Tíminn - 15.07.1994, Side 1
SÍMI
631600
78. árgangur
STOFNAÐUR 1917
Föstudagur 15. júlí 1994
Stakkholti 4
Inngangur frá
Brautarholti
131. tölublað 1994
íslandsmót í hesta-
íþróttum um nœstu
helgi:
Hross
í lyfja-
próf
Keppendur á íslandsmóti í
hestaíþróttum, sem hefst á
mótssvæði Gusts í Kópavogi,
geta átt von á aó hross þeirra
verbi tekin i lyfjapróf. Ef af
verbur, verbur þab í fyrsta
skiptib á hestaíþróttamóti
hérlendis.
Aö sögn Hallgríms Jónassonar,
formanns Gusts, er ekki víst aö
lyfjapróf veröi tekin, en sá
möguleiki sé í myndinni.
Hestaíþróttamenn eru meðlim-
ir í íþróttasambandi íslands, en
lengi hefur staðið til aö fram-
kvæma lyfjapróf í hestaíþrótta-
keppnum í samræmi við reglur
ÍSI. Hallgrímur segir ekkert sér-
stakt tilefni til þess aö þetta
veröi hugsanlega gert nú og
ákvörðunin hafi verið tekin
löngu fyrir landsmót hesta-
manna. ■
* | • f f •• X * S I * f * • TímamyndCS
Kmverskir feröafromuöir / Blaa lonmu
Þeir kunnu oð meta unabssemdir Bláa iónsins, kínversku ferbafrömuburnir, sem komnir eru hingab í skobunarferb íþví skyni ab blása lífi í
skemmtiferbir milli íslands og Kína - í bábar áttir. Sjá vibtal vib hópstjórann, Re Ruchang, á bls. 3
Meirihluta- og minnihlutaeigendur Stöövar 2 hafa ekki efni á aö vera óvinir:
Sættir í sjónmáli innan
íslenska útvarpsfélagsins
Vaxandi líkur eru taldar á
saettum á milli stríðandi
fylkinga innan stjórnar ís-
lenska útvarpsfélagsins eftir
abalfund Sýnar í gær. Eig-
endur Sýnar munu heimila
íslenska útvarpsfélaginu af-
not af útsendingarrás félags-
ins og koma þannig ekki í
veg fyrir ab Stöb tvö geti
skipt um myndlykla. Full-
trúar bæbi meirihluta og
minnihluta innan stjórnar
íslenska útvarpsfélagsins
hafa lýst yfir vilja til sátta.
Það eru sameiginlegir pen-
ingahagsmunir sem valda
Borgarstjórinn í Reykjavík lýsti
því yfir í gær eftir fund í Rábhús-
inu með fulltrúum framkvæmda-
nefndar HM á íslandi að borgin
hefði ekki fjárhagslegt bolmagn
til að standa ein að byggingu nýs
íþróttahúss fyrir heimsmeistara-
þessum sáttahug. Óskar Magn-
ússon, stjórnarformaður Sýn-
ar, segist hafa trú á því að nú
sé að skapast .lag til þess að
unnt verði að vinna að samn-
ingum. Hann segir þó ekki
neinar óformlegar eða form-
legar viðræður á milli minni-
hluta og meirihluta í íslenska
útvarpsfélaginu hafa farið
fram. í sama streng tekur Jón
Ólafsson.
„Ég hef trú á því að samning-
ar náist og mun leggja mig
fram um að svo verði," sagði
Óskar eftir stjórnarfundinn í
Sýn í gærkvöld. „Það vill svo
keppnina. Slík bygging myndi
kosta allt að 400 milljónir. Hins-
vegar myndi meirihlutinn í borg-
arstjóm beita sér fyrir því að
standa veglega við þau fyrirheit
sem borgin hafi gefið í tengslum
við framkvæmd keppninnar.
Óskar Magnússon.
til að eigendur Sýnar eiga stór-
an hlut í íslenska útvarpsfélag-
inu og þeir hafa ekki hag af því
að koma í veg fyrir að mynd-
lyklaskiptin geti farið fram.
Þótt þeir eigi ekki meirihluta
eiga þeir 250 milljónir ab
nafnvirði og kannski 750
milljónir á söluvirði, eða það-
an af meira ef spár um gengi
ganga eftir. Það sjá það allir, að
þab er ekki skynsamlegt af
mönnum sem eiga slíka hags-
muni í húfi, að tefla á tæpasta
vað með þá."
Á aöalfundi sjónvarpsstöðv-
arinnar Sýnar hf. var samning-
ur fyrrum útvarpsstjóra Sýnar
við íslenska útvarpsfélagið
lýstur ógildur. Meirihlutinn í
Sýn telur samninginn óþarfan
og auk þess gerðan í heimild-
arleysi og án samþykkis stjórn-
ar. í honum er verömætasti
hluti Sýnar, útsendingarréttur-
inn, framseldur til íslenska út-
varpsfélagsins til ársloka 1996.
Óskar segir að gerð þessa
samnings hafi verið haldib
leyndri fyrir sér frá því að
samningurinn var gerður fyrir
viku og þar til í gærmorgun.
„Mér var ekki kunnugt um til-
vist hans fyrr en í morgun,"
sagði Óskar í gær. „Það eru
vinnubrögð sem við sættum
okkur ekki vib og við teljum
efni samningsins vera langt út
fyrir öll mörk."
Á fundinum í gær var Gestur
Jónsson lögmaður settur af
sem útvarpsstjóri Sýnar, en í
stað hans kemur Jóhann Óli
Guömundsson, forstjóri Secu-
ritas. Óskar Magnússon var
endurkjörinn stjórnarformað-
ur. Gestur Jónsson situr áfram
í stjórn, en sæti Sveins Jóns-
sonar tók Jóhann Óli Guð-
mundsson. ■
Borgarstjóri um HM hús:
Ekki fjárhagslegt
bolmagn í borginni
Jón Baldvin í vibrœbum
vib evrópska rábamenn:
Talar enn-
þá um ESB-
aðild
Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisrábherra hefur sent
frá sér yfirlýsingu þar sem
hann lýsir miklum von-
brigbum meb ab vibræbur
Rússlands og Eistlands um
brottflutning rússneska
hersins hafi farib út um þúf-
ur. í því sambandi harmar
hann sérstaklega ab Rússar
skuli lýsa því yfir ab þeir
hyggist ekki standa vib fyrri
áætlanir um ab flytja heri
sína á brott fyrir 31. ágúst
1994.
Þá kemur fram í yfirlýsingu
ráðherrans að það sé skoöun
íslenskra stjórnvalda að ríkj-
um heims beri að virða full-
veldi Eystrsaltsríkjanna og að
ekki skuli blanda saman
brottflutningi erlendra herja
frá Eystrasaltsríkjum og
óskyldum málum, svo sem
réttindum rússneska minni-
hlutans í þessum ríkjum.
Loks kemur fram í yfirlýs-
ingu ráðherrans sú von að
rússnesk stjórnvöld endur-
skobi afstöðu sína hiö fyrsta
og geri sitt ítrasta til ab ná
samkomulagi um brottflutn-
ing herja sinna í samræmi við
yfirlýsingar RÖSE og Samein-
uðu þjóðanna. ■