Tíminn - 13.08.1993, Síða 2

Tíminn - 13.08.1993, Síða 2
2 Tíminn Föstudagur 13. ágúst 1993 íbúðir aldraðra of dýrar. Sigrún Magnúsdóttir: Þær íbúðir 12>13% dýrari sem ekki voru boðnar út „Efnislega var bókun mín í þá veru að skýrslan (um byggingarkostnað íbúða fyrir aldraða) staðfesti það sem margir hafa haldið fram, að tbúðir fyrir aldraða borgarbúa væru of dýrar,“ sagði Sigrún Magnús- dóttir borgarfulltrúi eftir fund í Byggingarnefnd aldraðra. jafnframt sagði ég það mína skoð- un, að helsta skýringin á því sé sú að ekki hafi farið fram útboð eða að um aðra samkeppni hafi verið að ræða í sambandi við þessar söluíbúðir. Það ætti líka við um borgina. Hún hefur heldur ekki boðið út þær þjónustu- miðstöðvar sem hún hefur byggt í tengslum við þessar íbúðir, heldur samið við sömu arkitekta og verk- taka.“ Við samanburð sem gerður er í skýrslunni á byggingarkostnaði kemur í ljós að meðalverð á fer- metra reyndist um 12—13% dýrara í þeim 300 íbúðum sem ekki voru boðnar út heldur en í þeim 82 íbúð- um sem byggðar voru eftir almennt útboð, þrátt fyrir að margar þeirra síðamefndu séu í litlum húsum og/eða raðhúsum, sem jafnaðarlega em hlutfallslega dýrari í byggingu en stærri sambýlishús. Þessi verð- munur átti bæði við um íbúðir aldr- aðra sem og íbúðir í félagslega íbúðakerfinu. Samanburðurinn náði til 9 bygg- ingaframkvæmda aldraðra hvar af almennt útboð fór fram í 5 tilvikum. Meðalverð á brúttófermetra reyndist tæplega 72.100 kr. í húsunum sem boðin vom út, en um 80.300 kr. í húsum sem byggð vom eftir samn- ingi við verktaka. Þetta þýðir 820 þús. kr. verðmun á 100 fermetra íbúð. Niðurstaðan verður nærri því sú sama þegar skoðuð em 3 verk í fé- lagslega íbúðakerfinu. í þeim tveim- ur verkum sem ekki vom boðin út var meðalverðið um 66.800 kr. á fer- metra, en aðeins um 59.100 kr. í því húsi sem byggt var eftir almennt út- boð. Sigrún sagðist ekki hafa fallist á að standa að bókun sem formaður Byggingamefndar aldraðra lagði fram, um að nefndin andmælti stað- hæfingum skýrslunnar um að lóða- úthlutun borgarinnar til samtaka aldraða hafi verið bundin þeim skil- yrðum að ákveðin byggingarfyrir- tæki önnuðust framkvæmdir. Þótt sögur um þetta hafi heyrst oft og lengi sagði Sigrún það hvergi skráð á blað, sér vitanlega. Á hinn bóginn hafi á sínum tíma einn stjómarmanna Réttarholtssamtak- anna sagt henni það, að þegar þau Ioks eftir langa baráttu hefðu fengið vilyrði fyrir lóð við Víkingsheimilið þá hafi það verið með því skilyrði að byggt yrði með Ármannsfelli. Það hafi því endað með að samtökin sóttu um lóðina með Ármannsfelli. - HEI Laus staða Staöa forstööumanns Skólaskrifstofu Reykjavíkurborgar er laus til umsóknar. Ráðið veröur í stöðuna frá 1. október nk. Umsóknir berist til skrifstofu borgarstjóra, Ráðhúsi Reykjavíkur, fyrir 9. september nk. Borgarstjórinn í Reykjavík Markús Öm Antonsson Heilbrígðis- og tryggingaráðuneytið Laust lyfsöluleyfi sem forseti íslands veitir Laust er til umsóknar lyfsöluleyfi í Kópavogi (Kópavogs Apótek). Fráfarandi lyfsali gerir kröfu til þess, í samræmi við 11. gr. laga nr. 76/1982, um lyfjadreifingu, að viðtak- andi lyfsöluleyfishafi kaupi allan búnað apóteksins og inn- réttingar þess. Ennfremur kaupi viðtakandi leyfishafi fast- eign apóteksins en hún er kjallari og jarðhæð austurhluta byggingarinnar nr. 11, Hamraborg, þar sem apótekið ertil húsa og meöfylgjandi sameign. Viðtakandi lyfsali skal hefja rekstur frá og með 1. janúar 1994. Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um lyfjafræði- menntun og lyfjafræðistörf, sendist ráðuneytinu fyrir 15. september nk. Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið Atvinnuleysi hefur farið minnkandi frá því í mars, en mjög mismun- j andi eftir kynjum og stéttum: Ofaglærðar konur verða verst úti Atvinnuleysi meðal kvenna hef- ur minnkað mun minna heldur en meðal karla. Þetta á sérstak- lega við um ófaglærðar konur, en atvinnuleysi meðal þeirra hefur aukist verulega í Reykjavík frá áramótum. Félagsmálaráðherra ætlar að láta skoða málefni þessa hóps sérstaklega. Dregið hefur úr atvinnuleysi undanfama mánuði, en það mældist 3,2% í síðasta mánuði. Atvinnuástandið í ár er þó verra en á sama b'ma í fyrra og sé mið- að við síðustu 12 mánuði mælist nú 3,9% atvinnuleysi á móti 3% á síðasta ári. Atvinnuleysi mæld- ist mest f mars á þessu ári eða 5,4%. Minnkun atvinnuleysis nú má að mestu rekja tí! hefðbund- innar uppsveiflu á þessum árs- tíma ásamt átaksverkefnum sveitarfélaga og ríkis. Þær töiur Frá kynnlngu atvinnuleyslstatna I félagsmálaráöuneytinu f gaer. J6- hanna Slguröardóttfrfélagsmálaráöherra vftf fáta skoða málefnl kvenna sérstaklega. sem birtast núna eru lægri en gert var ráð fyrir í spám, en að sögn Þórðar Friðjónssonar er spáð 5-6% atvinnuleysi á næsta Áberandi meira hefur dregið úr atvinnuleysi karla en kvenna frá því í mars. Atvinnulausum körl- um hefur fækkað úr rúmlega 3600 f rúmlega 1700 eða 52%. Á sama tfma hefur atvinnulausum konum fækkað úr 3052 f 2660, sem er ekki nema 13%. Atvinnu- leysið kemur sérstaklega illa nið- ur á ófáglærðum konum, en at- vinnulausum faglærðum konum í Reykjavík hefur fjölgað frá ára- mótum úr tæplega 400 í 620. Jó- hanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra telur að þessi mál þurfi að skoða sérstaklega. „Það er að fara í gang starfshóp- ur á mínum vegum, sem á að gera tillögur um atvinnuskap- andi verkefni fyrir konur," sagði félagsmálaráðherra í gær. „Það eru til ráðstöfunar í því skyni 60 milljónir króna og ég hef óskað Skráð atvinnuleysi í júlímánuði sl. skiptist þannig eftir svæðum og kyni Svæði: Konur Karlar Alls Höfuðborgarsvæðið 5,1% 2,5% 3,6% Landsbyggðin 3,8% 1,7% 2,6% Vesturland 3,5% 1,8% 2,5% Vestfirðir 2,8% 1,0% 1,7% Norðurland vestra 3,1% 1,6% 2,2% Norðurland eystra 5,1% 2,7% 3,7% Austurland 2,3% 1,8% 2,0% Suðurland 4,3% 1,7% 2,7% Suðumes 3,8% 0,8% 1,9% Landið allt: 4,6% 2,1% 3,2% eftír því við þennan hóp að hann skoði sérstaklega verkefni sem henta þessum konum. Það er einnig Ijóst að við verð- um að stuðla að aukinni starfs- menntun meðal þessa ófaglærða hóps. Það er komin ákveðin stefnufesta varðandi starfs- menntun almennt, sem er helsta meðalíð sem beitt er í löndunum f kringum okkur til þess að draga úr atvinnuleysi." Félagsmálaráðherra segist f þessu sambandi vilja Iáta skoða sérstaklega, hvort raunin sé að þeir Qármunir sem varið hefur verið hjá sveitarfélögum til at- vinnuskapandi verkefna og skap- að um 2000 störf tímabundið, hafi frekar nýst konum en körl- um. Ákvörðun um borgarstjórnarprófkjör Sjálfstæðismanna í næsta mánuði: Sigurjón Pétursson, borgarfulltrúi Alþýðubandalags: Minnihlutinn sam- einist um oddvita Búast má við að í næsta mánuði verði tekin ákvöröun um hvort beitt verði prófkjöri hjá Sjálfstæð- isflokknum fyrir borgarsfjómar- kosningamar í vor. Þá hefur eldd verið fullreynt hvort minnihluta- fiokkamir komi sér saman um borgarstjóraefni. Siguijón Péturs- son, borgarfulltrúi Alþýðubanda- lags, vill að oddviti þess flokks sem fái mest fylgi núverandi minnihlutaflokka, verði valinn borgarstjóri. Margt bendir til að staða Markús- ar Amar Antonssonar borgarstjóra sé ekki sterk um þessar mundir og þegar séu nokkrir borgarfulltrúar flokksins famir að leggja línumar fyrir væntanlegt prófkjör. Þar hafa nöfn þeirra Áma Sigfússonar, Vil- hjálms Vilhjálmssonar og Katrínar Fjeldsted heyrst nefnd. Eins og kunnugt er höfðu þau mikinn hug á að verma stól Davíðs Oddssonar á sínum tíma. Því hefúr verið fleygt að Davíð sé ekki sem ánægðastur með ffamgöngu Markúsar. Að sögn Kjartans Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðis- flokksins, á að liggja fyrir í næsta mánuði hvort beitt verði prófkjöri eða ekki til að velja fulltrúa á lista flokksins. Þá er talið að vemlegs uggs gæti meðal Sjálfstæðismanna um end- urkomu Alberts Guðmundssonar í borgarmálin en hann hefur svarað spumingum þar að lútandi í ve- fréttastíl. Á vettvangi minnihlutans er margt í deiglunni. Það virðist nokkuð ljóst að Nýr vettvangur hverfi af sjónarsviðinu en fulltrúar hreyfingarinnar og Kvennalista hafa lýst mestum áhuga á sameig- inlegu borgarstjóraefni og hefur nafn Ingibjargar Sólrúnar borið þar hæst. Nokkuð kveður við annan tón hjá fulltrúum hinna flokkanna. Þannig segir Sigurjón Pétursson Abl. að sér finnist eðlilegast að leyfa kjós- endum að velja um það hver skuli vera borgarstjóraefnið með þeim hætti að oddviti þess flokks sem fái flest atkvæði verði borgarstjóraefn- ið. Hann segist þó ekki hafa hafnað neinum hugmyndum um eitt borg- arastjóraefni. „Ég hef heldur ekkert samþykkt,“ segir hann. Fulltrúi Framsóknarflokksins lýsti yfir and- stöðu sinni við þessar hugmyndir í vor. Framsóknarfélagið í Reykjavík hefur þó lýst yfir vilja sínum á að ræða málin við fulltrúa annarra minnihlutaflokka. Þar er eins og gefur að skilja Sigrún Magnúsdótt- ir neffid tíl sögunnar sem sameig- inlegt borgarstjómarefni. —HÞ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.