Tíminn - 15.09.1993, Blaðsíða 1
Frétta-T[minn, .rrélta-*fininii...68-T6-48...Frétta-Tíminn . Frétta-síminii...68-76-48...Frétta-Tíminn...Frétta-síminn...68-76.48.
mMwBBBh
Miðvikudagur
15. september 1993
173. tbl. 77. árg.
VERÐiLAUSASÖLU
KR. 125.-
Formbreyting á rekstri fjarskiptadeildar Pósts & síma
kemur illa við pyngju trillukarla:
Þjónustugjaldið
hækkaði um 330%
Trillukörlum brá heldur betur í
brún fyrir skömmu þegar þeir
fengu reikning frá fjarskiptadeild
Pósts & síma sem hefur verið
breytt í sjálfseignarstofnun.
FVrir formbreytingu á rekstri
stofnunarinnar þurftu kallamir að
greiða samtals 1500 krónur í gjald
vegna eftdriits við talstöðvar og í árs-
gjald vegna fjarskipta, en nú hljóð-
aði reikningurinn upp á 6.480 krón-
ur, sem er hækkun um rúm 330%.
Öm Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda,
segir að þetta sé nú einum og mikið
af því góða á sama tíma og aflaheim-
ildir hafa verið skertar og fiskverð
hefur lækkað. Hinsvegar er gjaldið
vegna tilkynningarskyldunnar
óbreytt, eða 1140 krónur.
Landssambandið hefur farið fram á
að haldinn verði fundur í Siglinga-
málaráði um þessa hækkun og verð-
ur sá fundur haldinn í næstu viku.
Öm segir að þessari hækkun verði
að sjálfsögðu mótmælt harðlega.
Hann segir að þær skýringar sem
sambandið hefur fengið vegna þess-
ara gríðarlegu verðhækkana, séu
þær að fjarskiptaeftirlitið sé ekki
lengur deild innan Pósts & síma,
heldur sjálfstæð stofnun sem þurfi
að standa undir sér. Gott ef hún sé
ekki líka sjálfseignarstofnun með
háeffi, en í eigu ríkisins.
-grh
ASÍ, BSRB og KÍ sendu forsætisráðherra bréf
um húsaleigubætur:
Raðast orlog
“ "" ' w ....
Staða Jóhönnu Sigurðardóttur
félagsmáJaráðherra skýrðist ekki
á ríkisstjómarfundi í gær. Áfund-
inum ítrekaði Jóhanna fyrri af-
stöðu um fyrirvara við einstaka
liði fjárlaga og að hún sætti sig
ekki við samþykkt ríkisstjórnar-
innar um húsaleigubætur.
Þingflokkur Alþýðuflokksins
kemur saman til fúndar í dag til
að fjalla um stöðu Jóhönnu. Búist
er við að á fundinum skýrist
hvemig flokkurinn ætli að bregð-
ast við í málinu. Finnist ekki
sáttaleið er allt eíns búist við að
Jóhanna hætti sem ráðherra.
Forystumenn ASf, BSRB og
Kennarasambandsins sendu for-
sætisráðherra bréf f gær þar sem
minnt er á ioforð ríkisstjómar-
irrnar við gerð kjarasamninga
1992 um að taka sérstakiega á
vanda leigjenda. Samtökin ieggja
áherslu á í bréfmu að frumvarp til
laga um húsaleigubætur verði
lagt fram á þingi strax í haust og
að fjármagni, til að standa straum
af bótimum, verði aflað án þess að
skerða fjármagn sem ætlað er til
félagsiega húsnæðiskerfisins. í
bréfinu er þvt lýstum eindregn-
um stuðningi við sjónarmið Jó-
hönnu f málinu.
-EÓ
gær var unnlð hörðum höndum við uppsetnlngu sjávarútvegssýningarlnnar og m.a. sýnlr Jósafat Hinriksson
hluta af sjóminjasafni sínu í Höllinni auk sinna heimsfrægu toghlera. Tímamynd Ámi Bjama
Kínverjar fengu ekki leyfi þarlendra stjórnvalda til að koma á sjávarút-
vegssýninguna í Laugardal:
Hátt í 500 fyrir-
tæki frá 24 löndum
Hátt í 500 fyrirtæki frá um 24
löndum taka þátt í sjávarútvegssýn-
ingunni sem hefst í Laugardalshöll
á morgun, miðvikudaginn 15. sept-
ember. Þar af sýna um 60 íslensk
fyrirtæki sma framleiðslu auk svip-
aðs fjölda af íslenskum innflutn-
ings- og þjónustufyrirtækjum.
Mikill áhugi er fyrir sjávarútvegs-
sýningunni nú sem endranær og
m.a. munu hótel á höfuðborgar-
svæðinu vera fullbókuð. Á blaða-
mannafundi í gær kom t.d. fram að
kínverskir aðilar höfðu hug á að
koma hingað til lands á sýninguna
en fengu ekki leyfi til þess frá þar-
lendum stjómvöldum. Ekki er vitað
um aðra erlenda hópa sem átt hafa í
erfíðleikum með að útvega sér farar-
leyfi til íslands.
Þetta er í fjórða sinn sem fyrirtæk-
ið Reed Exhibition Companies
skipuleggur alþjóðlega sjávarút-
vegssýningu hérlendis. Eins og á
fyrri sýningum kappkosta framleið-
endur og aðrir sem í sjávarútvegi
em að sýna það nýjasta og besta sem
þeir hafa fram að færa.
Það er ekki að ófyrirsynju að þetta
er í fjórða sinn sem sýning sem þessi
er haldin hérlendis, enda er íslensk-
ur sjávarútvegur í fremstu röð í
heiminum og einatt fljótur að til-
einka sér nýjungar í atvinnugrein-
inni.
Að þessu sinni styrkir Iðnlánasjóð-
ur ekki sýningarhald íslenskra fyrir-
tækja og af þeim sökum taka þau
minna pláss en oft áður en nýta það
kannski mun betur.
-grh
Batinn í atvinnuástandi frá því í vor u.þ.b. að ná hámarki að mati Vinnumálaskrifstofunnar:
ATVINNUÁSTAND GÆTI NÚ
AFTUR FARIÐ AÐ VERSNA
í ágústlok voru 4.640 manns á atvinnuleysisskrám í landinu (tæp-
lega 2.000 kárlar og um 2.670 konur). Kariar án vinnu voru þá um
140 fleiri en í júlílok en atvinnulausum konum hafði fækkað um 70
milli mánaða. Þessar tölur eru veik vísbending um að atvinnuleysi
fari nú aftur vaxandi miðað við að atvinnulausum hafi samfellt ver-
ið að fækka frá því í mars, þegar atvinnuleysi var mest, segir
Vinnumálaskrifstofa félagsmálaráöuneytisins.
Megi einkum búast við því að at- sveitarfélaga og opinberum framlög-
vinnulausum körlum fjölgi um land
allt og atvinnulausum konum á
landsbyggðinni. Hins vegar er búist
við að konum án vinnu geti fækkað á
SV-hominu í næsta mánuði.
Þróunin á næstunni er talin ráðast
mjög af því hvert framhald verður á
afleysingastörfum, átaksverkefnum
um til atvinnuskapandi verkefna og
síðast en ekki síst aflabrögðum í sept-
ember.
Skráð atvinnuleysi í ágúst svaraði til
þess að rúmlega 4.300 manns hafi
verið án vinnu að meðaltali allan
mánuðinn, þar af 1.750 karlar og um
2.560 konur. Þetta jafngildir 3,2% af
áætluðum mannafla, sem er sama
hlutfall og í júlí. Hlutfall atvinnu-
Iausra var 2,2% meðal karla en 4,6%
meðal kvenna (þ.e. ein af hverjum 22
konum).
Atvinnuleysi er mest á Nl. eystra
(4,1%) og næst mest á höfuðborgar-
svæðinu (3,6%). Fæsta vantar hins
vegar vinnu á Vestfjörðum (1,6%) en
þar voru atvinnulausir eigi að síður
240% fleiri en í sama mánuði í fyrra.
Helmingur allra atvinnulausra Vest-
firðinga er í Bolungarvík (44). Næst-
fæsta vantaði vinnu á Nl. vestra og
Suðumesjum (1,9%).
Töluverð breyting hefur orðið á at-
Mannréttindasáttmálinn lögtekinn
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra mun leggja til við Alþingi í
haust að mannríttindasáttmáli Sam-
einuðu þjóðanna verði lögfestur á Al-
þingi. Þetta styridr lagalega stöðu
sáttmálans hér á iandi.
ísland er aðili að mannréttindasátt-
málanum og er að þjóðarrétti skuld-
bundið til þess að fara eftir ákvæðum
hans. Dómsmálaráðherra skipaði
nefnd til að skoða þessi mál og hún
komst að þeirri niðurstöðu að það
væri rétt að styrkja lagalega stöðu
sáttmálans hér heima fyrir með því að
lögleiða sáttmálann. Þetta hafa sumar
þjóðir gert, eins og til að mynda Dan-
ir. Fallist Alþingi á tillögu dómsmála-
ráðherra verður mannréttindasátt-
málinn íslensk lög og þar af leiðandi
geta íslenskir dómstólar dæmt með
vísun í sáttmálann. -EÓ
vinnuástandi á einstökum stöðum
þótt atvinnuleysistölur hafi fremur
lítið breyst á Iandinu í heild. Atvinnu-
ástand versnaði verulega á Austur-
landi, eða um 44% milli júlí og ágúst.
Á Eskifirði meira en þrefaldaðist
fjöldi atvinnulausra. Mikil fjölgun
varð einnig á Egilsstöðum, Höfn og
Seyðisfirði, þar sem mörg störf duttu
út þegar Norröna hætti siglingum.
Á Suðurlandi fjölgaði atvinnulaus-
um stórum á Stokkseyri (í 36 manns,
sem samsvarar líklega 13- 14% at-
vinnuleysi) og á Eyrarbakka. Á Húsa-
vík fjölgaði vinnulausum kringum
50% milli mánaða og enn fjölgaði at-
vinnulausum á Akureyri, f rúmlega
390 manns í ágústmánuði. En segja
má að Akureyringar eigi sér þjáninga-
bræður í Hafnarfirði, þar sem rúm-
lega 420 eru án vinnu í litlu stærri
bæ.
Aftur á móti fækkaði atvinnulausum
um fjórðung á Akranesi milli júlí og
ágúst (í 110). Svipað er að segja um
Bolungarvík þótt margir séu þar enn-
þá án vinnu. - HEI
Nýtt skipulag mennta-
málaráöuneytis:
Skipulagiö
kostaði
5 millj. kr.
Undirbúningur að skipulagsbreyt-
ingum í menntamálaráðuneytinu
kostaði að minnsta kosti 5 millj.
kr.
Ólafur G. Einarsson mennta-
málaráðherra segir þessa upphæð
ekki fjarri lagi. I lok síðasta mán-
aðar var auglýst sú breyting að í
stað ýmissa deilda ráðuneytisins
kæmu þrjár skrifstofur sem hver
um sig skiptast í aftnörkuð svið.
Breytingamar miða einkum að því
að skilja ákveðnar en verið hefur, á
milli skóla- og menningarmála.
Þar trjónir efst skrifstofa ráðherra
sem skiptist í fjármálasvið, al-
mennt svið og alþjóðlegt svið.
Næst ber að nefha Skrifstofu
menntamála og vfsinda sem tekUr
yfir öll skólamál frá leikskóla upp í
háskóla. í þriðja lagi er svo nefrid
til sögunnar Skrifstofa menning-
armála þar sem m.a. er fjallað um
málefni RÚV, söfn o.fl.
Ólafur segir að hafisf hafi verið
handa við að undirbúa þessar
breytingar haustið 1991 og hafi
tvær ráðgjafaskrifstofur komið að
því verki. Hann segír að rekstrar-
skrifstofan Rekstur og ráðgjöf
hafi komið mest að þessu verki
en inni í greiðslum til hennar sé
einnig kostnaður við úttekt á
Námsgagnastofnun o.fl. -HÞ