Tíminn - 10.08.1994, Qupperneq 6

Tíminn - 10.08.1994, Qupperneq 6
6 Mi&vikudagur 10. ágúst 1994 SiuwtMta SELFOSSI D) DAGBLAÐ AKUREYRI UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM Naubungarsölur Arnessýslu langflestar í Hveragerbi Af sveitarfélögum í Árnessýslu voru langflestar nauöungarsölur í Hveragerði á tímabilinu októ- ber 1992 til 1. júlí sl. samkvæmt upplýsingum frá embætti sýslu- mannsins á Selfossi. Athygli vekur hins vegar hversu fáar nauöungarsölur áttu sér stað á Selfossi á tímabilinu. Alls voru 25 eignir seldar í Hveragerði á nauðungarupp- boði á þessum tíma, þar af 20 íbúðir og fimm eignir sem falla undir atvinnuhúsnæði. Á Sel- fossi voru hins vegar aðeins fimm eignir seldar á nauðung- aruppboði; fjórar íbúöir og eitt atvinnuhúsnæði. Stöng í Þjórsárdal: Vibgerbir á yngstu skála- rústinni I.okið var við fyrsta hluta við- gerða á yngstu skálarústinni á Stöng í Þjórsárdal þann 10. júlí sl. en í vetur og í vor hafa Víg- lundur Kristjánsson hleðslu- maður og aðstoðarmaður hans lagað hleðslur rústarinnar á vegum Þjóðminjasafns íslands. Síðar í ár og á næsta ári veröa endurbætur á skýlinu yfir rúst- inni og reynt aö koma endan- lega í veg fyrir þann leka sem valdið hefur mestum skemmd- um á minjunum. Tveir útlendir kaupamenn fengu far meb forseta íslands „Viö þekktum hana ekki strax en mér fannst hún mjög kunn- ugleg. Það var ekki fyrr en hún var búin að spyrja okkur í þaula um hvaðan við værum og hvað við gerðum að við spuröum hana viö hvaö hún ynni og okkur dauðbrá þegar hún sagð- ist vera að undirbúa komu þjóð- höfðingja í tengslum við 17. júní." Þetta sögðu þeir Holger Lange frá Þýskalandi og Morten Eg- holm frá Danmörku sem voru svo heppnir að fá að fara með sjálfum forseta íslands, frú Vig- dísi Finnbogadóttur fyrr í sumar. Forsetinn tók þá félaga upp í bíl sinn á miðri Hellisheiðinni fyrir skömmu. Vigdís var þá á leið upp í Hrunamannahrepp og þeir voru aö reyna að húkka sér far sömu leib í ausandi rign- ingu. „Hún sagði að þetta væri í fyrsta skipti sem hún gerbi þetta og raunar miskunnaði hún sig yfir okkur vegna þess hve veðrið var vont," segir Hol- ger. Báðir eru þeir félagar við kaupamennsku í Hrunamanna- hreppi, annar í Ásatúni en hinn í Syðra- Langholti. „Hún skutl- aði okkur meira að segja alla leið heim á hlab að lokinni eft- Félagarnir Morten Egholm frá Danmörku t.v. og Holger Lange frá Þýskalandi sem fengu far meö forseta íslands austur yfir fjall. irminnilegri ferð. Við stoppuð- um m.a. í Eden í Hveragerði og þar starði fólk auðvitaö á forset- ann sinn, með tvo síöhærða út- lendinga í eftirdragi, ekki beint þeir lífverðir sem ætla mætti að væru við hlið hennar," sagði Morten. Báðir sögðust þeir hlakka mik- ið til ab segja vinum sínum ytra frá þessari óvæntu en jafnframt ánægjulegu lífsreynslu sinni. „Hvergir nema á íslandi er þetta hægt," sögðu Morten og Holger og lýstu yfir ánægju sinni meö land og þjóð. Vilhelm Þorsteinsson meö 25 punda fiskinn, sem hann veiddi í Höföahyl. Skíbamaburinn setti í 25 punda hæng Vilhelm Þorsteinsson, skíða- maburinn góbkunni frá Akur- eyri, gerbi sér lítib fyrir á dög- unum og dró upp úr Laxá í Að- aldal 25 punda hæng. Laxinn veiddist á 20 gramma svartan Toby. Vilhelm setti í þann stóra í Höfðahyl, á Núpasvæðinu við Laxá. Hann tók duglega í og veitti ekkert af abstoð föður Vil- helms, aflaskipstjórans Þor- steins Vilhelmssonar, við að koma flykkinu á land. „Ég hafði misst svakalegan bolta á þessum stað og það er spurningin hvort það var sami fiskurinn," sagði Þorsteinn Vil- helmsson. Laxinn er í hópi al- stærstu laxa sumarsins sem hafa komið upp úr Laxá í Aðaldal. Fimm ættlibir á Akureyri Þab er ekki á hverjum degi sem fimm ættliðir koma saman en slíkt átti sér staö í skírnarveislu á Akureyri 16. júlí sl. og var meðfylgjandi mynd þá tekin. Lengst til vinstri á myndinni er Sigurrós Kristinsdóttir, 93 ára, fædd árið 1901, með Þorra Birgisson en hann fæddist 20. júní sl. Við hlið Sigurrósar er dóttir hennar, Hulda Ásgríms- dóttir, 60 ára að aldri, fædd 1934. Dóttir hennar, Linda Hrönn Ragnarsdóttir, er 39 ára gömul, fædd 1955. Sonur Lindu Hrannar, Birgir Þór Júlíusson (lengst til hægri) er fæddur 1972, 22ja ára. Hann er fabir skírnarbarnsins, Þorra litla sem er í höndum Sigurrósar langa- langömmu. Sigurrós Kristinsdóttir fæddist á Gili í Öxnadal en lengst af bjó hún á Hálsi í Öxnadal. Afkom- endur Sigurrósar munu nú vera 74 talsins. I l.l.l \ I . I: V ilm 600 erlendir áskrifendur aö Eiöfaxa International: Eiöfaxi auglýst- ur erlendis innan tíðar Alþjóðleg útgáfa hestatímarits- ins Eiöfaxa gengur vel að sögn framkvæmdast jórans Gyðu Hrannar Gerðardóttur. Um 600 nýir erlendir áskrifendur hafa bæst við, en innan tíðar verður byrjað að auglýsa útgáfuna í er- lendum tímaritum um íslenska hestinn. Forsvarsmenn Eiðfaxa réðust í aö gefa blaðið út á þýsku og ensku í sumar. Alþjóðlega útgáf- an kemur út fjórum sinnum á ári, en íslenska útgáfan kemur mánöarlega út. Enn sem komib er er tap af þessum rekstri, en Gyða Hrönn segir að gert hafi verið ráð fyrir tapi á þessu ári í áætlunum. Vonast er eftir góð- um viðtökum þegar blaöið verb- ur auglýst erlendis, en stærsti markhópurinn fyrir útgáfu af þessu tagi er í Þýskalandi þar sem íslenskir hestar eru um það bil jafn margir og hér heima. Alþjóðlega útgáfan, Eiðfaxi International, var fyrst kynnt á landsmóti hestamannafélaga á Hellu fyrir rúmum mánuði síö- an. ■ Ríkisstjórnin samþykkti aö fela Háskólanum á Akur- eyri aö kanna þarfir matvœlaiönaöarins: Geri tillögur um menntun vinnuafls í matvælaiðnaöi Fjölbreytni í matvælaiðnaði á Eyjafjarðarsvæðinu annars veg- ar og sterkar menntastofnanir hins vegar gera það, að mati ríkisstjórnarinnar, mjög fýsilegt að hefja þar tilraunir til aö bæta úr mjög slakri stöðu í verkmenntun fólks í matvæla- ibnaði hér á landi. Ríkisstjórnin hefur því samþykkt að starfs- fræðsla í matvælaiðnaði skuli efld á Eyjafjaröarsvæðinu og að Háskólinn á Akureyri skuli í því skyni hefja skipulegt samstarf við rannsóknarstofnanir í upp- hafi næsta árs. Háskólanum á Akureyri er faliö að kanna þarf- ir matvælaibnaðarins á Eyja- fjarðarsvæðinu fyrir menntað vinnuafl og gera tillögur um hvernig nýta megi skóla og stofnanir á svæðinu til eflingar matvælafyrirtækjanna. Ráðuneytum menntamála, landbúnaðarmála, iðnaðar og sjávarútvegs er ætlað að leggja fram fé til þessa verkefnis auk þess sem ætlunin er að leita eft- ir fjármagni hjá fyrirtækjum og stofnunum á Eyjafjarðarsvæb- inu. Áætlað er að matvælafyrirtæki í Eyjafirði velti rúmlega 14 milljörðum króna og hafi hátt í 2 þúsund manns í vinnu. Er verkmenntun í þessum iðnaði hverfandi og þjálfun starfs- manna að mestu í höndum fyr- irtækjanna sjálfra. Ab mjólkur- iönabinum einum undanskild- um er hlutfall verkmenntabra í matvælaframleiðslu afar lágt hér á landi. íslensk fyrirtæki hafa að þessu leyti slæma stöbu gagnvart samkeppnisríkjunum. I nágrannalöndunum er meg- inþorri starfsmanna í matvæla- iðnaði með verkmenntun. Breytingar á verkmenntamál- um og aðlögun verkmennta- stofnana að þörfum ibnaðarins, hið allra fyrsta, er því talin brýn nauðsyn til að bæta stöðu íslensks iðnabar í alþjóðlegri samkeppni á matvælamarkaði. Skilningur á þessu fer mjög vaxandi innan fyrirtækjanna. Að mati ríkisstjórnarinnar er nú þegar fyrir hendi í Eyjafirði góður efniviður til samstarfs. Verkmenntaskólinn á Akureyri sé fjölmennur og öflugur og þar sé vilji til að fara inn á mat- vælasvið. Undir hans stjórn starfi fiskvinnslubrautin á Dal- vík. Háskólinn á Akureyri og samstarfsstofnanir hans, Rann- sóknarstofnanir fiskiðnaðar og landbúnaðar ásamt Iöntækni- stofnun og Hafrannsóknar- stofnun gætu verið meginhluti af hugsanlegri matvælastofn- un. ■ Sýslumaöur í Reykjavik skorar á erfingja aö gefa sig fram: Lýst eftir tyndum erflngjum erlendis Skorað er á tvo íslendinga bú- setta erlendis að vitja arfs frá látnum ættingjum í nýlegu Lög- birtingarblaði. Talsmaður sýslu- manns í Reykjavík vildi ekki tjá sig um einstök tilfelli en segir ekki algengt að auglýst sé eftir erfingjum á þennan hátt. í báðum tilfellum er skiptum á dánarbúum sagt lokið og skorað á viðkomandi erfingja að gefa sig fram. Þeir eru Sigmundur Guðmundsson, f. 27. nóvember 1953, síöast sannarlega búsettur í Bandaríkjunum og Reynir Ár- sælsson, f. 19. des. 1944, síðast sannarlega búsettur í Dan- mörku. Annars vegar er um dótturson þess látna að ræða og hins vegar um systurson hinnar látnu. Þeim Sigmundi og Reyni er gef- inn tíu ára frestur frá birtingu auglýsingarinnar til þess að vitja arfsins. ■ » I ii » »1 M.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.