Tíminn - 11.12.1993, Side 4
4
Til sölu
URSUS 1014 árg. ‘88, SECURA snjóblásari 750, VESTBJÖRN
snjóblásari 2400. Upplýsingar í síma 95-13372.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Síðumúla 39 -108 Reykjavík - Sími 678500 ■ Fax 686270
Félagsráðgjafar
Óskum eftir að ráða félagsráðgjafa í 100% stöðu á
hverfaskrifstofu fjölskyldudeildar í Skógarhlíð 6.
Um er að ræða afleysingar í 1 ár frá 1. janúar n.k.
Upplýsingar gefur Ellý Þorsteinsdóttir yfirfélagsráðgjafi í
síma 625500. Umsóknarffestur er til 21. desember n.k.
Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar Reykjavík-
urborgar, Síðumúla 39, á umsóknareyðublööum sem þar
fást.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Rannsóknastyrkir
EMBO I sameindalíf-
fræði
Sameindalífffæðisamtök Evrópu (European Molecular
Biology Organization, EMBO) styrkja vísindamenn, sem
starfa í Evrópu og ísrael, til skemmri eða lengri dvalar við
erlendar rannsóknastofnanir á sviði sameindalíffræði.
Nánarí upplýsingar fást um styrkina í menntamálaráöu-
neytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. — Umsóknar-
eyðublöð fást hjá Dr. J. Tooze, Executive Secretary, Eur-
opean Molecular Biology Organization, DW- 6900 Heidel-
berg 1, Postfach 1022 40, Þýskalandi. Límmiði með nafni
og póstfangi sendanda skal fýlgja fyrirspumum. Umsókn-
arfrestur um langdvalarstyrki er til 15. febrúar og til 15.
ágúst, en um skammtímastyrki má senda umsókn hve-
nær sem er.
Menntamálaráðuneytið,
10. desember 1993.
Innkaupastofnun Reykjavikurborgar, f.h. Hitaveitu Reykjavikur,
óskar eftir tilboöum i kaldavatnsdælu fyrir Nesjavallavirkjun.
Helstu kennistærðir:
Magn 450 l/sek.
Lyftihæö 140 m vatnssúlu
Snúningshraöi 1.490 sn./mín.
Útboösgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3,
Reykjavík.
Tilboöin veröa opnuö á sama staö þriöjudaginn 18. janúar 1994,
kl. 11,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis-
og/eða minningargreinum í blaðinu, er
bent á, að þær þurfa að berast a.m.k.
tveimur dögum fyrir birtingardag.
Þœrþurfa að vera vélritaðar.
Laugardagur 11. desember 1993
50 gr ger
100 gr smjör
100 gr sykur
3 dl mjólk
legg
50 gr saxaðar rúsínur
Ca. 450-500 gr hveiti
Fylling:
150 gr marsipan
3 msk. appelsínusafl
Hýði utan af 1 appelsinu,
raspað
Smjörið brætt, mjólkinni bætt út
í, haft ylvolgt, hellt yfir gerið í skál.
Eggið hrært með sykrinum, sett út
í gerblönduna með mestu af hveit-
inu og hrært saman. Deigið tekið
upp á borð og hnoðað, bæta má
smávegis hveiti við ef þörf krefur.
Látið hefast í 30 mín. Hafið stykki
yfir. Deigið hnoðað aftur og flatt út
í aflanga lengju. Marsipanið raspað
gróft, hrært með appelsínusafanum
og raspinu af appelsínunni. Smurt
yfir lengjuna, rúsínunum stráð yfir
og lengjunni rúllað saman. Mynd-
aður hringur (samskeytin snúa
niður), settur á bökunarpappírs-
kiædda plötu. Látið hefast aftur í
30 mín. Hringurinn smurður með
samanhrærðu eggi og perlusykri
stráð yfir. Bakaður við 200-225' í
20-25 mín. neðarlega í ofninum.
ÉnsiJóíaiaia
250 gr smjör
250 gr dökkur púðursykur
1 msk. síróp
5egg
1 tsk. kardimommur
1 tsk. kanill
1/2 tsk. negull
300 gr hveiti
1/2 tsk. iyftiduft
250 gr rúsínur
125 gr kúrennur
100 gr súkkat
Glassúr:
200 gr flórsykur
1 eggjahvíta
1 msk. koníak
Hrærið saman, smjör, sykur og sír-
óp vel og lengi. Eggin hrærð saman
við, eitt í senn og hrært vel á milli.
Kryddinu, hveitinu og lyftiduftinu
hrært út í eggjahræruna. Ávöxtun-
um blandað saman við deigið og
það sett í vel smurt kringlótt eða
aflangt form. Gott er að hafa bök-
unarpappír í botni formsins. Bakað
við ca. 170’ í ca. 1 1/2 klst. Glas-
súrinn hrærður vel saman og
smurður yfir kökuna kalda, hún
svo skreytt með hnetum. Ef frysta
á kökuna er betra að gera það án
glassúrsins, setja hann yfir kökuna
þegar hún er borin fram.
Sannadajjœiaian
125 gr smjör
125 gr suðusúkkulaði
11/2 dl sykur
1 tsk. vanillusykur
100 gr möndlur
2 eggjarauður
11/2 dl hveiti
2 eggjahvítur
Smjör og sykur hrært létt og ljóst.
Eggjarauðunum hrært saman við
einni í senn og hrært vel á milli.
Súkkulaðið brætt yfir vatnsbaði,
kælt örh'tið og sett saman við hrær-
una ásamt muldum möndlunum
og vanillusykrinum. Hveitið sigtað
saman við og síðast er þeyttum
eggjahvítunum blandað varlega
saman við deigið. Deigið sett í vel
smurt form og kakan bökuð við
180’ í ca. 30-40 mín. Kakan látin
kólna aðeins áður en henni er
hvolft úr forminu. Kakan er smurð
með bræddu súkkulaði þegar hún
er borin fram, annaðhvort með
þeyttum ijóma eða ís og þá höfð í
eftirrétt.
Vinsælustu smákökurnar
Bráðum koma blessuð jólin. Gott
er að byrja að baka jólasmákökum-
ar og léta þannig á jólaannríkinu.
l/aniiiait°ansa/c
250 gr hveiti
175 gr smjör
150 gr sykur
75 gr hakkaðar möndlur
Komin úr 1 vanillustöng
1 eggjarauða
Sykri og vanillukornum blandað
saman við möndlumar. Svo hveitið
og smjörið mulið saman við, ásamt
eggjarauðunni. Deigið hnoðað
saman og látið bíða á köldum stað
smástund. Deigið formað í hringi,
notuð er hakkavél eða köku-
sprauta. Sett á smurða plötu, bakað
neðarlega í ofninum í 7-8 mín. við
200-225’.
Ristopfja/0:
150 gr kókosfeiti
legg
2 1/2 dl sykur
125 gr suðusúkkulaði
2-3 msk. sterkt kaffi
1 tsk. vanillusykur
Rís
Feitin brædd. Kæld aðeins. Egg og
sykur þeytt ljóst og létt. Súkkulaði
brætt í kaffinu. Súkkulaði og van-
illusykri blandað saman við eggja-
hræruna. Rísið hrært saman við,
þar til orðið er mátulega þykkt.
Búnir til litlir toppar, settir á bök-
unarpappír, látnir kólna. Deigið
kólnar fljótt, svo það er betra að
vera snögg að móta toppana.
1 dl sykur
2 msk. kakó
4 dl komflex
Smjör, síróp, sykur og kakó sett í
pott, látið sjóða og hrært í, þar til
það verður að jafnri hræm. Pottur-
inn tekinn af plötunni og komflex-
inu hrært út í. Tveim teskeiðum
dyfið í kalt vatn og maukið sett í
pappírsform með skeiðunum. Pað
má líka setja maukið á bökunar-
pappír eins og léttar kökur, ef vill.
Látið bíða á köldum stað, þar til
það verður stíft. Geymist á köldum
stað.
6 dl hveiti
1 tsk. natron
250 gr smjör
2 1/2 dl dökkur púðursykur
11/4 dl sykur
2 egg
11/4 tsk. vanillusykur
150 gr suðusúkkulaði
2 dl hnetur
Smjör og sykur hrært saman létt og
ljóst. Eggjum og vanillusykri bætt í.
Hveiti og natron hrært saman við.
Súkkulaði og hnetur saxaðar og
blandað saman við deigið. Sett á
bökunarpappírsklædda plötu með
teskeið. Hafið gott bil á milli, kök-
umar renna út. Bakaðar við 225’ í
8-10 mín.
3 eggjahvítur
1 bolli sykur
2 bollar komflex (létt mulið)
1 bolli kókosmjöl
125 gr suðusúkkulaði, saxað
1/2 tsk. vanillusykur
1/4 tsk. salt
Jólasælgæti
„(/(ppcJbaU
éarnGLnno
Komflextoppar:
50 gr smjör
2 msk. síróp
Eggjahvítur stífþeyttar með sykrin-
um. Komflexi, kókosmjöli og söx-
uðu suðusúkkulaðinu bætt út í
varlega, ásamt vanillusykri og ör-
litlu salti. Sett í litla toppa á papp-
írsklædda plötu. Bakað við vægan
hita, ca. 175", og látið kólna á plöt-
unni.