Tíminn - 12.11.1993, Qupperneq 21
Föstudagur 12. nóvember 1993
Veröld
21
„Bootsy' Begley, morðinginn sem fórst í Shankill Road, var naumlega læs
einfeldningur. Af því tagi eru margir liðsmenn IRA og forsprakkar félags-
skaparins eru ekki miklu umhyggjusamari um þeirra líf en lif mótmælenda.
gerist hjá Evrópuþjóðum, en mót-
mælendahjón þarlendis ekki
nema tvö. Af rúmlega hálfri ann-
arri milljón landsmanna eru mót-
mælendur þó enn tæplega millj-
ón, en kaþólikkar um 650.000.
Bresku blöðin, sem þama eiga að
þekkja sæmilega til, eru ekki bjart-
sýn á framhaldið. Pótt kannski séu
ekki nema nokkur hundruð
manna í „hersveitum" IRA og hlið-
stæðra hópa meðal mótmælenda
hvorum um sig, er nokkuð Ijóst að
þessi „herskáu' samtök njóta víð-
tæks fylgis hvort í „sínum' trú-
flokki. Fólk fylgjr þeim að málum
meira eða minna ákveðið, af sam-
úð, af hræðslu (bæði við „hina' og
„sína eigin'), flestir kannski af
blöndu af hvorutveggja. „Bootsy"
Begley, morðingja þeim er féll á
eigin bragði í Shankill Road, fylgdu
til grafar um 10.000 manns. Sinn
Fein, stjómmálaflokkur sem er yf-
iriýstur pólitískur armur IRA, er
talinn hafa fylgi næstum þriðjungs
norðurírskra kaþólikka. Gerry Ad-
ams, leiðtogi Sinn Fein, var meðal
þeirra sem bám kistu Begleys.
Ekki var síður margt um mann-
inn í fjöldagöngu mótmælenda í
Belfast til heiðurs þeim sem fór-
ust við Shankill Road. Þar bar
mest á fólki í verkalýðsstétt, ekki
síst starfsmönnum skipasmíða-
stöðva borgarihnar og aðstand-
endum þeirra.
Yfir 3000 manns hafa verið
drepnir í norðurírska hryðju-
verkastríðinu og hafa kaþólskir
hryðjuverkamenn drepið um
helmingi fleiri en mótmælenda-
trúaðir. Síðustu tvö árin hafa
„herská' mótmælendasamtök,
helst þeirra Frelsisstríðsmenn
Ulster (Ulster Freedom Fighters,
UFF) og Sjálfboðalið Ulster (Ulster
Volunteer Force, UVF), hinsvegar
séð til þess að mannfallið hefur
orðið meira kaþólikka megin.
Sem hollir breskir þegnar líta
norðurírskir mótmælendur svo á
að her og lögregla Bretlands séu
skyldug til að tryggja öryggi þeirra
gegn hryðjuverkamönnum. Sú
kann að vera ástæðan til þess að
minna hefur lengst af yfirstand-
andi óaldar verið um hryðjuverk
af hálfu mótmælenda en kaþól-
ikka. Skipulagið á hryðjuverka-
samtökum mótmælenda hefur og
verið talið lauslegra en hjá IRA.
UFF, UVF og skyld samtök hafa
ennfremur hingað til einkum beitt
skotvopnum, síður sprengjum
sem hafa verið aðalvopn IRA og
limlesta oft og örkumla ævilangt
fleira fólk en þær beinlínis drepa.
Talsmaður UVF hélt því nýlega
fram við fréttamann að samtökin
hefðu á liðnum árum sýnt af sér
lofsverða stillingu með því að
hafna kröfum stuðningsmanna
sinna um miklu herfilegri
hryðjuverk en þau hafi til þessa
framið. „Þú mátt trúa mér,'
sagði talsmaðurinn. „Við erum
mannlegt andlit morðvélar.'
Mat sumra fréttaskýrenda er að
aðalástæðan tfl þess, að núorðið
virðast UFF og UVF leggja áherslu á
að hafa a.m.k. „mann fyrir sig", sé
að norðurírskir mótmælendur óttist
að stjómvöld í Lundúnum bíði eftir
hentugu tækifæri tíl að losna við
norðurírska vandamálið með því
að afhenda írska lýðveldinu lands-
hlutann (í blöðum herma skæðar
tungur að helsti þröskuldurinn þar
í vegi sé að stjómin í Dublin sé ófús
að taka við Norður-írlandi og þar
með öllum þess vandamálum).
Ennfremur eru mótmælendur
orðnir þreyttir á því að her og lög-
reglu Bretlands hefur ekki tekist að
uppræta IRA eða stöðva hryðju-
verk þess liðs. Þeir em því, að áliti
ýmissa fjölmiðlarnanna, komnir að
þeirri niðurstöðu að enginn muni
tryggja framtíð þeirra sem þjóðem-
ishóps með sérstakar hefðir nema
þeir sjálfir, og eina leiðin tO að það
megi takast sé að yfirganga IRA í
hryðjuverkum.
Hermt er að „herskáir' mót-
mælendur séu nú í óðaönn að
efla skipulag samtaka sinna, og
grunur leikur á að þeir muni á
næstunni taka upp sprengjutil-
ræði að fyrirmynd IRA.
Biblía yfir hjartastað
Norðurírskir mótmælendur eiga
að baki aOvirðulegan þátt í sögu
breska heimsveldisins, ekki síst
voru margir af hershöfðingjum
þess írskir mótmælendur. Enda
mun hoUusta þessa fólks nátengd-
ari heimsveldinu, sem þeir horfa
um öxl tO með söknuði og stolti,
en Bretlandi sem slíku. Heima hjá
norðurírskum mótmælendum og
í klúbbum þeirra er á ýmsan hátt
minnst með stolti framgöngu
þeirra t.d. í orrustum fyrri heims-
styrjaldar. Af norðurírskum her-
manni er svo sagt að biblía, sem
hann hafði í brjóstvasanum, hafi
borgið h'fi hans við Somme með
því að stöðva í sér þýska kúlu. Það
þarf ekki að vera þjóðsaga, því að
algengt var að mótmælendatrúað-
ir Norður-írar í þeim ófriði bæru
guðsorðið á sér yfir hjartastað.
Trúaðir eru þeir ekki síður en
kaþólskir landar þeirra, sambýl-
ingar, samverkamenn og erfða-
féndur í næstum fjórar aldir.
Breskur blaðamaður af ættum
norðurírskra mótmælenda var
staddur í einum klúbbi þeirra í
Belfast (rammlega víggirtum eins
og slfkir staðir eru yfirleitt núorð-
ið þar í borg), þegar í sjónvarpinu
var tilkynnt að tveir ungir menn,
bræður, hefðu verið myrtir í Co-
unty Down. Þögn sló á viðstadda,
en áberandi var hvað þeim létti
er í ljós kom að þeir myrtu voru
kaþólikkar, sem mótmælendur
höfðu drepið, að sögn tO hefnda
fyrir ódæðið í ShankOl Road.
í samræmi við breska háttvísi
var ekki laust við að klúbbgestir
fyriryrðu sig út af geðbrigðum
þessum. „Enginn gleðst við at-
burði sem þennan," sagði einn
þeirra. „En á hinn bóginn fer ekki
hjá því að manni þyki nokkuð til
koma, hversu langt IRA hefur
komist með ofbeldi. Þeir hafa
sannað að það skOar árangri."
Þeim, sem hneykslast á Norður-
írum og/eða vorkenna þeim með
meira móti, má að síðustu benda
á að bandarískar borgir af svip-
aðri sitærð og Belfast kváðu vera
helmingi lífshættulegri, miðað
við árlega tölu drepinna.
Ullarpeysur frá 3.900-
Nýkomin sending af frönsku ullarpeysunum í mörgum
litum og mynstrum á dömur og herra.
Sjón er sögu ríkari.
Verö frá 3.900-
BQMfósaa
Grandagarði 2, Reykjavík, sími 28855, grænt númer 99-6288.
Opið virka daga 8-18 og laugardaga 9-14.
10 KRÓNUR
Það er alveg rétt, að til eru
ódýrari dýnur en DUX-dýnur.
Munurinn finnst líka á endingunni.
Venjulegar dýnur endast í 5 - 8 ár.
DUX-dýnur endast oft í 30 - 40 ár.
Við hjá DUX leggjum nefnilega aðaláhersluna
á gæði og endingu.
Þegar dæmið er reiknað til enda kemur því í ljós að
DUX-dýnur eru ekki dýrari en aðrar dýnur. Miðað við
30 ára endingu, kostar DUX-nóttin 10 krónur.
Það er stundum dýru verði keypt
að kaupa ódýrt.
10% staðgreiðsluafsláttur á takmörkuðu magni
Á Dux-dýnu liggur
hryggsúlan bein
Faxafeni 7 (Epalhúsinu). Sími: 689950
í HWTLáwi *wrr ]
uos frzZ,, uos/
l ____ )