Tíminn - 27.08.1994, Síða 4
4
Pwitw
Laugardagur 27. ágúst 1994
STOFNAÐUR 1 7. fylARS 1 91 7
Utgáfufélag: Tímamót hf.
Ritstjóri: Jón Kristjánsson
Ritstjórn og auglýsingar: Stakkholti 4, 105 Reykjavík
Inngangurfrá Brautarholti.
Sími: 631600
Símbréf: 16270
Pósthólf 5210, 105 Reykjavík
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans
Prentun: Prentsmibja
Frjálsrar fjölmiblunar hf.
Mánabaráskrift 1400 kr. m/vsk. Verö í lausasölu 125 kr. m/vsk.
Hin nýja ógn
Stríðshætta hefur í gegnum tíðina ógnað
öryggi þjóða, og sagan er vörðuð grimmi-
legum styrialdarátökum. Þrátt fyrir stað-
bundin átök víða í veröldinni, hefur slakn-
að á spennu og risaveldi heimsins standa
ekki lengur hvort andspænis öðru með
fingurinn á gikknum.
Þrátt fyrir þessar staðreyndir er ljóst að ný
ógn steðjar að, en það er skipulögð glæpa-
starfsemi sem ógnar öryggi borgaranna og
skekur heilu þjóðfélögin eins og dæmi eru
um á Ítalíu.
Skelfilegasta hættan sem steðjar að í al-
þjóðlegri hryðjuverka- og glæpastarfsemi
er að þau samtök sem athafnasömust eru á
þessu sviði komist yfir efni til þess að fram-
leiða kjarorkuvopn. Pólitísk upplausn og
efnahagserfiðleikar geta aukið hættuna á
því að hryðjuverkahópar komist yfir
hættulegri vopn en nokkru sinni fyrr.
Þessi nýja ógn er áþreifanleg til dæmis í
Rússlandi þar sem mafíustarfsemi hefur
skotið rótum á undra skömmum tíma. Það
hefur sýnt sig þar sem glæpastarfsemi hef-
ur náð tökum að angar hennar vilja teygja
sig inn í ákVarðanatöku í stjórnkerfinu.
Bandarískt þjóðfélag hefur ekki farið var-
hluta af glæpastarfsemi sem ógnar öryggi
borgaranna. Ástæðurnar eru af mörgum
rótum, ekki síst fátækt og misrétti.
Það er góðs viti að öldungadeild Banda-
ríkjaþings hefur nú samþykkt löggjöf sem
auðveldar baráttu gegn glæpastarfsemi í
þjóðfélaginu. Þetta verður að telja sigur
fyrir Clinton Bandaríkjaforseta sem þarna
hefur fengið löggjöf samþykkta um um-
bætur í innanríkismálum. Það mun áreið-
anlega verða fylgst vel með því hvaða ár-
angur þessi löggjöf ber, því að ef hann
verður áþreifanlegur getur það haft áhrif
langt út fyrir landamæri Bandaríkjanna.
Það skal þó haft í huga að löggjöf ein og
sér um baráttu gegn glæpum skiptir ekki
sköpum. Þjóðfélagslegar umbætur eru
þungar á metunum í þessu tilliti. Víta-
hringur fátæktarinnar greiðir leiðina fyrir
glæpaforingjana að almenningi. Traustir
og lýðræðislegir stjórnarhættir og virðing
fyrir einstaklingum eru einnig þungir á
metunum, sem vörn gegn upplausn og
ójöfnuði.
Glæpa- og hryðjuverkastarfsemi er hin
nýja ógn sem steðjar að samfélagi þjóð-
anna. Hér þarf hið alþjóðlega samfélag að
bregðast við með trúverðugum hætti. Lög-
gjöf Bandaríkjaþings virkar vonandi sem
hvatning í þessum efnum.
Oddur Ólafsson skrifar:
Vingultrú efnishyggjunnar
Trú og trúgirni eiga upp á pall-
boröið í síðsumarumræöunni.
Einn af fjölmörgum sjónvarps-
prédikurum Ameríku gerði stutt-
an stans í Hafnarfirbi og framdi
þar kúnstir í nafni drottins og
hvarf síðan til síns heima að
boba trú sína og gefa sjúkum og
þjábum von um betri tíð í þessu
jarðlífi. Síðan vitna menn og
deila um kraftaverk í Kaplakrika
og sýnist sitt hverjum.
I fréttaviðtali vib Tímann varar
formaður Prestafélags íslands
fólk við vingultrúarmönnum ab
gefnu tilefni. Orörétt sagði séra
Geir Waage: „Það er allt fullt af
vingultrú og vingultrúarmönn-
um í okkar samtíð. Þeir eru yfir-
leitt eins og önnur stundarfyrir-
bæri en geta verib býsna hættu-
legir ef þeir koma ár sinni vel fyr-
ir borð. Postulinn Páll bað menn
að prófa andana sem þýðir að
þab er ekki allt gott og gilt þótt
það sé boðið fram í nafni Krists."
Einkaréttur
Hér talar þjóökirkjunnar þjónn
eins og honum er skylt og vafa-
laust samkvæmt eigin sannfær-
ingu. Rétt er það að vingultrúin
á sér sterk ítök í samtíbinni en
hvort hún einkennist eingöngu
af því hvernig kristindómurinn
er túlkaður er álitamál. Mörg eru
þau trúarbrögb og bábyljurnar
sem gera Krist ekki ab inntaki
trúar og skoðana, þótt hann sé
fyrirferbarmikill í hugmynda-
heimi hins svokallaða kristna
heims.
Hin evangelísk- lúterska þjób-
kirkja hefur átt eins konar einka-
rétt á réttri útleggingu trúarinn-
ar hér á landi um aldir og varbist
Iengi vel gegn þeim viðhorfum
sem brutu gegn opinberum rétt-
trúnaði. En satt best að segja
sýnist leikmanni ab blessabir
gubsmennirnir hafi átt sér margs
konar trúarbrögb og túlkuðu þau
hver eftir sínu nefi.
Snemma var fariö að vara vib
vingultrúarmönnum. Á ofan-
verðri öldinni sem leið voru
mormónatrúboðar gerðir burt-
rækir úr sóknum og hundum
sigað á þá. Til voru svo staðfastir
prestar að þeir töldu nýguðfræð-
ina upprunna í nebra. Þegar kaþ-
ólskir óskuðu eftir að fá að reisa
og reka spítala í sjúkrahúsalausu
landi var rétttrúnaðurinn því
mjög mótfallinn. En sú trúar-
lega hugmyndafræði sem hristi
óþyrmilegast upp í gróinni þjóð-
kirkju af konungs og guðs náð
var fram borin af vígðum gub-
fræðingum. Á fyrstu áratugum
aldarinnar brast spíritisminn á
og nokkru síðar guðspekin. Upp
úr því mélinu lenti gubskristnin
á fjárlögum þar sem bændur
voru farnir að tregast vib að skila
prestslömbunum klerkum til
framfærslu.
Hrærigrautur
Fátt er nýtt undir sólinni og nú
ríður yfir fyrirbæri sem postular
og fylgendur kalla nýaldarstefnu
og er skrýtinn hrærigrautur af
spíritismanum gamla og guð-
speki með hæfilegum skammti
af hindúisma og stjörnuspeki
upp á gamlan mób. Kristallar og
segulmagnab skraut dregur
vonda vessa úr kroppunum og
kraftbirtinga er vænst af jöklum
ofan.
Þab má með sanni segja ab við
lifum á upplýstri öld.
í trúarbragðaflórunni eru heil-
agsandahopparar sem skemmta
sjálfum sér og öðrum með sín-
um guörækilegu iðkunum, trú-
menn sem leggja Krist og Mó-
hameö að jöfnu og jafnvel
áhangendur gamla Jahve sem
vita upp á hár hverjir verða
hólpnir og hverjir ekki í eilífð-
inni.
Ekki er nema von að formaður
Prestafélags íslands hafi áhyggj-
ur af vingultrú, en helsta vörn
þjóðkirkjunnar er að reisa fleiri
og stærri guðshús, sem öll eru
með nýaldarsniöi.
✓
I
tímans
rás
Trúgirnin
Trúgirni nútímans nær til
margra þátta annarra en þeirra
einna sem varða sköpun jarðar
og manna og eilífa velferð þeirra.
Stjórnmálaöfl og hugmynda-
fræði þeirra eru þau trúarbrögð
sem valdib hafa aldahvörfum ár-
hundraðarins. Rétttrúnabur al-
ræðisafla heltók hugi manna svo
að þeir trúðu ab svart væri hvítt
og hvítt svart. Stórstyrjaldir,
fjöldamorb og útrýming þjóba
voru þau meðöl sem helgubu til-
ganginn.
Trúarbragðastyrjaldir fyrri alda
blikna í samanburði við hug-
myndafræðistríð þessarar aldar.
Þegar trúarsannfæring er komin
á þab stig ab allt sé til vinnandi
að veita henni brautargengi er
hún orðin stórhættuleg, og á
ekkert skylt við vingulshátt, síb-
ur en svo. Því skaöar ekkert þótt
frækornum efans sé sáb í trúaðar
sálir og að bókstarfstrú í hvaða
mynd sem hún birtist þarf ekki
endilega ab vera merki um lof-
lega staðfestu. Það er í góðu lagi
að menn prófi andana, eins og
haft er eftir postulanum Páli.
Galdrar nútímans
Kraftaverk og trúgirni haldast í
hendur og því er gjarnan haldið
fram að fólk vilji láta blekkjast
og því sé aubvelt fyrir slynga
menn og óskammfeilna að spila
á trúgirnina og vingultrúna.
Lítum á kraftaverk auglýsing-
anna. Því er pressað inn í kollinn
á manni aö tiltekin fæðutegund
geri kraftaverk fyrir heilsu og
aldur manna. Ropvatnsdós gerir
sama gagn og flóknar galdra-
kúnstir áður fyrr til ab strákur
nái ástum stelpu. Barn hættir al-
veg ab pissa á sig og gera stórt,
abeins ef rétt bleiutegund er not-
ub. Rétt andlitskrem veitir eilífa
æsku. Nýja vísindalega olían
bætir þúsund hestöflum við vél-
arkraftinn í bílnum þínum. Rétt
valin sparnaðarform eða skulda-
bréfakaup eru skollabuxur nú-
tímans. í þeim streyma að
manni peningar.
Eilíf æska, heilbrigði, hamingja
í ástum og ríkidæmi er þab sem
auglýsingarnar lofa okkur, sem
er nákvæmlega það sama og
seiðskrattar fortíðarinnar seldu
sál sína til að öðlast eða útvega
öðrum. Að svona boðskapur,
einfaldur og asnalegur, skuli ná
tilgangi sínum sýnir ab fólk trúir
því sem það vill trúa eða er svo
veiklundaö og gagnrýnislaust að
hægt er að telja því trú um næst-
um hvað sem er sé réttum með-
ölum kunnáttusamlega beitt.
Hjátrúin
Hjátrú forfeðranna er sumum
undrunarefni en hún lifir enn
góbu lífi eins og alþekkt dæmi
sanna. Þar við bætist í nútíman-
um átrúnabur á marga guði og
frelsara og aðferðir til að verða
sáluhólpinn hérna megin grafar
og í öbrum heimum.
Hugmyndafræbi alræðisins eru
einhver ömurlegustu trúarbrögb
aldarinnar og var enginn vin-
gulsháttur á handatiltektum
þeirra sem á hana trúðu þegar
þeir bobuðu sinn nýja sið meb
þeim meðölum sem þeir réðu yf-
ir, sem mestmegnis voru vopn
og bombur og fangabúðir og svo
auðvitaö óskeikular postillur
sem lærisveinar lögðu út af um
öll foldarból.
Ein af trúarsetningum núaldar
er að framfarir og menntun séu
tímanna tákn og að upplýsingin
sé meiri og betri en áður eru
þekkt dæmi um í sögu manns-
andans. Hvort þessi opinbera trú
þolir gagnrýni leyfist manni að
efast um.
Víðsýni eba trúgirni
Enn skal vitnað í viðtal við séra
Geir: „Ég áset mér allan rétt til að
vara menn viö á þessari trú-
gjörnu öld sem við lifum, þegar
menn eru galopnir fyrir öllum
andlegum hlutum en lítið gagn-
rýnir á það sem að þeim er bor-
ið."
Trúgjörn og gagnrýnilaus öld er
áreiðanlega rétt lýsing á aldarfari
og hugarheimi þeirra sem telja
sig betur menntaba og fordóma-
lausari en stritandi formæður og
óskólagengnir forfeður.
Kannski má kalla það víðsýni
að taka upp mörg gömul trúar-
brögð samtímis og ná lífsryþma í
takt vib tíbni bergkristals og bíða
þess að Bárður Snæfellsás labbi
sér niður jökulhettur. En sumir
kunna ab ætla svona hegðan hé-
giljur.
Kraftaverkalækningar í Kapla-
krika eru aðeins angi af þeim
hugarheimi sem við hrærumst í.
Þjóbkirkjan kann að veita svör
við öllum spurningum og þjónar
hennar hafa postullegt umboð
til ab þekkja og kenna allt um
hulda heima.
Hitt er víst að á öld efnishyggju
þar sem jagast er um peninga og
eftirsóknarverðan lífsstíl lenda
þau hin andlegu verðmætin í
glatkistunni og þeim sinnir eng-
inn. Að minnsta kosti ekki á full-
nægjandi hátt.
Trúgirni, hjáfræbi og bábyljur
er sú andlega eybimörk sem
taumlaus efnishyggja og afvega-
leidd hugmyndafræbi lætur eftir
sig. Skólaganga og menntun þarf
ekki að vera hið sama, og leit-
andi mannsandinn lendir á alls
kyns villigötum.
Vingultrú og rökleysur eru þeg-
ar allt kemur til alls eblileg af-
leibing óupplýstrar og gagnrýn-
islausrar aldar. m