Tíminn - 12.11.1993, Qupperneq 2
2
LEIÐARI
Föstudagur 12. nóvember 1993
Leiðarvísir um nýjan Tíma
Tíminn íklæðist nýjum
buningi og fær léttara yfir-
bragð. Við hönnun nýs út-
lits fyrir blaðið hefur verið fylgt
ákveðinni stefnu um að efni þess
eigi að vera aðgengilegt lesend-
um og efnisflokkar afmarkaðir,
svo að hver og einn finni lesefni
við sitt hæfi án óþarfa fyrirhafn-
ar.
Uppsetning blaðsins tekur mið
af venju í útgáfu dagblaðs víða
erlendis. Á forsíðu má finna
upplýsingar um efni blaðsins og
helstu fréttir, en leiðara- og
skoðanaskrif o.fl. eru á næstu
síðum þar á eftir.
Tíminn tekur að sjálfsögðu af-
stöðu til ýmissa pólitískra úr-
lausnarefna og þjóðmála. Hann
leitast við að standa vörð um
mannréttmdi, lýðræði og jöfnuð.
En hann er ekki málgagn neins
stjórnmálaflokks. Pað hefur
komið fram margoft áður og
menn, sem fylgst hafa með blað-
inu upp á síðkastið, geta borið
vitni um það.
Tími flokksblaða er liðinn.
Raunar fór að fjara undan þeim
upp úr fyrri heimsstyrjöld; þó
síðar hér á landi. Fréttamiðill,
sem vill standa undir nafni og
vera trúverðugur, verður að vera
óháður stjómmálaflokkum.
Þó að Framsóknarflokkurinn
auglýsi flokksstarf sitt í Tímanum
samkvæmt samningi um afnot á
nafni blaðsins, er öðrum stjóm-
málaflokkum á Alþingi heitið
því, vilji þeir koma hliðstæðum
upplýsingum frá sér í blaðinu, að
þeir fái að sitja við sama borð
varðandi þessi efni. Engum ein-
um flokki verði sérstaklega hygl-
að. Því verður hinsvegar ekki
neitað, að afnotasamningurinn
hefur verið fyrirtækinu fjötur
um fót.
Á eftir skoðanahluta blaðsins
kemur að menningu - í víðum
skilningi þess orðs. Menningar-
málum ýmis konar er þannig
gert hærra undir höfði í Tíman-
um en verið hefur um skeið,
bæði umfjöllun og listgagnrýni,
en aðsendum greinum hefur svo
verið markaður næsti bás.
Næst kemur að fréttum af inn-
lendum vettvangi. Við á Tíman-
um settum okkur það markmið
að reka sjálfstætt, heiðarlegt og
gagnrýnið fréttablað til þess m.a.
að rækja aðhaldsskyldu okkar
stéttar við stjórnvöld og veita
lesendum glöggar og greinagóðar
upplýsingar um málefni, sem eru
efst á baugi hveiju sinni.
Fréttir af erlendum viðburðum
hafa lengi verið á hrakhólum í
Tímanum, en þær hafa fengið
aukið rými í blaðinu,-þótt »er-
lend fréttadeild' sé lítil.
íþróttafréttum hefur sömuleiðis
verið veitt aukið rými, sem var
ekki vanþörf á, og á þriðjudög-
um kemur út sérstakt fylgiblað
með Tímanum með helstu við-
burðum íþrótta frá helginni.
Eins og í öllum alhliða fjölmiðl-
um er svo að finna ýmsar al-
mennar upplýsingar, svo sem
um sýningar leik- og kvik-
myndahúsa og dagskrá sjón-
varps- og útvarps o.m.fi. Föstum
liðum í blaðinu í mörg ár hefur
allflestum verið haldið, til dæmis
Denna dæmalausa, sem fylgt
hefur Tímanum í næstum fjóra
áratugi. Garri leggur aftur á móti
upp laupana.
Þessara breytinga hefur verið
beðið lengi og með eftirvænt-
ingu. Þær eru afrakstur ná-
kvæmrar og vandvirkrar vinnu
margra, sem lagt hafa hönd á
plóginn til þess að koma mætti
út öflugt blað til mótvægis við
ægivald hægriaflanna í íslensk-
um fjölmiðlaheimi, til þess að
tryggja lýðræðislega umræðu í
landinu og sjá til þess að rödd
minnihlutans koðni ekki niður í
hávaða.
Til þess að hugmyndin um
„nýtt afl á blaðamarkaðnum'
verði að veruleika þarf að treysta
grunn þessa rekstrar betur, því
blaðið hefur búið við krappan
fjárhag um langa hrið. Nauðsyn
og mikilvægi blaðsins er augljós.
Það sannar sá breiði hópur, sem
lagt hefur fyrirtækinu lið með
hlutafjárframlögum í sumar og
góðum óskum.
Doktor Gylfi, góðan dag!
FÖSTUPAGSPISTILL
ÁSGEIR HANNES
Félag frjálslyndra jafnaðar-
manna hefur haslað sér völl í
Reykjavík sem helsti vettvangur
fyrir málfundalíf landsmanna.
Félagið heldur hvern fundinn
öðrum betri og vekja þeir jafnan
athygli og kveikja umræðu í
þjóðfélaginu. Á þriðjudagskvöld-
ið buðu frjálsir kratar dr. Gylfa Þ.
Gíslasyni, fyrrum ráðherra, á
Hótel Borg ög ræddi hann um
nýja bók sína um gömlu Við-
reisnarstjóm fhalds og krata.
Málflutningi doktor Gylfa hafa
verið gerð rækileg skil í fjölmiðl-
um og pistilhöfundur ætlar ekki
að bæta um betur. Vill þó ekki
láta hjá líða að velta upp einum
steini.
Tími Viðreisnar stóð frá 1959 til
1971 og verður lengi minnst sem
eins merkilegasta stjómarskeiðs
á íslandi. Pistilhöfimdur striplað-
ist þá á stuttum buxum í Heim-
dalli ungra sjálfstæðismanna og
skoppaði gjörð undir forystu
Styrmis Gunnarssonar, ritstjóra
Moggans. Smalaði vatnsgreiddur
fólki á kjörstað í verkalýðskosn-
ingum og kastaði tómötum í fót-
raka hernámsandstæðinga í
Keflavíkurgöngu. Þá geisaði Kalt
Stríð.
Pistilhöfundur hefur síðan lifað
í þeirri trú að blessaður Sjallinn
hans hafi verið leiðandi aflið í
starfi Viðreisnarstjórnar. Sú
bamatrú er nú fyrir bí og þökk
sé doktor Gylfa: Hann upplýsti
nefnilega á Hótel Borg að sjálf
efnahagspostilla Viðreisnar hafi
alls ekki verið frumsamið verk
við myndun stjómarinnar haust-
ið 1959, heldur þriggja ára göm-
ul stefnuskrá krata og Fram-
sóknar frá kosningunum 1956.
í þeim kosningum gerði Al-
þýðuflokkur einmitt frægt
bandalag við Framsókn og var
það kallað Hræðslubandalagið.
En það gekk ekki upp og Her-
mann Jónasson myndaði þá rík-
isstjóm með krötum og Alþýðu-
bandalagi. Þeim síðamefndu leist
ekki á hugmyndafræði Viðreisn-
ar, svo kratar frestuðu henni um
sinn og lögðu fram seinna með
Sjálfstæðisflokknum.
Sjálf Viðreisnin er því ekki
lengur óskabam íhalds og krata,
heldur lausaleikskrói maddömu
Framsóknar. Ekki einasta er hún
Snorrabúð orðin stekkur, heldur
er íhaldið okkar Iflca óþarft í Við-
reisnum. Sjallamir vom því ekki
bara sporgöngumenn krata í
gömlu Viðreisnarstjórninni,
heldur supu þeir líka úr hófspori
Framsóknarflokksins í tólf ár.
Og hugsið ykkur, lesendur góð-
ir, ef bandalag hræðslunnar
hefði gengið upp árið 1956 og
draumsýn Gylfa Þ. Gíslasonar
orðið að veruleika: Viðreisnin
séð dagsljósið þrem ámm fyrr og
án Sjálfstæðisflokksins. Maigt
væri þá með öðmm hætti í þjóð-
félaginu í dag. Fijálshyggjan væri
áfram bara föndur hjá frekar
hægfara skólakrökkum, en ekki
átrúnaður í núríkjandi stjórn.
Hjól og stegla á þjóðfélagið.
í alþingiskosningunum 1959
hjálpaði pistilhöfundur við að
hengja upp veggspjöld fyrir D-
listann til að vara alþýðu manna
við aðsteðjandi hættu. Á þeim
stóð meðal annars: SPORIN
HRÆÐA — Aldrei aftur VINSTRI
STJÓRN! Ekki óraði hann þá fyr-
ir að Sjálfstæðisflokkurinn hans
ætti eftir að feta í þau fótspor
næstu tólf árin og nú aftur, 35
ámm seinna, í önnur tvö.
t
Garri Tímans
er allur
Garri Tímans sem þolað hefur súrt og sætt með þjóð sinni og
verið henni refsivöndur og umvandari undanfarin ár, er nú
allur á síðum Tímans. Síðasta ritsmíð hans birtist í Tímanum í
gær og var hún óvenju mild og bb'ð og var eins og Garri væri
að reyna að sanna tilvemrétt sinn á nýjum nótum. Allt kom
þó fyrir ekki og hafa nú pistlar hans verið slegnir af.
Garri hefur alla tíð Ieitast eftir megni við að vera fúll og ön-
ugur, hæðinn, andstyggilegur, en helst aldrei fyndinn, eða
elskulegur. Hafi hann einhvemtímann verið það, þá var það
óviljandi. Sjálfur var hann oft viss um að honum hefði tekist
bærilega upp. Væri hann skammaður rækilega og allra helst af
enn meira offorsi en honum sjálfum hefði nokkm sinni hug-
kvæmst að beita, þá gladdist hann af hjarta.
Þannig gladdist hann mjög þegar þingkona Kvennalistans
sagði einhversstaðar í blaðaviðtali fyrir nokkrum árum, að
Garri og hans líkar væm vettvangur fyrir gamla, súra og nátt-
úmlausa kallaskratta til að opinbera sitt rétta eðli og vega að
mannorði manns og annars úr launsátri í skjóli nafnleysis.
Garri getur út af fyrir sig samsinnt þessu. Hann er vissulega
karlkyns að mestu en þorir ekki að kveða upp úr með eigið
náttúmleysi enda er hann nokkuð samsettur persónuleiki ef
svo má að orði kveða. En geðvonskan var honum í blóð borin.
Garri var sannur íslendingur og þrasaði helst um aukaatriði og
gerði þau að aðalatriði í rökræðum. Þannig er fyrirbærið Garri
hluti sjálfrar þjóðarsálarinnar og það getur enginn tekið frá
honum. Auðvitað var hann því helst alltaf fúll og leiður og
helst aldrei ánægður nema hann væri óánægður. Garri var
sannur íslendingur.
■“ TÍMINN 1 -------------------------------------
Ritstjóri: Þór Jónsson • ASsto&arritstjóri: Oddur Olafsson • Fréttastjóri: Stefón Ásgrímsson
Utgefandi: Mótvægi hf • Stjórnarformaður: Steingrímur Gunnarsson • Auglýsingastjóri Guðni Geir Einarsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Hverfisgötu 33, Reykjavík
Póstfang: Pósthólf 5210, 125 Reykjavík
Aðalsími: 618300 Póstfax: 618303
• Auglýsingasími: 618322, auglýsingafax: 618321
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans • Prentun: Oddi hf. • ÚHit: Auglýsingastofan Örkin •
Mánaðaráskrift 1400 kr. Verð i lausasölu 125 kr.