Tíminn - 12.11.1993, Síða 26

Tíminn - 12.11.1993, Síða 26
Föstudagur 12. nóvember 1993 26 Póstsögusjóður FRÍMERKI Sigurður H. Þorsteinsson Póstsögusjóður var á sínum tíma stofnaður með fjármagni því, sem safnarar greiða sem yfirverð fyrir frímerki eða frímerkja- blokkir sem gefnar eru út af ýmsum tilefnum sem varða beinlínis Dag frímerkisins eða frí- merkjasýningar. Petta fé reiða safnarar gjama af hendi til að því sé svo aftur úthlutað til ýmissa þarfra verka innan frímerkja- söfnunar, bæði sem unnin eru af einstaklingum og félögum frí- merkjasafnara eða samtökum. Síðasta úthlutun úr þessum sjóði var svo á Degi frímerkisins þann 9. október síðastliðinn. Pá var úthlutað styrkjum úr sjóðn- um til 11 aðila, en sjóðurinn var stofnaður með sérstakri reglu- gerð nr. 449 frá 29. október 1986. í fréttabréfi sjóðsins segir að til- gangur hans sé að efla og styrkja hverskonar störf og rannsóknir á sviði frímerkjafræða og póstsögu og hverskonar kynningar- og fræðslustarfsemi til örvtmar á frí- merkjasöfnun, svo sem bóka- og blaðaútgáfu. Ennfremur er það hlutverk sjóðsins að styrkja sýn- ingar og minjasöfn, sem tengjast frímerkjum og póstsögu. Samtals úthlutaði sjóðurinn á Kápo bókarinnar „íslensk frímerki 1994*. þessu ári styrkjum fyrir 6 millj- ónir króna til ýmissa verkefna. Síðan kemur upptalning á því hverjir hafi hlotið styrki og til hvers. 1) Félag frímerkjasafnara í Reykjavflc, til ýmissa verkefna á vegum félagsins. 2) Klúbbur Skandinavíusafnara í Reykjavík vegna unglingastarfs og annarra verkefna. 3) Heimir Þorleifsson, Reykja- vík. Vegna rannsókna á íslenskri póstsögu og til að hefja frágang efnis og útgáfu þess sem unnið hefir verið á undanförnum ár- um. 4) Þór Þorsteins, Reykjavík, til að fullvirma og gefa út rit um ís- lenskar frímerkjavélar. 5) Nýja Bíó, kvikmyndafélag, Reykjavík. Til þess að framleiða heimildar- og fræðslumynd um sögu frímerkja á íslandi, gerð þeirra og notkun. 6) Landssamband íslenskra frí- merkjasafnara til ýmissa verk- efna, meðal annars frímerkjasýn- ingarinnar NORDJUNEX 94. 7) Frímerkjafélagið AKKA, Dal- vík. Til unglingastarfs í skólun- um á félagssvæðinu og fleira. 8) Félag frímerkjasafnara á Ak- ureyri. Til ýmissa verkefna. 9) íslenskir Mótívsafnarar, Reykjavfk. Til þess að byggja upp félagið, bóka- og ritsafn þess og til að efla frímerkjasöfnun (mót- ífsöfntm) meðal unglinga í land- inu. 10) Hálfdán Helgason í Reykja- vík. Til þess að vinna að riti um íslenskan heilspóst (bréfspjöld, spjaldbréf, prentspjöld og loft- bréf), ganga frá texta og vinnslu gagna í tölvutækt form. 11) Sigurður H. Þorsteinsson skólastjóri. Til þess að skrifa kennslubók fyrir þá sem safna frímerkjum, svo og kennara- handbók um sama efni. Formaður stjórnar sjóðsins er Halldór S. Kristjánsson, skrif- stofustjóri í samgönguráðuneyt- inu. Af öllu þessu má sjá, að mikið er um að vera meðal þeirra er hafa frímerkjasöfnun sem tóm- stundastarf. Það er ekki að undra, því að ekki aðeins hefir frímerkjasöfnun verið kölluð konungur tómstundastarfanna, heldur hefir hún einnig gjarna verið tómstundastarf konunga og forseta ýmissa ríkja. Þar hafa ef til vill orðið frægastir á þessu sviði þeir Roosevelt Bandaríkja- forseti og Georg Bretakonungur, en þeir áttu hvor um sig heims- fræg söfn. Þá hefir safn Spell- mans kardínála hlotið svo mikla frægð, að yfir það hefir verið byggð sérstök stofnun, sem rekin er í Bandaríkjunum, og eru þar haldnar sýningar á frímerkjum og frímerkjabókmenntum árið um kring. Þar hefir til dæmis bókin „íslensk frímerki" hlotið silfurverðlaun á heimssýningu bókmennta.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.