanlegar til að senda hann í rafmagrisstólinn. Willi- ams hlaut þrefalt lífstíðarfengelsi án möguleika á náðun og hefur nú bæst í tölu fómarlamba sinna sem ekki náðu að sjá draum sinn rætast — í hans til- felli NBA-drauminn.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.