Tíminn - 15.07.1994, Page 8
8
Föstudagur 15. júlí 1994
Hœstaréttar-
húsiö rís
Hér sést hvernig nýja Hœstaréttarhúsiö mun blasa viö vegfarendum sem leggja leiö sína um Hverfisgötu og Arnarhól. Bygging-
arframkvœmdir eru í þann veginn aö hefjast, en Þorsteinn Pálsson dómsmálaráöherra hefur nú ákveöiö aö húsiö skuli rísa aö
baki Safnahússins, gegnt Arnarhváli. Þar meö er botninn sleginn í langvinnar deilur um staöarvaliö, en Ijóst er aö ýmsir þeirra
sem mótmœltu staöarvalinu eru ekki sáttir viö þessi málalok og telja vinnubrögöum dómsmálaráöuneytisins áfátt.
VÍB er nýr
rekstraraðili
Lífeyrissjóðs
Tæknifræð-
insafélaes
íslands
Þessi hópmynd var tekin vib undirskrift rekstrarsamnings Lífeyrissjóbs Tœknifrœbingafélajgs íslands og VÍB. í fremri röb
eru f.v.: Bolli Magnússon, Frosti Bergsson, Bergsteinn Cunnarsson formabur stjórnar LTFI, Sigurbur B. Stefánsson fram-
kvœmdastjóri VIB, og Vilborg Lofts. Standandi á bak vib eru f.v.: Ólafur I. Wernersson, Páll Á. Pálsson, Cubmundur
Fljálmarsson og Gunnar Baldvinsson.
VÍB, Verðbréfamarkabur ís-
landsbanka hf., hefur tekiö
vib rekstri Lífeyrissjóös
Tæknifræðingafélags íslands
frá og meb 1. júlí 1994, skv.
samningi vib stjórn sjóbsins
sem var undirritaöur 10. júní
sl.
Markmiö samningsins er ab
beita markvissum aöferðum viö
ávöxtun fjármuna Lífeyrissjóðs
Tæknifræðingafélags íslands og
minnka rekstrarkostnað. Not-
aöar verða aðferðir við eigna-
stýringu sem byggja á nákvæm-
um mælingum á ávöxtun og
áhættu. Jafnframt er stefnt að
verulegri Iækkun á rekstrar-
kostnaði. Kostnaöur við rekstur
sjóðsins var skv. ársreikningi
10,6 m.kr. árið 1992 og 10 m.kr.
árið 1993. Samningurinn við
VÍB tryggir að rekstrarkostnaður
lífeyrissjóðsins lækkar verulega
og má nefna að kostnaður við
rekstur sjóðsins veröur nálægt
1,5 rn.kr. síðari hluta ársins
1994. í samningnum eru síban
ákvæöi sem tryggja ab kostnað-
arhlutföll lækka eftir því sem
sjóðurinn stækkar. Ef áætlanir
samningsaðila ganga eftir, þá
stefnir í aö heildarkostnaður í
hlutfalli af eignum sjóðsins
minnki verulega og verði 0,18%
árið 1995 og minnki síðan enn
frekar á næstu árum. Til saman-
burbar má nefna að hjá einum
stærsta lífeyrissjóði landsins,
sem oft er notaður sem viðmið-
un vegna stærðar sinnar, var
þetta hlutfall 0,18% árið 1992.
Skrifstofa og afgreiðsla Lífeyris-
sjóös Tæknifræöingafélags ís-
lands hefur verið flutt að Ár-
múla 13a og geta sjóðfélagar og
aðrir, sem eiga erindi við sjóð-
inn, snúið sér þangað. Formað-
ur stjórnar er Bergsteinn Gunn-
arsson og framkvæmdastjóri er
Gunnar Baldvinsson. Stjórn líf-
eyrissjóbsins vill koma á fram-
færi þökkum til fyrri rekstraraö-
ila, Sigurðar Georgssonar hrl.,
fyrir störf í þágu sjóðsins.
VÍB rekur nú sex lífeyrissjóöi
og eru fimm þeirra séreigna-
sjóbir en einn sameignarsjóbur.
Aætlað verðmæti eigna lífeyris-
sjóða í rekstri hjá VÍB 1. júlí
1994 er um 3,3 ma.kr. Fjöldi
þeirra, sem eiga aöild að þessum
sjóbum, er rúmlega 3000.