Tíminn - 05.08.1994, Side 3
Föstudagur 5. ágúst 1994
3
Negldu
fyrir hurð
nágrannans
Lögreglan í Reykjavík var köll-
uö að húsi við Baldursgötu í
gærmorgun. íbúi hússins til-
kynnti að hann heyrði skot-
hvelli við dyr sínar. íbúinn
hafði átt í útistöðum við ná-
granna sína, sem er þekkt
drykkjufólk, að sögn lögreglu.
Menn úr sérsveit lögreglunnar
fóru á vettvang, ásamt öðrum
sem voru á vakt. Eftir stutt um-
sátur um húsið kom fólkið út
og var það handtekið á staðn-
um, alls sjö manns. í ljós kom
aö skothvellirnir komu frá
naglabyssu en fólkið hafði
neglt aftur hurð hjá nágranna
sínum með henni. Lögreglan
hefur ítrekað þurft að hafa af-
skipti af íbúum hússins. ■
Veiöiþjofar
á Subur-
nesjum
OJÚPtiVW
■. *
'■ : íi!;*- tíál nWPlBj wpffafep aIHÉIHh Ul fll
m, ; M !!§ f$|$ $jj||
SiflMsSftSsl Élfe! 81
Tímamynd GS
Kyrrlátt kvöld viö fjöröinn
Nokkrir smábátar eru þab eina sem er eftir af ibandi athafnalífi, sem var á Djúpavík á Ströndum fyrir nokkrum áratugum. Þar er reyndar
rekiö hótel allt áriö, en trillukarlarnir eru sumargestir eins og farfuglarnir.
Kvartaö yfir lélegu skipulagi á Nordisk Forum:
„Hér ríídr hálfgert kaos!"
Veiðieftirlitsmenn óskuðu að-
stoðar lögreglunnar í Keflavík í
aðfaranótt þriðjudags eftir að
þeir höfðu fundið ólögleg laxa-
net í Helguvík og Hrafnkels-
staðavík. í Helguvík fannst eitt
net og í því var einn lax en í
Hrafnkelsstaðavík voru netin
tvö og aflinn þrír laxar. Lög-
reglan tók netin í sína vörslu en
ekki er vitað með vissu hverjir
voru þarna aö verki. ■
Karlmaöur
sýnir
útsaum
Sýning Kristins G. Harðarsonar
í Galleríi Sævars Karls við
Bankastræti verður opnuð í dag
kl. 16. Á sýningunni sýnir
Kristinn sjö útsaumsverk sem
hann hefur saumað á undan-
förnum þremur árum. ■
„Hér á Nordisk Forum hefur
ríkt hálfgert Kaos að undan-
förnu og konur eru almennt
óánægðar með skipulagning-
una." Þannig byrjar símbréf
sem Tímanum barst í gær frá
íslenskum konum á kvenna-
rábstefnunni í Turku í Finn-
landi. Starfsmaður Nordisk
Forum í Finnlandi segir hins
vegar ab íslensku konurnar lesi
einfaldlega ekki dagskrána.
Konurnar segja að dagskránni sé
dreift í fjölmörg hús, sem erfitt sé
að finna þótt kort séu notuö.
Húsin séu líka illa merkt og
nokkuð sé um að fyrirlestrar séu
fluttir á milli húsa með skömm-
um fyrirvara. Konurnar kvarta
einnig yfir því aö fyrirlestrar hafi
fallið niður því fyrirlesarinn
mætti ekki. Upplýsingaflæöi um
þingsvæðið er ábótavant að mati
kvennanna og sama ábending
kemur fram í Fomm Avis, blaði
sem er gefið út daglega meðan
ráðstefnan stendur yfir, frá því á
þriöjudaginn. íslensku konurnar
segjast t.d. hafa beðið eftir fyrir-
lestri Steinunnar Óskarsdóttur,
sem síðar kom á daginn að haföi
verið aflýst fyrir löngu án þess aö
boö um það hefðu komist til
skila.
í bréfinu frá íslensku konunum
segir að enginn viröist bera
ábyrgö á því sem betur mætti
fara. Þeim sé sagt að brosa að erf-
iðleikunum eða bent á einhvern
annan.
í fyrrnefndu tölublaði Fomm
Avis er einnig talað um að mis-
brestur hafi orðið á því að konur
hafi fengið þátttökukort sem þær
eiga að bera allan ráðstefnutím-
ann og veitir þeim aðgang að
dagskránni og ýmsa aðra þjón-
ustu.
Tíminn Ieitaði til Margrétar
Halldórsdóttur, starfsmanns
Nordisk Fomm í Finnlandi, til aö
fá skýringar á ofangreindu. „Ég
held að íslensku konurnar hafi
einfaldlega ekki kynnt sér dag-
skrána. Allar breytingar sem
verða á henni em síðan tilkynnt-
ar í Fomm Avis sem kemur út
daglega. Það geta allir nálgast
Fomm Avis á upplýsingaborðum
sem em hér út um allt. Ég hef tal-
aö við nokkrar konur sem hafa
veriö að kvarta og þá kemur í ljós
að þær hafa ekki opnað möpp-
una með dagskránni þar sem þær
hafa kort yfir svæðið og sagt er
frá því sem er á dagskrá. Það er
rétt að það vom ekki tilbúin þátt-
tökukort fyrir allar konurnar
fyrsta daginn en skýringin á því
er sú að margar íslensku kvenn-
anna tilkynntu um þátttöku á
síðustu stundu. Við áttum ekki
von á þessum mikla fjölda."
Margrét segir að vissulega sé
eitthvað sem megi betur fara á
svo fjölmennri ráðstefnu en mið-
að við fjöldann sé skipulag henn-
ar gott. „Auðvitab em einhverjar
óánægðar og hafa kannski
ástæðu til þess en ég held að
meirihlutinn sé ánægbur. Konur
sem em vanar að sækja ráðstefn-
ur em almennt á því að skipulag-
ið hér sé gott miðað við stærb
rábstefnunnar," segir Margrét
Halldórsdóttir. ■
Niöurstaöa um HM-höll veröur aö nást á allra nœstu dögum:
Arkitektar teikna
upp á von og óvon
VISA-ísland:
Föxuöu fjölmiðlum
lista yfir úttektir
Ekki liggur enn fyrir hvort
smíbi íþróttahúss fyrir HM í
handknattleik á næsta ári
verbur ab veruleika. Embættis-
menn borgarinnar og fulltrúar
Electolux fundubu um málib í
gær og halda því áfram í dag.
Borgarlögmabur segir ab málib
verbi ab skýrast fyrir næsta
þribjudag.
Hjörleifur Kvaran borgarlög-
maður segir aö fulltrúum Elect-
olux hafi verið afhent skýrsla
borgaryfirvalda um hvernig hús-
ib ætti ab líta út og hvað þyrfti
nauðsynlega að vera í því. Þeir
séu nú að reikna út hvað kosti ab
reisa slíkt hús og um leið sé hald-
ib áfram að ræða ýmsa mögu-
leika um rekstur þess. „Menn
hafa veriö að kasta á milli sín
upplýsingum og nú er boltinn í
raun hjá bábum aðilum. Fulltrú-
ar Electrolux þurfa að meta hvab
það kostar þá ab reisa húsiö og
borgaryfirvöld ab reikna út hugs-
anlegar rekstrartekjur þess. Þab
er einnig verið að ræða um sam-
nýtingu á þessu húsi og Laugar-
dalshöll."
Hjörleifur sagðist í gær eiga von
á ab áfram yrði fundað um málið
í dag. Hann segir að niðurstaða
muni jafnvel fást fyrir helgi en í
síðasta lagi fyrir næsta borgar-
ráðsfund á þriðjudag. Hann segir
ab ef samkomulag náist um
bygginguna eigi málið ab geta
gengið hratt fyrir sig eftir það.
„Af því að hver dagur er mjög
dýrmætur í þessu er búib að rába
arkitekta sem vinna ab tillögu ab
uppdrætti ab húsinu, upp á von
og óvon. Þab stendur til ab
kynna tillöguna fyrir skipulags-
nefnd á mánudaginn og ef afráð-
ið veröur ab rábast í bygginguna
verður hún kynnt
bygginganefnd á fimmtudag-
inn. Þetta er gert til ab spara tíma
enda hann orðinn naumur."
I kjölfar frétta um vandamál
tengd notkun debetkorta er-
lendis, sendi VISA-ísland til
fjölmibla lista yfir tæplega 50
úttektir viöskiptavina meö
VISA Electron debetkortum í
Hollandi í síöasta mánuöi.
Þar kemur fram dagsetning og
tímasetning úttektar, upphæð í
íslenskum krónum, númer á
viðkomandi debetkorti, nafn
búðar, banka eba viðskiptaaðila,
sem tekur við greiðslunni er-
lendis, og í hvaða borg kortið er
notað. Þannig er ekki einungis
kortanúmer viökomandi gefið
upp heldur einnig í hvaða versl-
un hann notaði kortið og klukk-
an hvað.
Að sögn Leifs Steins Elíssonar,
hjá VISA-íslandi eru númerin á
debetkortunum ekki þrykkt í
kortið sjálft, þannig ab jafnvel
korthafi veit ekki númer hvab
kortið hans er. Þannig sé ekki
eingöngu hægt að nota korta-
númer líkt og með kreditkortin.
Leifur Steinn segir ab listinn
sem sendur var fjölmiðlum hafi
ekki verið ætlabur til birtingar
heldur til staðfestingar á að
hægt væri ab nota kortin. „Það
er auðvitað ekki ætlast til ab
þetta sé birt í neinum blöbum
eða slíku, heldur til þess að
sannfæra blaðamanninn um
þab, að við erum að fara með
rétt mál. Við emm bara að
styrkja málflutning okkar,"
sagði Leifur Steinn.