Tíminn - 12.11.1993, Síða 20
Norðurírska óöldin
„Herskáir" mótmælendur gerast „herskárri"
Mótmælendur fylgja Hl grafar þremur af þeim sem fórust við Shankill Road, foreldrum og bami.
BAKSVIÐ
Dagur Þorleifsson skrifar
ÖLDIN á Norður-írlandi,
sem staðið hefur yfir í naest-
um aldarfjórðung, hehir síðustu
vikumar færst í aukana á ný. í
nýbyijaðri illvirkjahviðu þar hafa
um 25 manns verið myrtir og
miklu fleiri særðir og limlestir.
Sprengjan sem sprakk ... ,í
Shankill sprengdi á brott allar
friðarvonir á Norður-írlandi,'
var skrifað í Sunday Times eftir
hryðjuverk það, sem hleypti yfir-
standandi illvirkjaöldu af stað.
Sprengja í fiskbúð
Semtexsprengja var það sem frski
lýðveldisherinn (IRA) svokallaði
kom fyrir í fiskbúð við Shankill
Road, sem er aðalgatan í þeim
hluta Belfast sem einkum er
byggður mótmælendum úr verka-
lýðsstétt. Laugardagur var og
óvenjumargt um manninn í búð-
inni og í nálægð við hana í inn-
kaupaerindum. Tíu manneskjur
fórust í sprengingunni, þar af fjór-
ar konur og tvær telpur, þrettán
og sjö ára, og tugir særðusL Meðal
þeirra, sem urðu sprengjunni að
bráð, voru IRA-menn þeir tveir
sem laumuðu henni inn í versl-
unina, dulbúnir sem vöruflutn-
ingamenn. Annar þeirra, 22 ára,
fórst, hinn, 19 ára, missti andlitið.
IRA hélt því fram að sprengjan
hefði verið ætluð ,herskáum'
mótmælendasamtökum með að-
stöðu í sömu byggingu og skæð-
um morðingja í þjónustu þeirra,
sem gengur undir auknefninu
Óði hundur (Mad Dog). Enn-
fremur, sagði ERA, hefði sprengj-
an af slysni sprungið fyrr en til
hefði staðið og því ekki gefist
tími til að senda út viðvörun,
eins og ERA hefur átt til að gera
við slík tækifæri.
Fréttamenn kunnugir í Belfast
eru helst á því að þetta sé fyrir-
sláttur einber af hálfu IRA. Enda
mun flest það fólk, sem sprengj-
an drap og slasaði, ekki hafa ver-
ið tengdara ,herskáum' mót-
mælendum en gengur og gerist
um mótmælendatrúaða Norður-
íra yfirleitt.
Piltunum, sem sendir voru með
sprengjuna, hafði verið sagt að
þeir hefðu nógan tíma til að
forða sér eftir að þeir hefðu stillt
hana. Ljóst er hinsvegar að
sprengjan var þannig gerð að
hún hlaut að springa aðeins fá-
einum sekúndum eftir að hún
hefði verið stillt. Yfirmenn ,af-
hendingarmannanna' litu svo á,
,að ekki væri mikill skaði skeður
þótt þeir færust. Þessvegna voru
þeir valdir í þetta', sagði kaþól-
ikki nokkur er þekkti þá.
„Sama hver
kaþólikkinn er"
Óði hundur var að vísu á staðn-
um, en slapp með skrámur. Hann
eða þeir félagar urðu fljótir til
svars í sömu mynt. Áður en varði
var búið að krota skammstöfun-
ina ATWD á veggi víða í Belfast.
Hún stendur fyrir Any Taig will
do (Sama hver kaþólikkinn er).
Ekki sat þar við orðin tóm. Tveir
sorphreinsunarmenn í Vestur-
Belfast, sem að mestu er kaþólsk,
voru skotnir til bana í tehléi.
Tveir vopnaðir menn snöruðust
inn á þorpskrá, þar sem kaþólikk-
ar sátu og héldu upp á hrekkja-
vöku (Halloween), og skutu sjö
manneskjur til bana. Og enn fleiri
kaþólikkar féllu dagana eftir
sprenginguna fyrir hryðjuverka-
mönnum af mótmælendatrú.
Fátt bendir til annars en að fólk
það, sem kaþólskir hryðjuverka-
menn myrtu við Shankill Road, og
það sem hryðjuverkamenn af mót-
mælendatrú hafa síðan myrt, hafi
verið drepið fyrir það eitt að það
var mótmælendur og kaþólikkar.
,Ættbálkastríð' (Tribal War-
fare) er fyrirsögn greinar í
Sundaý Times um illvirki þessi.
Sú skilgreining þessa breska
blaðs er ekki alveg út í hött.
Forfeður og formæður norður-
írskra mótmadenda vom flest Skot-
ar, sem Ðuttu til Ulster (þess nyrsta
af þeim landshlutum, sem írland
hefur skipst í frá fomu fari) á 17.
öld. Bresk stjómvöld stuðluðu að
þeim fólksflutningum í þeim til-
gangi að aðlaga hið kaþólska írland
mótmælendatrúuðu Bretlandi. Sá
innOutningur kom illa við hags-
muni og afkomu kaþólskra íra og
leiddi það til fjandskapar með inn-
flytjendum og innfæddum. í upp-
reisn, sem kaþólskir frar í Ulster
gerðu gegn Bretakonungi 1641,
vom samkvæmt sumum heimild-
um um 30.000 mótmælendur
drepnir, konum og bömum ekki
eirt frekar en öðrum. Innfæddu ír-
amir vom með þessu að reyna að
losa sig við innflytjenduma með
því að útrýma þeim — þjóðarmorð
hefur svoleiðis verið kallað á þessari
öld og nú síðast þjóðarhreinsun.
Samlyndi norðurírskra mótmæl-
enda og kaþólikka hefur æ síðan
borið merki þessarar byrjunar.
Hvað þeim fyrmefndu viðvíkur,
hefur fortíðin skilið eftir í hugar-
fari þeirra sannfæringu á þá leið,
að ekki einungis hagsmunir
þeirra (í þess orðs hversdagslega
skilningi), heldur og öryggi, sé
undir því komið að Norður-írland
verði áfram hluti af breska ríkinu.
Óöldin, sem hófst 1969, hefur
haft þau áhrif helst á umrædda
afstöðu norðurírskra mótmæl-
enda að herða þá í henni.
Þótt samstaða væri jafnan tak-
mörkuð með írum áður en Eng-
lendingar lögðu land þeirra undir
sig, er rótgróið með þeim að líta á
eyjuna sína sem eina heild. IRA
segist heyja ,baráttu' sína í þeim
tilgangi að sameina hémð þau sex
í Ulster, sem Norður-írland sam-
anstendur af, frska lýðveldinu, og
um það takmark em ekki einung-
is flestir kaþólskir írar sammála
IRA, heldur og er þetta opinber
stefna írska lýðveldisins. Norður-
írska mótmælendur grunar að
IRA hyggist koma sameiningu
Eyjarinnar grænu í kring með því
að halda áfram að drepa þá og
limlesta þangað tC þeir sem eftir
lifi af þeim gefist upp á hryllingn-
um og flytji burt, og mótmælend-
umir gera að líkindum ráð fyrir
að flestir kaþólsldr írar séu a.m.k.
undir niðri ekki mótsnúnir því að
svo fari. Afstaða kaþólskra fra
gagnvart skoskættuðum mótmæl-
endum, löndum sínum, sé sem sé
ennþá ekki mjög langt frá því sem
var á 17. öld. Með hliðsjón af
þeim magnaða fjandskap, sem
augljóst er að er milli trúflokk-
anna (eða þjóðemanna) tveggja,
Föstudagur 12. nóvember 1993
er nokkur ástæða til að ætla að
flestir norðurírskir kaþólikkar
myndu ekki harma mjög þótt
mótmælendasamfélagið þar hyrfi
úr sögunni. Eriendir fréttamenn,
frá Norðurlöndum m.a., segja að
undanfarið hafi þess gætt að kaþ-
ólikkar leitist við að hræða mót-
mælendur á brott úr dreifbýlinu
næst landamærum lýðveldisins.
Það háttalag hefur á sér svip með-
vitaðrar þjóðarhreinsunar.
Kaþólikkum fjölgar
Kaþólikkum í hag í þessari illvígu
togstreitu er að af þeim, sem flýja
land undan ógnaröldinni, eru
fleiri mótmælendur en kaþólikk-
ar, vegna þess að vel menntað
fólk, sem ætla má að eigi til þess
að gera auðvelt með að koma
undir sig fótunum annarstaðar, er
hlutfallslega fleira meðal mótmæl-
enda. Verulegu máli skiptir og í
þessu sambandi að kaþólikkar eru
bamfleiri en mótmælendur. Norð-
urírsk hjón kaþólsk eiga að jafnaði
þrjú til fjögur böm, sem er furðu
mikil fijósemi eftir því sem nú
Gerry Adams (með glerougu og skegg), leiðtogi stjórnmólaflokks er styður IRA, ber Begley til grafar.