Tíminn - 27.08.1994, Side 13
Laugardagur 27. ágúst 1994
13
þar sem tekur alveg heilan dag
aö komast í gegnum öll tækin
og skemmtunina sem því fylgir.
Dýragarðurinn, sem var tekinn
í notkun fyrir alheimssýning-
una árið 1888 er líka nokkuö
sem börnin, eða fullorðnir,
mega ekki missa af því til sýnis
eru mörg sérstök dýr t.d. snjó-
hvítur górilluapi.
Nautaatib er mikil upplifun og brábnaubsynlegur þáttur þegar spænsk borg eins og Barcelona er heimsótt. Á myndinni fœr nautabaninn nautib til ab
stanga brynvarban hestinn og ertir um leib nautib meb því ab stinga í þab spjóti. Tímamynd KG
kölluö mannlífsstemning allan
daginn. Hreyfilistamenn, tón-
listarmenn, fimleikamenn,
málarar og söngvarar eru allt
dæmi um listamenn sem auðga
lífið í miðborginni svo mikið
að erfitt er slíta sig frá henni.
Fátt er eins gott og að setjast
niöur á einu af fjölmörgum úti-
veitingahúsum á Las Ramblas
með kaldan drykk í hönd og
virða fyrir sér hið einstaka
mannlíf í miðborg Barcelona.
ALÍS býður upp
á ódýrar ferðir
til Barcelona
Ferðaskrifstofan ALÍS er ein
þeirra ferðaskrifstofa sem bjóða
upp á ferðir til Barcelona. Und-
irritaður fór í vikuferð til þess-
arar glæstu borgar. Fyrir flug og
gistingu á mjög góðu fjögurra
stjörnu hóteli (Hotel Almir-
ante) meö morgunverði voru
borgaðar rúmar 43 þúsundir
króna sem varla getur talist há
upphæð miðað við þá fjöl-
breytni sem borgin býður uppá.
Umrætt hótel er aðeins nokkr-
um metrum frá Las Ramblas og
þá er einnig stutt þaðan í Metr-
óinn sem fer í allar áttir og m.a.
á ströndina sem tekur 10 mín-
útur. Lítil þörf er því á bíla-
leigubíl í Barcelona nema
skreppa eigi kannski í lengri
ferðir yfir til landamærin til
Frakklands eða til fríríkisins An-
dorra. Tíðar járnbrautaferðir
bjóðast ferðamönnum líka til
þessara staða.
Krístján Grímsson
Strandparadís
í Barcelona
Unnendur sólarinnar fá eitt-
hvað fyrir sinn snúð því enda-
laus strandlengjan er innan seil-
ingar hvar svo sem þinn veru-
staður er í borginni. Ströndin í
Barcelona er ákjósanlegur afs-
löppunarstaður því þar býðst
ekki aðeins og mjúk og fín
strönd með heitri sólinni leik-
andi um líkamann heldur líka
fjöldinn allur af hinum ýmsu
gerðum af veitingahúsum. Á
ströndinni er líka boðið upp á
fjölbreytta afþreyingu allt frá
hjólabátum til skútusiglinga.
Ódýr verslunarborg
Flesta þær stórborgir sem við
íslendingar heimsækjum bjóða
upp á verö sem er mun lægra
en gengur og gerist hérlendis.
Þaö sama á við um Barcelona
nema hvað þar er verðið enn
lægra en þú heldur. Gróft á litiö
má segja aö hlutirnir séu í það
minnsta helmingi ódýrarari en
hér á landi og ef hitt er á útsöl-
ur í borginni þá slær hið lága
vöruverð örugglega öll met.
Matur og drykkur er það sem
Spánverjar kunna að búa til og
eru Barcelona-búar þar engin
undantekning á. Ef af einhverj-
um ástæðum ferðamönnum
líkar ekki matreiðsla innfæddra
þá geta þeir skellt sér á þekkta
matsölustaði eins og McDon-
ald's eða Pizza Hut. Matur og
drykkur er rúmlega helmingi
ódýrari í Barcelona en á íslandi
og á það bæði við um fín veit-
ingahús sem skyndibitastaði.
Barcelona - borg
fyrir börnin
Margt stendur börnunum til
boða í Barcelona. Það sem
stendur upp úr því vali er án
efa Tibidabo — tívolígaröurinn
Bikarsafn Barcelona libsins er meb ólíkindum stórt og mikib en sýningar-
skápar sem telja marga metra eru til sýnis ísérstöku galleríi vib Camp-
Nou, heimavöll libsins. Tímamynd KG
Heimsókn í dýragarbinn í Barcelona svíkur engan. Þar má sjá m.a. þenn-
an sérstæba hvíta górilluapa.
^ .? v" . *VT' mm
-
i
-
Hið gni'nahjaita Evmpu:
AgiisHilboO
5 % afsláttur ef gengið er frá greiðslu fyrir 1. september.
Höpaislattuf
2.000 kr. afsláttur á mann ef 20 eða fleiri ferðast saman.
40.000 kr. spamaður fyrir 20 manna hóp.
í 2 nætur á Hotel Italia Sari.
3 nætur: 31.300 kr.
i leiiusbu!luibii’lvlinyui rbiyli’iðii
Böm 2ja-l 1 ára fá 11.000 kr. afslátt
GUdlrfrá 15. septembertil 31. mars.
I Fulíuraffróðleikogspennandiferðamöguléikurh| Innifalið:Flug,gisting.morgunverðurogflugvallarskattar.
I ................... ' Bókunarfyrin’arierengina
Italusambandvíðsöluskrifstolurokkáir „ , ., , ..
umboðsmennumalltland,ferðaskrifstofumar cr 1111 ,LStvl *’CI1''’1 ^
eðaísíma690300(svaraðm;inud.-fösrnd.frákl.8-19 __ _ _ _»_
og á laugard. frá kl. 8-16). rLvULC
Traustur tslenskurferðafélagi
Nánati upplýsingarábls. 670 ítextavarpi
CJ r« vi.i\.ii|i
Haust-vetur94/95
Brotííararda^ir '
Brottfanirdagar Á fimmtu-, fðstu- og lauganföguni.
Hcimkomudagar. Á smuiu- og mánudögum.
Lágmarksdvöl er 2 nætur og hámarksdvöl cr 3 nætur.