Tíminn - 04.11.1993, Síða 9
Fimmtudagur 4. nóvember 1993
Tíminn 9
Ketill Larsen sýnir aö Fríkirkjuvegi 11
Dagana 6.-7. nóvember n.k. heldur Ketill Larsen málverkasýningu að Fríkirkjuvegi 11.
Sýninguna nefnir hann „Birta frá öðrum heimi" og er þetta tuttugasta sýning hans.
Á sýningunni eru um 90 myndir, flestar nýjar af nálinni. Þetta eru olíu- og acrylmynd-
ir.
Ketill málar aðallega blóma- og landslagsmyndir, en einnig ber fyrir augu myndir sem
lýsa hugmyndum Ketils um annan heim, Ld. fljúgandi skip.
Á sýningunni verður leikin tónlist eftir Ketil af segulbandi.
Sýningin verður opin báða dagana frá kl. 14 til 22.
Félag eldri borgara
í Reykjavik og nágrenni
Bridskeppni kl. 13 f austursal f Risinu.
Opið hús kl. 13-17 í Risinu.
Bergur Thorberg sýnir
í Portinu, Hafnarfiröi
Bergur Thorberg opnar sína fyrstu
einkasýningu í Portinu í Hafnarfirði nk.
laugardag 6. okt kl. 15.
Á sýningunni.eru verk frá 1989-1993,
öll unnin með olíu- og akrýllitum á
striga.
Sýningin verður opin daglega frá kl 14-
18 nema þriðjudaga, en þá er Iokað. Sýn-
ingu Bergs Thorberg lýkur mánudaginn
22. nóvember.
Fyririestur í Norræna húsinu:
Björgun danskra Gyöinga 1943
Therkel Stræde sagnfræðingur frá Dan-
mörku heldur fyrirlestur í fundarsal
Norræna hússins laugardaginn 6. nóv.
kl. 16 í tengslum við sýningu sem verður
í anddyri Norræna hússins og opnuð
verður sama dag.
Fyrirlesturinn nefhisfc Danmörk í októ-
ber 1943—björgun Gyðinga frá útrým-
ingu. Þar er fjallað um atburði sem áttu
sér stað fyrir 50 árum, er þaulskipulagð-
ar og kerfisbundnar Gyðingaveiðar hóf-
ust f Danmörku. Að þeim stóðu þýskar
lögreglusveitir og Gestapó og marlonið-
ið var að flytja alla Gyðinga nauðungar-
flutningi frá Danmörku þangað sem
styttra yrði að sækja þá þegar röðin
kæmi að þeim í gasið og ofnana.
Fýrirlesarinn, Therkel Stræde, er fædd-
ur 1953 í Danmörku. Hann lauk cand.
mag. prófi í sagnfræði frá Kaupmanna-
hafnarháskóla og háskólanum í Hróars-
keldu. Hann hefur stundað rannsóknir í
nútímasögu og skrifað um síðari heims-
styrjöldina í Danmörku, Þýskalandi og í
Evrópu og fjallað einkum um nasismann
og helför Gyðinga. Therkel Stræde hefur
unnið sagnfræðilegt efni fyrir kvikmynd-
ir og útvarp, og einnig hefur hann sett
saman sýningar, m.a. minningarsýningu
í Bergen-Belsen. Þá hefur hann tekið
viðtöl við fólk búsett í ísrael, sem slapp
lifandi frá útrýmingarbúðum nasista.
Nú vinnur hann að rannsóknum við
Ruhrháskólann í Bochum í Þýskalandi
varðandi þátt Volkswagenverksmiðjanna
við að nota fólk í nauðungarvinnu á
stríðsárunum.
FJÖLBRAUTASKÓLINN VIÐ ÁRMÚLA
ÁRMÚLA12-108 REYKJAVlK - SlMI 814022
Frá Fjölbrautaskólanum viö Ármúla
Innritun
Innritun á vorönn 1994 lýkur föstudaginn 12. nóvember.
Umsóknum ber að skila á skrifstofu skólans ásamt afrit-
um af prófskírteinum. Skrifstofan er opin kl. 8.00-15.00,
s. 814022.
Framhaldsnám sjúkraliða
Umsóknarfrestur um framhaldsnám í öldrunarhjúkrun
rennur út föstudaginn 5. nóvember.
Skólameistari
AUGLÝSINGAFAX TÍMANS
Brúöhjónin ásamt foreldrum sínum, De Kierk-hjónin til vinstri og Mostert-hjónin til hægri. Ekki fer á milli mála hvaö
telst viöeigandi klæðnaöur mæöra brúöhjóna í Suöur-Afrtku þessa dagana, þvf að auk þess, sem sjá má á mynd-
inni, eru tengdamömmurnar báöar f eins litum ktæönaöi, apríkósugulum.
Loksins brúðkaup Willems de Klerk:
BRÚÐHJÓNIN
JAFNHVlT!
Willem de Klerk, sonur F.W. de
Klerk, forseta Suður-Afríku, og
konu hans til 34 ára, Marike, hef-
ur til þessa orðið að þjást fyrir at-
hygli heimspressunnar tvisvar,
þegar hann tilkynnti trúlofun sína
og þeldökkrar stúlku frá heima-
landi sínu og þegar upp úr þeirri
trúlofun slitnaði. Sagt var að
móðir hans hefði tekið mjög
þunglega í þann ráðahag og það
er ekki bara í Suður-Afríku, þar
sem kynþáttaaðskilnaður hefur
verið lögboðinn, sem foreldrum
bregður illa við ef börn þeirra
velja að giftast öðru vísi lituðu
fólki en þeir eru sjálfir, heldur
gildir þetta um allan heim. Og
þessi afstaða á síður en svo ein-
göngu við um hvíta.
Trúlega hefur brúnin lést á Mar-
ike de Klerk í upphafi ársins, þeg-
ar Willem sonur hennar opinber-
aði trúlofun sína og Hermien
Mostert. Hún er hvít, ljóshærð
kennslukona og þrem árum yngri
en Willem, sem er 26 ára og yfir-
maður í almannatengslafyrirtæki.
Brúðkaupið var svo haldið fyrir
skemmstu í 300 ára gamalli
kirkju í Höfðaborg. Athöfnin var
hefðbundin skv. siðum hollensku
siðbótarkirkjunnar.
Willem de Klerk fann Ijóshæröu
unnustuna sfna Hermien og von-
andi fá þau aö þróa framtíö sína
án þess aö vera undir smásjá fjöl-
miöla sl og æ.
12 ára skólastrákur lenti í óvenjulegum kringumstæðum:
Tók á móti barni grannkonu
Ekki hefur hann Mark Ryder, 12 ára
skólastrák í Cleveland í Bandaríkjun-
um, grunað hvað ætti fyrir honum
að liggja þann daginn þegar honum
og móður hans, Joan, bárust skila-
boð frá grannkonunni Audrey Bad-
ger.
Audrey átti von á sér og nú voru
fæðingarhríðimar byrjaðar. Neyðar-
ástand var í uppsiglingu. Mark og
móðir hans flýttu sér á staðinn og þá
var fætt bam! Móðir Marks hraðaði
sér að reyna að ná í sjúkrabfl og rétt
á meðan fæddist annað bam!
Mark brá sér í hlutverk ljósmóður
og tók á móti sfðari tvíburanum án
þess að fatast hið minnsta og sem sjá
má á myndinni heilsast móður og
bömum vel, svo og „ljósunni" Mark. Það má varla á milli sjá hvort er stoltara, móöirin eöa strákurinn Mark Ryder.