Tíminn - 12.11.1993, Page 1

Tíminn - 12.11.1993, Page 1
B-LEIÐIN SVIÐSETT TIL AÐ RUGLA ASÍ í RÍMINU -sjá síðu 9 ÞREFALDUR MUNURÁ DAGVINNULAUN- UM INNAN ASÍ -sjá síðu 7 HUGARFÓSTUR JÓNS BALDVINS -sjá síðu 7 HAFRÉTTAR- SÁTTMÁLINN ÞARF AÐ TAKA GILDI -sjá síðu 6 ENGIN HEILDAR- STEFNA VARÐANDI ÆÐRI MENNTUN -sjá síðu 6 SORPINU SÓAÐ ENDURVINNSLA SORPS HAGKVÆM -sjá síðu 8 SALMAN RUSHDIE KOMINN ÚR FELUM -sjá síðu 10 ÍSLANDI SKIPT UPP í FYLKI -sjá baksíðu ÍSLENSKUR STÓRSIGUR Á BÚLGÖRUM -sjá síðu 12 ÓSKIMAÐUR BLÓÐVÖKVI -sjá síðu 10 SÍÐASTA HÁRIÐ í HEIMI -sjá síðu 27 Síðasta lota SÍS Frá stjórnarfundi Sambandsins í gær. Tímamynd Árni Bjarna Stjórn Sambands íslenskra sam- vinnufélaga ætlar að láta kanna til hlítar möguleika á nauðasamning- um við lánadrottna fyrirtækisins. Takist nauðasamningar ekki, blasir gjaldþrot við. Skuldir og lífeyris- skuldbindingar umfram eignir nema tæplega 350 milljónum króna. Þar af eru 220 milljónir vegna lífeyrisskuldbindinga. Þetta kom fram á fundi stjómar Sambandsins í gær. Sigurði Mark- ússyni stjórnarformanni og Þor- steini Sveinssyni, varaformanni stjómar, var falið að vinna að því að ná nauðasamningum. Að sögn Sigurðar Markússonar settu menn sér ekki tímamörk til þess að ljúka verkinu, en búist er við að niður- staða liggi fyrir innan fárra vikna. Sambandið hefur ekki tekjur að því marki að þær hafi áhrif að ráði til lækkunar skuldastöðu fyrirtæk- isins. Heildarskuldbindingar Sam- bandsins vegna eftirlaunakrafna 20 núverandi og fyrrverandi ráða- manna Sambandsins, eru 220 milljónir króna. Sigurður segist ekki treysta sér til að segja til um hvemig samið verði við eftirlauna- kröfuhafana. Á stjórnarfundinum var lagður fram efnahagsreikningur Sam- bandsins eins og hann lítur út í lok síðasta mánaðar. Þar kemur fram að efnahagsstaða Sambands fs- lenskra samvinnufélaga hefur ger- breyst til hins verra frá árslokum 1992 til loka október 1993 og rýrnað um hundruð milljóna króna. Júnímánuður á þessu ári reyndist afdrifaríkur fyrir Samband ís- lenskra samvinnufélaga. Gjaldþrot tveggja sambandsfyrirtækja og dómur í málaferlum gegn því þriðja, breyttu niðurstöðu efna- hagsreiknings Sambandsins úr plús í mínus. Bú íslensks skinnaiðnaðar hf. á Akureyri var tekið til gjaldþrota- skipta 11. júní. Sambandið átti 90% í fyrirtækinu. í ársreikningi Sambandsins 1992 var hlutaféð bókað á 122 milljónir króna. ís- lenskur skinnaiðnaður skuldaði Sambandinu 4 milljónir á við- skiptareikningi. Þá má ætla að kröfuhafar í bú íslensks skinnaiðn- aðar, geri 76 milljóna króna kröfu á Sambandið vegna veðkrafna sem ekki verður fullnægt með fast- eignaveðum. Um miðjan júní var bú Mikla- garðs hf. tekið til gjaldþrotaskipta. Sambandið átti 89% hlutafjár í Miklagarði og hafði lagt hundruð milljóna í fyrirtækið sem búið var að afskrifa fyrir gjaldþrotið. Þegar Mikligarður fór í þrot, skuldaði hann Sambandinu 40 milljónir króna á viðskiptareikningi. Að auki hafa handhafar krafna með sjálfskuldarábyrgð Sambandsins krafið það um 24 milljónir vegna Miklagarðs. Dómur í riftunarmáli þrotabús KRON féll í lok júní og var Sam- bandið dæmt til að endurgreiða þrotabúinu 35 milljónir króna. Sambandið hefur áfrýjað til Hæstaréttar. Eiginfjárstaða, sem var jákvæð í árslok 1992 um 159 milljónir króna, snerist yfir í 129 milljóna króna neikvæða eiginfjárstöðu (skuldir og áfallnar ábyrgðir eru 343 milljónir króna og eignir á móti 214 milljónir). Þá eru ótaldar lífeyrisskuldbindingar, en að mati endurskoðenda koma 220 milljón- ir króna í hlut Sambandsins. Skuldir og lífeyrisskuldbindingar nema þannig samtals 349 milljón- um króna umfram eignir. -ÁG Hýrudregnir um 800 milljónir Helgi Laxdal segir kvótakaup sjómanna hafa lækkað heildartekjur þeirra um 4% Helgi Laxdal, formaður Vél- stjórafélags íslands, segir að það megi færa sterk rök fyrir því að 800 milljónir króna hafi verið fluttar frá sjómönnum til útgerða vegna kaupa á þorskveiðiheim- ildum á síðasta fiskveiðiári. Það nemur um 4% af heildartekjum sjómanna og svarar til þess að skiptahlutfall hafi verið lækkað úr 75% í 72%. Þetta kom m.a. fram við upphaf Vélstjóraþings sem hófst í gær á Hótel Loftleiðum. í ræðu sinni gagnrýndi Helgi harðlega kvóta- kaup sjómanna og þátt útgerðar- manna í því máli, þrátt fyrir skýr höfnunarákvæði í kjarasamning- um og lögum. Hann sagði einnig að þótt gallar væru á kvótakerf- inu, væri það tvímælalaust skás- ta stjómkerfið og fáum jafn mik- ilvægt og útgerðarmönnum. Það væri því óskiljanlegt að þeir skyldu stefna því í hættu með jafn skammsýnnri framkomu og raun ber vitni. Helgi sagði að á síðasta fisk- veiðiári hefðu verið flutt um 64 þúsund tonn af þorskkvóta frá einu skipi til annars í eigu óskyldra útgerða að andvirði um 2,3 milljarða króna, miðað við 35 króna kílóverð. Hann sagði þó að þessi tala væri kannski í hærri kantinum, þar sem ein- hver kvóti væri tvífluttur en á móti kemur að meðalverð á þorski sé að öllum líkindum hærra en 35 krónur hvert kíló. Það hjákátlega við þessar milli- færslur að hans mati, er að sömu skip í eigu óskyldra útgerða sem keyptu 48 þúsund tonn af þorsk- kvóta, seldu jafnframt frá sér um 11 þúsund tonna þorskkvóta. Helgi sagði ennfremur að á síð- asta fiskveiðiári hefði Qutningur Helgj Laxdal, formaður Vélstjórafé- lags Islands, á þingi félagsins í gær. Tímamynd Árni Bjarna kvóta á milli skipa numið um 211 þúsundum þorskígildistonna af botnfiski, eða um 40% af heildarúthlutuninni. Af þorski voru flutt um 105 þúsund tonn eða um 45% af heildarveiðinni. -GRH f BÆKUR f BAKSVIÐ Kjónvarp W ÚTVARP f SÍÐA 29 W b‘6 f ÍÞRÓTTIR |ý SIÐA 4 V SIÐA 20-21 f SIÐA31 f SIÐA 12-13

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.