Tíminn - 27.08.1994, Blaðsíða 18

Tíminn - 27.08.1994, Blaðsíða 18
15 Laugardagur 27. ágúst 1994 Magbalena Gublaugsdóttir Fædd 6. sept. 1902. Dáin 22. ágúst 1994. Magðalena Guðlaugsdóttir var fædd 6. sept. 1902 að Efri- Brunná í Saurbæjarhrepp, Dal. Foreldrar hennar voru: Guð- laugur Guðmundsson, bóndi þar og síðar á Bakka og Kletti í Geiradal, og k.h. Sigurlína t MINNING Guðmundsdóttir, bónda og sjóm. á Drangsnesi. Tók ljós- mæðrapróf frá LMSÍ 27. júní 1925. Ljósm. í Bæjarhreppsum- dæmi 1925-1929, 1938, 1948- 1952, Óspakseyrar- og Fells- hreppsumdæmi ásamt annarri 1932-1940 og 1946-1953 og Staöarhreppsumd. í V.-Hún. 1948- 1950. M. 20. okt. 1928 Magnús búfræðingur og bóndi á Þambárvöllum, f. 18. júní 1905, Kristjánsson b. s. st. Helgasonar og k.h. Ástu M. Ól- afsdóttur frá Þórustöðum. Magðalena og Magnús eignuð- ust þrjú börn. Þau eru: Erla, f. 14. jan. 1931, ógift, búsett heima á Þambárvöllum; Ásgeir, f. 18. júlí 1932, bifreiðastjóri á Akureyri, kvæntur Sigríði Ól- afsdóttur, eiga þau þrjú börn; Sigrún, f. 20. okt. 1941, kaupfé- lagsstjóri á Óspakseyri, gift Sveini Eysteinssyni, b. á Þamb- árvöllum, eiga þau fjögur börn. Útför Magðalenu veröur gerð frá Hólmavíkurkirkju kl. 2. e.h. í dag. Jarðsett verður i heima- grafreit að Þambárvöllum. Mágkona mín, Magðalena Guðlaugsdóttir, Magga á Þamb- árvöllum eins og hún var að jafnaöi nefnd meðal ættingja og vina, andaðist 22. þ.m. í hárri elli, nær 92ja ára gömul. Um nokkurra ára bil haföi hún kennt sjúkleika, sem smátt og smátt sigraði líkamsþrótt- inn, en ágætu minni og and- legri heilsu hélt hún til síðustu stundar. Helst hefði hún viljað eiga síðustu stundirnar heima á heimili sínu, sem henni var svo kært, enda naut hún þar frábærrar umönnunar eigin- manns síns og Erlu dóttur þeirra, sem annaðist móöur sína af mikilli alúð og sá um heimilið. En þegar ekki voru tök á að veita henni þá hjúkr- un heima, sem hún þurfti, fór hún á Sjúkrahúsið á Hólmavík og var þar síðustu þrjár vikurn- ar og andaðist þar eins og áður segir. Tíu ára að aldri kom Magga á heimili foreldra minna, eftir að hafa misst móður sína, og ólst þar upp. Yngri bróðir hennar, Leó, kom um svipað leyti til ömmu minnar og seinni manns hennar, Skúla Gub- mundssonar, en hann var föð- urbróðir þeirra systkinanna. Þótt búin væru talin tvö, var sama sem eitt heimili væri og hver vann sem best hann mátti að heill og velgengni þessa litla samfélags. Þar áttu þau systkin- in sín æsku og unglings ár í hópi annarra unglinga á svip- uðu reki, og jafnan var mann- margt og þröngbýlt. Þurfti þvi hver ab taka tillit til annars. í Minningarsjóður Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar Styrkir til náms í verkfræði og raunvísindum Stjórn Minningarsjóðs Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar, kaupmanns, auglýs- ir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Styrkirnir eru ætlaðir nemendum í verkfræði- og raunvísindagreinum og hafa þeir einkum verið veittir þeim sem lagt hafa stund á framhaldsnám í þessum greinum. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu sam- skiptasviðs Háskóla íslands og ber jafnframt að skila umsóknum þangað. Umsóknarfrestur er til 15. október n.k. Fyrir- hugað er að tilkynna úthlutun í byrjun nóvem- ber. sumar, þegar ég hitti Möggu í síðasta sinn, spurði hún mig: „Manstu eftir því að nokkurn tíma væri ósætti á mili okkar krakkanna, er leiddi til vand- ræða?" Auðvitað minntist ég þess ekki, slíkt þekktist ekki enda umgengnishættir full- orðna fólksins fyrirmyndin. Skipulegt skólahald fyrir börn og unglinga var ekki í sveitinni á þessum tíma og byggöist fræösla þessara unglinga á því sem heimilin gátu veitt, en auk þess voru fengnir heimilis- kennarar flesta vetur og völd- ust til þess hinir ágætustu menn. Um tvítugsaldur fór Magba- Iena til Sauðárkróks og var þar vetrartíma ab læra fatasaum. Varð það henni hagnýt kunn- átta á langri ævi og marga flík- ina saumaði hún og hand- bragðið leyndi sér ekki. Magða- lena var mikil hannyrðakona og bera margir fagrir munir því vitni, heklaðir eða prjónaðir, sem hún hefur gefið vinum og vandamönnum. Fram á síðustu vikur sat hún við prjón eða hekl þegar þrautir linuðust. Haustið 1924 hélt Magðalena til Reykjavíkur og var þar við nám í ljósmæðrafræði undir handleiðslu Guðmundar Björnssonar, landlæknis, og ágætra ljósmæðra. Að námi loknu réðist hún sem ljósmóðir í Bæjarhrepps- umdæmi og gegndi því starfi um árabil, auk þess bæði í Stað- arhreppsumdæmi í V,- Hún. og Bitru- og Fellshreppsumdæmi í Strandasýslu. Magdalena var mjög fær ljós- móðir og átti láni að fagna í starfi sínu og vinsældum sæng- urkvenna, sem margar bundust henni ævilangri vináttu. Henni var starfið hugleikið og leyfi ég UMSJÓN: BJÖRN ÞORLÁKSSON Bikarkeppni Bridgesambands íslands: Sveit VÍB úr leik Þriðju umferð Bikarkeppni BSÍ lauk sl. sunnudag, 21. ágúst, og uröu úrslit eftirfarandi: Sveit Kjöts og fisks frá Hafnar- firði tók á móti sveit Halldórs Más Sverrissonar og vann Hall- dór meb 131 impa gegn 113 inpum. Sveit Sigmundar Stef- ánssonar frá Reykjavík vann sveit Sparisjóðs Keflavíkur meö 106 impum gegn 74 impum. Sveit Glitnis, Reykjavík, fór til Selfoss og spilaði vib sveit Ól- afs Steinasonar og vann sveit Glitnis með 156 impum gegn 29. Sveit Landsbréfa vann sveit Estherar Jakobsdóttur, Reykja- vík, 123-49. Sveit Ármanns Magnússonar vann hina sterku sveit VÍB 125-47. Sveit Ragnars T. Jónssonar, ísa- firöi, vann sveit Georgs Sverris- sonar með 57 impa mun. Dráttur fjórbu umferb- ar Bikarkeppni BSÍ Búið er að draga í 4. umferð Bikarkeppninnar og munu eft- irtaldar sveitir eigast vib í 8- sveita úrslitunum. Sú sveit sem talin er upp á undan fær heimaleik: S. Árm. Magnússon-Landsbréf Magnús Magnússon-Trygg- ingamiöstöðin Ragnar T. Jónsson-Sigmundur Stefánsson Glitnir-Halldór Már Sverrisson Það eru sem sagt tvær lands- byggðasveitir eftir í pottinum, sveit Ragnars frá ísafirði og sveit Magnúsar frá Akureyri en hinar sex sveitirnar eru frá Reykjavík. Ómögulegt er að spá fyrir um úrslit fyrirhugaðra leikja en frestur til ab spila um- ferðina rennur út sunnudag- inn 21. september. Þá verður ljóst hvaða fjórar sveitir koma til með að keppa til úrslita um bikarinn en núverandi bikar- meistarar eru sveit Samvinnu- ferða-Landsýnar, sem vann sig- ur á sveit Björns Theódórsson- ar í úrslitaleik í fyrra. Fjórir af libsmönnum Samvinnuferða eru enn í baráttunni nú undir merki Glitnis, en það eru Helgi Jóhannsson, Gubmundur Sv. Hermannsson, Björn Eysteins- son og Aðalsteinn Jörgensen sem hefur unnið titilinn oftar en nokkur annar íslendingur. Silfurstigamót í Sigtúni í dag, laugardaginn 27. ágúst, verður haldið silfurstigamót með peningaverðlaunum í Sig- túni 9. Þetta veröur síðasta tví- menningsmótib með silfurstig- um í sumar og eru spilarar hvattir til að mæta og hefja æf- ingar fyrir veturinn. Mótið hefst kl. 12 og lýkur kl. 18.00 Aöalsteinn jörgensen er enn meb í baráttunni um bikarmeistara- titilinn en hann hefur oftast allra Islendinga unnib Bikarkeppnina. Spilaður er Mitchell, tvær um- feröir með forgefnum spilum. Keppnisgjald er 1500 kr. á spil- ara og fer helmingur þátttöku- gjalda í verðlaun. Skráning er á skrifstofu BSÍ í síma 619360. Lesin vörn Vestur átti kost á glæsilegri vörn í sumarbridge sl. sunnu- dag þar sem suöur spilabi eitt grand. Suður/Allir * KDT3 * CT7 * D432 * 76 4 Á9 N V A * 8765 ¥ ÁD9 ♦ K76S ¥ 5432 ♦ 2 4 ÁD64 S 4 CT93 A C42 y K86 * ÁT98 4 K32 Vestur Norbur Austur Subur 1 ♦ dobl 1V pass 1 grand allir pass Útspil ♦ 6 Vestur valdi tígulútspil sem er hlutlaust útspil en sagnhafi drap á tíu heima og spilaði spaðagosa sem vestur drap meö ás. Þá kom meiri tígull, suður drap heima og spilaði spöðunum til enda. Áfköst vesturs eru vandamál. Austur frávísaði í hjarta og suður kastabi lauftvistinum. Vestur losaði sig að lokum við bæði litlu laufin. Þá kom tígull á ás vesturs og meiri tígull. Suöur drap og varb að gefa þrjá slagi í vibót en 8 slagir voru miðlungur. Vestur gat vissulega gert betur meb því að hugsa. Eina leiðin til að koma makker að hlaut að vera laufið og því var nauðsyn- legt ab kasta laufdrottningunni til að spila makker inn og fá síðan gegnumspilib í hjarta. Suður hlaut ab eiga laufkóng til ab eiga opnun og líkurnar á þrílit í laufi eru sterkar. Svo virtist hins vegar sem enginn fyndi þessa vörn við spilaborðið. Ódýr toppur Það þarf oft lítið í toppinn í tví- menningi. Sl. þriðjudagskvöld í sumarbridge sat vestur með ♦ÁGT8654 V 3 ♦ 83+Á32 og þannig gengu sagnir, austur gjafari og AV á hættu: Vestur Norbur Austur Subur - - pass 1¥ 24 34 4* 5¥ pass 6 ¥ pass pass Hverju spilar lesandinn út? Ef laufásinn var valinn getur vestur pakkað spilunum sínum í rólegheitunum og þegið topp fyrir Allt annað gefur 13 slagi. Eins og það virðist skrýtið kom aðeins einn vesturspilari út með laufásinn sem er eina spil- ið sem naegir til að halda sagn- hafa í 12 slögum. Sjá allt spilið: ♦ . ¥ KT94 ♦ ÁCT972 * G84 A ¥ ♦ 4 ÁCT86S2 3 83 Á32 N V A S A D93 ¥ DG ♦ 65 * KDT97S 4 K74 ¥ Á876S2 ♦ KD4 4 6 Eftir þessar sagnir finnst manni sem aðeins eitt útspil komi til greina en staðan gjörbreytist ef vestur ákvebur að opna í spil- inu og þá að öllum líkindum á þremur laufum. Þá gæti fram- haldið orðið þessu líkt: Vestur Norbur Austur Subur 3* 3¥ 3A 4A . pass 5* pass 6¥ Nú em AV „sannaðir" með 10 spila samlegu í laufi og þá er orðið vænlegra að leggja niður spaðaás. í Þessu tilviki er sem sagt stórvarasamt að hefja leik- inn á þremur laufum og á aust- ur ekki minni þátt í útspilinu en vestur með öguðu passi sínu. Annað er eftirtektarvert, að aðeins eitt útspil nær að hnekkja alslemmunni og hálfslemman er 100% örugg. Punktafjöldi NS er aðeins 21, en merkilegt nokk sögðu þó allir sumarspilararnir slem- muna, nokkrir að öllum líkind- um þvingab eftir hindranir AV.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.