Tíminn - 04.11.1993, Síða 12
Áskriftarsími Tímans er 618300 HÝTT OG FERSKT DAGLEGA
reiðholtsbakarí VÖLVUFELL113 - SlMI 73655
1 (M 1 1 1
PÓSTFAX TÍMANS
Ritstjóm:
61-83-03
Auglýsingar:
61-83-21
Tíminn
FIMMTUDAGUR 4. NÓV. 1993
Sjávarútvegsráðherra á Fiskiþingi
Fiskeldi er
skynsamleg
ur kostur
„Helstu fiskveiðiþjóðir og sam-
keppnisaðilar okkar leggja í sí-
vaxandi mæli áherslu á fiskeldi.
Miklar framfarir hafa orðið í því
og tilkostnaður hefur minnkað.
Við íslendingar verðum að gera
slíkt hið sama,“ sagði Þorsteinn
Pálsson sjávarútvegsráðherra
við setningu Fiskiþings í gær.
Hann sagði ljóst að það þyrfti að
fjölga atvinnutækifærum hér á landi
á næstu árum og hefðbundinn sjáv-
arútvegur væri ekki í stakk búinn til
að taka við þeirri viðbót. Hann sagði
ennfremur að þekking á vinnslu og
markaðssetningu sjávarafurða væru
meðal þeirra homsteina sem gætu
nýst til fullnustu við eldi sjávardýra.
En gert er ráð fyrir að eftir 17 ár
verði heildarframleiðsla í fiskeldi
komin í 37 milljónir tonna eða svip-
að því sem fiskveiðar gefa af sér til
manneldis árið 2025.
„Nýjunga er þörf og af þessum
ástæðum er eldi sjávardýra skynsam-
legur kostur. Því væri nú rétt að
meta stöðu fiskveiða og samkeppnis-
stöðu þeirra gagnvart fiskeldi, ásamt
gerð áætlana um það hvernig íslend-
ingar geti byggt upp eldi hér á landi á
næstu árum.“
Sjávarútvegsráðherra var ekki sá
eini sem lagði áherslu á þýðingu fisk-
eldis fyrir nýsköpun við upphaf Fiski-
þings í gær.
Pétur Bjamason, framkvæmdastjóri
Félags rækju- og hörpudiskframleið-
í máli Péturs kom m.a. fram að um-
ræðan um fiskeldi tæki of mikið mið
af laxeldisævintýrinu, sem hefði skil-
ið eftir sig djúp sár. Afleiðingar þess
væru t.d. þær að bankar og fjárfest-
ingarsjóðir væm lokaðir og stjóm-
málamenn kepptust hver um annan
þveran við að hallmæla fiskeldinu.
„Þetta er orðinn einn mest notaði
frasi í íslenskri stjómmálaumræðu
að benda á fiskeldi og loðdýrarækt
sem víti sem ber að varast. Og þessu
er svo varið á meðan við emm að
gera mestu fiskeldismistök íslands-
sögunnar með víðtæku aðgerða-
leysi,“ sagði Pétur Bjamason. Á
þessu væri þó ein undantekning, sem
væri vel heppnað starf Fiskeldis Eyja-
fjarðar hf.
-GRH
enda, lagði einnig áherslu á fiskeldi
og vitnaði m.a. til ráðstefnu, sem
haldin var nýlega í Kaupmannahöfn
um botnfiska. Hann sagði að þar
hefðu menn verið sammála um það
að „tími uppskem án sáningar væri
liðinn". Þess í stað væri tími eldis og
ræktunar að taka við af veiðum.
Frá Fiskiþlngl f gær. Þóröur Ásgeirsson Fisklstofustjórl I ræöustóll. Rætt var á þinginu I gær um eldl sjávarfiska.
Tfmi uppskem án sáningar væri liðinn. Tímamyndir Ámi Bjama
ICE BJOR
FLUTTUR ÚT
TIL BRETLANDS
Víking bmgg er að hefja útflutning á nýrri bjórtegund, ICE
bjór, til Bretlands. Fyrsti gámurinn er þegar farinn af stað, en
viðræður standa yfir við markaðsfyrirtæki ytra um dreifingu á
bjómum í verslanir. Þetta er í fyrsta skipti sem útflutningur á
íslenskum bjór er reyndur fyrir alvöm.
Nýi bjórinn er þróaður í sam-
vinnu við breskt markaðsfyrir-
tæki. Þetta er alhliða bjór í léttari
kantinum eða 4,6%. Samhliða
markaðssetningu ICE bjórsins
erlendis hefur hann verið settur
á markað hér heima. Fyrirspum-
ir varðandi útflutning á bjór frá
Víking brugg hafa borist víðar að,
m.a. frá Svíþjóð og Japan. ICE
bjórinn verður í dýrari kantinum
í Bretlandi, en horft er til þess að
íslenska vatnið, sem notað er í
framleiðsluna, skapi henni
ákveðinn gæðastimpil.
Að sögn Hafsteins Lárussonar
hjá Víking brugg hf. verður nýi
bjórinn seldur í fjögurra flaskna
pakkningum. Kippan kostar hér
490 krónur. -ÁG
...ERLENDAR FRETTIR...
SARAJEVO — Þúsundir fólks flýöu úr
borginni Vares (Mið-Bosnlu i gær, en
króatiskar hersveitir yfirgáfu varö-
stöðvar slnar þegar bosniskur her
undir stjóm múslima nálgaöist. Starfs-
menn SÞ segja aö 15 þúsund króa-
tlskir þegnar hafi lagt á flótta þegar
múslimaherinn flæddi yfir nágranna-
byggöir borgarinnar og lagöi þær I
rúst IZAGREB hvatti Franjo Tu-
djman, forseti Króatlu, Izetbegovic Bo-
sniuforseta til aö stööva hersveitimar.
BRÚSSEL — Háttsettur embættis-
maöur hjá EB segir aö bandalagiö
veröi aö standa viö loforö sfn um aö
koma hjálpargögnum til Bosnlu og aö
koma á ömggum samgönguieiöum
fýrir flutningatæki sem þau flytja. Þá
þurfl aö verja bitalestimar og hersveit-
ir, sem þaö gera, veröi aö vera búnar
til bardaga.
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR — Joe
Sills, talsmaöur SÞ, segir aö uppreisn-
arhreyflngin UNITAI Angóla hafi sæst
á aö draga sveitir sínar til baka af
svæöum sem UNITA hefur haldið her-
numdum I ár, eða slöan bardagar hóf-
usL Hann segir aö Angólastjóm muni
fljótlega sættast á vopnahlé og aö friö-
arviöræöur veröi hafnar á ný fljótlega I
Lusaka i Sambiu.
WASHINGTON — Clinton Bandarikja-
forseti segir að sigrar repúblikana (
þrennum rfkjakosningum snerti ekkert
störf sin sem forseta. Andstæöingar
hans segja aö úrslitin séu einmitt
merki um þaö og aö þau séu merki
um þaö sem koma skal. Repúblikanar
fengu kjöma rikisstjóra ( New Jersey
og Virginiu og borgarstjóra I New
York.
BRAZZAVILLE, Kongó — Minnst tiu
manns létu Iffiö I átökum milli öryggis-
sveita Kongóstjómar og vopnaöra
stjómarandstæöinga.
RÓM — Italir kvöddu kvikmyndaleik-
stjórann Federico Fellini hinstu kveðju
(gær.
JERÚSALEM — Hægrimaöurinn
Ehud Olmert olli óróa í borginni og
ótta um aö spenna milli Gyöinga og
Araba ykist, þegar hann kraföist þess
aö Gyðingar fengju aö taka sér ból-
festu hvar sem væri I borginni helgu.
MALIBU, Kaliforníu — Miklir skógar-
eldar geisuöu i S-Kalifomiu annan
daginn I röö og hröktu kvikmynda-
stjömur úr húsum slnum, lögðu heilu
hverfin I auön og gjöreyöilögöu meir
en 200 ibúöarhús.
MOGADISHU, Sómaliu — Robert
Oakley, sendimaöur Bandaríkjastjóm-
ar, hvatti striöandi sveitir Sómala til
þess aö nota tækifærið til aö koma
hlutunum i lag heima fyrir. Leynilegar
friöarviöræöur enj sagöar hafa átt sér
staö milli öldunga hinna striöandi
hópa.
MOSKVA — Bóris Jeltsin vinnur
sleitulaust aö þvl að hrinda áætlunum
sinum um nýja stjómarskrá i fram-
kvæmd. Hann lenti ( mótvindi i gær,
þegar dreifbýtisfulltrúar guggnuöu á
að samþykkja drög hans undir eins.
BELFAST — Bretar og Irar fordæmdu
atburöi undanfarinnar viku á N-lriandi
og sögöu hana verstu ofbeldisviku I
17 ár. Koma yröi á ný i gang viöræö-
um um pólitlska lausn deilumála (
landinu.
HANOI — Minnst 39 Vietnamar fórust
og 60 særöust i bruna sem varö i
bænum Uong Bi I Quang Ninh héraöi
um 100 km austur af Hanoi.
KUWAIT — Óbreyttur borgari skaut á
og særöi þrjá Iraska lögreglumenn,
sem stigu yfir landamæri ríkjanna I
þeim tilgangi aö reyna aö taka hönd-
um landamæraveröi Kuwait.
ZÚRICH — Ónafngreind kona borg-
aði á uppboöi i gær fimm milljónir
svissneskra franka fyrir umslag með
tveimur frimerkjum, sem sent var vin-
kaupmanni nokkmrn i Bordeaux frá
Mauritius áriö 1847. Ónotuð sams-
konar frímerki og em á umslaginu
höföu áöur veriö seld á tæpar tvær
milljónir franka.
DENNI DÆMALAUSI
Vonandi að þau læri eitthvað afræðunni hjá þér.