Tíminn - 11.12.1993, Blaðsíða 11

Tíminn - 11.12.1993, Blaðsíða 11
Laugardagur 11. desember 1993 11 Hún lætur verkin tala íslensk kona skipuleggur atvinnuleit 50 hagfræðinga Islendingar láta gjarnan til sín taka hvar sem þeir eru staddir. Hrafnhildur Sveinsdóttir er engin undantekning þar á, en hún útskrifast með MBA-gráðu frá BI- viðskiptaháskólanum í ósló þann 20. desember næstkomandi. Hrafnhildur situr ekki og kvíðir at- vinnuleysi, því samkvæmt viðtali við hana, sem birtist í norsku dag- blaði 11. október, ætlar hún sér að útvega sjálfri sér og útskriftar- systkinum sínum atvinnu. Atvinnuástandið í Noregi er erfitt um þessar mundir. Hrafnhildur og útskriftarsystkin hennar eru samt ekki á því að gefast upp. Þau eru 61, sem ætla að ljúka námi í des- ember, og af þeim má búast við að um 50 leiti út á norskan vinnu- markað. MBA-námið er tiltölulega nýtt í Noregi og því margir at- vinnurekendur, sem vita ekki hvað liggur að baki því. Hrafnhild- ur og skólasystkin hennar hafa þess vegna tekið sig til og hafið átak til að kynna sig og menntun sína fyrir norskum atvinnurekend- um. Hrafnhildur tók að sér að skipuleggja átakið. í því sambandi sendi hún bréf til 350 atvinnurek- enda og bauð þeim á kynningu í skólanum. Bréfin voru samin í samvinnu við fyrirtæki á sviði markaðssetningar. Á kynningunni gefst atvinnurekendunum tæki- færi tíl að ræða við útskriftamem- endur og kynna fyrirtæki sín í leiðinni. Hrafnhildur segir í viðtalinu að hún vilji gjarnan að atvinnurek- endur komi, þótt þá vanti ekki starfsmenn. Þeir geti kynnt sér námið og þá þekkingu og færni, sem nemendur skólans tileinka sér. Hún segir líka að ef atvinnu- rekendur sjái sér ekki fært að mæta, getí nemendumir komið til þeirra til að kynna sjálfa sig og námið. Hrafnhildur hafði margra ára reynslu af atvinnulífinu þegar hún ákvað að setjast aftur á skólabekk. Hún segir að í náminu hafi hún öðlast fræðilega þekkingu sem við- bót við reynslu sína. Eins hafi margir máttarstólpar norsks at- vinnulífs komið og haldið fyrir- lestra í skólanum. -GK Jólagjöf jeppamannsins Vagnhöfða23 • Póstnúmer: 112 Reykjavík • Sími 91-685825 Críptu - meðan það gefst: WaVVA 486/33DX Local BUS t með öflugum búnaði 200 MB dískur 4 MB Innra minni 256K cache 14" SVCA lággeisla litaskjár S31Mb skjáhraðall 2 raðtengi, 1 hliðtengi og leikjatengi DOS 6.2, Windows 3.1 og mús á aldeilis ótrúlegu verði Greiðsluskilmálar Clitnis, (W) EJíp - Aðeins 139.966,- Komdu í verslun okkar eða hringdu í sölufólkið og fáðu nánari upplýsingar. kr. stgr. EINAR J. SKULASON HF Grensásvegi 10, 108 Reykjavík, Sími 63 3000.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.