Tíminn - 02.09.1993, Blaðsíða 12
Áskriftarsími
Tímans er
686300
NÝTT OG
FERSKT
DAGLEGA
reiðholtsbakarí
VÖLVUFELLI 13-SlMI 73655
labriel
HÖGG-
DEYFAR
Verslið hjá fagmönnum
GJvarahlutir
Hamarshöfða 1
T
Iíminn
FIMMTUDAGUR 2. SHPT. 1993
Norðmenn með gylliboð og yfirbjóða íslenskar loðnu-
verksmiðjur. Félag fiskimjölsframleiðenda:
Norska verðið
út úr kortinu
Teitur Stefánsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra fiskimjöls-
framleiöenda, segir að það loðnu-
verð sem Norðmenn bjóða útgerð-
um íslenskra loðnuskipa, eða
6.500 krónur fyrir tonnið, sé al-
veg út úr kortinu miðað við það
afurðaverð sem fæst fyrir mjöl og
iýsi um þessar mundir.
Hann segir að það sé of snemmt
að segja nokkuð til um það hvort
gylliboð Norðmanna muni verða
til þess að íslensku skipin sigli
með aflann til Noregs. Þangað sé
þriggja sólarhringa stím en á með-
an geti þau skip sem landa innan-
lands náð allt að tveimur túrum.
Loðnubræðslur borga um 4.400
krónur fyrir loðnutonnið sem er
um 54% af afurðaverðinu. Aftur á
móti greiðir verksmiðja SR á Seyð-
isfirði 4.700 krónur fyrir hvert
tonn sem ætlað er til framleiðslu á
hágæðamjöli.
Teitur segir erfitt að geta sér til
um hvað sé á bak við þetta verðtil-
boð Norðmanna, því það komi ekki
heim og saman við það verð sem
fæst fyrir loðnuafurðir á heims-
markaði.
Það sem af er loðnuvertíðinni
hafa veiðst rúm 272 þúsund tonn
og því eru eftir tæplega 430 þús-
und tonn af rúmlega 700 þúsund
tonna heildarkvóta. Hinsvegar er
viðbúið að það verði aukið við
kvótann eftir haustleiðangur skipa
Hafró.
Mestum afla hefur verið Iandað á
Siglufirði, eða tæpum 58 þúsund
tonnum, og þvínæst á Raufarhöfn
um 45 þúsund tonnum. -grh
Tryggingastofnun:
Margir vilja í
forstjórastólinn
Alls munu hafa borist um þrettán
umsóknir um stöðu forstjóra
TYyggingastofnunar ríksins til heil-
brigðisráðuneytisins og er jafnvel
von á fleirum í póstinum. En um-
sóknarfrestur um stöðuna rann ný-
verið ÚL
Eggert G. Þorsteinsson forstjóri
segir að það eigi enn eftir að semja í
rólegheitunum um sín starfslok auk
þess sem viðbúið sé að hann muni
eitthvað starfa með eftirmanni sín-
um. Eggert sagði aðspurður að ald-
urs vegna gæti hann haldið áfram
störfum.
Bylgjan hafði það eftir Jóni Sæ-
mundi Sigurjónssyni, hagfræðingi
hjá Tryggingastofnun, að auk hans
og Karls Steinars Guðnasonar albm.
væru meðal umsækjenda þeir Ami
Njálsson, Hrafn Friðriksson læknir
og Hilmar Björgvinsson deildar-
stjóri.
-grh
Hengdur svanur festur á útidyr Magnúsar Skarphéðinssonar
hvalavinar. Morðhótun fylgdi með.
Grunar „veiðilýð-
inn“ um ódæðið
„Ég var að koma heim úr kvöld-
verðarboði um miðnættið og þá
beið mín þessi óhugnaður við dyrn-
ar ásamt morðhótun. Þegar ég kom
heim lagaði blóðið úr munnvikun-
um og það var óstorknað þannig að
svanurinn hefur ekki verið búinn
að vera lengi dauður,“ segir Magn-
ús Skarphéðinsson, sagnfræði-
nemi og hvalavinur.
Fljótlega eftir að Magnús hafði
jafnað sig á þessari óhugnanlegu
sjón sem blasti við honum við úti-
dymar, kvaddi hann til Iögreglu sem
tók af honum skýrslu. Málið er í
rannsókn hjá RLR.
„Ég hugsa að þetta sé nú frekar en
ekki af völdum þessa veiðimanna-
lýðs sem ég hef verið að gagnrýna að
undanfömu með skrifum í fjöl-
miðla."
Magnús segist hafa tekið eftir því
að þessi gagnrýnisskrif hans hafi
farið alveg geysilega fyrir brjóstið á
mörgu þessu fólki.
„En þar fyrir utan hefúr afstaða
mín til hvalveiða örugglega eitthvað
að segja um ástæður þessa verknað-
ar.“
Magnús segir að þetta níðingsverk
á svaninum sé heldur óvenjulegt og
gróft í þeirri flóru hefðbundinna
hótana og ýmiskonar aðkasts sem
hann hefur orðið fyrir sökum skoð-
ana sinna. Auk morðhótana í gegn-
um síma og nú síðast á miða sem
hengdur var á svaninn, hefur verið
brotist inn til Magnúsar auk þess
sem hann hafði einu sinni rök-
studdan grun um að sími hans væri
hleraður. Líklega hefur svanurinn veriö drepinn og hengdur í spottanum
-grfa sem hann hékk í við útidymar hjá Magnúsi Skarphéðinssyni.
...ERLENDAR FRÉTTIR...
TÚNIS — PLO og fsraelsrlki munu
viöurkenna tilverurétt hvort annars
nokkrum dögum áöur en friðarsamn-
ingur um sjálfstjóm Palestlnumanna
á hemumdu Gaza- svæðinu og
borginni Jerlkó á Vesturbakkanum
veröur undinitaður, að sögn hátt-
setts embættismanns PLO I gær.
I JERÚSALEM sagði Shimon Per-
es, utanrfkisráöherra fsraels, einnig
að Israel væri I þann veginn að við-
urkenna PLO og að samþykki um
bráðabirgðasjálfstjóm Palestlnu-
manna gæti rutt brautina fyrir Araba-
rlki að bundiö enda á strlösástand
gagnvart fsrael.
f OSLÓ var haft eftir norska utan-
rtkisráöherranum Johan Jörgen
Holst að famir væru frá Noregi aðilar
til leynilegra friðarviðræðna Israela
og PLO sem miðuðu að þvl að kom-
ast að samkomulagi um skilyrði fyrir
gagnkvæmri viðurkenningu.
IAMMAN sagði háttsettur jórd-
anskur embættismaður að land
hans mundi llklega undirrita eigin
samningsramma viö Israel I núver-
andi lotu friöarviöræöna I Washing-
ton.
En I BEIRÚT réöust palestlnskir
harðllnumenn harkalega á samn-
ingsdrögin og Hizbollah- hreyfingin I
Llbanon, sem hliöholl er Irönum,
slóst I liö meö andstæöingum sam-
komulagsins. I suðurhluta Llbanon
réðust skæruliðar á vopnaða banda-
menn fsraela og Israelskar þyriur og
stórskotaliðar skutu á hæðir á valdi
skæruliða.
GENF — Alija Izetbegovic, forseti
Bosnlu-múslima, var settur undir
þrýsting alþjóðlegra sáttasemjara og
forystumanna Bosnlu-Serba og Kró-
ata um að viðurkenna ffamlagða
friðaráætiun þegar viðræður hófust I
Genf á ný. f GENF sagöist einnig
nefnd Sameinuðu þjóöanna um
strlðsglæpi I fyrrverandi Júgóslavlu
vera aö rannsaka staðhæfingar um
98 fjöldagrafir vltt og breitt um bar-
dagasvæðið.
I SARAJEVO sögðu embættis-
menn Sameinuðu þjóðanna að þeir
vonuðust til að fá hermenn múslima
og Króata til að samþykkja brott-
flutning allra særðra ffá bardaga-
hrjáðu borginni Mostar.
MOSKVA — Bóris Jeltsln Rúss-
landsforseti sagðist ætla að reka úr
embætti keppinautinn Alexander
Rútskoj varaforseta og stuðnings-
mann sinn og aöstoðarforsætisráð-
herra, Vladimir Shumeiko, til að
lægja deilur um spillingu. Þingforset-
inn Rúslan Khasbulatov mótmælti
brottrekstri Rútskojs og sagði Jeltsln
hafa brotið stjómarskrá landsins.
MANTEO, Noröur-Karólinu —
Öskur fellibylsins Emillu reyndist
grimmara en bitið þegar óveðrið
slangraði á haf út eftir aö hafa að-
eins valdið litils háttar skemmdum I
rikinu viö strönd Atlantshafsins.
GENF — Boutros Boutros-Ghali,
framkvæmdastjóri Sameinuöu þjóö-
anna, mun hitta aðstoðarforsætis-
ráðherra Iraks, Tarez Aziz, slðar til
að ræða allar ályktanir öryggisráðs-
ins vegna Bagdad, að þvl er tals-
maöur S.þ. sagði fréttamönnum I
gær. Viðræðumar munu snúast um
eftiriit meö vopnabirgðum fraka svo
og ollusölubann sem sett var á Iraka
skömmu etir innrás þeirra I Kúveit I
ágúst 1990.
PRAG — Vaclav Havel, andófsmað-
urinn sem varð forseti og heillaöi
tékknesku þjóðina með þvi að kjósa
heldur að búa I hóflegri Ibúð en að
setjast að i forsetahöllinni, upplýsti I
gær að hann ætti talsverðar eignir
og væri þar með margmilljónamær-
ingur. Rlkidæmi hans má rekja til
þess að skilaö var eigum sem
kommúnistar gerðu upptækar 1948
og afl hans haföi aflaö en hann var
vel þekktur byggingameistari.
BANGUI — Mið-Afrikulýðveldið hef-
ur veitt Jean-Bedel Bokassa, fyrrver-
andi keisara, frelsi en hann hefur
verið I haldi slðan 1986 I herfangelsi
fyrir fjárdrátt og samsæri um morð,
segir I tilkynningu stjómvalda.
DENNI DÆMALAUSI
„Getur hundurínn þinn gert einhverjar kúnstir?“ „Já,
sjáðu!“„Það er engin kúnst að borða hundakex!“
„Ekki það? Leyfðu mérað sjá þig borða eitt!“