Tíminn - 11.12.1993, Blaðsíða 14
14
Laugardagur 11. desember 1993
■■ ■ * . ■ í áHwiS&S'W.
Félag eldri borgara
i Reykjavík og nó-
grenni
Sunnudag í Risinu: Brids-
keppni, tvímenningur, kl. 13 og
félagsvist. Kl. 14 verðlaunaaf-
hending fyrir 5 daga keppnina.
Dansað í Goðheimum kl. 20.
Mánudag: Opið hús í Risinu kl.
13- 17. Fijáls spilamennska.
Lögfræðingur félagsins er til
viðtals fimmtudaginn 16. des.
Panta þarf viðtal í síma 28812.
Kattholt
Basar og flóamarkaður verður
haldinn í Kattholti, Stangarholti
2, sunnudaginn 12. des. og hefst
kl. 14. Allur ágóði rennur til
óskiladýra.
Mæérastyrksnefnd
Kópavogs
til viðtals og með fataúthlutun í
Félagsheimili Kópavogs, suður-
dyr, þriðjudaginn 14. des. frá kl.
17-19 og miðvikudaga og
fimmtudaga á sama tíma.
Fríkirkjan í
Reykjavík
Sunnudag 12. aes.: Bamaguðs-
þjónustald. 11.
Jólavaka kl. 17. Frá kl. 16.30
mun organisti safnaðarins, Pavel
Smid, leika á orgel kirkjunnar
og frá kl. 16.45 syngur RARIK-
kórinn.
Efni jólavökunnar er fjölbreytt
í tónum og tali. Ræðumaður
jólavökunnar í ár verður Valgeir
Guðjónsson, tónlistarmaður og
rithöfundur. Fríkirkjukórinn
syngur, svo og barnakór og
kirkjugestir. Einsöngvarar verða:
Helga Rós Indriðadóttir, Þuríður
Sigurðardóttir, Erla B. Einars-
dóttir og Ragnar Davíðsson.
Þátttakendur í barnastarfinu
fara með jólaguðspjallið á sinn
hátt. í lokin verða jólaljósin
tendruð eins og venja er.
Eitt af kortunum með mynd af Hó-
teigskirkju.
Kirkjur landsins
ó kortum
Á þessu ári hófu Nýjar víddir
útgáfu á kortaflokki með ís-
lenskum kirkjum í samvinnu
við sóknarnefndirnar. Kortin
eru afar hátíðleg með vetrar-
myndum eftir Ingibjörgu Bimu
Steingrímsdóttur. Aftan á kort-
unum em fróðlegar upplýsingar
um viðkomandi kirkjur.
Kirkjukortin fást bæði sem
jólakort og tækifæriskort — og
þá einkum tengd atburðum sem
eiga sér stað í kirkjunum. Þau
eru kjörin sem boðskort, t.d. í
fermingar og brúðkaup. Umsjón
með hönnun kortanna hefur
Kristín Þorkelsdóttir hjá Nýjum
víddum.
Kort með eftirtöldum kirkjum
eru komin út: Dómkirkjunni,
Þingvallakirkju, Hallgrímskirkju,
Laugameskirkju, Bústaðakirkju,
Háteigskirkju, Árbæjarkirkju,
Kristskirkju, Fríkirkjunni í
Reykjavík, Seltjarnameskirkju,
Blönduóskirkju, Ytri- Njarðvik-
urkirkju, Grenivíkurkirkju og
Grindavíkurkirkju.
Verð kirkjukortanna er 100
krónur og nýtur Hjálparstofnun
kirkjunnar góðs af sölu þeirra á
almennum markaði og sölu
Nýrra vídda til fyrirtækja. Sókn-
arnefndir kirknanna ráðstafa
tekjum af eigin sölu til kirkju-
starfs.
Kvöldlokkur
á jólaföstu
Þriðjudaginn 14. desember
heldur Blásarakvintett Reykja-
víkur, ásamt félögum, sína ár-
legu aðventutónleika í Krists-
kirkju undir heitinu »Kvöld-
lokkur á jólaföstu'”. Kvöldlokkan
eða serenaðan var vinsælt form
skemmtitónlistar á átjándu öld
og fyrri hluta þeirrar nítjándu,
ætluð mönnum til yndisauka og
upplyftingar við ýmis hátíðleg
tækifæri. Þeir félagar hafa haldið
þessa tónleika í rúman áratug
við sívaxandi vinsældir og
mörgum finnst þessi hljómfagra
blásaramúsík ómissandi í jó-
laundirbúningnum, þótt ekki til-
heyri hún beint jólum. Að þessu
sinni verða leikin eftirtalin verk:
Octet-Partita í Es-dúr eftir Hum-
mel, Petite symphonie eftir Go-
unod, og eitt af meistaraverkum
Mozarts fyrir átta blásara, Ser-
enade No. 12 í c-moll, K388.
Hljóðfæraleikaramir eru: Bem-
harður Wilkinson á flautu, Daði
Kolbeinsson og Peter Tompkins,
óbó, Einar Jóhannesson og Sig-
urður I. Snorrason, klarínett,
Hafsteinn Guðmundsson, Rúnar
Vilbergsson og Brjánn Ingason,
fagott, og Jósef Ognibene og
Þorkell Jóelsson, hom.
Tónleikamir hefjast kl. 20.30.
Aðgöngumiðar eru seldir við
innganginn.
Listamenn frá Litháen
stjóma jólaleikriti
Þjóðleikhússins:
Mávurínn eftir
Anton Tsjekhof
Þjóðleikhúsið hefur fengið til
hðs við sig þijá af fæmstu Ieik-
húslistamönnum Litháen, þá
Rimas Tuminas leikstjóra, leik-
mynda- og búningateiknarann
Vytautas Narbutas og tónskáldið
Faustas Latenas.
Þessir listamenn eru hingað
komnir til að stjóma jólaleikriti
Þjóðleikhússins, sem er Mávur-
inn eftir Anton Tsjekhof, í nýrri
þýðingu Ingibjargar Haraldsdótt-
ur. Þetta töfrandi og ljúfsára
leikrit hefur löngum verið talið
eitt af perlum leikbókmennt-
anna.
Rimas Tuminas er listrænn
stjórnandi Litla leikhússins í
Vilnius og hefur jafnframt verið
mikilvirkur leikstjóri. Meðal
leikrita, sem hann hefur stjóm-
að nýverið, má nefna Galíleó
eftir Bertolt Brecht og Kirsu-
beijagarðinn eftir Tsjekhof, en
sú sýning var sýnd víða á Norð-
urlöndum og vakti mikla at-
hygli.
Leikmynda- og búningahönn-
uðurinn Vytautas Narbutas hef-
ur starfað mikið með Tuminas,
nú síðast við sviðsetninguna á
Galíleó.
Tónskáldið Faustas Latenas
hefur starfað við leikhús í Lithá-
en í áraraðir og samið tónlist við
meira en 120 leikrit. Hann hefur
hlotið fjölda alþjóðlegra viður-
kenninga fyrir verk sín.
Ásdís Þórhallsdóttir er aðstoð-
arleikstjóri og hefur verið túlkur
á æfingum, en hún stundaði
leikstjómamám í Moskvu.
Með helstu hlutverk í Mávin-
um fara Anna Kristín Amgríms-
dóttir, Baltasar Kormákur, Jó-
hann Sigurðarson, Halldóra
Bjömsdóttir, Erhngur Gíslason,
Hjalti Rögnvaldsson, Gunnar
Eyjólfsson, Róbert Amfinnsson,
Edda Arnljótsdóttir og Guðrún
Gísladóttir.
Vytautas Narbutas, leikmyndo- og búningateiknari (yst t.v.), Rimas Tuminas
leikstjóri, Ásdís Þórhallsdóttir aðstoSarleikstjóri, og leikhópurinn.
Bridge
UMSJÓN: BJÖRN ÞORLÁKSSON
Hjördís og Ásmundur
óstöðvandi
Enn og aftur bættu Hjördís Eyþórsdóttir og Ásmundur Pálsson skraut-
fjöður í hatt sinn í Kauphallarmótinu sem fram fór á Hótel Sögu um síð-
ustu helgi. Þau unnu mótið annað árið í röð og hljóta menn að fara að
spyrja sig þeirrar spumingar af fullri alvöm hvort tími þeirra sé ekki upp
mnninn í landsliðshópnum.
Spiláð var í þremur lotum, fjögur
spil á milli para, alls 108 spil. 28
pör tóku þátt og vom flestir af
sterkustu spilurum landsins þar
saman komnir. Mótið hófst á upp-
boði, þar sem Guðmundur Páll
Amarson og Þorlákur Jónsson,
sem lentu í öðm sæti á mótinu,
reyndust dýrastir en tilboðin í
dýmstu pörin vom nokkm lægri
en verið hefur síðustu ár. í þriðja
sæti lentu Hrólfur Hjaltason og
Sigurður Sverrisson.
Mótið imnu Hjördís og Ásmund-
ur öðm fremur á jafnri spila-
mennsku. Risaskorin létu þó sjá
sig og þetta spil gaf góðan arð:
NORÐUR
♦ Á98543
♦ T65
♦ 532
*4
VESTUR AUSTUR
* DG * K76
4 ÁK3 4 9872
♦ GT764 4 9
4> DG8 4 ÁKT75
SUÐUR
♦ T2
4 DG4
♦ ÁKD8
+ 9632
Þetta spil kom upp gegn einu
sterkasta parinu, Jóni Baldurssyni
og Sævari Þorbjömssyni. Jón sat í
norður og kom inn á sagnir með
veikri hindmn (samkvæmur eigin
BOLS-heilræði) en það reyndist
ekki happadijúgt í þetta skiptið.
sagnir:
Suður Vestur Norður Austur
Sævar Ásmundur Jón Hjördís
pass 1* 2+ dobl
pass 3 ♦ pass 3grönd
allir pass
Eftir doblið og 3ja tígla sögn Ás-
mundar kom upp staða þar sem
Hjördís var í raun .endaspiluð' í
sögnum og átti ekki aðra sögn en
3 grönd. Þau em alltaf skotheld en
eðlilega fundu sárafáir AV-spilarar
þann samning, enda ber allt að
bútabmnni ef AV fá frið til að
segja. Því græddu Hjördís og Ás-
mundur 85 á spilinu vegna sagna-
legs gjaldþrots Hjördísar sem er at-
hyglisvert og leiðir hugann að
tvíeggjaðri hindmn Jóns.
Philip Monis
Evróputvímenningurinn
Föstudagskvöldið 19. nóvember
sl. var spilaður landstvímenningur
og Philip Morris Evróputvímenn-
ingur á 17 stöðum á íslandi og
tóku alls 276 pör þátt. í þessari
keppni er spilað í riðlum og því
em landstvímenningmeistarar í
báðum riðlum.
NS-riðilinn unnu Sveinn Her-
jólfsson og Þorsteinn Bergsson frá
Bridgefélagi Fljótsdalshéraðs en
þeir spiluðu á Reyðarfirði og
fengu 65,44% skor. í öðm sæti
lentu ísak J. Ólafsson og Kristján
Kristjánsson, Bridgefélagi Reyðar-
og Eskifjarðar, með 63,59% skor
og í þriðja sæti urðu Jón Sigur-
bjömsson og Steinar Jónsson frá
Bridgefélagi Siglufjarðar.
AV-riðilinn unnu Karl Her-
mannsson og Amór Ragnarsson
frá Bridgefélagi Suðumesja eri
þeir spiluðu í Sandgerði og fengu
69,14% skor Það dugði þeim í
sjötta sætið á heimsvísu sem er
glæsilegur árangur. f öðm sæti
vom Reynir Magnússon og Oddur
Hannesson frá Bridgefélagi Fljóts-
dalshéraðs en þeir spiluðu á Seyð-
isfirði og fengu 65% skor. í þriðja
sæti urðu Snorri Steinsson og
Friðrik Egilsson frá Bridgefélaginu
Geisla, Súðavík, en þeir spiluðu í
Reykjavík og fengu 64,46 skor.
Góð þátttaka var í Sigtúni 9
þetta kvöld. í spili no. 20 naut
sagnhafi, séra Cecil Haraldsson,
blessunar andstæðinganna og
jafnvel æðri máttarvalda á við-
kvæmu augnabliki.
NORÐUR
+ DT976
* G76
1 D
* K642
VESTUR AUSTUR
* ÁK82 4 5
V DT 4 Á854
4 KT87653 4 G42
+ - 4 ÁT975
SUÐUR
4 G43
4 K932
* Á9
* DG83
Besta geimið í spilinu er 5 tíglar
sem standa jafnvel með yfirslag ef
vestur hittir á tígulinn. Cedl varð
hins vegar sagnhafi í þremur
gröndum dobluðum eftir að aust-
ur var búinn að melda lauf og
hjarta. Suður var nokkuð hvatvís
og doblaði 3 grönd sem bað um
hjartaútspil.
Norður spilaði hlýðinn út hjarta-
gosanum og Cecil drap þann slag
heima með drottningu. Eftir do-
blið hlaut suður að vera með tígu-
lásinn en Cedl þótti líklegra að
hann væri blankur og spilaði
tíguláttu að heiman. Norður spil-
aði meira hjarta og suður stakk
upp kóngnum. Hann svissaði síð-
anyfirí spaðagosa sem Cedl drap
á ás og síðan kom tígulkóngur á ás
suðurs (gosi úr blindum). Aftur
kom spaði frá suðri, Cedl dúkkaði
og norður átti slaginn. Þetta var
staðan:
NORÐUR
4 DT9
46
4 -
+ K42
VESTUR AUSTUR
4 K8 4 -
4 - 4 Á8
4 T8763 4 4
4 - 4 ÁT97
SUÐUR
4 4
4 93
4 -
+ DG83
Hér er komin upp sérkennileg
stíflustaða, (ofanritaður leggur tfl
að þetta afbrigði megi kalla tví-
stefnustíflu) og hér þarf meira en
„One-Shot' til að hreinsa and-
rúmsloftið.
Sagnhafi á nú átta slagi með því
að ryðja niður tíglinum en ásamir
í borði eru tfl lítils. Ef sagnhafi fer
inn í blindan á tígulfjarkann þá á
hann ekki afturkvæmt og ef hann
heima er alltaf tapslagur á spaða.
Norður missteig sig hins vegar og
leysti vandamál Cecfls með því að
spila síðasta hjartanu (fannst
spaðagosinn enn úti)og spilið stóð
því slétt. Séra Cecil hlaut því tæp-
lega 80% skor en hefði fengið
núllið ef spilið hefði farið niður.
Rit um precision
Út er komið íslenskt rit, Predsion
- sagnkerfi í bridge - eftir Viðar
Jónsson. Bókin er í kiljuformi, 52
bls. að lengd og fjallar um predsi-
son sagnkerfið eins og nafnið
bendir til. Höfundur hefur skipt
ritinu í þijá hluta: 1. Grunnkerfið.
2. Ýmsar nýjungar og viðbætur. 3.
Predsion norðursins - uppáhalds-
kerfi höfundar. Þá ritar Guð-
mundur Páll Amarson, fyrrver-
andi heimsmeistari, inngangsorð.
Það kann að hljóma undarlega
að hægt sé að fjalla um sagnkerfi
eins og predsion á jafnfáum síð-
um, viðbætur við gmnninn og
sérstaka útfærslu höfundar, þar
sem lögmálin em nokkuð flóknari
en hjá byijendum. Vel hefur þó
tekist til í megin dráttum, engu er
ofaukið og fylgja fyrsta hluta
kversins fjölmörg æfingadæmi
sem nýtast byijendum sérstak-
lega vel. Þeir sem em lengra
komnir fá einnig töluvert fyrir
sinn snúð, sérstaklega í síðasta
hluta bókarinnar sem er forvitni-
legur fyrir margra hluta sakir.
Helsti gallinn á ritinu er prentun-
in, en lesmálið er ekki skýrt og
hefði verið hægt að bæta þar úr án
mikfls tilkostnaðar. Uppsetningin
er skýr og þótt gamlir predsion-
refir kunni að hnjóta við á stöku
stað, er mikill fengur að þessu að-
gengilega riti. Hérlendis hefur
standard-sagnkerfið verið hægt og
rólega að leggja undir sig markað-
inn, en að því kerfi ólöstuðu, hlýt-
ur fjölbreytni í sagnkerfum að
vera af hinu góða fyrir íslenskt
bridgelíf.