Tíminn - 11.12.1993, Blaðsíða 1

Tíminn - 11.12.1993, Blaðsíða 1
KOMMÚNISTAR OG NÝFASISTAR BERJAST UM VÖLDIN Á ÍTAUU -sjá síðu 12-13 HÆPINN SPARN- AÐUR í HEILBRIGÐ- ISKERFINU, SEGIR FINNUR INGOLFSSON -sjá síðu 6 KJARADEILA Á PERSÓNULEGUM NÓTUM -sjá baksíðu BÍLASTYRKIR HÆKKUÐU SJÖ- FALT MEIRA EN LAUN -sjá baksíðu 10% MEINTRA STÚTA UNDIR STÝRI HÖFÐU REYKT HASS -sjá síðu 6 VHÐTAL VIÐ UNG- AN RITHÖFUND, VILBORGU DAV- ÍÐSDÓTTUR, SEM SENDIR FRÁ SÉR SÍNA FYRSTU BÓK -sjá síðu 3 ÍSLENSK KONA LEITAR AÐ VINNU FYRIR HAGFRÆÐ- INGA í NOREGI -sjá síðu 11 FRUMVÖRPIN UM ÞRÓUNAR- SJÓÐINN OG STJÓRN FISK- VEIÐA VERÐA LÖGÐFRAM -sjá baksíðu Yfir 3.000 fjölskyldnr á framfæri borgarinnar ÞaS eru þung skref fyrir marga að leita til Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar. Þessi skref þurfa yfir 3.000 fjölskyldur að stíga á þessu ári. Tímamynd Árni Bjarna Félagsmálastofnun Reykjavík- ur ver yfir 433 milljónum í fjárhagsaðstoð til fátækra fjöl- skyldna á þessu ári, en það er um 150 milljónum meira en í fyrra Áætlað er að yfir 3.000 fjölskyldur í Reykjavík þiggi fjárhagsaðstoð hjá Félagsmálastofnun borgarinnar á þessu ári sem er um 7- 8% allra heimila í borginni. Gert er ráð fyrir að Félagsmálastofnun veiji rúm- um 433 milljónum í beina fjár- hagsaðstoð við fátækar fjölskyldur, en þetta er nærri 150 milljónum meira en í fyrra. Meginástæðan fyrir þessu skelfilega ástandi er at- vinnuleysið. Að sögn Sveins Ragnarssonar, fé- lagsmálastjóra hjá Félagsmála- stofnun, er um 25% aukning á fjárhagsaðstoð í nær öllum mán- uðum borið saman við árið í fyrra. Þess ber að geta að fjárhagsaðstoð í fyrra var heldur minni en á árinu 1991. Sveinn sagði að atvinnu- leysið sé meginskýringin á þessari aukningu. Atvinnuleysi í Reykja- vík er nú rúmlega 4% sem þýðir að yfir 2.000 manns eru án vinnu. Á síðasta ári fengu 2.420 fjöl- skyldur fjárhagsaðstoð frá borg- inni. Sveinn sagði að Ijóst væri að í ár myndi fjölga í þessum hópi um a.m.k. 600 fjölskyld- ur. Sveinn sagði að í fjárhagsáætlun fyrir næsta ár sé gert ráð fyrir óbreyttri fjárhæð í fjárhagsaðstoð, þ.e. 433 milljónum. Hann sagði ekkert hægt að fullyrða um hvort sú tala standist, en sagði þó mjög ólíklegt að lægri upphæð fari til þessa málaflokks á næsta ári en í fyrra. Verði um aukningu að ræða verði leitað eftir aukafjárveitingu líkt og gerðist í sumar en þá veitti borgarráð 110 milljóna auka- fjárveitingu í fjár- hagsaðstoð. Fjárhagserfiðleikar heimilanna komu til umræðu á Alþingi í gær að frumkvæði Stefáns Guð- mundssonar alþingismanns. Stefán gagnrýndi harðlega þá miklu skuldaaukningu heimilanna sem orðið hefur í tíð þessarar ríkis- stjómar, en þar er um 60 milljarða skuldaaukningu að ræða. Heildar- skuldir heimilanna eru nú yfir 260 milljarðar. Stefán hvatti forsætis- ráðherra til að stofna starfshóp til að skoða þetta mál. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, al- þingismaður, sagði að á Alþingi væri fjallað ítarlega um fjárhags- vanda fyrirtækjanna, bankanna og ríkissjóðs, en hins vegar virtist sem fjárhagsvandi heimilanna væri al- gert aukaatriði. Ingibjörg benti á tölur Félagsmálastofnunar Reykja- víkurborgar og sagði þær sýna vel hversu slæm staðan er hjá mörg- um fjölskyldum í landinu. -EÓ Verkfall boðað á flotanum Sjómenn fara ekki fram á kauphækkun heldur réttlæti, segir formaður SSÍ.. „Það horfir tvímælalaust þung- lega um sættir í þessu erfiða máh. Ég get ekki séð annað en að þessi nýársgjöf endist fram að páskum,' sagði Jónas Haraldsson skrifstofu- stjóri LÍÚ á þriðja tímanum í gær þegar hann tók við og kvittaði fyr- ir verkfallsboðun samtaka unclir- og yfirmanna á fiskiskipaflotanum. Það voru ekki aðeins útvegs- menn sem fengu verkfallsboðun afhenta í gær heldur einnig VSÍ og embætti ríkissáttasemjara. „Okkur var tekið með mestum ágætum hjá VSÍ, betur en hér,' sagði Óskar Vigfússon formaður Sjómanna- sambandsins eftir að hafa afhent verkfallsboðunina skrifstofustjóra LÍÚ. Athygli vakti að formaður samtakanna Kristján Ragnarsson sá ekki ástæðu til að taka á móti forystumönnum sjómanna, heldur sat sem fastast á skrifstofu sinni þegar þeir komu í hús. Guðlaugur Þorvaldsson ríkis- sáttasemjari hefur boðað deiluað- ila til fundar klukkan 16 n.k. mánudag. En boðað verkfall sjó- manna á flotanum kemur til fram- kvæmda á miðnætti á nýársdag, þann 1. janúar n.k. hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma. Komi til verkfalls á flotanum nær það til allra fiskiskipa 12 tonna og stærri í öllum landsfjórðungum nema á Vestfjörðum. „Sjómenn eru ekki að fara fram á kauphækkanir heldur réttlæti,' segir Óskar Vigfússon formaður SSÍ. Hann segir að sjómenn fari fram á að kjarasamningur þeirra sé virtur og krefjist samninga um veiðar sem ekki eru fyrir hendi í aðalkjarasamningum sjómanna. „Þetta er númer eitt og númer tvö. Númer þrjú er að við fáum eðlilega verðmyndun á hráefni sjómanna.' Aðspurður hvort það sé ekki í verkahring löggjafans að breyta lögum um frjálst framsal veiðiheimilda til að stemma stigu við kvótabraski og þátttöku sjó- manna í kvótakaupum í ljósi þess að það er bannað samkvæmt kiarasamningi, sagði Óskar: „Okk- ur er sama hvar það leysist. Bara að það leysist.' Þá er reiknað með að Sjómanna- félag Reykjavíkur endumýji verk- fallsboðun á skipum Eimskipafé- lagsins og eins hafa félög undir- manna og þerna á Vestamanna- eyjaferjunni Herjólfi boðað til verkfalls frá og með áramótum. Árangurslausir sáttafundir hafa verið haldnir í þeirri deilu í Eyjum og reiknar ríkissáttasemjari með að næsti sáttafundur verði haldinn n.k. þriðjudag, 14. desember í Karphúsinu. -GRH t *© ‘i - FRAMHALDSSKÓLINN í REYKHOLTI: Tökum á móti nýjum fj ölbrautaskólanemendum •v, ávorönn 1994. -F .„..v ..»# > Bóknám fyrirallar brautir Matvcelamm Uppeldisnám Sjtíkralióanám Viðskiptanám Fomám Listanám Innritun er hafin fyrir vorönn 1994. Upplýsingar í símum: 93-51200/51201/51210/51112 Skólanieistari Harður rammi Mjúkur kjarni Heimavist-hestaraennska-fjölmiðlun-kvikmyndagerð-blaðaútgáia-ljásmyndun-íþróttir-líkamsrsEktantöá-sundlaug-leiklist-nýjar tölvur-klúbbar-nemendalýðrseði OSSGÁTA SIÐA 10 LEIÐARI SIÐA2 f ÚTVARP SJÓNVARP SIÐA 16-17

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.