Tíminn - 02.09.1993, Blaðsíða 2

Tíminn - 02.09.1993, Blaðsíða 2
2 Tíminn Fimmtudagur 2. ágúst 1993 ^prEinn eigandi Hópferðabíla sf. um vinnubrögð Sjálfstæðismanna í útboði skólaaksturs: Oeðlileg og forkast- anleg vinnubrögð „Þetta eru óeölileg og forkastanleg vinnubrögö meiríhluta borgar- ráðs,“ segir Hannes Hákonarson, einn eigenda Hópferðabíla Reykjavíkur sf., um þá afgreiðslu meiríhluta borgarráðs að taka til- boði Magnúsar G. Kjartanssonar hf. í skólaakstur á vegum borgar- innar þrátt fyrír að embættismenn borgarínnar hafi metið tilboð Magnúsar óaögengilegt Viðskiptaráðuneytið: Þorkell Helgason ráðuneytis- stjóri Þorkell Helgason prófessor tók í gær við stöðu ráðuneytis- stjóra í viðsldptaráðuneytinu. Þorkell tók við stöðunni af Birni Friðfinnssynl sem gerð- ur hefur verið að fram- kvæmdastjóra við Eftirlits- stofnun EFTA. Þorkell hefur verið aðstoðarmaður Sighvats Björgvinssonar viðsidptaráð- herra undanfarin tvö ár. Þorkell Heigason er fimmtug- ur doktor í hagnýtri stærð- fræði. Hann hefur kennt við Háskóla íslands frá árinu 1971 þar til fyrir tveimur árum þeg- ar hann gerðist aðstoðarmaður Sighvats. Prófessor varð Þor- kellárið 1985. Eiginkona Þorkels er Helga Ingólfsdóttir semballeikari. -EÓ „Það er hæpið að við munum taka þátt í öðru útboði á vegum borgar- innar ef búast má við svipuðum vinnubrögðum," bætir Hannes við og vísar til þess að málið lykti af pól- itískrí spillingu þar sem Magnús er formaður félags Sjálfstæðismanna f Mosfellsbæ. Máli sínu til stuðning bendir hann á að tilboð Magnúsar hafi ekki einu sinni verið í samræmi við útboðsgögn. Eins og kunnugt er samþykkti meirihluti Sjálfstæðismanna í borg- arráði fyrr í vikunni að taka tiiboði Magnúsar sem Hersir Oddsson, fyrir hönd Vélamiðstöðvar Reykjavíkur- borgar, hafði lagt til að yrði hafnað en Magnús átti lægsta boð sem hljóðaði upp á 14 milljónir og 390 þúsund kr. Hópferðabílar áttu annað lægsta tilboðið sem var einungis 103 þúsundum hærra eða 14 millj- ónir 493 þúsund kr. Minnihluti borgarráðs iagði til að gengið yrði að því tilboði. f áliti Hersis á tilboði Hópferðabfla gerir hann athugasemd við fjar- skiptabúnað bflanna sem hann segir ábótavant en telur að fyrirtækið geti samt valdið verkefninu. í fyigiskjali sem lá fyrir borgarráði staðfesti fyr- irtækið Nesradfó afhendingu og ísetningu á allt að 10 talstöðvum. Hannes segir að ekki einungis sé verið að brjóta gegn áliti embættis- manns borgarinnar heidur einnig gegn skilyrðum í útboðsgögnum með því að ganga að tilboði Magnús- ar. Þar bendir Hannes á ákvæði í út- boðsgögnum um að allur rekstur verktaka skuli vera traustur og áreiðanlegur og hann skuli hafa nægjanlegt bolmagn til að sinna öil- um akstrinum. Þetta virðist alls ekki eiga við fyrir- tæki Magnúsar. í greinargerð emb- ættismanns Vélamiðstöðvar segir að margt bendi til þess að Magnús muni eiga erfitt með að ieysa verk- eftiið, sérstaklega vegna fjárhags- stöðu fyrirtækisins. Þá segir og að við skoðun á fimm bflum fyrirtækisins hafi komið í Ijós að ýmsu væri ábótavant og athygli veki að Bifreiðaskoðun íslands hafi klippt skráningamúmer af þeim öll- um á þessu ári þó að aðeins einn sé nú „afklipptur." Sagt er að þetta endurspegli líklega rekstrarerfið- leika fyrirtækisins. Einnig er talað um að stærðarsamsetning bflaflot- ans sé heldur ekki sem heppilegust ásamt þvf að fjarskiptabúnaði sé ábótavant Hannes segist hafa leitað eftir svör- um fulltrúa meirihlutans við því af hvaða ástæðum tilboði Magnúsar var tekið þrátt fyrir þessa annmarka en enginn viðhlítandi svör fengið. -HÞ Um 840 milljónir hurfu úr buddu byggingarmanna 1992 Velta 63 fyrirtækja í byggingariðnaði minnkaði úr samtals 9,9 milljörðum niður í tæpa níu milljarða í milli ár- anna 1991 og 1992. Þessi lækkun kom fyrst og fremst fram í launa- kostnaði og tengdum gjöldum, sem lækkuðu úr tæpum 32% í tæp 26%. Það þýðir að launakostnaður þessara 63ja byggingarfyrirtækja lækkaði um rúmlega 840 milljónir króna, eða meira en fjórðung (úr 3.150 m.kr. í 2.310 m.kr.) milli þessara ára, sem kemur þá annað hvort, eða lfldega bæði, fram í fækkun starfsmanna og lægri launum til hvers þeirra sem heldur vinnunni. Það vekur aftur á móti athygli, að þrátt fyrir að veltan minnki svo mjög þá óx hagnaður þessara 63ja bygg- ingafyrirtækja að jafnaði milli þessara ára. Hagnaður þeirra af reglulegri starfsemi varð að jafnaði 10% ásíðasta ári, sem var hærra hlutfall en í nokk- urri hinna helstu atvinnugreinanna í landinu. Eiginfjárhlutfall þessara fyr- irtækja hækkaði sömuleiðis úr 34% upp í nærri 45% milli ára. En það lækkaði í öllum hinum greinunum. Þessar tölur koma fram í úrvinnslu Þjóðhagsstofnunar úr ársreikningum fyrirtækja 1992 og sömu fyrirtækja 1991. - HEI Óafur Ragnar Grímsson skráður fyrir síma um borð í hópferðabíl frá Magnúsi B. Hjartarsyni: „Hann skemmtir sér víst vel þessi rútubflstjóri“ í símaskrá Alþingis er þingmaður- inn Ólafur Ragnar Grímsson skráð- ur fyrbr farsímanúmerinu 985- 32818. Sé hlns vegar hringt í þetta númer svarar eUd Ólafur Ragnar heldur rútubflstjóri á hópferðabfl frá Magnúsi B. Hjartarsyni. Hann hefúr í sumar fengið vítt og breitt um landið skilaboð, fundarboð og önnur símtöl ætluð Ólafi Ragnari. Starfs- menn Alþingis hafa nú uppgvötað þennan missldlning, en hvemig hann kom til er mönnum hulin ráð- gáta. Því Ólafúr Ragnar Grímsson hefúr aldrei átt farsíma. J’etta er eitt af þessum dularfúllu málum hér í þinginu, því ég er einn af fáum mönnum hér sem aldrei hafa haf) fersíma, hvorki sjálfur né á veg- um þingsins," sagði Ólafur Ragnar aðspurður um málið á dögunum. J>annig að hvemig þetta fersíma- númer er komið héma inn í símaskrá þingsins hefúr ekki nokkur maður hugmynd um. En hann skemmtir sér víst vel þessi rútubflstjóri." Rútubflstjórinn sem um ræðir heit- ir Guðmundur Birgir Heiðarsson. Hann segist reyndar ekki hafa orðið fyrir miklu ónæði vegna þessa. „Ég er búinn að hafe mikið gaman af þessu,“ sagði Guðmundur," en ég náði því að vísu ekki að lifa mig inn í hlutverk- ið.“ Þótt enginn hafi fundið skýringu á þessum farsímamisskilningi er mál- inu að öllum líkindum lokið. Ferða- mannab'mabilinu er að Ijúka og rút- Magnús Brelöfjörö HJartarson, elgandl rútunnar, með farsímann góða sem er skráður á nafn Ólafs Ragnars Gríms- sonar f símaskrá Alþlngls. an með bflasímanum góða er ekki í mikilli notkun lengur. Guðmundur Heiðar er hættur að keyra í bili og fór í gær til Noregs að læra viðskipta- fræði og Ólafúr Ragnar Grímsson er búinn að lýsa því yfir opinberlega að hann eigi ekki og hafi aldrei átt far- síma. Og símaskrá Alþingis, sem gef- in er út í örfáum eintökum handa starfsfólki og þingmönnum, er enn í fullu gildi — með einni undantekn- ingu þó. -ÁG Sameining og fækkun stofnana rædd f tengstum við Qáriagagerð: Ekkert rætt við starfs- mennné stéttarfélög jf raun og veru er þetta ennþá aðeins hugmynd útí í hæ. En ef að líkum hetur má búast við því aö framkvæmdin verði eim og svo oft áður með til- skipunu m að ofan án nokkurs samráðs,“ segir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB. í tengslum við gerð fjárlaga hefur verið rætt um það innan rikisstjórnar að fækka Og sam- eina opinberar stofnanir. Þrátt fyrir að vinna við gerð fjárlaga sé á lokastigi hefur enn sem komið er ekkert samband verið haft við starfsfólk þeirra stofn- ana sem ríkisstjómin hefúr undir smásjánni né heldurvið- komadi stéttarfélög. ögmundur Jónasson, formað- ur BSRB, segist ekki vita til þess að nokkurt samband hafi verið haft við viðkomandi stéttarfélög né það starfsfóik sem þama á hagsmuna að gæta. Hann segir að opinberir starfsmenn standi í raun og veru í sömu sporum hvað þetta varðar og sl. vor þegar einstak- ir ráðherrar ríkisstjómarinnar byrjuðu fyrst að ýja að þeim möguleika að nauðsynlegt væri að sameina og fækka op- mberum stofnunum. ‘grh Eigandi skartgripaverslunar varð fýrir miklu tjóni: SKARTGRIPUM STOLIÐ FYRIR 3 MILLJÓNIR Brotist var inn í gullsmíðaverk- stæði í Breiðholti í fyrranótt og stolið þaðan skartgripum fyrir á þriðju milljón króna. Tjón eig- andans er mikið því að tryggingin var runnin út Innbrotsþjófamir stálu eðalsteinum, nælum og spennum, auk gulls sem vinna átti eftir úr. Þá var stolið talsverðu af gullbirkilaufi. Málið er í rannsókn hjá Rann- sóknarlögreglu ríkisins. -EÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.