Tíminn - 11.12.1993, Page 6

Tíminn - 11.12.1993, Page 6
Laugardagur 11. desember 1993 6 Innlent fQ 10 % meintra stúta hafði neytt kannabisefna Kannabisefni fundust í blóði tí- unda hluta þeirra ökumanna sem stöðvaðir voru vegna gruns um ölvun við akstur og lentu í úrtaki könnunar Rannsókna- stofu í lyfjafræði í samvinnu við Umferðarráð og lögreglustjóra- embættið. tögreglustjóri telur ástæðu til að endurskoða rann- sóknaraðferðir á blóðsýnum ökumarma í framhaldi af niður- stöðu rannsóknarinnar. í rannsókninni voru könnuð blóðsýni 201 ökumanns sem stöðvaður var á árinu 1992 og fyrri hluta árs 1993. Valin voru sýni þar sem þéttni etanóls var við eða undir refsimörkum um- ferðarlaga hvað varðar áfengis- magn í blóði. Kannbisefni fund- ust í sýnum nítján ökumann- anna og af þeim reyndust fjórtán einnig hafa neytt einhvers áfeng- is. Dr. Þorkell Jóhannesson hafði umsjón með könnuninni. Hann segir að niðurstaðan sýni að þörf sé á að Ieitað verði að kannabis- efnum og amfetamíni auk áfeng- is í blóðsýnum þeirra sem eru stöðvaðir vegna meints ölvuna- raksturs. Núna er slíkt ekki gert nema í undantekningartilfellum. Böðvar Bragason lögreglustjóri í Reykjavík tekur undir þessi orð Þorkels og segir að hann muni líklega leggja til við dómsmála- ráðuneytið að reglunum verði breytt. Hann segir að það verði að gera í samvinnu við sérfræð- inga þar sem engin viðmiðunar- mörk séu til um hvenær fólk verði ófært um að aka bifreið eftir neyslu kannabisefna. Böðv- ar vill einnig fá samanburð við önnur lönd en hann veit ekki til Kristín Magnúsdóttir og Þorkell Jóhannesson fró Rannsóknastofnun í lyf- jafræði StÓOU aS rannsókninni. TimamyndÁrni Bjamo. þess að sambærileg rannsókn hafi verið gerð í nágrannalönd- unum. Árlega eru stöðvaðir 2000-2400 ökumenn á landinu fyrir meint- an ölvunarakstur. Flestir þeirra eru mikið ölvaðir en að meðal- tali reynist aðeins tíundi hluti þeirra vera undir refsimörkum. -GK Herra Ólafur Skúlason biskup íslands vígir fyrri ófanga Grafarvogskirkju sunnudaginn 12. desember klukkan 16. Þá verður neðri hæð kirkjunnar tekin í notkun, en þar er meðal annars safnaðarsalur þar sem barnamessur verða í framtíðinni, skrifstofa sóknarprests og stofa unair fermingarfræðslu. Um níu þúsuna manns tilheyra Grafarvogssókn en söfnuðurinn hefur hingað til haft aðstöðu í félagsmiðstöðinni Fjörgyn. Á myndinni eru Magnús Ásgeirsson for- maður sóknamefndar, arkitektar kirkjunnar þeir Finnur Björgvinsson og Hilmar Þór Björnsson og sr. Vigfús Þór Árna- son sóknarprestur. Timamynd: Ámi Bjarna Liðin tíð að skamma Albaníu „Mér þykir miður að þetta út- boð skuli ekki hafa heppnast, því ég tel að það hefði verið þess virði að taka þessum 5%,* segir Bjöm Grétar Sveinsson formað- ur Verkamannasambands ís- lands. Hann undrast þó gífuryrði Sig- hvats í garð samtaka launafólks þar sem ráðherrann hefur farið offari. Björn segir að ráðherra væri nær að líta til samherja sinna í lækkun vaxta. »Það er liðin tíð að skamma AI- bam'u þegar ætlunin er að skam- ma Kína. Hinsvegar er það alveg satt hjá ráðherra og hann má eiga það sem hann á að formað- ur VSMÍ hefur galað hæst um lækkun vaxta. Oft hefur ráð- herrann farið með ósannara mál." Formaður VMSÍ segir að það sé þekkt að sambandið hefur marg- oft hvatt lífeyrissjóðina og deilt á þá fyrir að hafa ekki staðið sig nægilega vel í lækkun vaxta. „Því má hinsvegar ekki gleyma að lífeyrissjóðirnir gengu fram fyrir skjöldu í að stuðla að lækk- un vaxta á sínum tíma. Þannig að þessar upphrópanir ráðherr- ans em mjög ósanngjamar. Þótt allir vilji Lilju kveðið hafa í þess- um vaxtamálum, þá var lestinni ekki ýtt í gang í vaxtamálunum af hálfu ráðherra fyrr en að af- loknu þingi VMSÍ." Bjöm Grétar segir að það megi ekki gleymast að þetta útboð á húsnæðisbréfum og gauragang- urinn í kringum það sé aðeins einn keppurinn af mörgum í sláturtíðinni. „Það er allt slátrið eftir og in.a. þessi nafnvaxtaþáttur sem ég hef margoft bent á. En þar emm við tala um raunvexti uppá 13% - 16%," segir Bjöm Grétar Sveins- son formaður VMSÍ. -GRH Hæpinn sparnaður í heilbrigðismálum segir Finnur Ingólfsson, alþingismaður Spamaðarhugmyndir ríkisstjóm- arinnar í heilbrigðismálum ganga ekki upp. Álögur á sjúklinga eru auknar og kostnaður kerfisins í heild minnkar ekki. Þetta segir Finnur Ingólfsson þingmaður Framsóknarflokksins. í fjárlagafrumvarpi ríkisstjómar- innar er gert ráð, fyrir að útgjöld til heilbrigðismála dragist saman um 2,4 milljarða. Finnur segir að af þeim hafi ríkisstjómin þegar hætt við sparnað upp á einn milljarð. „Það var hætt við að loka Gunn- arsholti, hætt við heilsukort, hætt við að eignatengja lífeyristrygging- ar og við að skera niður eingreiðsl- ur til elli- og örorkulífeyrisþega. Á móti þessu hafa menn ákveðið að spara á öðrum sviðum. Það á til dæmis að spara í magalyfjum upp á 100 milljónir króna umfram þær 150 milljónir sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu að verði spar- aðar í lyfjum. Þetta verður að mínu viti ekki gert nema með því að velta kostnaðinum yfir á sjúk- linga. Staðreyndin er sú að þessi lyf hafa gegnum árin sparað mörg hundruð milljónir því með þeim hefur verið komið í veg fyrir að menn hafi þurft að gangast undir uppskurð inni á sjúkrahúsum. Það er því hæpinn spamaður að koma í veg fyrir að efnalítið fólk geti notað þessi lyf. Einnig á að spara með því hætta að senda fólk í hjartaaðgerðir erlendis. Núorðið Það er óásættanlegt að u.þ.b. 20% þess fjár sem ætlað er í sér- stakt framkvæmdaátak sökum at- vinnuástands komi í hlut höfuð- borgarsvæðisins þar sem tæplega 60% þjóðarinnar býr. Þetta kom fram á fundi borgar- ráðs fyrr í vikunni og er skorað á Alþingi og ríkisstjóm að sjá til þess em svo til eingöngu böm sem fara utan í slíkar aðgerðir vegna þess að tækjakostur Landspítalans er ekki nægur til að framkvæma þær hér. Ef Landspítalinn á að bæta þessum aðgerðum við starfsemi sína þarf að auka fjármagn til hans. Samkvæmt fjárlagafrum- varpinu skortir þegar 380 milljónir að framlög til vegaframkvæmda í borginm verði í eðlilegu samræmi við þörf og umferðaröryggi og arð- semi. Sagt er að bráðnauðsynlegar framkvæmdir eins og breikkun Vesturlandsvegar frá Elliðaám að Höfðabakka ásamt mislægum gatnamótum i báða enda þoli ekki króna á fjárlagaheimildir Landspít- alans til að hann geti haldið óbreyttri starfsemi á næsta ári. Ég sé ekki hvernig þetta á að fara saman," segir Finnur Ingólfsson alþingismaður Framsóknarflokks- ins. Ekki náðist í Guðmund Áma Stefánsson heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra í gær. -GK bið. Þá segir að gerð mislægra gamamóta á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar sé brýn vegna umferðaöryggis. Sagt er að þessar framkvæmdir séu mun arð- samari en ýmis önnur verkefni sem áformuð eru annars staðar á landinu. -HÞ Skorar á fjármála- ráðherra að draga skattinn til baka Bæjarráð Kópavogs skorar á fjármálaráðherra að hætta við 14% virðisaukaskatt á rekstur strætisvagna og segir það muni hækka fargjöld um 12 - 16%. „Slíkt myndi einungis leiða til aukinna álaga á almenning, fækkun farþega, sem tæpast get- ur verið markmið nkisvaldsins." Þetta kemur fram í samþykkt bæjarráðs. Þar er þessum áform- um harðlega mótmælt. Vakin er athygli á þeirri staðreynd að strætisvagnar séu reknir með verulegum halla og rekstur þeirra sé með öllu óframkvæm- anlegur nema með hallaframlagi frá sveitarfélögum. „Að ríkisvaldið skuli láta sér detta í hug að skattleggja halla- framlag er með ólíkindum og verður ekki túlkað á annan hátt en þann að litið sé á almenn- ingssamgöngur sem óæskilega þjónustu af hálfu sveitarfélag- anna," segir og í sameiginlegri ályktun bæjarráðs. -HÞ Um 60% þjóðarinnar fær 20% af framkvæmdafé Borgarráð skorar á Alþingi og ríkisstjóm að framlög til vegamála í borginni verði með eðlilegum hætti

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.